Morgunblaðið - 07.03.2019, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 07.03.2019, Blaðsíða 9
sem er framundan mun kosta marga milljarða, sem endar á neytandanum, auk þess sem til- gangslaust rask, umhverfissóun og svifryk nýtist engum landsmanni. Það er sóun sem hægt er að koma í veg fyrir. Ég hef rætt þetta við stjórn- málamenn úr öllum flokkum, sem sýna málinu skilning, en í borgarkerfinu bendir hver á ann- an.“ Hann segir að samgönguráðherra sé nú með frumvarp í undirbúningi um innleiðingu á til- skipun frá ESB, sem vonandi muni spara mörg hundruð miljónir á ári. Orri segir að ef innleiðing tilskipunarinnar tekst vel þá verði borgar- fyrirtækið Gagnaveita Reykjavíkur, sem lagt hefur ljósleiðara að 90 þúsund heimilum, að opna sína innviði fyrir öðrum fyrirtækjum, rétt eins og öll önnur opinber fyrirtæki á Íslandi hafi þegar gert, sem og Míla, að sögn Orra. „Samningur sem gerður var í fyrra kveður á um ákveðið samstarf við framkvæmdir, til að lækka kostnað. Það var framfaraskref. Í gömlum hverfum sem verið er að ljósleiðaravæða samein- ast Gagnaveitan og Míla þannig um dýrustu framkvæmdina, gröftinn fyrir lögnunum.“ Orri segir að GR sé búin að leggja ljósleiðara að stórum hluta heimila suðvesturhornsins. Míla sé ekki komin eins langt, þótt vel gangi, að hans sögn, og með mun hagstæðari hætti en í tilfelli hins opinbera fyrirtækis GR, þar sem Míla á mikla innviði fyrir. „Hins vegar eru sennilega tugþúsundir heimila sem Míla myndi ekki leggja að, ef borgarfyrirtækið Gagnaveitan tæki sig til og seldi opinn aðgang að heimtaugum sínum, eins og öll önnur fyrirtæki gera.“ Buðu sannfærandi í enska boltann Mál málanna síðustu misserin í fjarskipta- og sjónvarpsgeiranum eru kaup Símans á sýning- arrétti á ensku úrvalsdeildinni í fótbolta, sem Sýn er með í dag. Útsendingar hefjast næsta haust. Spurður um þá ákvörðun að bjóða í rétt- inn, segir Orri að ferlið hafi tekið marga mánuði. Menn hafi þurft að átta sig á hvað væri hámarks- og lágmarksboð, og hvað þyrfti að reiða mikið fé af hendi til að ná að tryggja sér sýningarréttinn. Hann segir til útskýringar að útboðsfyrir- komulagið hafi verið þannig að ef tilboðin sem bárust frá Íslandi hefðu orðið of nálægt hvert öðru, hefðu þau verið úrskurðuð ógild, og bjóða þyrfti aftur. Þannig hafi verið innbyggður hvati í kerfinu til að bjóða sannfærandi strax í byrjun. „Þessu þurftum við að átta okkur á og við feng- um m.a. erlenda sérfræðinga til að aðstoða okkur í þessu ferli. Eins þurftum við að kanna íslenska markaðinn til að skilja hvað fólk vildi og hvað það væri tilbúið að borga fyrir þjónustuna. Við bjuggum að reynslunni af því þegar við sýndum Evrópumótið í fótbolta karla 2016. Við buðum ör- lítið hærra í enska boltann en við töldum okkur þurfa að bjóða, til að tryggja okkur réttinn í fyrstu umferð, en vel fyrir neðan efri mörkin sem við gátum farið í, en haft samt ábata af verk- efninu. Nú er verkefni okkar að finna út hvernig við markaðsfærum þetta í smáatriðum.“ Orri segir að heildarpakkinn verði kynntur fyrir páska, bæði verð og annað. „Núna erum við að skoða hversu mikið af hliðarefni við viljum fá, eins og spjallþætti á undan og eftir leik. Það ligg- ur fyrir að við verðum með íslenska þuli á leikj- unum, en margir vilja líka geta horft á leikina með enskum og jafnvel pólskum þulum. Við munum bjóða fleiri leiki en Stöð 2 Sport gerir í dag, og meiri umfjöllun fyrir og eftir leiki, sér- staklega í kringum stórleiki. Einnig verða leikir sendir út í 4K háskerpu í fyrsta sinn á Íslandi.“ En af hverju þurfti Síminn að kaupa þetta efni? „Okkar stefna í sjónvarpi hefur verið skýr í ólínulega efni, það er að fylgja þörfum nútímans. Fyrir utan EM 2016 höfum við ekki verið mikið í íþróttaefni sjálf, heldur dreift annarra íþrótta- efni um okkar kerfi. Sýn notaði enska boltann mikið til að niðurgreiða internet-áskriftir og ná til sín fjarskiptum frá okkur með því að bjóða internet undir kostnaðarverði með í íþrótta- pakka. Við vildum stöðva það.“ Önnur ástæða sem Orri nefnir fyrir því að þeim þótti nauðsynlegt að bjóða í enska boltann er að efnið í Sjónvarpi Símans Premium höfðar samkvæmt könnunum meira til kvenna en karla. Tölfræðin segi svo að enski boltinn höfði meira til karla. „Við erum líka með frábært barnaefni og erum að ná til yngri markhópa með efni eins og ClubDub. Með enska boltanum fáum við jafn- vægi í okkar vöruframboð, og getum boðið efni á breiddina, sem hentar allri fjölskyldunni,“ segir Orri Hauksson að lokum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon ” Á hinum vettvanginum er stundum mun síður hægt að meta árangur af eigin aðgerðum, svipað og að spila fótboltaleik þar sem maður fær ekki að sjá stöðuna í leiknum MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019 9VIÐTAL Símans að númeraflutningur til Símans var í skiptum meiri en frá Símanum. Orri segir að sé miklar vinsældir Þrennunnar, sem er fyrir- að miklu leyti er að koma til okkar frá Nova. “ utningum varpsefni sem notið hefur vinsælda, og meira Baldvin Z er þannig að framleiða þáttaröð af ð, sem væntanleg er á næsta ári. Þættirnir Reykjavík. „Svo erum við að vinna að þátta- rdóttur, sem Baltasar Kormákur framleiðir. mila sé með Netflix í virkni einhvern tíma rukkum hinsvegar þrisvar sinnum meira en með 140 milljónir áskrifenda, en við 40 þús- mikið meira fyrir efnið er íslenska áherslan. ndu efni, íslenskt efni, íslenskt viðmót, ís- úsund klukkutíma af efni í Sjónvarpi Símans huginn er þó mestur á íslenska efninu. Þá er ma viðmóti. Þetta allt saman er lykillinn að Netflix

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.