Morgunblaðið - 07.03.2019, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019FÓLK
SPROTAR
Íslandsstofa Tveir
nýir forstöðumenn
hafa verið ráðnir til
Íslandsstofu, sam-
kvæmt tilkynningu.
Bergþóra Halldórs-
dóttir stýrir nú nýju
sviði viðskiptaþró-
unar, sem þróa mun
þjónustu Íslands-
stofu við allar at-
vinnugreinar og
fyrirtæki. Karl Guðmundsson stýrir
svo sviði útflutnings, sem hefur
það hlutverk að auka eftirspurn eft-
ir íslenskum vörum og þjónustu hjá
öllum útflutningsgreinum.
Bergþóra kemur frá Samtökum
atvinnulífsins en Karl kemur frá
lyfjafyrirtækinu Florealis.
Tveir nýir forstöðumenn
ráðnir til Íslandsstofu
Íslandssjóðir María Björg Ágústsdóttir hefur verið ráðin
til Íslandssjóða þar sem hún stýrir viðskiptaþróun fyrir-
tækisins. Hún mun einnig veita forstöðu fjármálastjórn 105
Miðborgar slhf., sem nú reisir íbúðir og skrifstofuhúsnæði
á Kirkjusandsreit. Þá mun hún einnig gegna hlutverki fram-
kvæmdastjóra fasteignafélagsins FAST-1 slhf., sem nýver-
ið lauk söluferli á ríflega 22 milljarða króna fasteignasafni sínu. María lauk
meistaraprófi frá Oxford-háskóla 2007 í stjórnunarfræðum og BA-gráðu í
hagfræði frá Harvard-háskóla 2006. Hún sat í stjórn ISB Holding á árunum
2009-2016.
Stýrir viðskiptaþróuninni
VISTASKIPTI
„Það er áhyggjuefni að sú framþróun sem ég
hélt að væri að eiga sér stað hvað varðar aukið
jafnrétti í atvinnulífinu á Íslandi, með fjölgun
kvenna í stjórnum fyrirtækja og í fram-
kvæmdastjórnum, hefur aðeins stöðvast,“
sagði Páll Harðarson, forstjóri Kauphallar-
innar, þegar ViðskiptaMogginn, settist niður á
dögunum með honum og Stellu Ólafsdóttur,
framkvæmdastýru UN Women á Íslandi, í til-
efni af alþjóðadegi kvenna á morgun, föstu-
daginn 8. mars.
Slegið verður í bjöllu í 60 kauphöllum um
allan heim í tilefni dagsins, þar á meðal í þeirri
íslensku. „Sá efnahagslegi missir sem heimur-
inn verður af þar sem konur fá ekki sæti við
borðið,“ verður þema viðburðarins á morgun,
að því er segir í upplýsingum frá Kauphöllinni.
Viðburðurinn er haldinn í samstarfi
Kauphallarinnar, Samtaka atvinnulífsins og
UN Women á Íslandi.
Eins og fram kom á ráðstefnu Jafnvægis-
vogar Félags kvenna í atvinnulífinu 31. októ-
ber síðastliðinn er enn langt í land hvað fullt
jafnrétti í atvinnulífinu varðar. Þar kom fram
að dregið hefði úr stjórnarformennsku kvenna
á milli áranna 2012 og 2016 í fyrirtækjum með
50-249 starfsmenn. Hlutfall kvenna í stöðu
stjórnarformanna var þannig 23,9% í lok árs
2016, sem var afturför. Þá kom fram að eftir
því sem fyrirtæki voru stærri fækkaði konum í
framkvæmdastjórastöðum. 22,1% fram-
kvæmdastjóra voru kvenkyns í lok árs 2016.
