Morgunblaðið - 07.03.2019, Side 12

Morgunblaðið - 07.03.2019, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019FRÉTTIR m. Fyrsti stóri slípirokkurinn knúinn af einni rafhlöðu sem skilar afli til þess að slípa, er léttari en snúrurokkur í sinni stærð. POWERSTATE™ mótor REDLINK PLUS™ yfirálagsvörn REDLITHIUM-ION™ rafhlaða. Sveigjanlegt rafhlöðukerfi sem virkar með öllum Milwaukee® M18™ rafhlöðu Verð 136.900 kr. (með rafhlöðu) M18 FLAG Alvöru slípirokkur fráMilwaukee vfs.is VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888 HARI Breytingar voru gerðar á fjárfestingarheimildum ís-lenskra lífeyrissjóða árið 2017 þar sem sjóðunumvar gert að setja sér siðferðileg viðmið í fjárfest- ingum sínum. Lífeyrissjóðir hafa margir hverjir leitað í aðferðarfræði ábyrgra fjárfestinga til að uppfylla þessa lagakröfu og sett sér stefnu í ábyrgum fjárfestingum. Að- ferðarfræði ábyrgra fjárfestinga felur í sér að við fjárfest- ingar er horft til þriggja grunnþátta samfélagsábyrgðar fyrirtækja; umhverfis, samfélags og stjórnarhátta. Lífeyrissjóðirnir eru hlutfalls- lega stórir á innlendum skráðum hlutabréfamarkaði og almennt þegar kemur að ábyrgum fjárfest- ingum líta sjóðirnir til þess að þau félög sem þeir fjárfesta í fari að þeim lögum og reglum sem um starfsemi þeirra gilda. Í ein- hverjum tilfellum er einnig litið til sáttmála Sameinuðu þjóðanna um samfélagsábyrgð fyrirtækja (e. UN Global Compact), en grundvallarmarkmið hans snúa að mannréttindum, vinnu- markaði, umhverfi og baráttu gegn hvers kyns spillingu. Auknar áherslur yfirvalda og eftirlitsaðila á samfélags- ábyrgð, samhliða auknum kröfum almennings um gegn- sæja starfshætti, hafa sett þrýsting á fyrirtæki að veita hagaðilum sínum upplýsingar um starfsemi sína umfram venjubundnar fjárhagsupplýsingar. Með breytingum á lögum um ársreikninga fyrirtækja frá árinu 2016 er fyrir- tækjum sem uppfylla ákveðin stærðarskilyrði og eru tengd almannahag gert að standa skil á ófjárhagslegum upplýsingum. Fram að því var það undir sérhverju fyrir- tæki komið hvort og þá með hvaða hætti það sinnti sinni ófjárhagslegu upplýsingagjöf. Erlendis er fjöldi sjálfstæðra þjónustuveitenda sem sérhæfa sig í að greina og veita fjárfestum upplýsingar um ófjárhagslega þætti í starfsemi fyrirtækja en slík þjónusta hefur enn ekki fest rætur á Íslandi. Gögn og upplýsingar um samfélagsábyrgð innlendra fyrirtækja eru því af skornum skammti. Eignastýring fagfjárfesta hjá Arion banka leit á þennan skort á upplýsingum sem áskorun og réðist í framkvæmd greiningar á ófjárhagslegum upplýs- ingum fyrirtækja skráðra á aðallista Nasdaq Iceland árið 2017. Greiningin er liður í samþættingu aðferðarfræði ábyrgra fjárfestinga við verklag eignastýringar fagfjár- festa í samræmi við stefnur viðskiptavina. Tilgangur greiningarinnar er að varpa ljósi á það hvernig skráð félög standa sig í ófjárhagslegri upplýs- ingagjöf og hvort hægt væri að bregða máli á frammistöðu þeirra gagnvart sáttmála Sameinuðu þjóðanna um sam- félagsábyrgð fyrirtækja. Greiningunni er því hvorki ætlað að vera siðavöndur á þau félög sem greiningin nær til né að draga þau í dilka eftir því hvort þau teljast