Morgunblaðið - 27.02.2019, Page 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2019
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Kvikmynda- og faghátíðin Stockfish
hefst á morgun, fimmtudag, og er
nú haldin í fimmta sinn. Hún stend-
ur til 10. mars og verður sýndur
fjöldi leikinna kvikmynda og
heimildarmynda og að vanda verð-
ur stuttmyndakeppnin Sprettfiskur
einnig haldin. Ekki má svo gleyma
fjölda fyrirlestra og kvikmynda-
tengdra viðburða sem boðið verður
upp á og má kynna sér á vef hátíð-
arinnar, stockfishfestival.is.
Eins og fyrri hátíðir fer þessi
fram í Bíó Paradís og þar verða
sýndar sérvaldar og alþjóðlegar
verðlaunamyndir.
Stockfish er á vefsíðu sinni skil-
greind sem kvikmynda- og ráð-
stefnuhátíð fagfólks í kvikmynda-
bransanum og er hún haldin í
samvinnu við Bíó Paradís og öll fag-
félög í kvikmyndagreinum á Ís-
landi. Með Stockfish var Kvik-
myndahátíð Reykjavíkur endur-
vakin undir nýju nafni, en sú hátíð
var síðast haldin árið 2001 og var
upphaflega sett á laggirnar árið
1978, eins og þar stendur. Stjórn
hátíðarinnar er skipuð fulltrúum
frá fagfélögum kvikmyndaiðnaðar-
ins og markmið hátíðarinnar er að
þjóna samfélaginu sem hátíðin
sprettur úr, efla og auðga kvik-
myndamenningu á Íslandi árið um
kring og vera íslenskum kvik-
myndaiðnaði lyftistöng bæði er-
lendis og innanlands.
Tengsl mynduð
Marzibil Sæmundardóttir, fram-
kvæmdastjóri Stockfish, er spurð
að því hvort hátíðinni, sem kennd er
við skreið, hafi vaxið fiskur um
hrygg. „Já, hún er alveg búin að
skapa sér sinn sess og það er
ákveðinn karakter yfir henni.
Aðildarfélögin í kvikmyndagrein-
inni standa að henni og andrúms-
loftið er dálítið krúttlegt,“ segir
Marzibil, létt í bragði. „Það er hnit-
miðuð dagskrá þegar kemur að bíó-
myndum, vandaðar og verðlauna-
ðar myndir og svo bransaviðburðir
sem er frítt inn á, masterklassar og
pallborðsumræður og alls konar,“
segir Marzibil og leggur áherslu á
að íslenskt kvikmyndagerðarfólk
geti hitt erlent fagfólk og myndað
tengsl, t.d. fyrir framtíðarverkefni.
„Það er markvisst verið að búa til
tengsl og kynna íslenska kvik-
myndagerð á þessari hátíð,“ bendir
hún á, „sem er rosalega gott fyrir
íslenska kvikmyndagerð.“
Fyndin eða viðbjóðsleg?
Hátíðin leggur áherslu á að tefla
fram metnaðarfullri dagskrá fyrir
hátíðargesti og eru sýndar 20 sér-
valdar og alþjóðlegar verðlauna-
kvikmyndir að þessu sinni og fimm
heimildarmyndir í fullri lengd.
Stjórn hátíðarinnar sér um val á
myndum en Marzibil er ein þeirra
sem sitja í henni. „Við vitum alveg
hvert markmiðið er, þetta eru verð-
launamyndir og við reynum að hafa
þær líka fjölbreyttar,“ segir hún.
Leiknu kvikmyndirnar eru flest-
ar frá árinu 2018 og þeirra á meðal
er hin umdeilda mynd Lars von
Trier hins danska, The House That
Jack Built, sem segir af skarp-
greindum raðmorðingja sem Matt
Dillon leikur en af öðrum aðalleik-
urum má nefna Bruno heitinn
Ganz. Myndin hefur lagst heldur
misjafnlega í bæði áhorfendur og
gagnrýnendur (meðaleinkunnin 42
af 100 á Metacritic er e.t.v. til vitnis
um það) en því er von Trier svo
sannarlega vanur. Hún verður sýnd
aðeins einu sinni á Stockfish, föstu-
daginn 1. mars. „Það er auðvitað
stór hópur af fólki sem vill sjá þessa
mynd og hún er ofboðslega um-
deild, sumir sjá hana sem sótsvarta
kómedíu en aðrir sem rosalega
vonda og ógeðslega raðmorðingja-
mynd,“ segir Marzibil um myndina.
Delago með tónleika
og sérsýningu
Kvikmyndir hátíðarinnar koma
víða að, m.a. frá Norðurlöndum,
Suður-Kóreu og Kólumbíu en flest-
ar eru þó frá Evrópulöndum og þar
af ein teiknimynd, sú sem hlaut Evr-
ópsku kvikmyndaverðlaunin í fyrra,
Another Day of Life, sem segir frá
borgarastríðinu í Angóla árið 1975.
