Morgunblaðið - 27.03.2019, Side 11

Morgunblaðið - 27.03.2019, Side 11
Morgunblaðið/Golli mun ódýrara að vera með vinnslu- búnað í landi sem má einfaldlega tengja við rafmagnsdreifikerfið. Eins er skattlagning veiðanna hlutfalls- lega meira íþyngjandi, fyrir greinina í heild sinni, fyrir rekstur vinnslu- skipa en ef um væri að ræða lóðrétt samþættan rekstur ísfisktogara og landvinnslu.“ Með 357 kr meira aflögu Þegar dæmið er reiknað til enda kemur í ljós töluverður munur og segir Húni að á árunum 2011 til 2017 hafi framlegðarhlutfall rekstrar (e. EBITDA margin) iðulega mælst hærra hjá útgerðum með ísfisktog- ara og landvinnslu en hjá félögum sem gera út vinnsluskip. Miðað við tölur frá 2017 var launa- kostnaður vinnsluskipa um 42% af söluverði afla, á meðan hlutfallið var 26% samanlagt ef notuð voru ísfisk- skip við veiðarnar og vinnslan látin fara fram í landi. Var söluverð þorsk- afurða áætlað 613 kr / kg í tilviki vinnsluskipanna og því um 357 kr eftir þegar búið var að draga launa- kostnað frá. Þorskur af ísfiskskipum, unninn í landi, seldist hins vegar úr vinnslu fyrir 967 kr / kg að meðaltali og þá tæplega 715 kr eftir þegar launakostnaður hafði verið dreginn frá. „Þarna munar um 357 kr tekjum á hvert selt kíló ef einungis er horft á launakostnað. Sé horft til heild- arrekstrarkostnaðar minnkar þessi munur í krónum en verður samt fljótlega að mjög háum upphæðum þegar fyrirtæki eru að selja þorsk í tonnavís,“ segir Húni og bendir á að fjárfesting í nýjum ísfisktogurum, húsakosti og vinnslutækjum kosti sitt, og éti upp eitthvað af þessum af- gangi. „Hins vegar gæti það líka ver- ið ein skýringin á þessari þróun að þær tækniframfarir sem orðið hafa í fiskvinnslunum hafa orðið til þess að afköst á hverja vinnustund í landi eru sjöfalt meiri en fyrir rösklega tveimur áratugum, og gæti reikn- ingsdæmið litið allt öðruvísi út ef ekki væri fyrir vaxandi sjálfvirkni.“ Tölurnar gefa til kynna að þróunin muni halda áfram í sömu átt og segir Húni að því fylgi ýmis tækifæri. „Eftir því sem meira af vinnslunni færist yfir í land, því meira verður til af hliðarafurðum. Ísfiskskipin koma yfirleitt með fiskinn slægðan að landi, á meðan vinnsluskipin halda aðeins eftir flakinu. Það viðbótar- hráefni sem verður til í landi má nýta til að búa til nýjar vörur og þannig skapa enn meiri verðmæti úr aflan- um.“ Húni Jóhannesson segir meiri vinnslu í landi auka magn hliðarafurða. Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | sala@postdreifing.is | postdreifing.is FJÖLPÓSTUR SEM VIRKAR *könnun Zenter apríl 2016. 61% landsmanna lesa fjölpóst 70% kvenna lesa fjölpóst 58% neytenda taka eftir tilboðum á vöru og þjónustu í gegnum fjölpóst* Dreifum sex daga vikunnar inn á 80.000 heimili MARKHÓPURINN ÞINN BÍÐUR EFTIR TILBOÐI FRÁ ÞÉR Hafðu samband og við gerum þér tilboð í þá þjónustu sem þér hentar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019 11 Varahlutir í allar Cummins vélar Fljót og áreiðanleg þjónusta Frá 1940 www.velasalan.is Sími 520 0000, Dugguvogi 4 , 104 Reykjavík AF 200 MÍLUM Á MBL.IS Fjögur skip lönduðu kolmunna í verksmiðjur Síldarvinnslunnar í Neskaupstað og á Seyðisfirði um og fyrir síðastliðna helgi. Bjarni Ólafsson AK landaði rúmlega 1.600 tonnum á Seyðis- firði og Beitir NK rúmlega 2.000 tonnum. Hákon EA kom til Nes- kaupstaðar og landaði rúmlega 900 tonnum í verksmiðjuna ásamt um 230 tonnum af frystum afla. Þvínæst var landað rúm- lega 1.900 tonnum úr Berki NK. Áformað er að skipin haldi til veiða á ný eftir tíu daga eða svo þegar gera má ráð fyrir að kol- munninn hafi gengið inn í færeyska lögsögu. Kolmunna landað Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Bjarni Ólafsson AK á siglingu. Fiskvinnslan Norðanfiskur ehf., dótturfélag HB Granda, hyggst leggja aukna áherslu á framleiðslu fyrir innanlandsmarkað en draga úr framleiðslu fyrir erlenda kaupendur. Vegna þessara breytinga verður tveimur starfsstöðvum félagsins á Akranesi lokað. Hluti starfseminnar þar verður færður inn í aðalsstarfs- stöð félagsins að Vesturgötu 5. Í tilkynningu segir að sjö missi störf sín vegna breytinganna en 35 manns munu áfram starfa hjá félag- inu. Norðanfiskur hefur sérhæft sig í virðisaukandi vinnslu sjávarafurða fyrir veitingastaði og stóreldhús auk framleiðslu fisks í neytenda- pakkningum fyrir verslanir. ai@mbl.is Morgunblaðið/Golli Mynd úr safni sýnir starfsfólk Norðanfisks verka risavaxinn túnfisk. Breytingar hjá Norðanfiski

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.