Morgunblaðið - 22.03.2019, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 22.03.2019, Qupperneq 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MARS 2019 ✝ Steindór V.Sigurjónsson fæddist í Reykjavík 26. júlí 1943. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 14. mars 2019. Foreldrar hans voru Sigurjón Haf- dal Guðjónsson málari, f. 10. febr- úar 1921, d. 4. des- ember 1978, og Guðfinna Halldóra Steindórs- dóttir húsmóðir, f. 30. ágúst 1926, d. 11. mars 1984. Steindór var elstur í fimm systkina hópi, næst var Þuríður Hafdal, f. 7. október 1946, d. 30. júlí 1978, Guðmundur, f. 21. október 1948, d. 25. nóvember 2001, Val- gerður, f. 1. desember 1950, og Guðfinna, f. 14. mars 1956. 26. júlí 2013 giftist Steindór eftirlifandi eiginkonu sinni Hjördísi Hilmarsdóttur, f. 19. apríl 1951. Þau hófu sambúð 1. janúar 1995. Hjördís er dóttir Aðalheiðar Bergsteinsdóttur húsmóður frá Reykjavík, f. 31. unnusti hennar er Davíð Rafn Kristjánsson, f. 1. apríl 1982. Stjúpsonur Hjördísar er Rafn Óttar Gíslason, f. 1. apríl 1967, kona hans er Guðrún Brands- dóttir, f. 2. janúar 1983. Barnabörn Steindórs og Hjör- dísar eru 16 og barnabarna- börnin fimm. Steindór bjó í Reykjavík til 2003 er hann flutti á Fljótsdals- hérað að Gunnlaugsstöðum þar sem hann bjó ásamt Hjördísi til dauðadags. Steindór hóf starfs- feril sinn sem ungur maður hjá föður sínum við málarastörf og nam síðar sjálfur málaraiðn og starfaði sem málari mestan hluta ævinnar. Síðar starfaði Steindór sem málari með bróður sínum, bræðrabörnum, sonum og stjúpsyni. Steindór stundaði AA-fundi í Reykjavík í áratug, allt þar til hann flutti á Austurland. Fyrir 25 árum náði hann tökum á Bakkusi og veitti síðar ófáum öðrum liðsinni í baráttunni við áfengisbölið. Síðustu fimmtán árin ræktaði Steindór ásamt konu sinni Si- berian Husky-hunda undir nafni Múlaræktunar. Útför Steindórs fer fram frá Garðakirkju í dag, 22. mars 2019, og hefst athöfnin klukkan 14. ágúst 1929, og Hilmars Bjarnason- ar sendibílstjóra frá Sumarliðabæ í Rangárvallasýslu, f. 23. ágúst 1930, d. 9. júní 2009. Fyrri kona Steindórs var Áslaug Magnús- dóttir, f. 9. ágúst 1940, þau skildu. Börn Steindórs og Áslaugar eru: 1) Magnús, f. 23. júlí 1965, kona hans er Ellý H. Guðmundsdóttir, f. 26. mars 1968. 2) Sigurjón, f. 21. maí 1967, kona hans er Sól- björg Reynisdóttir, f. 18. febr- úar 1964. 3) Guðfinna, f. 15. mars 1969. 4) Steindór, f. 27. júlí 1971. Börn Hjördísar eru: 1) Hilmar Gunnlaugsson, f. 20. apríl 1969, kona hans er Stefanía Valdi- marsdóttir, f. 20. mars 1970. 2) Sæmundur Þór Sigurðsson, f. 9. september 1974, kona hans er Bergþóra Kristjánsdóttir, f. 22. janúar 1978. 3) Dagný Berglind Gísladóttir, f. 27. janúar 1985, Í dag kveðjum við hinstu kveðju Steindór V. Sigurjóns- son sem lést 14. mars síðastlið- inn. Steini, eins og hann var ávallt nefndur, var afar sterkur persónuleiki með ákveðnar skoðanir á mönnum og málefn- um en hann var með léttan og skemmtilegan húmor. Þannig voru fyrstu kynni mín af Steina og mannkostum hans. Hann bar líka mikla umhyggju fyrir dýrum. Það var unun að fylgj- ast með hve sterk tengsl voru milli hans og husky-hundanna sem þau hjón, Hjördís Hilmars- dóttir, ræktuðu af mikill alúð og kunnáttu enda bæði miklir dýravinir og náttúruunnendur. Við Aðalheiður, tengdamóðir hans, heimsóttum hann og Hjördísi til Gunnlaugsstaða. Það voru afar ánægjulegar ferðir, Steini og Hjördís ásamt hjörðinni sinni