Morgunblaðið - 27.03.2019, Side 12

Morgunblaðið - 27.03.2019, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019FRÉTTIR Ójöfn staða sambúðaraðila hvað varðar lífeyrisrétt-indi hefur verið nokkuð í umræðunni. Í lögum umlífeyrissjóði er til staðar jöfnunarúrræði sem heimilar skiptingu ellilífeyrisréttinda eða lífeyrisgreiðslna milli hjóna eða sambúðaraðila með frjálsum samningum. Margt þarf þó að hafa í huga þegar skoðað er hvort skipt- ing ellilífeyrisréttinda henti og ekki hægt að fullyrða að sú leið sé alltaf hin rétta í stöðunni. Ef ákveðið er að skipta lífeyrisréttindum nær skiptingin eingöngu til ellilífeyrisréttinda þeirra sem eru eða hafa verið í hjúskap eða óvígðri sambúð og til réttinda sem orð- ið hafa til á þeim tíma. Skiptingin þarf að vera gagnkvæm, jöfn og ná til allra lífeyrissjóða sem sjóðfélagi og maki eiga réttindi í. Lagaskilyrði um heilsufar og aldur eiga við um skiptingu áunninna réttinda svo skoða þarf þann valmögu- leika tímanlega. Skipting ellilífeyrisréttinda Tvær leiðir eru mögulegar þegar kemur að skiptingu elli- lífeyrisréttinda, skipting áunn- inna réttinda og skipting framtíðarréttinda. Umræddar leiðir eru oftast farnar þegar munur á lífeyrisréttindum er mikill og makalífeyrisréttindi í lífeyrissjóði þess sem á hærri réttindi eru lítil. Velji sjóðfélagi og maki þessa leið er hægt að skipta allt að helmingi lífeyrisréttinda sem söfn- uðust á sambúðartímabili eða skipta framtíðargreiðslum sem berast í lífeyrissjóð þannig að réttindi myndist fyrir hvorn aðila fyrir sig. Maki eignast þannig sjálfstæðan elli- lífeyrisrétt sem nemur allt að helmingi ellilífeyrisréttinda sjóðfélaga en maka- og örorkulífeyrisréttur skiptist hins vegar ekki. Sá möguleiki er auðvitað einnig fyrir hendi að velja báðar leiðir í einu, skipta því sem hefur áunnist og því sem mun ávinnast þau ár sem sjóðfélagi á eftir í starfi. Hafa þarf í huga að úrræðinu er ætlað að jafna heild- arstöðu lífeyrisréttinda milli hjóna, ekki gera réttindi maka hærri en sjóðfélaga. Í sjóðum þar sem makalífeyr- isréttur er ævilangur þarf því að huga sérstaklega vel að kostum og göllum skiptingar. Liggi réttindi sjóðfélaga svo til eingöngu í slíkum sjóði og lítill eða enginn ellilífeyr- isréttur er til staðar hjá maka getur slík skipting orðið til þess að maki stendur uppi með hærri réttindi en sjóðfélagi þar sem hann á nú helming ellilífeyrisréttinda sjóðfélaga ásamt fullum rétti til makalífeyris. Sjóðfélaginn sjálfur á hins vegar engin makalífeyrisréttindi og hefur látið eftir helming ellilífeyrisréttinda sinna. Skipting ellilífeyrisgreiðslna Sé þessi leið valin er einungis um að ræða skiptingu á ellilífeyrisgreiðslum, þ.e. eftir að taka ellilífeyris er hafin. Við fráfall sjóðfélaga falla greiðslur til maka niður, en makalífeyrisgreiðslur taka þá við. Við fráfall maka fær sjóðfélagi hins vegar greiddan allan ellilífeyrinn á ný. Þessi leið er til dæmis farin komi til þess að sjóðfélagi og maki geti ekki lengur haldið heimili saman sökum heilsu- fars á efri árum eða í þeim tilgangi að jafna skattbyrði. En hvert er þá svarið, hvað er best fyrir okkur að gera? Ellilífeyrisréttindi sem og réttur til makalífeyris er ólíkur milli sjóða. Flest höfum við safnað réttindum í nokkrum sjóðum um ævina og því er lykilatriði að kynna sér öll réttindi áður en ákvörðun um skiptingu er tekin. Að því loknu er fyrsta spurningin sem þarf að velta fyrir sér hversu löng ævi sjóðfélagans og makans verður. Blessunarlega veit ekkert okkar svarið við þeirri spurn- ingu né heldur vitum við með vissu hvernig efri árin verða, hvort við munum geta búið heima síðasta æviskeiðið eða hvort við munum njóta þjónustu hjúkrunarheimilis á ein- hverju tímabili. Ákvörðun um skiptingu lífeyrisréttinda byggist því óhjákvæmilega á einhvers konar líkindamati á því hvað framtíðin muni bera með sér. Standi vilji beggja aðila til þess að fara í slíka skiptingu þarf einnig að skoða hver af þeim þremur leiðum sem hér hefur verið fjallað um henti best. Frekari upplýsingar má nálgast á vef Landssamtaka líf- eyrissjóða, lifeyrismal.is, eða á heimasíðu þíns lífeyr- issjóðs. LÍFEYRISMÁL Snædís Ögn Flosadóttir, framkvæmdastjóri EFÍA og LSBÍ. Skipting ellilífeyrisréttinda – er það eitthvað fyrir ykkur? ” Tvær leiðir eru mögu- legar þegar kemur að skiptingu ellilífeyrisrétt- inda, skipting áunninna réttinda og skipting framtíðarréttinda. FORRITIÐ Reglulega má lesa um það í blöð- unum hversu vel eða illa fjármála- fyrirtækjum hefur gengið að stand- ast álagspróf. Þar er rýnt í bókhaldið og reynt að spá fyrir um hvort fyrirtækin geti lifað af alls kyns skakkaföll í efnahagslífinu. En hvað um heimilisbókhaldið? Hversu auðvelt ættu lesendur með að standa af sér fjárhagsleg áföll, eða þrauka í gegnum efnahagslægð? Fintest (www.fintest.co) býður upp á fjárhagslegt álagspróf fyrir einstaklinga, svo betur megi sjá hvar skórinn kreppir miðað við ýms- ar forsendur. Forritið býður notendum að slá inn upplýsingar s.s. um tekjur, föst og breytileg útgjöld, skuldir og eignastöðu, og hvernig tryggingum er háttað t.d. vegna tjóns á innbúi og húsnæði, veikinda, atvinnuleysis og andláts. Fintest reiknar síðan út hvað gæti gerst s.s. ef notandinn verður alvar- leg veikur eða missir vinnuna, ell- egar ef hagkerfið tekur dýfu svo að hlutabréfa- og fasteignaverð lækkar og landsframleiðsla dregst saman. Er líka reiknað hvað gerist ef allt fer á versta veg þannig að bæði hag- kerfið og heimilisfjármálin lenda í djúpri kreppu. Fyrir þessa þjónustu rukkar Fin- test 10 dali á ári. ai@mbl.is Álagspróf fyrir venjuleg heimili Sameinar það besta í rafsuðu Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288 HARI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.