Páll bendir á að ýmislegt sem ætti að hafa
haft jákvæð áhrif á aukinn hlut kvenna í
atvinnulífinu, meðal annars sú staðreynd að
þær hafi lengi verið í meirihluta þeirra sem út-
skrifast úr háskóla hér á landi, sé ekki að skila
sér sem skyldi. „Meira að segja í viðskipta-
námi, sem lengi var vígi karla, hafa konur ver-
ið í meirihluta útskrifaðra nemenda í næstum
20 ár. Þetta ætti að benda til að stór hópur
frambærilegra kvenna væri að gera tilkall til
stjórnunarstarfa en við sjáum það ekki. Þetta
er bæði ákveðin ráðgáta en veldur mér líka
miklum vonbrigðum og er þvert á væntingar
sem ég hafði fyrir svona 4-5 árum þegar lögin
um kynjakvóta í stjórnum tóku gildi sem
dæmi.“
11% í 100 stærstu fyrirtækjunum
Stella tekur undir orð Páls en segir þetta í
raun ekki koma á óvart. Af 100 stærstu fyrir-
tækjum á Íslandi haldi konur um stjórnar-
taumana í aðeins 11% tilvika. „Það hefur sýnt
sig að það er nóg til af frambærilegum konum.
Þær sækja um stöðurnar en fá þær ekki. Hjá
hinu opinbera hefur betur tekist til og jafnræði
er komið á bæði í stjórnum og í fram-
kvæmdastjórnum,“ segir Stella.
Hún segir að mörgu þurfi líka að breyta í
fyrirtækjamenningunni. „Ég þekki mörg
dæmi um að konum sé til dæmis ekki boðið
með í veiðiferðir þó að þær séu hluti af teymi.“
Páll segir að boltinn sé hjá stjórnum fyrir-
tækjanna. „Ég hefði viljað að stjórnir fyrir-
tækjanna í landinu settu þetta á oddinn. Að
þar væri hugað mjög alvarlega að jafnvægi í
kynjahlutföllum.“
En hvernig telja þau Páll og Stella að hægt
sé að ná athygli stjórna fyrirtækja hér á landi,
þannig að þær grípi til aðgerða?
„Ég held að tölurnar tali hér sínu máli og
eigi að vera næg hvatning í sjálfu sér. Það ligg-
ur fyrir að í þeim löndum þar sem meira jafn-
rétti ríkir er meiri hagvöxtur. Samfélög þar
sem ekki er nægt jafnfrétti eru að missa af
risafjárhæðum í sínum hagkerfum.“
Páll bendir á að auk þess sem um hreint
réttlætismál sé að ræða snúist þetta einmitt
um lífskjör og velmegun. „Markaðurinn á að
leysa þetta, enda sé eftir einhverju að slægj-
ast, og leiðrétta þetta af sjálfu sér. Þess vegna
er þetta svona mikil ráðgáta að mínu mati af
hverju þetta er að gerast. Það virðist vera ein-
hver markaðsbrestur. Mín von er sú að eftir
tíu ár verði ekki þörf á neinum lagaákvæðum
til að rétta hlut kynjanna, að kerfið verði þá
komið í jafnvægi. Þetta verði þá mál sem til-
heyrir fortíðinni.“
Karlar lifa lengur
Stella bætir við að auk þess snúist þetta um
heilsu karlpeningsins. „Það hefur verið sýnt
fram á að karlar lifa lengur í samfélögum þar
sem meira jafnrétti ríkir. Þess vegna er
minnstur munur á Íslandi á milli lífaldurs
kvenna og karla, því hér er almennt jafnrétti
mest.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Framþróunin hefur stöðvast
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Á alþjóðadegi kvenna á morgun
verður bjöllu hringt í kauphöllum
um víða veröld, þar á meðal hér á
landi.
Páll Harðarson og
Stella Ólafsdóttir segja
að boltinn sé hjá
stjórnum fyrirtækja.
Þarftu skjóta afgreiðslu á ein-
blöðungum, bæklingum, vegg-
spjöldum, skýrslum, eða nafn-
spjöldum? Þá gæti stafræna
leiðin hentað þér. Sendu okkur
línu og fáðu verðtilboð.
STAFRÆNT
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi | Sími 540 3550
progastro.is | Opið alla virka daga kl. 9–17.
JAPANSKIR HNÍFAR
Allt fyrir eldhúsið
Hágæða hnífar og töskur
Allir velkomnir
Einstaklingar og fyrirtæki
Vefverslunokkarprogastro.iser alltaf opin!