sem stóðu í röð- um við hliðið og heilsuðu okkur á sinn hátt. Það eru yndislegar minningar sem við eigum frá þessum heimsóknum sem við nutum í ríkum mæli. Steini átti við vanheilsu að stríða síðustu ár sem voru hon- um afar erfið, en húmorinn var alltaf til staðar. En sláttu- maðurinn slyngi hafði betur að lokum. Steini lést eins og fyrr segir þann 14. mars á Sjúkra- húsinu á Akureyri. Við Aðal- heiður þökkum Steina fyrir vegferð hans og vottum Hjör- dísi og aðstandendum hans okkar dýpstu samúð. Veri hann að eilífu góðum vættum falinn. Aðalheiður Bergsteinsdóttir og Aðalsteinn Dalmann Ok- tósson. „Það er alltaf sól á Egils- stöðum.“ Steini fluttist búferlum með móður minni frá höfuðborginni til nágrennis Egilsstaða fyrir ríflega 15 árum síðan. Hann var búinn að missa starfsorku sína, hafði nokkrum árum áður verið greindur með stækkandi hjarta og lungnasjúkdóm. Þá voru líklega um þrjú ár eftir af þeim sjö sem læknar höfðu gef- ið honum vonir um ólifuð þegar hann greindist. Ég hafði um nokkurt skeið reynt að selja Austurlandið fyrir honum, ekki síst með staðhæfingum um hið milda loftslag sem hér ríkir. Að það væri alltaf sól á Egils- stöðum. Það tókst að ná þeim skötuhjúum austur. En það var ekki söluræðan mín sem réð för. Það var ástin. Hann elti ást- ina. Er það ekki ótrúlegt, að því meira sem þú elskar einhvern, því meira áttu aflögu af ást fyr- ir aðra? Steini. Ég náði aldrei að þakka þér. Fyrir það sem þú varst henni mömmu. Í nábýli okkar síðustu 15 árin hef ég séð gagnkvæma ást ykkar þróast og dýpka með sérstök- um hætti. Þinn svarti húmor og hrjúfa skinn voru það sem birt- ist í fyrstu en þú mýktist og varðst opnari um tilfinningar eftir því sem árin liðu. Þín ást varð dýpri. Þín sól reis á hverj- um degi á Gunnlaugsstöðum og veitti þeim hlýju sem bjuggu þar, komu þangað eða tengdust ykkur. Það er líklega ekki fyrr en nú þegar þú ert fallinn frá, sem ég átta mig fyllilega á hve djúpstæð tengsl ykkar mömmu voru. Ást. Vinir. Félagar. Svo ólík, en samleið ykkar óx með hverju ári. Faðmlag þitt pass- aði móður minni líkt og vett- lingur hönd sem leitar hlýju. Líklega er fátt sem endur- speglar ykkar samband betur en hundarnir ykkar. Umhirðan, tilfinningarnar, stoltið. Vin- áttan. Ekki eingöngu þeir hundar sem nutu þess að búa á Gunnlaugsstöðum, heldur allir sem Múlaræktuninni tilheyrðu og fjölskyldur þeirra. Þú fékkst mun lengra ævi- kvöld en búast mátti við fyrir 20 árum. Ljóst er að þar hefur hamingja ykkar mömmu með hvort annað, hundana ykkar og aðstæður á Gunnlaugsstöðum haft mikil áhrif. Þú áttir mót- leik við sjúkdóminum sem lýsti sér með stækkandi hjarta, þú leyfðir því líka að stækka til- finningalega. Þó Skuggi og Berg gangi nú um og leiti vinar síns og hús- bónda og þó móðir góð, þú komir ei lengur heim í fé- lagsskap Steina, þá er eitt víst. Það verður alltaf sól á Gunn- laugsstöðum. Elsku Sigurjón, Guðfinna, Magnús, Steindór og fjöl- skyldur. Við sendum ykkur innilegar samúðarkveðjur vegna fráfalls föður ykkar, tengdaföður, afa og langafa. Hilmar, Stefanía og fjölskylda. Steini frændi... Hvar byrjar maður að skrifa um svona kar- akter. Það var alltaf gaman að hitta eða heyra í Steina frænda, þó það hafi verið of sjaldan eins og gerist. Alltaf mátti eiga von á kommenti sem kom gersam- lega af kantinum. Rétt að hafa þau ekkert eftir hér. Ég vann með þeim bræðrum, Steina og pabba, eitt sumar í málningunni og þeir létu sér ekki leiðast í