Morgunblaðið - 16.03.2019, Page 1

Morgunblaðið - 16.03.2019, Page 1
Stöðvarstjóri (Bakki í Ölfusi) Laxar Fiskeldi ehf. er fyrirtæki sem stundar laxeldi á Íslandi. Fyrirtækið er að meirihluta í eigu Måsøval Eiendom, sem er norskt fjölskyldufyrirtæki sem hefur 45 ára reynslu af laxeldi. Fyrirtækið rekur tvær seiðaeldisstöðvar að Bakka og Fiskalóni í Ölfusi auk þess sem landstöð er starfrækt í Þorlákshöfn. Auk þess eru Laxar Fiskeldi með sjókvíaeldi í Reyðarfirði þar sem fyrirtækið hefur leyfi til að framleiða allt að 9.000 tonn af laxi í sjókvíum á þremur stöðum en fyrirhuguð framleiðsla félagsins á Austfjörðum til lengri tíma litið mun nema um 25.000 tonnum. Nánari upplýsingar veita Þórður S. Óskarsson (thordur@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 512 1225 og einnig Jóhannes Sigurðsson framleiðslustjóri seiðaeldis í síma 837-5750. Umsóknarfrestur er til og með 1. apríl 2019. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið. Menntunar- og hæfniskröfur:                                                !  "    !  Helstu viðfangsefni:  # $% $            &   '        &      &    !                  '       " & "        &   # $% $      $          ($          $ ) *          $  &   $ #  +   )     ! &   ,                        %  !!     ($  - .       %,     /0 ,    $  &       &        &     $ &  Intellecta - Síðumúli 5, 108 Reykjavík, sími: 511 1225. Nánari upplýsingar um fyrirtækið má finna á www.laxar.is        atvinna@mbl.is • Sölufulltrúi • Richard Richardsson, richard@mbl.is, 569 1391 Á Hellu búa um 900 manns og stendur Grunn skólinn á Hellu í hjarta þorpsins á einu fegursta bæjarstæði landsins við hina lygnu Ytri-Rangá. Í næsta nágrenni við grunnskólann er leikskólinn Heklukot og Tónlistarskóli Rangæinga, Íþrótta miðstöð með frábærri sundlaug, sparkvelli og leik- og útiíþróttasvæði. Á Hellu er margvísleg þjónusta og kraftmikil uppbygging m.a. hvað varðar fjölbreytt íbúða húsnæði. Þar eru ótal möguleikar til að sinna áhuga- málum og útiveru af öllu tagi. Á Hellu er gott mannlíf og þar er tekið vel á móti fólki. Skólastjóri Grunnskólans á Hellu Byggðasamlagið Oddi bs óskar eftir að ráða skólastjóra við Grunnskólann á Hellu. Leitað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn til að ganga glaður til verka og leiða af dugnaði öflugt skólasamfélag með samstöðu og árangur að leiðarljósi. Mikilvægt er að skólastjóri sé tilbúinn að viðhalda þeim góða skólabrag sem einkennt hefur starf Grunnskólans á Hellu. Á starfssvæði byggðasamlagsins búa um 1900 íbúar en það eru sveitarfélögin Rangárþing ytra og Ásahreppur sem standa að Odda bs. Grunnskólinn á Hellu er heildstæður grunnskóli með um 130 nemendur. Nánari upplýsingar um skólann má finna á www.grhella.is. Gildi Grunnskólans á Hellu eru: virðing – vinátta – víðsýni. Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst næstkomandi eða fyrr eftir samkomulagi. Helstu verkefni og ábyrgð: • Veita faglega forystu og leiða þróun skólastarfs til framtíðar í samræmi við skólastefnu sveitarfélaganna sem standa að byggðasamlaginu Odda bs, aðalnámskrá grunnskóla og lög um grunnskóla. • Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans. • Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, starfsþróun og vinnutilhögun. • Bera ábyrgð á samstarfi við aðila skólasamfélagins. Menntunar- og hæfnikröfur: • Leyfisbréf sem grunnskólakennari og farsæl kennslureynsla í grunnskóla. • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar eða uppeldis- og menntunarfræða og/eða farsæl stjórnunarreynsla. • Færni og reynsla í starfsmannastjórnun, stefnumótun og áætlanagerð. • Hæfni í samskiptum og metnaður til árangurs. • Reynsla í fjármálastjórnun kostur. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Samninganefndar sveitarfélaga (SNS) og Skólastjórafélags Íslands (SÍ). Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri byggðasamlagsins Odda bs. Umsóknarfrestur er til 8. apríl nk. Umsóknum skal skila á netfangið agust@ry.is. Með umsókn skal skila starfsferilskrá, nöfnum 2 umsagnaraðila, stuttri kynningu á umsækjanda og greinargerð þar sem umsækjandi gerir grein fyrir sýn sinni á skólamál og faglegri reynslu og getu sem nýtist í starfi. Frekari upplýsingar um starfið veitir Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri í gegnum netfangið agust@ry.is eða í síma 4887000. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Réttur er áskilinn til að hætta við ráðningu og/ eða auglýsa stöðuna að nýju.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.