Morgunblaðið - 14.03.2019, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019 11FRÉTTIR
Af síðum
Stóru iðnfyrirtækin reyna öll að sannfæra Wall Street um sama hlutinn:
heimurinn vex og dafnar og mun ekki geta verið án þeirra lausna sem
þau hafa að bjóða. Oft reynist raunveruleikinn ekki í samræmi við þessa
draumsýn. Félög á borð við General Electric koma upp í hugann í því
sambandi. Þar til nýlega hafði Boeing samt tekist að vera fremst meðal
jafningja hvað þetta varðar. Hlutabréfaverð félagsins næstum fjórfald-
aðist á undanförnum þremur árum og stafar m.a. af vexti flugsamgangna
í fátækari heimshlutum.
Nú er tvísýnt um þessa miklu velgengni, í kjölfar þess að tvær Boeing
farþegaþotur af nýjustu gerð, 737 Max, hröpuðu. Sú seinni brotlenti í
Eþíópíu á laugardag. Svo margir létu lífið í þessu hörmulega slysi að 7%
lækkun markaðsverðs Boeing, sem strokaði út jafnvirði 16 milljarða
dala, (þegar þetta birtist hefur enn sigið á ógæfuhliðina hjá félaginu hvað
þetta varðar) er aukatriði í samanburði. Stjórnvöld í Kína og víða annars
staðar tóku þá eðlilegu ákvörðun að kyrrsetja allar þotur þessarar gerð-
ar.
Starfsemi Boeing hefur gengið mjög vel upp á síðkastið, en óvissan í
kringum 737 undirstrikar hversu lítið má út af bregða til að rekstrar-
forsendurnar gjöbreytist.
Fyrirtækið hefur spáð því að smíða þurfi 40.000 nýjar þotur á næstu
20 árum til að mæta eftirspurn á heimsvísu. Farþegum fjölgar nú um
6-7% á ári sem er hér um bil tvöfalt hærri tala en mældur hagvöxtur á
heimsvísu. Af þessum nýju þotum – sem verða að stærstum hluta mjó-
þotur (e. single-aisle aircraft) og munu fljúga á milli áfangastaða innan
sömu heimsálfu – segir Boeing að 7.000 verði seldar til Kína. Félagið hef-
ur meira að segja tekið í gagnið 737 „standsetningar“-miðstöð þar í landi,
og er það til marks um hve mikilvægt hlutverk sá markaður leikur.
Áskorunin í rekstri Boeing er fólgin í því að breyta miklum þróunar-
kostnaði og flókinni aðfangakeðju í stöðuga og varanlega framleiðslu á
nýjum flugvélum. Fyrirtækið hefur lent í vanda vegna þess hversu mikið
smíði 787 dreamliner gengur á lausafé félagsins, en hefur tekist að gera
mikla bót þar á á undanförnum árum.
Boeing spáir því að handbært fé fari yfir 17 milljarða dala árið 2019,
sem er um það bil tvöfalt hærri tala en árið 2014. Þar sem tiltölulega lítil
þörf hefur verið fyrir fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum hef-
ur félaginu tekist að beina mestu af þessu handbæra fé í arðgreiðslur og
endurkaup hlutabréfa.
Boeing segir að 737 sé uppseld út árið 2023 og að nærri þriðjungur af
tekjum og rekstrarhagnaði félagsins komi frá sölu ýmissa útfærslna þot-
unnar. Hönnun þessara nýju þotna er mjög flókin, bæði hvað eðlisfræð-
ina snertir, og líka hvað varðar tölvubúnaðinn um borð. Sumir markaðs-
greinendur telja að með minniháttar breytingum á þjálfun flugmanna,
og á hugbúnaði flugvélanna, ætti að takast að ráða bót á öryggisvanda
737 þotunnar. Það er samt sennilegt að það sefi fjárfesta lítið að það skuli
orðið raunin að iðnfyrirtæki eru núna orðin að tæknifyrirtækjum, með
öllu því ógagnsæi sem því fylgir. Munurinn er sá að líf eru í húfi, en
ekki bara dyntir kaupandans.
LEX
Boeing: tími áfalla
Spotify hefur farið þess formlega á
leit við yfirvöld í Brussel að þau
grípi til aðgerða gegn App Store,
tónlistar- og hugbúnaðarverslun
Apple. Segir Spotify að bandaríski
snjallsímarisinn sé að „skekkja
markaðinn á kostnað keppinauta
sinna“.
Tónlistarveitan Spotify lagði inn
kvörtun vegna meintra samkeppn-
isbrota síðastliðið mánudagskvöld,
og vænir Apple um að hafa með
ólögmætum hætti nýtt sér markaðs-
ráðandi stöðu App Store til að
hampa sinni eigin tónlistarstreymis-
þjónustu; Apple Music.
Kvörtunin er til marks um að
aukin harka sé hlaupin í langvar-
andi deilur Spotify og Apple.
Daniel Ek, forstjóri Spotify, tjáði
sig um málið í bloggfærslu: „Á und-
anförnum árum hefur Apple af
ásetningi innleitt nýjar reglur sem
hafa þau áhrif að draga úr úrvali og
aftra nýsköpun, allt á kostnað hags-
muna neytenda – og með vísvitandi
hætti leikið bæði hlutverk leik-
manns og dómara til að gera öðrum
hugbúnaðarframleiðendum erfiðara
fyrir.“
Svo árum skiptir hefur Spotify
sagt stjórnvöldum í Evrópu og
Bandaríkjunum að þeim þyki við-
skiptahættir App Store óásætt-
anlegir. Er kvörtunin nú eins konar
stríðsyfirlýsing gegn stærsta keppi-
nauti Spotify, og vill þannig til að
aðeins nokkrar vikur eru í að Apple
hleypi af stokkunum sinni stærstu
nýju netþjónustu í áraraðir en fyrir-
tækið hefur boðað til viðburðar 25.
mars næstkomandi þar sem hulunni
verður svipt af nýrri streymis-
þjónustu fyrir kvikmyndir og þætti.