vinnunni. Brand- ararnir leyndust í hverju horni, við máluðum meðal annars lög- reglustöðina í Hafnarfirði sem var drjúg uppspretta. Kapp var oft meira en forsjá þegar þurfti að koma málningu á, í veðurfari sem lítt er treyst- andi. Eins og þegar körfubíll í fullri reisn með þá bræður hall- aði sér til hliðar, blessunarlega upp að húsinu. Álstigar voru framlenging á þá líkt og stultur og þeir fóru jafnan ekki niður til að færa þá til, stukku frekar í stiganum til hliðar. Svo var um hávetur keyrt á Ísafjörð til að mála bæinn (hvítan í það skiptið) á smábíl í snarvitlausu veðri yfir heiðar. Allt gekk þetta þó stórslysa- laust, svo líklega var þetta ekki alveg jafn kærulaust og það leit út fyrir óhörðnuðum strump- inum mér. Þeir áttu það líka sameig- inlegt bræðurnir að vera miklir dýravinir og áttu ófáa páfa- gauka og hunda í gegnum tíðina. Páfagaukunum var kennd alls kyns vitleysa sem gaman var að koma fólki á óvart með þegar síst skyldi. Það var skemmtileg viðbót þegar Steini skellti sér á Fa- cebook á gamals aldri, þar skein húmorinn sem og dýra- vinurinn sterklega í gegn. Steini fór svo algerlega í hundana þegar flutt var austur og hefði sennilega hvergi unað sér betur og alltaf var gaman að heimsækja „frænda sem á hundana“, eins og sú stysta kallaði hann, þegar sumarleyfin lágu á Austurlandið. Elsku frændsystkini og Hjördís, við samhryggjumst innilega í missi ykkar. Steindór og fjölskylda. „Hæ elskan mín,“ var alltaf það fyrsta sem þú sagðir við mig þegar við hittumst og það var líka það síðasta sem þú sagðir við mig þegar ég hélt í höndina á þér. Mikið þykir mér vænt um þá stund. Það var dýrmætt að fá að fylgja þér síð- asta spölinn, elsku Steini. Þið pabbi voruð mjög líkir. Bæði í útliti og með góðan húmor sem þið báðir hélduð í eins lengi og þið höfðuð heilsu til. Þú áttir það til að spyrja spurninga í fjölskylduboðum hátt svo allir heyrðu um ým- islegt, sumt óviðeigandi en það framkallaði alltaf bros. Þetta varst þú, skemmtilegur með þinn gálgahúmor. Við hittumst ekki oft en þeg- ar við hittumst þá áttum við góðar stundir. Nú síðast síðast- liðið sumar þegar við systur ásamt fjölskyldum komum austur til ykkar Hjördísar að skoða hvolpana. Nú hafa bæst við fleiri fal- legar stjörnur á himininn. Bræðurnir eru saman á ný. Hvíldu í friði, kæri frændi, minning þín er ljós sem lifir. Þín, Ástrós. Steini, mágur okkar og vin- ur, var alltaf í okkar huga Steini hennar Hjördísar, stóru systur okkar og leiðtoga í átta barna fjölskyldu af Óðinsgöt- unni. Hann var sambýlismaður hennar og vinur, síðar eigin- maður, í mörg ár og þau voru flott saman, eins ólík og þau voru. Þau voru þó samrýnd í hundarækt og hundauppeldi og það var magnað að sjá sam- band Steina við Husky- hundana þeirra og gagnkvæma væntumþykju og virðingu milli hunda og manns. Steini var höfðingi heim að sækja, eldaði góðan mat og gerði vel við þá gesti sem komu til þeirra Dísu á Gunnlaugsstaði, skammt utan við Egilsstaði. Reyndar tuðaði hann gjarn- an við gestakomur, sagði stund- um „eruð þið komin, aftur“ við fólk sem hann hafði ekki séð í langan tíma. En það var húmorinn hans. Hann átti það til að nefna „reikninginn“ við fólk, áður en það yfirgaf Gunnlaugsstaði og þóttist þá ætlast til að fólk greiddi fyrir gistingu og mat. Við elskuðum Steina og húmor- inn hans, gráan og stundum svartan. Og hann kunni vel að meta þegar fólk svaraði honum í sömu mynt. Nú hefur þessi góði og skemmtilegi