Morgunblaðið - 07.03.2019, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 07.03.2019, Qupperneq 7
Benedikt Hálfdanarson man þegar hann starfaði við það sem ungur mað- ur, um miðjan 9. áratuginn, að fóðra fiska í kvíum í Hvammsvík, þar sem hann notaði skóflu til að kasta fóðri út í kvíarnar. „Þessar kvíar hafa varla verið meira en 40 eða 50 metrar í um- mál og framleiðslan mældist í nokkr- um tugum tonna yfir árið. Í dag er al- gengt að kvíar séu allt að 200 metrar í þvermál, 40-50 metra djúpar og fram- leiðslan upp úr einni laxeldiskví í Noregi í kringum 1.000 tonn af fiski,“ segir hann. Benedikt er framkvæmdastjóri Vaka fiskeldiskerfa ehf. og heldur er- indi á Strandbúnaðarráðstefnunni sem haldin verður á Grand Hótel Reykjavík dagana 21. til 22. mars. Þar ætlar hann að fjalla um þær miklu breytingar sem orðið hafa á sjókvíaeldisbúnaði. Fjarstýrð fóðrun Framfarirnar sem orðið hafa í tækninni sem greinin notar sjást t.d. á því að fiskurinn er ekki lengur fóðr- aður með handafli. „Í stað þess að vera með menn á bátum sem dreifa fóðri fer fóðrunin fram með fóð- urkerfum sem er fjarstýrt úr landi. Fóðrið er geymt á stórum fleka sem er útbúinn blásurum sem feykja fóðr- inu út um rör og yfir í hverja kví. Hjá Arnarlaxi er t.d. fóðrunin í höndum starfsmanna á Bíldudal sem sitja við tölvur og stjórna því þaðan, fjarri kví- unum, hvenær blásararnir fara af stað,“ útskýrir Benedikt. „Ekki nóg með það heldur eru myndavélar sem fylgjast með því hvort fiskurinn er örugglega að éta fóðrið, og hægt að sjá í stjórnstöðinni ef fóðuragnir eru teknar að falla í gegnum fiskvöðuna og stoppa þá fóðrunina. Mælar ofan í kvíunum vakta stærð fiskanna og staðsetningu þeirra í kvínni svo að megi sjá betur hvernig fiskurinn vex og haga fóðruninni þannig að hún skili sem mestum árangri. Útkoman er sú að í dag tekst laxeldisstöðvum að búa til eitt kíló af eldisfiski fyrir hvert kíló af fóðri, sem er einstakur árangur. Til samanburðar þarf a.m.k. 2,5 til 3 kg af fóðri fyrir hvert kíló af próteini í kjúklingarækt.“ Bæta súrefnisaðstæður í kvíum Vaki er rösklega 30 ára gamalt fyrirtæki og hefur verið í fararbroddi í þróun og smíði teljara og flokkara fyrir fiskeldisstöðvar. Teljarar frá Vaka geta talið milljónir seiða á klukkustund, en skynjarar sem fyrir- tækið framleiðir nota innrauðan ljós- búnað til að gera skuggamynd af fiski í kvíum og reikna þannig út stærð fisksins og þyngd. Bandaríska stór- fyrirtækið Pentair keypti Vaka árið 2016 með það fyrir augum að ná betri fótfestu á fiskeldismarkaði: „Pentair er 12.000 manna fyrirtæki og þekkt- ast fyrir lausnir á sviði vatns- meðhöndlunar og hreinsunar fyrir iðnað og matvælaframleiðslu. Í gegn- um Vaka skapaðist tækifæri til að koma vatnsbúnaði Pentair betur á framfæri við fiskeldisgeirann og er- um við t.d. núna að bæta við vörulínu okkar tækni frá Pentair sem dælir lofti í sjókvíar til að bæta súrefn- isaðstæður,“ segir Benedikt. „Raunin er að kvíar eru orðnar mjög djúpar, og höfð þétt net á efstu 5-6 metrunum til að varna því að lúsalirfur komist að laxinum. Vandinn við það er að minni hreyfing er á sjónum í efstu lögum kvíarinnar, en með því að dæla lofti ofan í botn hennar draga loftbólurnar upp með sér súrefnisríkari sjó og bæta þannig vaxtarskilyrðin.