Morgunblaðið - 27.02.2019, Side 36

Morgunblaðið - 27.02.2019, Side 36
Steinsmiðjan Rein | Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík Sími 566 7878 | rein.is Kvarts steinn er unnin steinafurð. Við framleiðslu kvarts steinsins er nýtt það besta úr kvartsi með því að mylja steininn niður, blanda í hann litar- og bindiefnum áður en steinninn er aftur pressaður saman. Útkoman er mjög slitsterkt efni með þéttara yfirborð en hefðbundinn náttúrusteinn. silestone.com Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum. Bakteríuvörn Blettaþolið Sýruþolið Högg- og rispuþolið Kvarts steinn í eldhúsið Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri bakteríu- og sveppavörn. Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone. Hallveig Rúnarsdóttir söngkona og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari koma fram á hádegistónleikum í Salnum í Kópavogi í dag, miðviku- dag, og hefjast þeir kl. 12.15. Á efnisskránni eru fjögur sönglög eft- ir Johannes Brahms auk laga eftir íslensku tónskáldin Jórunni Viðar, Jón Leifs, Karl O. Runólfsson og Hildigunni Rúnarsdóttur. Hallveig og Hrönn í Salnum í hádeginu MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 58. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 641 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr. Gylfi Þór Sigurðsson skráði sig rækilega í sögubækurnar í gær- kvöld þegar hann skoraði tvö mörk fyrir Everton í 3:0-sigri gegn Aroni Einari Gunnarssyni og félögum í Cardiff. Þar með hefur Gylfi skorað flest mörk Íslendinga í ensku úr- valsdeildinni í knattspyrnu og sleg- ið met sem var í eigu Eiðs Smára Guðjohnsen. »2 Gylfi sló markamet Eiðs Smára ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM „Sebastian [Alexandersson] er vafalaust einn sá elsti ef ekki elsti sem leikið hefur í efstu deild karla í handknattleik. Það er í sjálfu sér athyglisvert. Ég átta mig hinsvegar ekki á af hverju Sebastian gaf kost á sér að leika með ÍR í því ásig- komulagi sem hann er. Gera verður þá kröfu til leikmanna í efstu deild að þeir beri lág- marksvirð- ingu fyrir sjálfum sér,“ skrifar Ívar Benediktsson í uppgjörspistli eftir 16. umferð Olís- deildar karla í handbolta. »2 Sögulegt en hryggilegt í Kaplakrikanum Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Á frjálsíþróttamótum að undanförnu hafa tilþrif tvennra tvíbura úr FH vakið athygli. Þetta eru systkinin Kormákur Ari og Melkorka Rán Hafliðabörn, fædd 1997, og Hinrik Snær og Þórdís Eva Steinsbörn, fædd 2000. Öll hafa þau æft frjálsar íþróttir lengi en fundið sína fjöl í 200 og 400 metra hlaupum. „Við höfum auðvitað lengi vitað hvert af öðru enda öll æft frjálsar íþróttir síðan við vorum lítil. Það eru svo um tvö ár síð- an við byrjuðum að æfa saman, enda þá öll komin upp úr unglingaflokk- um,“ sagði Þórdís Eva við blaða- mann, sem hitti hópinn á æfingu í Kaplakrika fyrr í vikunni. Æfa stíft og gengur vel Æfingarnar hjá frjálsíþróttafólki FH að undanförnu hafa verið stífar. Um síðustu helgi var Íslandsmeist- aramótið í frjálsum innanhúss og bikarkeppnin verður í Kaplakrika um næstu helgi. Er það síðasta mótið innanhúss á þessum vetri og þá er ekki seinna vænna að setja kraft í æf- ingar fyrir sumarvertíðina og fyrstu mótin sem eru í lok maí. „Okkur gekk ljómandi vel á Íslandsmeistara- mótinu um síðustu helgi þar sem við Hinrik Snær kepptum í 400 metra boðhlaupi og unnum,“ segir Kormák- ur Ari, en með þeim félögum voru í liði Bjarni Páll Bjarnason og Valur Elli Valsson. „Nei, ég get ekki sagt að það sé einhver metingur milli okkar Kor- máks Ara. Þvert á móti; við veitum hvor öðrum kraft og stuðning,“ segir Hinrik Snær. Hluti af skipulagi dagsins Tvíburarnir tvennir segja að þau hafi hvert í sínu lagi fundið fljótt á æfingaferli sínum að spretthlaup og skemmri vegalengdir hentuðu þeim vel. „Ég byrjaði 15 ára í 400 metra hlaupi. Mér finnst gaman að taka sprettinn,“ segir Melkorka Rán og bætir við að þau Kormákur bróðir hennar séu samrýnd og fylgist að. Móðir þeirra er Adda María Jó- hannsdóttir og stjúpfaðir Úlfar Daní- elsson og dætur hans eru Silja og Sara, þekktar frjálsíþróttakonur fyrr á tíð. Hafi þær vakið áhuga þeirra á sportinu. Þau Þórdís Eva og Hinrik Snær benda á hinn bóginn á að for- eldrar þeirra, þau Steinn Jóhanns- son, nú rektor MH, og Súsanna Helgadóttir, séu bæði frjálsíþrótta- fólk sem hafi verið í landsliðinu. Þau systkinin hafi fengið áhugann frá þeim. „Nei, þótt það sé nóg að gera í framhaldsskólanámi eru íþróttirnar einfaldlega hluti af skipulagi dags- ins,“ segir Hinrik. Í svipaðan streng tekur Melkorka Rán „Mér þætti sá dagur sérstakur ef engar væru æf- ingarnar eða íþróttirnar. Þetta er mjög skemmtilegt og áhugi á frjáls- um íþróttum er að aukast.“ Metnaður og markmið Öll leggja þau mikinn metnað í æf- ingar sínar og ætla sér að ná langt í framtíðinni. Þannig segist Þórdís ætla á EM unglinga í frjálsum íþrótt- um sem verður í Svíþjóð í sumar. Í 400 metra hlaupi er lágmarkið 55,90 sekúndur. Því er Þórdís búin að ná og því er í hendi farmiði á mótið og þangað stefnir Hinrik Snær líka. Þau Melkorka Rán, sem er nýbúin að ná sér eftir meiðsli, og Kormákur Ari ætla sér ekki síður langt og 22 ára að verða setja þau markið á stórmót fullorðinna. Morgunblaðið/Hari Tvíburarnir Kormákur Ari og Melkorka Rún Hafliðabörn til vinstri og Hinrik Snær og Þórdís Eva Steinsbörn. Spretthlaupin henta vel  Tvennir tvíburar í fremstu röð í frjálsum íþróttum hjá FH

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.