Morgunblaðið - 22.03.2019, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MARS 2019 25
Atvinnuauglýsingar
Blaðberar
Uppl veitir
Morgunblaðið óskar eftir
blaðbera
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir
Litlahlíð, Eyjafjarðarsveit, fnr. 215-9941 , þingl. eig. Anna Hafdís The-
odórsdóttir og Friðrik Sigtryggur Bjarnason, gerðarbeiðendur Eyja-
fjarðarsveit og Arion banki hf., þriðjudaginn 26. mars nk. kl. 13:20.
Aðalstræti 62, Akureyri, fnr. 214-4697 , þingl. eig. EXT ehf.,
gerðarbeiðendur Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda og Sýslumaðurinn á
Norðurlandi eys, þriðjudaginn 26. mars nk. kl. 10:15.
Vættagil 32, Akureyri, fnr. 222-6608 , þingl. eig. Fanney Sigrún In-
gvadóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Íslandsbanki hf.,
þriðjudaginn 26. mars nk. kl. 11:00.
Möðrufell, Eyjafjarðarsveit, fnr. 152730 , þingl. eig. Möðrufell ehf.,
gerðarbeiðandi Arion banki hf., þriðjudaginn 26. mars nk. kl. 14:10.
Hamarstígur 18, Akureyri, fnr. 214-7069 , þingl. eig. Inga Berglind Bir-
gisdóttir og Ívar Örn Björnsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og
Íslandsbanki hf., þriðjudaginn 26. mars nk. kl. 10:30.
Austurvegur 13, Akureyri, 50% eignarhluti, fnr. 215-6243 , þingl. eig.
Almar Björnsson, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Norðurlandi eys,
fimmtudaginn 28. mars nk. kl. 12:00.
Skógar 1 Refahús, Norðurþing, fnr. 216-6582 , þingl. eig. Árni Logi Si-
gurbjörnsson, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf.,
miðvikudaginn 27. mars nk. kl. 12:00.
Jórunnarstaðir, Eyjafjarðarsveit, fnr. 152667 , þingl. eig. Magnús Þór
Magnússon og Elmar Þór Magnússon, gerðarbeiðendur
Íbúðalánasjóður og Valitor hf., þriðjudaginn 26. mars nk. kl. 14:40.
Hvanneyrarbraut 35, Fjallabyggð, fnr. 213-0510 , þingl. eig. Magnús
Stefán Jónasson, gerðarbeiðendur Arion banki hf. og Fjallabyggð,
fimmtudaginn 28. mars nk. kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
21. mars 2019
Eyjardalsvirkjun - Aðal- og deiliskipulag
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar samþykkti þann 24. janúar 2019 að auglýsa skv. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 31. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi fyrirhugaðrar Eyjardalsvirkjunar og samsvarandi breytingu á
Aðalskipulagi Þingeyjarsveitar 2010-2022 þar sem skilgreint er nýtt 13,5 ha iðnaðarsvæði I-09 fyrir vatnsaflsvirkjun í
Eyjardal í landi Hlíðarenda í Bárðardal. Jafnframt er skilgreint nýtt efnistökusvæði E-48 á skipulagssvæðinu. Áætluð
efnistaka er allt að 5.000 m³ á allt að 0,5 ha svæði.
Tillögurnar gera ráð fyrir að fyrirhuguð virkjun verði rennslisvirkjun án teljandi miðlunar. Virkjað fall um 180 m og
virkjað rennsli um 500 l/s og uppsett afl 0,7 MW. Gert er ráð fyrir að inntaksstífla yrði á Eyjardal í um 350 m hæð
yfir sjávarmáli og ofan hennar myndaðist allt að 1,0 ha inntakslón, að mestu í farvegi árinnar. Inntakslón og efri hluti
þrýstipípu yrðu ekki sýnileg frá þjóðvegi. Stöðvarhúsið yrði í brekkurótum í landi Hlíðarenda sunnan Eyjardalsár.
Tillögunum fylgir einnig umhverfisskýrsla sem er unnin skv. lögum um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Tillöguuppdrættir með greinargerðum munu liggja frammi á skrifstofu Þingeyjarsveitar, Kjarna, 650 Laugar, frá og
með föstudeginum 22. mars með athugasemdarfresti til og með föstudeginum 3. maí 2019. Þá eru tillögurnar einnig
aðgengilegar á heimasíðu Þingeyjarsveitar:
https://www.thingeyjarsveit.is/is/stjornsysla/skipulagsmal/deiliskipulag/tillogur-i-auglysingu
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Frestur til
að skila inn athugasemdum rennur út föstudaginn 3. maí 2019. Skila skal athugasemdum skriflega til skrifstofu
Þingeyjarsveitar, Kjarna, 650 Laugar og/eða í tölvupósti á netfangið: helga@thingeyjarsveit.is. Þeir sem ekki gera
athugasemdir við tillögurnar innan tilskilins frests teljast þeim samþykkir.
Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður.
Guðjón Vésteinsson,
skipulagsfulltrúi,
gudjon@skutustadahreppur.is
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Zumba Gold kl. 10.30.
BINGÓ kl. 13.30, veglegir vinningar. Kaffi kl. 14.30-15.20.
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16.
Botsía með Regínu kl. 10. Opið hús kl. 13-16. Bókabíllinn kemur við
Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-
12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Velkomin. S. 535-2700.
Boðinn Hugvekja kl. 13.30. Vöfflukaffi kl. 14.30. Línudans kl. 16.
Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi hjá Rósu kl. 10.15.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við hringborðið kl. 8.50, kaffisopi
og blöðin. Opin listasmiðja kl. 9-12. Thai chi kl. 9-10. Botsía kl. 10.15-
11.20. Hádegismatur kl. 11.30. Myndlistarnámskeið með Margréti kl.
12.30-15.30. Hæðargarðsbíó kl. 13.30. Með Afa kl. 13.30. Síðdegiskaffi
kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari uppl. í síma 411-2790.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Leikfimi kl. 13.45. Kaffiveitingar kl.
14.30. Allir velkomnir!
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Heilsuefling á Vitatorgi kl. 10-11.15, þjálf-
un / ganga / botsía / æfingatæki, föstudagshópurinn kl. 10-11.30,
Handaband, vinnustofa í skapandi handverki ókeypis og öllum opið
kl. 13-15.30, BINGÓ kl. 13.30-14.30, spjaldið kostar aðeins 250 kr.
Vöfflukaffi kl. 14.30-15.30. Verið velkomin á Vitatorg, Lindargötu 59,
síminn er 411-9450.
Garðabær Dansleikfimi Sjálandi kl. 9.30. Gönguhópur frá Jónshúsi
kl. 10. Félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13. Bíll fer frá Litlakoti kl. 12.20,
Hleinum kl. 12.30 og frá Garðatorgi 7 kl. 12.40 og til baka að lokinni
félagsvist ef óskað er. Smiðja í Kirkjuhvoli opin kl. 130-16, velkomin.
Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Glervinnustofa
með leiðbeinanda kl. 9-12. Prjónakaffi kl. 10-12. Leikfimi gönguhóps
kl. 100-10.20. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30. Bókband með leið-
beinanda kl. 13-16. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
12.45 tréskurður, kl. 20 félagsvist.
Grensáskirkja Síðdegissamvera miðvikudaginn 27. mars kl. 17.30-
19. Leifur Breiðfjörð glerlistamaður segir frá gluggum Grensáskirkju.
Léttur kvöldverður kr. 1.000. Vinsamlega tilkynnið þátttöku í síma 528-
4410 eigi síðar en á hádegi þriðjudaginn 26. mars. Velkomin!
Gullsmári Handavinna kl. 9. Leikfimi kl. 10. Flugunhýtingar kl. 13.
Gleðigjafarnir kl. 13.30.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9-12. Útskurður kl. 9, verkfæri á staðnum og
nýliðar velkomnir. Botsía kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30. Bingó kl.
13.15. Kaffi kl. 14.30.
Hraunsel Kl. 8-12 ganga í Kaplakrika, kl. 10.30 línudans, kl. 13 brids,
kl. 13.30 botsía, kl. 11.30 leikfimi í Bjarkarhúsi.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga kl. 9, sundleikfimi kl. 9 í Grafar-
vogssundlaug, brids kl. 12.30 í Borgum og hannyrðahópur Korpúlfa
kl. 12.30 í dag og tréútskurður kl. 13 á Korpúlfasstöðum. Vöfflukaffi kl.
14.30 til 15.30 í dag.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Leikfimi með Evu í saln-
um á Skólabraut kl. 11. Syngjum saman á Skólabraut kl. 13. Spilað í
króknum kl. 13.30. Brids í Eiðismýri kl. 13.30.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-14. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15, panta þarf matinn daginn áður. Framhaldssaga eða bíó
kl. 13. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Vesturgata 7 Sungið við flygilinn með Gylfa Gunnarssyni frá kl. 13-
14. Kaffi frá kl. 14-14.30. Allir velkomnir.
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
Bækur
Davíð Stefánsson
frá Fagraskógi
Til sölu ljóðabréf frá
Davíð Stefánssyni til
vinar síns. 15 erindi
ásamt áritaðri ljóðabók
(Kvæði) frá 1922.
Tilboð óskast
Upplýsingar í síma
8989475
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Verslun
ERNA 95 ára,
hreinsum til á lagernum
25 til 75% afsláttur. Silfurmunir,
skartgripir, armbandsúr og gjafavara.
Gott tækifæri til að eignast vandaða
muni.
ERNA Skipholti 3,
s. 552 0775,
www.erna.is
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Smá- og raðauglýsingar 569 1100
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
sumarferðum, sem hún naut til
hins ýtrasta. Á yngri árum fór hún
í nokkur ferðalög með sveitungum
og í sumar minntist hún þess að
það hefði verið mikið brölt að
ganga á Baulu.
Á þeim 30 árum sem Gugga
starfaði við Héraðsskólann í
Reykholti bjó hún í húsnæði á veg-
um skólans, þegar skólahald var
lagt niður 1997 keypti hún sér hús,
Lindarbæ í Reykholti og bjó þar,
þar til hún lenti í slysi, hrasaði um
þröskuld, þegar hún var að flýta
sér að hitta á ísbílinn. Til allrar
hamingju heyrði bílstjórinn til
hennar og gat komið til bjargar,
en hún braut vinstri handlegg upp
undir axlarlið og náði sér aldrei
eftir það. Gugga dvaldi á dvalar-
heimilinu Brákarhlíð í Borgarnesi
síðustu árin, hvar hún eignaðist
góða vini og vel var um hana hugs-
að. Starfsfólki Brákarhlíðar og
vinum hennar þar eru færðar al-
úðarþakkir fyrir einstaka um-
hyggju og velvild.
Þórunn Reykdal.
Kveðja frá Reykholtskórnum
Hún Gugga okkar er farin yfir
móðuna miklu. Þar er hún ábyggi-
lega hjálparhella einhverra sem á
þurfa að halda. Þannig var hún
okkur kórfélögunum meðan heilsa
og kraftar leyfðu. Þessar línur eru
sendar til að þakka genginni
heiðurskonu alla þá hjálp og hlýju
sem hún sýndi okkar félagsskap á
lífsleiðinni, votta minningu hennar
virðingu og þökk.
Dodda, Tótu og öðrum aðstand-
endum sendum við okkar samúð-
arkveðju.
Fyrir hönd Reykholtskórsins,
Þorvaldur Jónsson.
Hún Gugga er látin eftir stutt
en snörp veikindi. Mig langar að
minnast hennar með örfáum orð-
um. Við hjónin hittum hana fyrst í
Reykholti þar sem hún var innsti
koppur í búri. Hún hóf störf í eld-
húsi Héraðsskólans í Reykholti
um áramótin 1965-1966 og starf-
aði þar þangað til skólastarf lagð-
ist af vorið 1997. Hún var ákaflega
reglusöm og starfsöm manneskja
og vildi hafa allt í röð og reglu.
Þegar við komum í Reykholt bjó
hún í skólahúsinu í kjallaranum í
einu herbergi og hún kom oft í
heimsókn til okkar á kvöldin, ég
tala nú ekki um eftir að sjónvarpið
kom til sögunnar 1968.
Seinna flutti hún út á gömlu Út-
garða og bjó þar í góðu herbergi
með aðgangi að eldhúsi í nokkur
ár og fékk síðan ágæta íbúð í norð-
urenda skólahússins og þá gat hún
farið að búa eins og henni sæmdi.
Seinna festi hún kaup á einbýlis-
húsinu Lindarbæ við Reykholt og
bjó þar til hún flutti á Dvalarheim-
ilið Brákarhlíð í Borgarnesi. Hún
keypti sér bíl, sem hún notaði til
stuttra ferða og heimsókna til vina
og ættingja. Þessa naut hún vel
þótt hún færi ekki í neinar lang-
ferðir á bílnum.
Sumarið 1977 fóru kennarar í
Reykholti á svokallað kennaramót
héraðsskólakennara og Gugga
kom með okkur á þetta mót sem
haldið var að Núpi í Dýrafirði.
Hún átti það stóran þátt í starfinu
í skólanum að okkur fannst að hún
ætti fullt erindi á þetta mót, sem
var í alla staði mjög vel heppnað.
Við gáfum okkur góðan tíma til
skoða okkur vel um á leiðinni vest-
ur og naut hún vel.
Við fórum á Látrabjarg. Einnig
fórum við út á Ingjaldssand og
skoðuðum okkur vel um á Núpi.
Þetta var góð og skemmtileg ferð.
Það eru nú liðin 24 ár frá því að við
hjónin fórum úr Reykholti og hafa
samskiptin ekki verið nein síðan.
Það get ég fullyrt að hún var
vakin og sofin yfir velferð nem-
enda og samstarfsfólks síns.
Ég vil þakka Guggu samfylgd-
ina og óska henni velfarnaðar á
nýjum slóðum.
Samúðarkveðjur sendi ég og
synir mínir til fjölskyldu og vina
hennar.
Blessuð sé minning hennar.
Sigríður Bjarnadóttir.