“ Fullkomnir brunnbátar Þeir sem til þekkja lýsa því þannig að fiskeldi í dag og fyrir þrjátíu árum sé eins og svart og hvítt. Benedikt tekur undir þetta og segir allt í kring- um fiskeldið hafa tekið miklum fram- förum. „Breytingarnar blasa kannski ekki við þegar fólk sér sjálfar kvíarn- ar úti á firði, en allt frá festingum og netum hefur verið þróað og bætt, og allur búnaður bæði létt líf starfs- manna og aukið skilvirkni.“ Breytingarnar má, að mati Bene- dikts, ef til vill sjá hvað skýrast í brunnbátunum sem bæði flytja seiði úr landi og yfir í kvíar, og sækja síðan fullvaxinn fiskinn og færa til slát- urstöðvarinnar. „Á árum áður notuðu fiskeldisstöðvarnar gamla fiskibáta sem hafði verið breytt lítillega fyrir þetta hlutverk. Þeir brunnbátar voru óttalegir dallar í samanburði við stærstu brunnbátana í dag sem eru sumir á stærð við frystitogara og rúma í kringum 500 tonn af laxi. Munurinn liggur ekki bara í stærð- inni heldur alls kyns hátæknibúnaði um borð, s.s. sjálfvirkum kerfum sem stýra hitastigi og súrefnismagni í sjónum sem laxinn syndir í, og hreinsibúnaði sem tryggir að ef smit eða sjúkdómar leynast í fiskinum þá berist þeir ekki yfir í aðrar kvíar eða út í lífríkið. Eru sum þessara skipa meira að segja búin umhverfisvænum vélum sem ganga fyrir fljótandi jarð- gasi og raforku til að minnka um- hverfisáhrifin enn frekar.“ Greinin hefur tekið stakkaskiptum Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Þær miklu framfarir sem orðið hafa í fiskeldi á undanförnum áratugum spanna allt frá stærri og sterkbyggðari kvíum yfir í umhverfisvænni og af- kastameiri brunnbáta. Benedikt Hálfdanarson þurfti á sínum tíma að nota skóflu til að dreifa fóðrinu til fisksins í kvíunum. Í dag er fóðruninni fjarstýrt, myndavélar fylgjast með fiskinum og fullkomin tæki mæla hversu hratt hann vex. Vaki þróar hátæknilausnir fyrir fiskeldi, s.s. seiðateljara og stærðarskanna. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019 7 Afurðaverð á markaði 6. mars 2019, meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 287,67 Þorskur, slægður 350,29 Ýsa, óslægð 240,95 Ýsa, slægð 256,41 Ufsi, óslægður 96,42 Ufsi, slægður 136,05 Djúpkarfi 93,00 Gullkarfi 228,68 Langa, óslægð 186,23 Langa, slægð 218,16 Keila, óslægð 57,46 Keila, slægð 120,16 Steinbítur, óslægður 160,95 Steinbítur, slægður 239,12 Skötuselur, slægður 549,30 Skarkoli, óslægður 76,00 Skarkoli, slægður 329,20 Þykkvalúra, slægð 740,50 Langlúra, óslægð 212,93 Sandkoli, óslægður 90,00 Bleikja, flök 1.501,00 Grásleppa, óslægð 133,45 Hlýri, óslægður 189,00 Hlýri, slægður 228,38 Hrogn/ýsa 240,60 Hrogn/þorskur 376,64 Lúða, slægð 701,10 Lýsa, óslægð 41,61 Lýsa, slægð 114,72 Rauðmagi, óslægður 219,60 Sandhverfa, slægð 1.150,00 Skata, óslægð 109,24 Skata, slægð 89,10 Stórkjafta, slægð 363,00 Undirmálsýsa, óslægð 114,67 Undirmálsýsa, slægð 138,89 Undirmálsþorskur, óslægður 198,59 Undirmálsþorskur, slægður 211,83 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.