Morgunblaðið - 14.03.2019, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019FRÉTTIR
Tímamót eru framundan hjá Frank Mic-
helsen og sonum hans því í sumar flytja
þeir rótgróna verslun Michelsen úrsmiða
á Laugavegi yfir í nýtt og betra húsnæði á
Hafnartorgi. Fyrirtækið verður 110 ára á
þessu ári og er fjórða kynslóðin að taka
við rekstrinum og þjónustunni.
Hverjar eru helstu áskoranirnar í
rekstrinum þessi misserin?
Gengi krónunnar og óstöðugleiki í efna-
hagsmálum þjóðarinnar hafa verið til
vandræða undanfarna áratugi og komandi
kjarasamningar munu eflaust verða okk-
ur sem og öllum í rekstri fyrirtækja erf-
iðir og hafa slæm áhrif á efnahagslífið.
Hvaða hugsuður hefur haft mest áhrif
á hvernig þú starfar?
Ég fór á Dale Carnegie námskeið fyrir
um 20 árum og varð leiðbeinandi þar
seinna. Bækurnar sem DC skrifaði og ég
las þá hafa skilið mikið eftir og haft áhrif á
mig, enn þann dag í dag.
Hver myndi leika þig í kvikmynd um líf
þitt og afrek?
Marlon Brando ef hann væri á lífi. Einn
af þeim bestu allra tíma og svo hefur
vaxtarlagið á okkur haldist í hendur með
hækkandi aldri.
Hvernig heldurðu þekkingu þinni við?
Ég hef farið reglulega til Sviss í þjálfun
og á endurmenntunarnámskeið. Einnig er
Róbert sonur minn nýfluttur heim frá
Sviss þar sem hann starfaði sem úr-
smíðakennari og vann hjá einu flottasta
úrafyrirtæki þar í handi, og hann hefur
kennt mér eitt og annað enda föðurbetr-
ungur í úrsmíðinni.
Hugsarðu vel um líkamann?
Það gefst lítill tími til eins og er. Helst
að farið sé í gönguferðir heima við eða
hjólað þegar vorar með eiginkonunni.
Hvaða kosti og galla sérðu við
rekstrarumhverfið?
Íslendingar eru að þroskast sem úra-
og skartgripaneytendur, sem er kostur.
Flestir eiga þó aðeins eitt úr sem notað er
við öll tækifæri, en erlendis á fólk iðulega
3-5 úr til að nota við mismunandi tæki-
færi. Erlendir birgjar eru mjög hissa þeg-
ar við reynum að útskýra markaðinn fyrir
þeim. Staðsetning landsins hækkar flutn-
ingskostnað, óstöðugur gjaldmiðill og
óhagstætt vaxta- og fjármálaumhverfi
valda síður samkeppnishæfum verðum.
Hvað gerirðu til að fá orku og inn-
blástur í starfi?
Það eru helst barnabörnin sem halda
mér ungum og vil ég gera vel við þau svo
þau hafi blómlega framtíð.
Hvaða lögum myndirðu breyta ef þú
værir einráður í einn dag?
Ég myndi breyta innflutnings- og
skattalöggjöf á þann máta að lækka alla
skatta og gjöld, og taka upp stöðugan
gjaldmiðil.
SVIPMYND Frank Michelsen úrsmiður og verslunareigandi
Morgunblaðið/Hari
Fengi Frank að ráða myndi hann lækka alla skatta og gjöld og taka upp stöðugri gjaldmiðil.
NÁM: WOSTEP- Centre Suisse de Formation et de
Perfectionnement Horloger: Úrsmíðameistari, 1978
STÖRF: Úrsmíðanemi 1972-1978, úrsmíðameistari
1978-1991, og frá 1991 eigandi Michelsen úrsmiða.
ÁHUGAMÁL: Er illa haldinn af úravírus sem hefur
orðið til þess að ég safna gömlum vasaúrum og
armbandsúrum. Hef sérstaklega gaman af gömlum
úrum sem hafa íslenska sögu á bak við sig.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Kvæntur Ingu S. Magnús-
dóttur, á þrjá syni: Frank M., Róbert F. og Magnús
D., sem allir starfa eða koma að Michelsen úrsmið-
um að öllu eða einhverju leyti. Og svo eru sex afa-
og ömmustrákar komnir og sá sjöundi á leiðinni. Allir
saman sprækir Mikkar.
HIN HLIÐIN
ÖKUTÆKIÐ
Bílasýningin í Genf stendur núna
yfir, og að vanda hafa framleið-
endur reitt fram veglegt hlaðborð
draumabíla. Vinir ViðskiptaMogg-
ans hjá Lamborghini létu ekki sitt
eftir liggja, og kynntu opna útgáfu
af ofur-sportbílnum Aventador
SVJ. Eins og á gamla Aventador
Roadster er þakið úr koltrefjaplöt-
um sem hægt er að fjarlægja og
stinga ofan í farangurshólfið fram-
an á bílnum.
Aventador SVJ er eins band-
brjálaður ofursportbíll og hugsast
getur, með 770 hestafla vél, tekur
2,9 sekúndur fara úr kyrrstöðu í
100 km/klst og nær allt að 350 km
hraða. Eins og með aðrar bifreiðar
Lamborghini er Aventador SVJ
samt ekki síður skemmtilegur þeg-
ar ekið er löturhægt um þröngar
götur ítalskra borga þar sem veg-
farendur rekur í rogastans og
hrópa uppyfir sig af einskærri
hrifningu: „che bella macchina!“
ai@mbl.is
Opinn toppurinn fer honum vel.
Þakið
tekið af
skrímslinu
Innrétting SVJ er ekkert slor.
Í SAFNIÐ
Fáum hagfræðingum hefur
tekist að hafa jafn mikil áhrif
til góðs og Friedrich August
von Hayek. Ekki þarf að
kynna verk hans lesendum
ViðskiptaMoggans, sem hafa
ugglaust lesið höfuðrit á borð
við Leiðina til ánauðar og
Frelssiskrána spjaldanna á
milli. Birti Morgunblaðið
meira að segja kafla úr Leið-
inni til ánauðar sumarið 1945,
og vakti svo mikla athygli að
íslenskir hægri- og vinstri-
menn þrættu um hugmyndir
Hayeks lengi á eftir í pistlum í
Morgunblaðinu annars vegar
og Alþýðublaðinu og Þjóðvilj-
anum hins vegar.
Blessunarlega varð
hugmyndafræði Hayeks ofan
á víða á vesturlöndum, og
varðaði þar leiðina að frelsi og vel-
megun.
Aðdáendur Hayeks ættu að líta
inn á vefsíðu Sotheby‘s en þar fer
núna fram uppboð á merkilegum
munum úr eigu fræðimannsins. Má
þar nefna frelsisorðu sem George
Bush eldri veitti Hayek árið 1991,
gullstöng með merki Mont Pelerin-
samtakanna, og meira að segja Nób-
els-verðlaunapeninginn sem Hayek
hlaut árið 1974.
Fyrir hagfræðinörda hlýtur samt
að standa upp úr eintak af Auðlegð
þjóðanna eftir Adam Smith með
glósum og undirstrikunum Hayeks.
Er hæsta boð 8.500 pund þegar
þetta er skrifað og sex dagar þar til
uppboði lýkur. ai@mbl.is
Dýrgripir Hayeks
Stefnir í
að bókin seljist á
margar þúsundir punda.
Íslendingar eru að þroskast sem
úra- og skartgripakaupendur