Þá eru tvær aðrar sýndar sem voru
meðal tilnefndra á sömu verðlauna-
hátíð, belgíska kvikmyndin Girl og
ítalska kvikmyndin Dogman.
Marzibil er ekki búin að sjá allar
myndirnar og segist hlakka mikið til
að sjá þær sem flestar. „Það hefur
nú ekki gengið upp hin síðustu ár,“
bætir hún við og hlær. Hún segir
dagskrána einstaklega fjölbreytta í
ár og þá bæði hvað varðar umfjöll-
unarefni og tegundir kvikmynda,
þ.e. drama, gaman, hrylling og þar
fram eftir götunum.
Í dagskránni má sjá að á nokkr-
um sýningum verður setið fyrir
svörum að þeim loknum og segir
Marzibil að þar verði leikstjórar
myndanna á ferð. Þeirra á meðal er
hinn einstaki, austurríski hang-
trommuleikari Manu Delago sem
hefur m.a. leikið með Björk. Mun
hann sýna stutta kvikmynd sína
Parasol Peak en í henni leiðir hann
sjö manna hóp tónlistarmanna um
Alpana og tekur upp með þeim tón-
list eftir sig frumsamda. Delago
mun 6. mars taka á móti gestum
með tónleikum og að þeim loknum
sýna myndina og svara spurn-
ingum.
Sem fyrr segir má finna alla dag-
skrána á stockfishfestival.is.
Morgunblaðið/Hari
Framkvæmdastjórinn „Það er hnitmiðuð dagskrá þegar kemur að bíómyndum, vandaðar og verðlaun-
aðar myndir og svo bransaviðburðir,“ segir Marzibil Sæmundsdóttir um Stockfish-hátíðina.
Fjölbreytni og fagmennska
Kvikmynda- og faghátíðin Stockfish haldin í fimmta sinn 28. febrúar til 10. mars Umdeild rað-
morðingjamynd Lars von Trier sýnd en aðeins einu sinni Verðlaunamyndir og tengslamyndun
Morðóður Matt Dillon leikur raðmorðingjann
Jack í hinni umdeildu hrollvekju Lars von
Trier, The House That Jack Built.
Fáránleiki Úr taívönsku kvikmyndinni The Great
Buddha sem segir af vinum sem starfa báðir við
illa launuð störf í bronsstyttuverksmiðju í Suður-
Taívan. Þeir uppgötva leyndarmál og í framhald-
inu fer af stað fáránleg atburðarás.
Þegar Mary Boone opnaði sitt
fyrsta gallerí á Manhattan í New
York seint á áttunda áratugnum
voru fyrstu listamennirnir á samn-
ingi hjá henni þeir Julian Schnabel
og David Salle. Báðir voru orðnir
stórstjörnur í myndlistarheiminum
nokkrum árum síðar og slíkt var
umfang gallerís Boone á níunda
áratugnum, þar sem fjöldi þekktra
listamanna var á mála – þar má
nefna Jean-Michel Basquiat, Bar-
böru Kruger, Eric Fischl, Ross
Bleckner og Brice Marden – að hún
fékk viðurnefnið „hin nýja drottn-
ing listaheimsins“.
Allra frægustu listamennirnir
reru smám saman á önnur mið eða
létust en Boone hélt þó stöðu sinni í
fremstu röð gallerista í New York
og síðustu ár hefur Mary Boone
Gallery verið á tveimur stöðum, í
Chelsea-hverfinu og á Fimmta
breiðstræti í miðborginni.
Í fyrra var Boone kærð fyrir al-
varleg skattsvik og gefið að sök að
hafa ekki stað skil á greiðslum upp
á á fjórða hundrað milljóna króna.
Við réttarhöldin gekkst Boone við
brotunum, sem fólust meðal annars
í því að skrá hagnað sem kostnað,
en kenndi um óöryggi vegna mis-
notkunar og illrar meðferðar í
æsku. Lögfræðingar hennar báðu
dómarann að dæma Boone ekki til
langrar fangelsisvistar, því þá
myndi hún loka galleríum sínum og
margir missa vinnuna því sjálf væri
hún ómissandi í rekstrinum. Það
kom fyrir lítið því hún var dæmd til
að sitja inni í allt að tvö og hálft ár.
Í samtali við The New York Tim-
es kveðst Boone loka báðum galler-
íunum þegar síðustu sýningunum
lýkur 27. apríl. Þeim verkum sem
ekki hafa selst verður þá skilað til
listamannanna og svo skellt í lás.
Gallerídrottning
pakkar saman
Mary Boone á
leið í fangelsi og
lokar galleríum
Áhrifamikil Mary Boone hefur ver-
ið áberandi í myndlistarheiminum.
Fermingarblað
Morgunblaðsins
kemur út föstudaginn 15. mars
Fermingarblaðið er
eitt af vinsælustu
sérblöðum
Morgunblaðsins.
Fjallað verður um
allt sem tengist
fermingunni.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til mánudagsins 11. mars.
SÉRBLAÐ