Morgunblaðið - 14.03.2019, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019 7
Varahlutir í allar
Cummins vélar
Fljót og áreiðanleg þjónusta
Frá 1940
www.velasalan.is
Sími 520 0000, Dugguvogi 4 , 104 Reykjavík
Miklar framfarir hafa orðið í sjúk-
dómavörnum í fiskeldi og má sem
dæmi nefna að í Noregi hefur þró-
unin náð því stigi að ekki þarf leng-
ur að beita lyfjum til að halda laxa-
lús í skefjum. Fiskeldisfyrirtæki
þurfa samt að gæta sín að sofna ekki
á verðinum og gefa engan afslátt af
ýtrustu kröfum.
Þetta segir Gunnar Steinn Gunn-
arsson, framleiðslustjóri matfisks
hjá Löxum fiskeldi. Á Strandbún-
aðar-ráðstefnunni 21. til 22. mars
mun hann halda erindi um sjúk-
dómavarnir og forvarnir í íslensku
laxeldi en Gunnar Steinn er að ljúka
doktorsnámi á sviði fisksjúkdóma
við Háskólann í Björgvin.
Ýmsir sjúkdómar geta gert fisk-
eldisfyrirtækjum lífið leitt en laxa-
lúsin hefur verið stærsta vanda-
málið í norsku laxeldi. Gunnar
Steinn segir aðstæður á Íslandi góð-
ar að því leyti að hér er sjórinn ögn
kaldari en í norsku fjörðunum og
fyrir vikið þrífst lúsin ekki eins vel.
„Rannsóknir á þróun lirfu laxa-
lúsarinnar hafa leitt í ljós að um leið
og hitastigið fer undir 4°C hægir
verulega á vexti lúsarinnar, henni
gengur illa að festa sig við laxinn og
drepst. Umhverfis Ísland er sjórinn
á bilinu 8-9°C þegar hann er heit-
astur en fer allt niður í 2,5°C á vet-
urna,“ útskýrir Gunnar og bætir við
að þar með sé ekki hægt að stóla á
að lúsin muni aldrei láta á sér kræla
hjá íslenskum laxeldisstöðvum.
„Laxalúsin berst í eldislaxinn með
villtum laxi og þó greinin hérlendis
hafi sloppið vel til þessa er ekki
hægt að útiloka að lúsin verði á ein-
hverjum tímapunkti til vandræða.
Eru fiskeldisstöðvar á Austurlandi
að því leyti betur staddar að þar er
minna af villtum laxi.“
Júnkarar narta í lúsina
Í Noregi hafa fyrirtæki beitt
miklu hugviti til að vinna bug á lús-
inni og segir Gunnar Steinn að nýj-
asta lausnin sé að hafa júnkara (e.
wrasse, no. leppefisk) og hrognkelsi
í kvíunum með laxinum en þessar
tegundir eru lúsaætur og hreinsa
laxinn á náttúrulegan hátt. „Eru þá
eins konar gardínur settar í kvína
þar sem þessar tegundir finna sér
skjól. Laxinn syndir svo þar í gegn
og lætur bíta af sér lúsina, og þykir
greinilega gott að losna við hana,“
útskýrir Gunnar Steinn og bætir við
að laxinn og lúsaæturnar séu bestu
vinir ofan í kvínni. „Laxinn er vel
fóðraður og nennir varla að eltast
við önnur kvikindi ef hann getur
vænst þess að fóðrið detti hreinlega
á hausinn á honum. Hins vegar
verður að gæta þess að fóðra lús-
aæturnar hæfilega þannig að þær
hafi enn áhuga á að narta í lúsina.“
Einnig er reynt að halda laxa-
lúsinni í skefjum með því að umlykja
kvíarnar með dúk sem nær allt að 10
metra ofan í sjóinn, en lúsin heldur
sig í efstu metrunum og kemst því
síður að fiskinum. „Einnig eru til
loftunartæki sem sækja djúpsjó,
sem er laus við alla lús, og beina upp
í kvína til að skapa hringrás sem
bægir burtu lúsunum sem eru á
sveimi í efstu lögum sjávar.“
Loks er hægt að nota sérútbúna
brunnbáta til að hreinsa lús af lax-
inum, ef þess er þörf, og nota til
þess ferskvatn eða hitað vatn. „Lax-
inn þolir ferskvatnið og hitann, en
lúsin ekki: hún missir takið og hægt
að safna lúsunum og eggjum þeirra
saman áður en laxinum er skilað aft-
ur ofan í kvína.“
Vandaðar sóttvarnir
Eins og fyrr var nefnt geta alls
kyns sjúkdómar herjað á fiskeldi og
segir Gunnar Steinn að veirusýk-
ingar séu einna verstar enda ekki
hægt að nota bóluefni eða lyf til að
verja fiskinn gegn þeim. Rétt vinnu-
brögð við fiskeldið séu því lykilatriði
svo að lágmarka megi hættuna á
sýkingu. Skiptir þar miklu að hafa
ekki minna en 3-5 km á milli fram-
leiðslusvæða, og hafa kynslóðaskipt
eldi þar sem hvert eldissvæði er
tæmt í heilu lagi þegar slátrað er og
lífríkinu gefinn hæfilegur tími til að
hreinsast og ná jafnvægi á ný. Er
m.a. athugað hvort úrgangur hafi
safnast upp undir kvíunum og gripið
til aðgerða ef hafstraumar flytja
ekki úrganginn burt eftir slátrun.
