Morgunblaðið - 14.03.2019, Qupperneq 8
Eftir að búið var að leysa úr ýmsum málum
er tengdust brottvikningu fyrrverandi fram-
kvæmdastjórans og þegar framangreindum út-
tektum var lokið, var ákveðinni óvissu um fram-
tíðina eytt. Fyrir þremur vikum var síðan tekin
ákvörðun um hver myndi leiða fyrirtækið inn í
framtíðina, þegar Berglind var ráðin úr hópi
umsækjenda. „Núna horfum við fram á við.
Næsta verkefni mitt er að byggja upp stjórn-
endateymi til að vinna með mér, en okkur vant-
ar núna þrjá forstöðumenn. Það er rosalega
spennandi, og það verður gaman að fylla í þess-
ar stöður.“
Berglind segir að það sé tvennt í sínum huga
sem geri það þess virði að eyða tíma sínum í raf-
orkumálin, sem séu lykilmál og hafi aldrei verið
jafn mikilvæg. „Í fyrsta lagi er rafmagnið svo
mikill grunnur að lífsgæðum í landinu. Þá fram-
leiðum við helminginn af heita vatninu sem not-
að er á höfuðborgarsvæðinu, og það eru mikil
lífsgæði fólgin í því einnig. Þetta samfélagslega
mikilvægi starfseminnar er grunnurinn í mín-
um huga. Hitt atriðið er svo tengingin við lofts-
lagsmálin, sem gerir þetta allt saman enn meira
spennandi.“
Vissi ekkert um rafmagn
Berglind segir að þegar hún hafi byrjað að
vinna hjá Landsvirkjun á sínum tíma, þá hafi
hún ekkert vitað um rafmagn eða orkugeirann.
„Ég ákvað samt að sækja um. Mig langaði að
breyta til, og mér var seld hugmyndin um að
orkugeirinn væri mjög spennandi. Hann hefur
heldur betur staðist mínar væntingar.“
Ísland er komið lengst allra þjóða í heiminum
í orkuskiptunum svokölluðu, eins og Berglind
bendir á, færslunni frá notkun jarðefnaelds-
neytis yfir í notkun rafmagns eða annarra um-
hverfisvænna orkugjafa. „Aðrar þjóðir eru enn
að skipta út kolum, olíu og kjarnorku, en við
eigum eftir að skipta út losun frá samgöngum
og haftengdri starfsemi. Loftslagsvandinn er
orðinn það mikill að við verðum að grípa til að-
gerða strax. Það er gaman að vera hluti af
lausninni hjá ON, með alla þessa grænu orku.
Fyrir utan það að skoða orkuskiptin, þá er
áherslan hjá ON á að nýta auðlindina betur, að
fullnýta og fjölnýta, eins og við köllum það.“
Berglind segir að jarðvarminn sé megin-
orkugjafinn hjá ON, og þegar jarðvarmi sé
nýttur, þá losni aðrir straumar. „Nú leggjum
við áherslu á að nota m.a. skiljuvatn og koltví-
sýring sem hvort tveggja losnar við nýtingu
jarðvarmans. Í þessu tilliti höfum við sett á fót
Jarðhitagarð ON við Hellisheiðarvirkjun. Þar á
að vera vettvangur fyrir umhverfisvæna fram-
leiðslu og við bjóðum frumkvöðlum og fjár-
festum að vera þar með starfsemi. Í raun snýst
þetta um fullnýtingu auðlindastraumanna, og
áframhaldandi verðmætasköpun fyrir ON og
samfélagið allt. Í gegnum þetta erum við líka að
leggja mikla áherslu á nýsköpun, því hún skiptir
máli til framtíðar.“
Sem dæmi um starfsemi í jarðhitagarðinum
nefnir Berglind fyrirtækið Algaennovation sem
framleiðir smáþörunga bæði til dýraeldis og
manneldis. „Þau hafa verið með prófanir í eitt
og hálft ár og gengur vel. Smáþörungar nota
minna vatn og minna land en nýtt er til hefð-
bundinnar matvælaframleiðslu. Það er mikil
gerjun í smáþörungaheiminum. Þetta eru nær-
ingarríkir þörungar sem eru notaðir í fæðu-
bótarefni, en verða í framtíðinni notaðir meira í
matvælaframleiðslu.“
Aðspurð segir Berglind að ON leggi sjálft
ekki fé í fyrirtækin í jarðhitagarðinum. „Hugs-
unin er að byggja samfélag sem fullnýtir þá
strauma sem koma úr virkjuninni.“
Ryksuga andrúmsloftið
Önnur starfsemi í jarðhitagarðinum eru Jarð-
hitasýning ON og GeoSilica sem framleiðir
fæðubótarefni, og fjallað var um nýlega í mið-
opnuviðtali í ViðskiptaMogganum. Á tilrauna-
stigi eru svo fyrirtæki eins og Climeworks sem
þróar tækni til að einangra koltvísýring úr and-
rúmslofti. Berglind segir að Climeworks noti
Berglind Rán Ólafsdóttir hóf óvænt störf sem
framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar, ON, þeg-
ar hún var ráðin tímabundið í starfið síðastliðið
haust. Ráðningin kom í kjölfar þess að Bjarna
Má Júlíussyni fyrrverandi framkvæmdastjóra
var sagt upp störfum, en starfslok hans tengd-
ust „tilvikum þar sem framkoma hans gagnvart
samstarfsfólki var óviðeigandi“ eins og fram
kom í fréttatilkynningu frá ON á sínum tíma.
Áður hafði Berglind sinnt starfi forstöðumanns
fyrirtækjamarkaða.