góð eða slæm. Við greininguna var stuðst við ESG-leiðbeiningar Nasdaq um ófjárhagslegar upplýsingar og út frá þeim var útgefið efni félag- anna skoðað, svo sem heimasíð- ur, ársreikningar og aðrar upp- lýsingar. Kannað var hvort félögin birtu upplýsingar í sam- ræmi við einstök atriði leiðbein- inganna. Samantektin var send félögunum og samhliða óskað eftir fundi í þeim tilgangi að fara yfir niðurstöðurnar, gefa þeim kost á að koma sjón- armiðum sínum á framfæri og ræða almennt um málefni samfélagsábyrgðar fyrirtækja. Helstu niðurstöður greiningarinnar gefa til kynna að ís- lensk félög eru meðvituð um samfélagsábyrgð sína en eru komin mislangt á veg með að greina frá henni. Sex félög sem skráð voru á aðallista Nasdaq Iceland kjósa að styðj- ast við opinbert viðmið þegar kemur að framsetningu á ófjárhagslegum upplýsingum sínum. Önnur félög styðjast ekki við slík viðmið en sex af þeim veittu þó upplýsingar í samræmi við sáttmála Sameinuðu þjóðanna um sam- félagsábyrgð fyrirtækja og loftslagssáttmála Festu og Reykjavíkurborgar. Á heildina litið voru viðbrögð fulltrúa félaga jákvæð og átti eignastýring gott og uppbyggilegt samtal um sam- félagsábyrgð fyrirtækjanna. Telja má víst að áhersla á ófjárhagslegar upplýsingar og samfélagsábyrgð fyrir- tækja muni þróast ört næstu misserin. Eignastýring fag- fjárfesta hjá Arion banka mun halda áfram að fylgjast með og taka þátt í þróun á aðferðarfræði ábyrgra fjárfest- inga meðal íslenskra fagfjárfesta. EIGNASTÝRING Aníta Rut Hilmarsdóttir Óli Freyr Kristjánsson sérfræðingar í eignastýringu fagfjárfesta Arion banka Ófjárhagslegar upplýsingar og aðferðafræði ábyrgra fjárfestinga ” Aðferðarfræði ábyrgra fjárfestinga felur í sér að við fjárfestingar er horft til þriggja grunnþátta samfélagsábyrgðar fyrir- tækja; umhverfis, sam- félags og stjórnarhátta. FORRITIÐ Það er við hæfi, á þessum tíma árs, að skoða lausnir sem létta fólki að ganga frá skattaskýrslunni. Bless- unarlega eru flestir Íslendingar í þeim sporum að þurfa bara að ýta á einn takka á vef Ríkisskattstjóra, en fyrir Bandaríkjamenn getur dansinn við skattmann verið töluvert flókn- ari. Forritið Keeper ætti að vera sannkölluð himnasending fyrir þá sem eru skattskyldir vestanhafs og nenna ekki að halda vandlega utan um allar kvittanir. Keeper notar gervigreind til að skima banka- og kortareikninga not- andans eftir útgjöldum sem eru frá- dráttarbær og heldur þeim til haga. Er lausnin sniðin að verktökum sem falla undir tiltekinn skattgreið- endaflokk í bandaríska kerfinu og sendir Keeper meldingu ef t.d. sím- reikningur, ferð með leigubíl, eða áskrift að forritum geta hugsanlega tengst rekstrinum. Viðmótið er afskaplega not- endavænt: ef einhver færsla vekur athygli Keeper fær notandinn skila- boð þar sem hann er spurður hvort útgjöldin hafi verið tengd vinnunni. Dugar þá að svara „já“ eða „nei“ og Keeper sér um afganginn. Áskrift að Keeper kostar 10 dali á mánuði og segja höfundar forritsins að hinn dæmigerði notandi spari sér um 173 dali á mánuði með því að halda betur utan um útgjöldin. ai@mbl.is Síminn sér um að draga frá skatti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.