Morgunblaðið - 07.03.2019, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019FRÉTTIR
Undanfarin ár hefur starfsemi
Deloitte á Íslandi eflst og vaxið og
er meiri breidd komin í þjónustu-
framboðið. Undir stjórn Sigurðar
Páls Haukssonar hefur m.a. verið
unnið að því að byggja upp nýtt
ráðgjafarsvið sem veitir stefnu-
markandi stjórnendaráðgjöf.
Hverjar eru helstu áskoranirnar
í rekstrinum þessi misserin?
Markmið okkar er að vera
ávallt leiðandi í faglegri þjónustu
og er það viðvarandi áskorun,
sérstaklega á markaði þar sem
ríkir hörð samkeppni. Um þessar
mundir eru svo blikur á lofti í
efnahagsmálum sem munu
snerta okkur eins og öll önnur
fyrirtæki.
Hver var síðasti fyrirlesturinn
eða ráðstefnan sem þú sóttir?
Ég sótti UT-messuna í Hörpu
núna í febrúar þar sem ég hlust-
aði meðal annars á kollega minn,
Sheree Atcheson, halda erindi
um mikilvægi fjölbreytni og þess
að tryggja þátttöku ólíkra sam-
félagshópa í tækni. Við höfum
lagt mikla áherslu á að styðja við
og taka virkan þátt í þeirri um-
ræðu meðal annars með því að
styðja við Jafnvægisvog FKA
sem kynnt var til leiks í fyrra.
Hugsarðu vel um líkamann?
Kroppur og andi eru eitt svo ég
rækta kropp og anda með eins
mörgum ferðum í Vesturbæj-
arlaugina og rúm er fyrir. Borða
góðan mat og held í hefðir. Vermi
kirkjubekk reglulega og á sumrin
geng ég til fjalla með fólkið mitt.
Hvaða kosti og galla sérðu við
rekstrarumhverfið?
Rekstrarumhverfið hefur verið
í góðu jafnvægi undanfarin ár en
Íslendingar eru enn of gjarnir á
að innleiða séríslenskar reglur á
ýmsum sviðum, sem skapar flækj-
ur, óþarfa kostnað og dregur úr
samkeppnishæfni atvinnulífsins.
Hvað gerirðu til að fá orku og
innblástur í starfi?
Rækta tengsl við fólk, kollega,
viðskiptavini og fleiri innanlands
sem utan. Passa að gefa einkalíf-
inu rými og læra eitthvað nýtt.
Ganga, hugsa og þegja.
Hvaða lögum myndirðu breyta
ef þú værir einráður í einn dag?
Ég myndi klára innleiðingu
Evrópureglna á sviði endurskoð-
unar eininga tengdra almanna-
hagsmunum. Það hefur tekið of
langan tíma að ljúka því máli með
tilheyrandi óvissu fyrir íslensk
fyrirtæki.
SVIPMYND Sigurður Páll Hauksson, forstjóri Deloitte
Erum allt of gjörn á að
innleiða séríslenskar reglur
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sigurður Páll segist gæta þess að rækta kropp og anda með tíðum ferðum í bæði sund og kirkju.
NÁM: Stúdent frá Verzlunarskóla Íslands 1988; viðskiptafræðingur
frá Háskóla Íslands 1992 og löggilding til endurskoðunar 1998.
STÖRF: Ég útskrifaðist úr viðskiptafræðinni frá HÍ 1992 og hlaut
löggildingu í endurskoðun árið 1998. Fyrsta rúma árið eftir útskrift
starfaði ég hjá endurskoðunar- og bókhaldsstofunni Uppgjöri en
hóf síðan störf hjá Deloitte árið 1994 og hef verið forstjóri síðustu
fimm árin.
ÁHUGAMÁL: Helstu áhugmálin eru samvera með fjölskyldunni,
gönguferðir um fjöll og firnindi og svo er Skagafjörðurinn þar sem
ég á rætur og bjó í níu ár ofarlega í huga flesta daga.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Ég er kvæntur Guðbjörgu Jóhannesdóttur,
sóknarpresti í Langholtskirkju, og við eigum fimm börn, að mestu
uppkomin, þrjár stelpur og tvo stráka. Svo hafa bæst við fjölskyld-
una einn tengdasonur og tvær tengdadætur, mikil tímamót eru
svo í vændum því von er á fyrsta barnabarninu innan tíðar og við
erum öll mjög spennt yfir nýju hlutverki og ábyrgð.
HIN HLIÐIN
FARARTÆKIÐ
Það ku þykja agalega smart hjá
ungu framafólki að þjóta á milli
staða á hjólabretti – helst í jakkaföt-
um eða dragt og með skjalatöskuna í
annarri hendi. Í stórborgum úti í
heimi er jú hjólabrettið afskaplega
hentugt til að komast hratt og vel á
milli staða, og það tekur ekki eins
mikið pláss á skrifstofunni og reið-
hjól eða hlaupabretti.
En það gengur ekki að spana um
bæinn á bretti sem gert er fyrir ung-
linga, þegar fólk er komið með him-
inhá laun, farið að borga fasteigna-
lán, safna postulínsbollum og gera
allskonar fullorðins.
Franska tískuhúsið Chanel er
með lausnina: agalega fínt hjóla-
bretti sem sómir sér vel undir vand-
lega pússuðum lakkskóm, eða þess
vegna uppi á vegg inni á horn-
skrifstofunni.
Brettið er skreytt með merki Cha-
nel bæði að ofan og neðan, en neðri
hliðin er máluð til að herma eftir tíg-
ullaga útsaumnum sem prýðir flíkur
og handtöskur Chanel.
Brettið kostar 7.700 dali hjá Cha-
nel.com. ai@mbl.is
Chanel-brettið kostar 7.700 dali.
Hlaupa-
bretti fyrir
sterkefnaða
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
silestone.com
Bakteríuvörn
Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum.
Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri
bakteríu- og sveppavörn.
Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone.
Blettaþolið Sýruþolið
Högg- og
rispuþolið
Kvarts steinn
í eldhúsið
Íshúsið ehf ∑ Smiðjuvegur 4a, græn gata, 200 Kópavogur
viftur.is
-andaðuléttar
hljóðlátu baðvifturnar
Stundum þarf maður
bara smá frið
Samkeppniseftirlitið hefur sam-
þykkt samruna Kviku banka hf. og
Gamma Capital Management hf. Í
umsögn Samkeppniseftirlitsins
kemur fram að ekki séu fyrir hendi
vísbendingar um að samruninn muni
leiða til myndunar eða styrkingar
markaðsráðandni stöðu samruna-
aðila á neinum markaði og að ekki
verði séð að samkeppni á mörkuðum
raskist að öðru leyti með umtals-
verðum hætti. Með kaupunum verð-
ur Gamma að dótturfélagi Kviku.
Kaupverðið nam 2,4 milljörðum
króna fyrir útistandandi hlutafé fé-
lagsins. peturhreins@mbl.is
Kaup á Gamma samþykkt