maður kvatt þessa jarðvist og eftir situr söknuður og sorg, ekki síst hjá elsku stóru systur okkar, Hjördísi, sem sér ekki bara á bak eigin- manni sínum heldur besta vini. Megi algóður Guð styrkja Hjördísi og fjölskyldu, börn Steina og fjölskyldur þeirra í sorginni. Guð blessi minningu Stein- dórs V. Sigurjónssonar. Hörður, Bergrós og Jón Hilmar Hilmarsbörn og fjölskyldur. Steini var vinur minn og ríkti gagnkvæm væntumþykja og virðing okkar á milli. Kynni okkar hófust sumarið 2010 þeg- ar ég var svo lánsöm að kynn- ast hans góðu konu, Hjördísi Hilmarsdóttur, sem síðan þá hefur verið mín besta vinkona. Þau sjö ár sem ég bjó á Egils- stöðum var ég tíður gestur á heimili þeirra hjóna að Gunn- laugsstöðum. Steini var listakokkur og því mikill happafengur í því þegar hann bauð mér í mat sem hann gerði gjarnan. Ég á fjölmargar ljúfar og góðar minningar frá samskipt- um okkar, ein stendur þó upp- úr; Það er fallegur sumardag- ur, logn, sól og við tvö sitjum undir húsvegg á Gunnlaugs- stöðum, Skuggi liggur við fæt- ur Steina og hinir hundarnir ekki langt undan, öll njótum við góða veðursins. Þá fer Steini að segja mér frá því hve þakklátur hann sé fyrir það líf sem hann eigi með Hjördísi og hundunum á Gunn- laugsstöðum. Hann sagði mér frá lífi sínu Steindór V. Sigurjónsson ✝ EiríkurÁgústsson fæddist í Hafnar- firði 29. nóvember 1919. Hann and- aðist á Hrafnistu í Hafnarfirði 8. mars 2019. Eiríkur var son- ur hjónanna Ágústs Magn- ússonar skipstjóra, f. 2. ágúst 1888 í Tungu í Grafningi, d. 10. októ- ber 1950, og Sesselju Eiríks- dóttur húsfreyju, f. 3. febrúar 1885 í Biskupstungum, d. 21. mars 1960. Systkini Eiríks voru Þórarinsson, þau eiga þrjár dætur, Áslaugu Ósk, Björgu og Sólveigu. 2) Hafstein, f. 27. nóvember 1950, dóttir hans er Linda Björk, 3) Ágúst Þór, f. 27. nóvember 1957, kvæntist Guð- björgu Þórisdóttir, þau skildu. Börn þeirra eru Haukur Þór, Ei- ríkur Þór, Davíð Hringur og Tirsa Sól. Unnusta Ágústar Þórs er Ratdawan Khampranom. 4) Haraldur Ragnar Ólafsson, f. 4. júlí 1962, eiginkona hans er Haf- dís Jensdóttir, dóttir hennar er Berglind Eir Magnúsdóttir. Barnabarnabörn Eiríks og Ás- laugar eru tólf talsins. Síðustu árin bjó Eiríkur á Hrafnistu í Hafnarfirði. Útför Eiríks fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 22. mars 2019, klukkan 13. þau Hildur Guðrún húsfreyja, f. 19. september 1922, d. 6. nóvember 1966, og Sigurbjörn húsa- smiður, f. 29. mars 1924. Eiríkur kvæntist Áslaugu Eyþórs- dóttur, f. 20. nóv- ember 1922, d. 12. október 2011, þann 19. mars 1949. Þau eignuðust þrjú börn og tóku að sér eitt fósturbarn, Harald Ragnar son Hildar Guðrúnar, 1) Sesselju, f. 2. júní 1949, eigin- maður hennar er Alfreð Dan Nú hefur pabbi kvatt þennan heim en hann hefði orðið 100 ára síðar á árinu. Pabbi ólst upp í Blöndalshúsi, Suðurgötu 9 í Hafnarfirði. Átta ára gekk hann í Barnaskóla Hafnarfjarðar og 22 ára hóf hann nám í skipa- smíði við Iðnskólann í Hafnar- firði, þaðan sem hann útskrif- aðist skipasmiður 1945. Starfaði hann við skipasmíðar eftir það, fyrst hjá Júlíusi Nýborg í 11 ár og þar á eftir með Sigurbirni bróður sínum í tvö ár. Árið 1958 hóf hann störf í skipasmíðastöð- inni Bátalóni við Hvaleyrarlón og vann þar til ársins 1991 er hann lét af störfum. Áður en pabbi lærði skipa- smíði vann hann ýmis störf, m.a. sem sendisveinn hjá versl- un Þorvaldar Bjarnasonar á Strandgötunni, við bílaviðgerðir hjá frænda sínum Sveinbirni