Horacio Gutierrez, yfirlögfræð-
ingur Spotify, neitar því að kvört-
unin til ESB tengist nýjustu sókn
Apple inn á afþreyingarmarkaðinn.
„Tímasetning þessara tveggja mála
er algjör tilviljun.“
Spotify enn stærst á heimsvísu
Gutierrez segir að þó svo að jafn-
vægi hafi verið á sambandi Spotify
og Apple í fyrstu þá breyttist það
árið 2009 þegar Apple hóf að keppa
við Spotify með beinum hætti með
tónlistarstreymisveitunni, Apple
Music. „Í framhaldinu voru [forriti
Spotify fyrir iOS stýrikerfið] settar
sífellt þrengri skorður“.
Vaxandi þrýstingur er á Spotify
að fjölga áskrifendum sem hraðast:
Nýlega tók Apple fram úr Spotify
sem vinsælasti seljandi tónlistar-
streymis í áskrift í Bandaríkjunum
– heimsins stærsta markaði fyrir
tónlist. En Spotify er áfram með
mikið forskot á alþjóðamarkaði, og
var með 87 milljónir borgandi
áskrifenda á heimsvísu í árslok
2018.
Spotify segist hafa afhent fram-
kvæmdastjórn ESB „greiningu á
efnahagslegum áhrifum“ við-
skiptahátta Apple en vill ekki
greina frá því opinberlega hve mikl-
um skaða félagið telur sig hafa orð-
ið fyrir.
„Þótt okkur hafi gengið vel að
láta fyrirtækið vaxa, þá hefði okkur
getað gengið enn betur,“ segir Gu-
tierrez.
Í kvörtun Spotify segir að frá
2011 hafi Apple krafist þess að allir
þeir sem smíða forrit fyrir iPhone
taki aðeins við greiðslum í gegnum
greiðslukerfi tæknirisans. Apple
hefur líka kynnt til sögunnar 30
senta þóknun, sem Spotify og allir
aðrir seljendur stafrænnar þjón-
ustu, þurfa að borga í hvert skipti
sem þeir nýta greiðsluþjónustu
Apple, á meðan forritum eins og
Uber og Deliveroo er ekki gert að
greiða sams konar gjald.
Spotify kvartar líka yfir að settar
hafi verið æ strangari reglur um
hvernig framleiðendum forrita leyf-
ist að eiga í samskiptum við fólk
sem gerst hefur áskrifendur í gegn-
um iPhone-forritið.
Daniel Ek segir Spotify einnig
hafa haft af áhyggjur af að banda-
ríski risinn hafi „verið að útiloka
Spotify og aðra keppinauta frá því
að tengjast lausnum og vörum
Apple, s.s. Siri, HomePod og Apple
Watch“.
Gutierrez bætir við: „Allt hefur
þetta haft þau áhrif að sem keppi-
naut og þátttakanda í alþjóðlegu
samkeppnisumhverfi er okkur ekki
lengur stætt á öðru en að grípa til
aðgerða.“
Tónlistarveitan Deezer sagði um
málið: „Við styðjum að Spotify vilji
koma því til leiðar að allir sitji við
sama borð [...] Í augnablikinu er
það ekki raunin og tónlistarunn-
endur sem nota iOS- og Apple-
vörur líða fyrir það með hærri
þóknunum og færri raunhæfum val-
kostum.“
Talsmaður framkæmdastjórnar
ESB sagði að kvörtunin hefði verið
móttekin og yrði „tekin til skoðunar
[...] í samræmi við verklagsreglur“.
Apple svaraði ekki fyrir-
spurnum vegna málsins.
Spotify sakar Apple
um samkeppnisbrot
Eftir Rochelle Toplensky í
Brussel og Önnu Nicolaou í
New York
Apple er gert að sök að
hafa þrengt jafnt og þétt
að fyrirtækjum sem bjóða
upp á tónlistarstreymi.
Daniel Ek, stofnandi Spotify, hefur nú lagt til orrustu við bandaríska tækni-
risann Apple sem hann segir brjóta á fyrirtæki sínu með alvarlegum hætti.
Baldvin Ómar Magnússon
Lögg. Fasteignasali
Sími: 585 0101 – Gsm: 898 1177
baldvin@huseign.is
Suðurlandsbraut 20, 2 hæð, Reykjavík | Sími: 585 0100 | www.huseign.is
Við getum boðið margar gerðir stálgrindarhúsa
með fullmáluðum einangruðum samlokueining-
um, gluggum, glerveggjum og fleira en þetta er
líklegasti ódýrasti byggingarmátinn í dag.
Nú getum við boðið stálgrindarhús frá ýmsum
fyrirtækjum í Evrópu og Asíu á mjög hagstæðu
verði sem uppfylla öll
evrópsk skilyrði.
Við vinnum með kaupanda/arkitekti eða yfir-
verktaka frá fyrstu hugmynd til verkloka. Þannig
verður ódýrasti byggingarmátinn staðreynd.
Hugmyndir af stálgrindarhúsum:
Íþróttahús, verslunarmiðstöðvar, knattspyrnuhús,
skrifstofubyggingar, verksmiðjuhús, gripahús,
íþróttastúkur, brýr og ýmislegt fleira.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Snorrason
í síma 615 2426.
Stálgrindarhús