Morgunblaðið - 27.03.2019, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019FRÉTTIR
Ójöfn staða sambúðaraðila hvað varðar lífeyrisrétt-indi hefur verið nokkuð í umræðunni. Í lögum umlífeyrissjóði er til staðar jöfnunarúrræði sem
heimilar skiptingu ellilífeyrisréttinda eða lífeyrisgreiðslna
milli hjóna eða sambúðaraðila með frjálsum samningum.
Margt þarf þó að hafa í huga þegar skoðað er hvort skipt-
ing ellilífeyrisréttinda henti og ekki hægt að fullyrða að sú
leið sé alltaf hin rétta í stöðunni.
Ef ákveðið er að skipta lífeyrisréttindum nær skiptingin
eingöngu til ellilífeyrisréttinda þeirra sem eru eða hafa
verið í hjúskap eða óvígðri sambúð og til réttinda sem orð-
ið hafa til á þeim tíma. Skiptingin þarf að vera gagnkvæm,
jöfn og ná til allra lífeyrissjóða
sem sjóðfélagi og maki eiga
réttindi í. Lagaskilyrði um
heilsufar og aldur eiga við um
skiptingu áunninna réttinda
svo skoða þarf þann valmögu-
leika tímanlega.
Skipting ellilífeyrisréttinda
Tvær leiðir eru mögulegar
þegar kemur að skiptingu elli-
lífeyrisréttinda, skipting áunn-
inna réttinda og skipting framtíðarréttinda. Umræddar
leiðir eru oftast farnar þegar munur á lífeyrisréttindum er
mikill og makalífeyrisréttindi í lífeyrissjóði þess sem á
hærri réttindi eru lítil. Velji sjóðfélagi og maki þessa leið er
hægt að skipta allt að helmingi lífeyrisréttinda sem söfn-
uðust á sambúðartímabili eða skipta framtíðargreiðslum
sem berast í lífeyrissjóð þannig að réttindi myndist fyrir
hvorn aðila fyrir sig. Maki eignast þannig sjálfstæðan elli-
lífeyrisrétt sem nemur allt að helmingi ellilífeyrisréttinda
sjóðfélaga en maka- og örorkulífeyrisréttur skiptist hins
vegar ekki. Sá möguleiki er auðvitað einnig fyrir hendi að
velja báðar leiðir í einu, skipta því sem hefur áunnist og því
sem mun ávinnast þau ár sem sjóðfélagi á eftir í starfi.
Hafa þarf í huga að úrræðinu er ætlað að jafna heild-
arstöðu lífeyrisréttinda milli hjóna, ekki gera réttindi
maka hærri en sjóðfélaga. Í sjóðum þar sem makalífeyr-
isréttur er ævilangur þarf því að huga sérstaklega vel að
kostum og göllum skiptingar. Liggi réttindi sjóðfélaga svo
til eingöngu í slíkum sjóði og lítill eða enginn ellilífeyr-
isréttur er til staðar hjá maka getur slík skipting orðið til
þess að maki stendur uppi með hærri réttindi en sjóðfélagi
þar sem hann á nú helming ellilífeyrisréttinda sjóðfélaga
ásamt fullum rétti til makalífeyris. Sjóðfélaginn sjálfur á
hins vegar engin makalífeyrisréttindi og hefur látið eftir
helming ellilífeyrisréttinda sinna.
Skipting ellilífeyrisgreiðslna
Sé þessi leið valin er einungis um að ræða skiptingu á
ellilífeyrisgreiðslum, þ.e. eftir að taka ellilífeyris er hafin.
Við fráfall sjóðfélaga falla greiðslur til maka niður, en
makalífeyrisgreiðslur taka þá við. Við
fráfall maka fær sjóðfélagi hins vegar
greiddan allan ellilífeyrinn á ný. Þessi
leið er til dæmis farin komi til þess að
sjóðfélagi og maki geti ekki lengur
haldið heimili saman sökum heilsu-
fars á efri árum eða í þeim tilgangi að
jafna skattbyrði.
En hvert er þá svarið, hvað er
best fyrir okkur að gera?
Ellilífeyrisréttindi sem og réttur til
makalífeyris er ólíkur milli sjóða. Flest höfum við safnað
réttindum í nokkrum sjóðum um ævina og því er lykilatriði
að kynna sér öll réttindi áður en ákvörðun um skiptingu er
tekin. Að því loknu er fyrsta spurningin sem þarf að velta
fyrir sér hversu löng ævi sjóðfélagans og makans verður.
Blessunarlega veit ekkert okkar svarið við þeirri spurn-
ingu né heldur vitum við með vissu hvernig efri árin verða,
hvort við munum geta búið heima síðasta æviskeiðið eða
hvort við munum njóta þjónustu hjúkrunarheimilis á ein-
hverju tímabili. Ákvörðun um skiptingu lífeyrisréttinda
byggist því óhjákvæmilega á einhvers konar líkindamati á
því hvað framtíðin muni bera með sér. Standi vilji beggja
aðila til þess að fara í slíka skiptingu þarf einnig að skoða
hver af þeim þremur leiðum sem hér hefur verið fjallað um
henti best.
Frekari upplýsingar má nálgast á vef Landssamtaka líf-
eyrissjóða, lifeyrismal.is, eða á heimasíðu þíns lífeyr-
issjóðs.
LÍFEYRISMÁL
Snædís Ögn Flosadóttir,
framkvæmdastjóri EFÍA og LSBÍ.
Skipting ellilífeyrisréttinda –
er það eitthvað fyrir ykkur?
”
Tvær leiðir eru mögu-
legar þegar kemur að
skiptingu ellilífeyrisrétt-
inda, skipting áunninna
réttinda og skipting
framtíðarréttinda.
FORRITIÐ
Reglulega má lesa um það í blöð-
unum hversu vel eða illa fjármála-
fyrirtækjum hefur gengið að stand-
ast álagspróf. Þar er rýnt í
bókhaldið og reynt að spá fyrir um
hvort fyrirtækin geti lifað af alls
kyns skakkaföll í efnahagslífinu.
En hvað um heimilisbókhaldið?
Hversu auðvelt ættu lesendur með
að standa af sér fjárhagsleg áföll,
eða þrauka í gegnum efnahagslægð?
Fintest (www.fintest.co) býður
upp á fjárhagslegt álagspróf fyrir
einstaklinga, svo betur megi sjá
hvar skórinn kreppir miðað við ýms-
ar forsendur.
Forritið býður notendum að slá
inn upplýsingar s.s. um tekjur, föst
og breytileg útgjöld, skuldir og
eignastöðu, og hvernig tryggingum
er háttað t.d. vegna tjóns á innbúi og
húsnæði, veikinda, atvinnuleysis og
andláts.
Fintest reiknar síðan út hvað gæti
gerst s.s. ef notandinn verður alvar-
leg veikur eða missir vinnuna, ell-
egar ef hagkerfið tekur dýfu svo að
hlutabréfa- og fasteignaverð lækkar
og landsframleiðsla dregst saman.
Er líka reiknað hvað gerist ef allt fer
á versta veg þannig að bæði hag-
kerfið og heimilisfjármálin lenda í
djúpri kreppu.
Fyrir þessa þjónustu rukkar Fin-
test 10 dali á ári.
ai@mbl.is
Álagspróf fyrir
venjuleg heimili
Sameinar það besta í rafsuðu
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288
HARI