Morgunblaðið - 14.03.2019, Qupperneq 1
LÆRÐI EITT OG ANNAÐ AF SYNINUMELDRI ÞORSKAR ÉTAYNGRI
óðanna með glósum Hayeks á uppboði. 4
Unnið í samvinnu við
Loðna er ein mikilvægasta fæða þorsks-
ins að sögn framkvæmdastjóra Lands-
sambands smábátaeigenda. 6
VIÐSKIPTA
4
Erlendis á fólk iðulega þrjú til fimm úr, en Íslendingar
nota sama úrið við öll tækifæri. Landinn er þó að
þroskast sem úra- og skartgripakaupandi.
Auðlegð þj
Endurskoðun | Skattur | Ráðgjöf
Ernst & Young ehf. Borgartúni 30, 105 Reykjavík
ey.is
Alþjóðleg þekking - persónuleg þjónusta
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
Semja við risa á lyfjamarkaði
Íslenska fyrirtækið Controlant er
við það að ljúka samningi við ísra-
elska lyfjafyr-
irtækið Teva um
að nýta lausn
þeirra fyrir alla
virðiskeðju þess.
Controlant smíð-
ar hitaskynjara
sem senda upp-
lýsingar í raun-
tíma um stað-
setningu og
hitastig þeirra vara sem verið er að
flytja og getur þannig komið í veg
fyrir sóun á vörum sem eru við-
kvæmar gagnvart miklum hita-
breytingum.
Teva er eitt stærsta lyfjafyrirtæki
í heimi en heildartekjur þess árið
2018 námu 18,9 milljörðum Banda-
ríkjadala. Verður Teva þar með ann-
ar af stóru lyfjaframleiðendunum til
þess að hafa rauntímayfirsýn yfir
alla virðiskeðju sína en Controlant
samdi síðastliðið haust við írska
lyfjafyrirtækið Allergan sem hefur í
dag þessa rauntímayfirsýn. Þá er
fyrirtækið einnig með samning við
AstraZeneca og í burðarliðnum eru
samningar við allra stærstu lyfjarisa
í heimi sem sumir hverjir eru að
hefja prófanir á vöru Controlant á
næstu mánuðum. Að sögn Gísla
Herjólfssonar, framkvæmdastjóra
og eins stofnenda Controlant, nemur
virði hvers og eins samnings við of-
antalin fyrirtæki milljónum Banda-
ríkjadala á ári.
„Fólk er farið að sjá að það að
taka upp svona lausn og minnka só-
un úr 10% niður í 3% hugsanlega á
stuttum tíma, getur skilað arðsemi
sem talin er í tugum jafnvel hundr-
uðum milljóna Bandaríkjadala á
ári,“ segir Gísli.
„Það eru hátt í 10% afföll í lyfja-
geiranum í heiminum. Það eru al-
þjóðlegar reglugerðir sem segja til
um að þú megir ekki flytja lyf á milli
landa nema þú getir sýnt fram á að
hitastigið hafi verið innan ákveðinna
marka,“ segir Gísli.
Hingað til hafa lyfjafyrirtæki not-
ast við sírita sem safna upplýsingum
á meðan varan er flutt. Þegar hún er
komin á endastöð þarf svo að finna
síritann, tengja hann við tölvu og
færa út skýrslu, með tilheyrandi
sendingum á milli landa. Vara Cont-
rolant einfaldar því það ferli gríð-
arlega og sendir upplýsingarnar
beint í tölvuskýið en dæmi eru um að
lyfjafyrirtæki notist við mörg hundr-
uð þúsund hitasírita á ári.
Að sögn Gísla áætlar hann að
tekjur Controlant tvöfaldist frá
fyrra ári og verði yfir 500 milljónir
2019. Af heildartekjum fyrirtækisins
koma 70% þeirra frá lyfjamark-
aðnum en 30% frá matvælamark-
aðnum.
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
Íslenska fyrirtækið Control-
ant er við það að ljúka
samningi sem metinn er á
milljónir Bandaríkjadala við
lyfjafyrirtækið Teva.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Að sögn Gísla Herjólfssonar, framkvæmdastjóra Controlant, er gert ráð fyrir
að tekjur fyrirtækisins muni tvöfaldast í ár og verði yfir 500 milljónir króna.
Gísli
Herjófsson
Úrvalsvísitalan
EUR/ISK
1.900
1.800
1.700
1.600
1.500
1.400
14.9.‘18
14.9.‘18
13.3.‘19
13.3.‘19
1.624,31
1.820,31
140
135
130
125
120
127,65
134,5
Berglind Rán Ólafsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Orku náttúrunnar, seg-
ir að hún hefði hefði óskað þess að yf-
irvöld, fyrirtæki og almenningur væru
komin nær í samtalinu um nýtingu
orkuauðlindanna. Komast þarf að
samkomulagi þar um að hennar sögn.
„Ég bind vonir við orkustefnuna sem
stjórnvöld eru með í vinnslu og á að
vera tilbúin á næsta ári. Sú stefna
gæti orðið góður grunnur fyrir um-
ræðuna, ef við skilgreinum hvert við
viljum fara, og hvernig við viljum
nýta auðlindina.“
Þar á Berglind við hvort vilji sé til
þess að nýta íslenska orku í álver, raf-
bíla, nýsköpun í orkugeira eða annað.
En hvað með sæstreng, hvaða skoð-
anir hefur Berglind á honum og sölu
raforku til útlanda? „Mér finnst sjálf-
sagt að skoða það. Hann er búinn að
vera lengi í umræðunni, en það þarf
að skoða tæknihliðina og
viðskiptahliðina.“
Mættu vera nær í samtalinu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Berglind Rán bindur vonir við orku-
stefnu stjórnvalda sem er í vinnslu.
Nýr framkvæmdastjóri ON
segir loftslagsvandann það
mikinn að grípa verði til að-
gerða strax.
8
Eigi samruni Deutsche Bank
og Commerzbank að skila ár-
angri þarf að segja upp tugum
þúsunda starfs-
manna.
Deutsche þarf að
vera vægðarlaus
10
Slysið í Eþíópíu gæti dregið
dilk á eftir sér, og sýnir hve lít-
ið má út af bera í annars góð-
um rekstri flugvéla-
framleiðandans.
Erfiðir dagar
hjá Boeing
11
FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019