Hvernig var að hefja störf mitt í þeirri miklu
umræðu sem spannst um fyrirtækið í þjóðfélag-
inu á þessum tíma?
„Það er ekki hægt að draga fjöður yfir þá
staðreynd að þetta var mjög erfiður tími sem
tók á alla sem vinna hérna. Þetta voru erfið mál
og umfjöllunin mikil. Þarna voru persónuleg
mál kollega okkar til umræðu, sem ekki var
hægt að ræða í fjölmiðlum. Þegar maður horfir
til baka þá reyndi þetta á margar tilfinningar.
Það sem stóð upp úr hjá mér þegar frá leið, og
inn á árið í ár, var hve starfsfólkið stóð þétt
saman og náði að einbeita sér að verkefnunum,
því það er svo stolt af því að vinna hjá ON.“
51% stjórnenda kvenkyns
Berglind segir að jafnréttismál hafi lengi ver-
ið í forgrunni hjá Orku náttúrunnar. „Þegar ég
var ráðin inn sem forstöðumaður fyrirtækja-
markaða þá var hlutfall kvenstjórnenda hjá
fyrirtækinu komið upp í 51%. Lengi á undan var
búið að vinna mjög markvisst í jafnréttismál-
unum, og sú vinna heldur áfram. ON og móð-
urfélagið, Orkuveita Reykjavíkur, eru komin
lengst allra fyrirtækja í orkugeiranum á Íslandi
í þessum málum, og við höfum jafnvel gengið
lengra en lög kveða á um að þurfi að gera.“
Berglind nefnir sem dæmi hugbúnað sem
unninn var í samstarfi við ON. „Þetta er hug-
búnaður sem greinir í rauntíma áhrif launa-
ákvarðana á launajafnrétti kynjanna í öllu fyrir-
tækinu. Hann er þróaður í nánu samstarfi
PayAnalytics og mannauðs- og jafnréttisdeild-
ina okkar. Þetta er mjög spennandi kerfi.“
Blaðamaður heggur eftir nafninu á deildinni,
mannauðs- og jafnréttisdeild. Hvernig kom
þetta heiti á deildina til?
„Í haust, þegar umræðan um fyrirtækið var
sem mest í fjölmiðlum, var ákveðið að fara í alls-
herjar úttekt á allri fyrirtækjamenningunni hjá
OR og dótturfyrirtækjunum Veitum og ON,
sem var mjög góð ákvörðun. Út úr þeirri úttekt
komu fullt af ábendingum, og ein af þeim var að
láta heiti mannauðsdeildarinnar endurspegla
betur áherslurnar í jafnréttismálunum. Því var
ákveðið að breyta heitinu í Mannauðs- og jafn-
réttisdeild. Heitið endurspeglar það hve alvar-
lega við tökum þessi mál.“
Hefur fleiri ábendingum úr þessari úttekt
verið hrint í framkvæmd?
„Já, við fengum ábendingar um ýmsa ferla
sem mætti bæta, og samanlagt nýttist þetta allt
til að gera góðan vinnustað enn betri. Auk þess
voru gerðar tvær vinnustaðagreiningar, önnur
af Háskóla Íslands, þar sem í ljós kom að vinnu-
staðamenningin var góð, og svo var það okkar
árlega innanhúss-vinnustaðagreining, sem
leiddi í ljós að starfsfólkið hefur aldrei verið
ánægðara í starfi, og konur eru sérstaklega
ánægðar. Fyrirtækið er þó síður en svo full-
komið og alltaf hægt að gera betur.“
stórar „ryksugur“ til að dæla andrúmslofti inn í
þar til gerð tæki sem svo einangra koltvísýring-
inn, og dæla honum niður í bergið með svokall-
aðri „gas í grjót“ tækni, ( e. Carbfix ) sem bind-
ur koltvísýringinn við berg til eilífðarnóns.
Gas í grjót tæknin er að sögn Berglindar
einnig notuð af ON til að binda koltvísýring sem
losnar frá starfseminni, til að hann fari ekki út í
andrúmsloftið. „Við stefnum á kolefnissporlausa
vinnslu, sem er mjög metnaðarfullt og krefjandi
markmið.“
Ég bið Berglindi að gefa mér dæmi um út-
blástur virkjunarinnar í samhengi við aðrar teg-
undir orkuvera. „Kolaorkuver losar átta hund-
ruð grömm af koltvísýringi á hverja unna
kílóvattstund en jarðvarmaverin okkar losa sjö
grömm. Þetta er mjög umhverfisvæn orka, en
við viljum taka þetta alla leið. Gas í grjót er
mjög ódýr leið til að fanga koltvísýringinn. Það
eru miklir möguleikar í þessari aðferð, ekki
bara fyrir jarðvarmavirkjanir, heldur líka aðra
starfsemi sem losar koltvísýring. Við þurfum að
minnka losun til að börnin okkar og barnabörn
geti búið hér. Það er verkefnið, og ég er mjög
stolt af þessu.“
Berglind segir að nýjar kynslóðir vilji ekki
vöru sem er óumhverfisvæn. „Fólk hefur áttað
sig á að loftslagsvandinn er raunverulegur, og
það þarf að gera breytingar. Það skiptir meira
og meira máli fyrir fólk að skipta við fyrirtæki
sem setur umhverfismálin í fyrsta sætið.“
En telur Berglind að ON hafi náð að marka
Það er gaman að vera
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Orka náttúrunnar er fyrirmynd í jafn-
réttismálum í orkugeiranum á
heimsvísu, að sögn Berglindar Rán-
ar Ólafsdóttur nýráðins fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins. Hún
segir að umhverfismálin standi
hjarta hennar næst, og segir
spennandi tíma framundan hjá
Orku náttúrunnar.
8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019VIÐTAL