Magnússyni í Skuld, við vega- gerð og hjá breska hernum á stríðsárunum. Þrjú sumur var hann á síldveiðum á Málmey og togaranum Rán. Síðar fór hann nokkra túra sem smyrjari á flutningaskipinu Vatnajökli í sumarleyfum sínum þegar hann vann í Bátalóni. Pabbi kynntist mömmu árið 1945 og giftu þau sig 1949. Eignuðust þau þrjú börn auk þess að taka eitt í fóstur. Fyrstu hjúskaparárin bjuggu þau á Suðurgötu 73 í Hafn- arfirði en fluttu árið 1958 í hús sem þau reistu sér við Birki- hvamm 4 í Hafnarfirði. Birki- hvammurinn var þeirra heimili og athvarf allt þar til mamma fór á hjúkrunarheimili 2008 og pabbi fór á Hrafnistu 2010. Mamma lést árið 2011. Pabbi var mikill fjölskyldu- maður og naut þess að búa fjöl- skyldu sinni gott heimili og styðja börn sín og síðar barna- börn sem best hann gat. For- eldrar okkar höfðu gaman af því að ferðast og skoða landið og gerðu það jafnan þegar tæki- færi gafst. Árið 1964 eignuðust þau sinn fyrsta bíl, Ford Zodiac, og var það talsverður viðburður. Bíllinn var óspart notaður til ferðalaga um landið á sumrin. Um helgar var farið í styttri ferðir í námunda við Hafnarfjörð eða farið á Þing- velli og Gullfoss. Árið 1995 fóru pabbi og mamma í ferðalag til útlanda. Fóru þau með Nor- rænu frá Seyðisfirði til Færeyja og Danmerkur. Þaðan var keyrt til Þýskalands, Svíþjóðar og Noregs, og svo var ekið að nýju um borð í Norrænu og siglt heim. Ferðin var eina utan- landsferð mömmu og eina skemmtiferðin til útlanda hjá pabba og var hún lengi í minn- um höfð. Þegar tími gafst til sinnti pabbi áhugamálum sínum sem voru fjölmörg og tengdust fjöl- skyldunni aðallega. Hann hafði gaman af því að veiða og taka ljósmyndir en filmurnar fram- kallaði hann sjálfur. Þá höfðu pabbi og mamma gaman að því að fara í leikhús og kirkjuferðir á sunnudögum og á jólum og páskum voru fastur liður hjá þeim. Heilsa pabba var að jafn- aði góð en erfið störf við skipa- smíðar tóku sinn toll. Síðustu árin dvaldi hann á Hrafnistu í Hafnarfirði. Naut hann þar góðrar umönnunar og félagsskapar og eignaðist þar marga góða vini sem hann mat mikils og batt traust bönd við. Ég minnist föður míns sem lít- illáts, ósérhlífins og duglegs manns sem naut sín best í faðmi fjölskyldu og vina. Pabbi, ég vil þakka þér sam- fylgdina og fyrir allar þær góð- ar stundir sem við áttum saman. Hvíl í friði. Hafsteinn. Með fáeinum orðum minnist ég elsku afa míns, Eika afa, eins og ég kallaði hann alltaf. Hann hefði orðið 100 ára í lok nóvember. Við ræddum stund- um hvað hann væri búinn að upplifa miklar breytingar á sinni löngu ævi. Það er sárt að missa ástvin sem hefur verið hluti míns daglega lífs frá því ég man eftir mér. Ótal minn- ingar sækja á hugann um góðan mann. Fyrstu ár ævi minnar bjuggu foreldrar mínir í risinu á Birkihvamminum hjá ömmu og afa og alla mína æsku leit ég á heimili þeirra sem mitt annað heimili. Okkur systrum þótti alltaf gott að koma í heimsókn á Birkihvamminn enda ætíð mjög velkomnar. Afi var einstaklega glaðlynd- ur og ljúfur maður, alltaf blístr- andi eða syngjandi og aldrei sá ég hann skipta skapi. Ég man eftir því þegar hann kom heim í hádegismat úr vinnunni í Báta- lóni og fékk sér í pípuna sína. Mér þótti alltaf lyktin svo góð af tóbakinu hans, þessi afalykt, og svo fór hann aftur í vinnuna með Thermos-kaffibrúsann sinn með sér. Afi var alltaf vel til fara og ávallt með sixpensarann á Eiríkur Ágústsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.