„Vakta þarf heilsufar fisksins reglu-
lega og viðhafa rétt vinnubrögð s.s.
við förgun á dauðum fiski og hreins-
un blóðvatns.“
Gunnar Steinn segir líka þurfa að
tryggja að smit berist ekki á milli
eldissvæða með starfsfólki eða tækj-
um. Báta og búnað sem fluttur er
inn til landsins þurfi að sótthreinsa
hátt og lágt og láta votta þrifin, og
eins hreinsa búnað sem fluttur er á
milli fjarða og landshluta.
Laxar fiskeldi rekur tvær seiða-
eldisstöðvar í Ölfusi, sjólandeldis-
stöð í Þorlákshöfn og matfiskaeldi í
Reyðarfirði. Fyrirtækið er ungt,
stofnað árið 2010, og stefnt á að
framleiðslan nái 4-5.000 tonnum á
þessu ári. Bendir Gunnar á að hafð-
ur sé skýr aðskilnaður á milli starfs-
stöðva hjá Löxum: „Starfsfólkið við
hverja eldisstöð kemur inn um sér
dyr, hefur sinn eigin búningsklefa,
og vinnuföt fyrir sína tilteknu stöð,
og sótthreinsar bæði klæðnað og
hendur áður en það fer til starfa. Ef
gesti ber að garði þá gætum við þess
líka að engin hætta sé á að þeir beri
mögulega smit með sér, og þeir
klæðast hlífðarfatnaði sem við eig-
um sjálf og getum vitað með vissu
að hafi verið sótthreinsaður.“
Allt gert til að fyrirbyggja sýkingu
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Í íslensku laxeldi er ströng-
um heilbrigðiskröfum fylgt
til að lágmarka líkurnar á
sjúkdómum. Í Noregi eru
fiskar settir í kvíarnar sem
éta lúsina af laxinum.
Gunnar Steinn Gunnarsson er
sérfræðingur í fisksjúkdómum.
Kvíar Laxa fiskeldis á blíðviðrisdegi. Huga þarf vandlega að sótthreinsun tækja og fatnaðar og hvíla eldissvæðin.
Afurðaverð á markaði
13. mars 2019, meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 300,90
Þorskur, slægður 344,59
Ýsa, óslægð 231,80
Ýsa, slægð 248,65
Ufsi, óslægður 93,20
Ufsi, slægður 136,43
Gullkarfi 217,52
Langa, óslægð 179,88
Langa, slægð 200,07
Keila, óslægð 44,47
Keila, slægð 99,51
Steinbítur, óslægður 157,92
Steinbítur, slægður 221,69
Skötuselur, slægður 568,74
Skarkoli, slægður 337,42
Þykkvalúra, slægð 799,37
Langlúra, óslægð 226,00
Sandkoli, óslægður 126,00
Bleikja, flök 1.500,00
Grásleppa, óslægð 106,15
Hlýri, slægður 246,56
Hrogn/langa 110,00
Hrogn/þorskur 245,65
Lúða, slægð 416,61
Lýsa, slægð 110,83
Rauðmagi, óslægður 224,48
Skata, slægð 62,94
Undirmálsýsa, óslægð 135,19
Undirmálsýsa, slægð 150,10
Undirmálsþorskur, óslægður 213,77
Undirmálsþorskur, slægður 198,30
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum