Morgunblaðið - 22.03.2019, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 22.03.2019, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MARS 2019 Það veldur í senn undrun og sær-indum að sjá hvernig lögfræði- elíta landsins og fleiri slíkar hafa tapað áttum. En það gerist víðar eins og Jón Magnússon fv. alþingis- maður nefnir:    Eins og víða ann-arsstaðar þá þrýstir viðskipta- elíta Sviss á um, að gengið verði að úr- slitakostum Evr- ópusambandsins,“ skrifar Jón og segir að í marga í henni virðist langtímahagsmunir Sviss og fullveldi skipta minna máli.    Síðan bætir hann við: „Á samatíma óttast margir innan verkalýðshreyfingarinnar að rétt- indi og launakjör láglaunafólks verði skert þegar vinnulöggjöfinni verði breytt til samræmis við regl- ur Evrópusambandsins og straum- ur aðkomuverkafólks þrýsti lág- markslaunum niður.    Á sama tíma og Sviss ætlar sérekki að samþykkja afarkosti frá Brussel og Bretar vonandi ekki heldur, ætlar Alþingi Íslands að gangast undir ok Evrópusambands- ins í raforkumálum, með því að samþykkja orkupakka, sem í raun kemur okkur ekkert við. Lítil eru geð guma hefði einhverntíma verið sagt.    Evrópusambandið er í vaxandimæli farið að hegða sér eins og herraþjóð, sem lætur sig engu skipta hvar þeir skilja eftir sig sviðna jörð og óvini þar sem áður voru vinir.    Engu máli virðist skipta þóBrusselvaldið nái sínu fram með illu og afarkostum á for- sendum genginna arfakónga sem höfðu það sem einkunnarorð: „Vér einir vitum.““ Jón Magnússon Ístöðulaust lið STAKSTEINAR Aðalfundur í Valsmönnum hf. verður haldinn föstudaginn 5. apríl nk. kl. 12:00 að Hlíðarenda við Laufásveg í Reykjavík. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar vegna liðins starfsárs. 2. Ársreikningur félagsins ásamt endurskoðunarskýrslu lagður fram til staðfestingar. 3. Ákvörðun um hvernig fara eigi með tap eða hagnað ársins. 4. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna. 5. Kjör stjórnar. 6. Kjör endurskoðanda. 7. Önnur mál. Dagskrá, tillögur, ársreikningur, skýrsla stjórnar og skýrsla endurskoðanda vegna ársreiknings, munu liggja frammi á skrifstofu félagsins að Hlíðarenda við Laufásveg í Reykjavík til sýnis fyrir hluthafa fram að fundinum. Hluthafar sem hyggjast skoða gögnin gefi sig fram við framkvæmdastjóra félagsins, Sigurð Lárus Hólm. Reykjavík, 20. mars 2019 Stjórn Valsmanna hf. AÐALFUNDUR VALSMANNA hf. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Uppsjávarskipin voru mörg á heimleið í gær eft- ir kolmunnaveiðar á alþjóðlegu hafsvæði vestur af Írlandi, en um þriggja sólarhringa sigling er til landsins. Afli hefur verið ágætur síðustu vik- ur, en veður og sjólag oft verið erfitt. Nú virðist kolmunninn hins vegar að mestu genginn inn í írska lögsögu. „Hann er nánast eins og dagatal. 20. mars hverfur allur kolmunni inn í írsku landhelgina og heldur síðan í norð- austur. Við náum honum svo aftur í færeyskri lögsögu eftir fyrstu viku af apríl,“ sagði Ingi- mundur Ingimundarson, útgerðarstjóri upp- sjávarskipa hjá HB Granda. Þegar kemur fram í júlí fara uppsjávarskipin væntanlega til makríl- veiða. Samkvæmt yfirliti á vef Fiskistofu var í gær búið að landa 73 þúsund tonnum af vertíðinni og er því eftir að veiða um 180 þúsund tonn af afla- heimildum. Talsvert er af kolmunna í skipunum sem voru á landleið í gær og sum þeirra með fullfermi. Tölur um afla eru því nokkru hærri. aij@mbl.is Kolmunninn nánast eins og dagatal  Skipin á heimleið eftir veiðar í alþjóðlegri lögsögu vestur af Írlandi Morgunblaðið/Börkur Kjartansson Bræla Guðrún Þorkelsdóttir SU á kolmunnaveið- um fyrir ári, veður og sjólag getur verið erfitt. „Þessi hópur mun fræðast um hvernig best sé að endurheimta röskuð vistkerfi, græða upp illa farið land og hvernig best sé að nýta land á sjálfbæran hátt. Þessir nemendur koma allir frá þróunarlöndum og er námið hluti af alþjóðlegri þróun- arsamvinnu Íslands,“ segir hún. Vel menntaður hópur Nemendurnir hafa allir háskóla- próf og starfa sem sérfræðingar hjá Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Alls er nú 21 nemandi skráður í Landgræðsluskóla Háskóla Samein- uðu þjóðanna sem hófst fyrir skömmu, en um er að ræða árlegt sex mánaða námskeið. Aldrei fyrr hafa jafn margir nemendur verið skráðir á námskeiðið. „Við erum að hefja núna árlegt sex mánaða nám í landgræðslu og sjálfbærri landnýtingu og erum við núna í ár með okkar stærsta hóp til þessa,“ segir Hafdís Anna Ægis- dóttir, forstöðumaður Landgræðslu- skóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna, í samtali við Morgunblaðið og bætir við að hópurinn sé frá alls tíu ríkjum í Afríku og Mið-Asíu. Er um að ræða nemendur frá Gana, Níger, Eþíópíu, Malaví, Úg- anda, Lesótó, Mongólíu, Kirgistan, Tadsikistan og Úsbekistan. Aðspurð segir Hafdís Anna að öll þessi ríki hafi sent nemendur hingað til lands áður, en þetta sé þó í annað skipti sem nemandi frá Tadsikistan sækir Ísland heim í þessum tilgangi. stofnunum sem vinna að land- græðslu, jarðvegsvernd eða stjórn- un eða eftirliti landnýtingar. Megnið af tímanum er hópurinn í húsnæði Landbúnaðarháskóla Ís- lands á Keldnaholti en auk þess um tvo mánuði hjá Landgræðslunni í Gunnarsholti. Þessar tvær stofnanir standa að skólanum. Hann er kost- aður af utanríkisráðuneytinu sem hluti af þróunarsamvinnu Íslend- inga. Metfjöldi nemenda skráður í Landgræðsluskóla SÞ  Hópurinn er frá 10 ríkjum og er við nám í sex mánuði Ljósmynd/Áskell Þórisson Landgræðsluskóli Hópurinn sem nú stundar nám er frá 10 ríkjum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.