Morgunblaðið - 27.03.2019, Side 13

Morgunblaðið - 27.03.2019, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019 13FRÉTTIR Gullfiskur Kæliþurrkaður harðfiskur semhámarkar ferskleika, gæði og endingu. Inniheldur 84%prótein. 84%prótein - 100% ánægja Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur Lang- vinsælastur hollusta í hverjum bita BÓKIN Sitt sýnist hverjum um þá þróun sem efnahagslíf Kína hefur tekið á undanförnum áratugum. Hagsæld í landinu hefur aukist til muna og kínversk stórfyrir- tæki farin að setja svip sinn á markaði um allan heim. Ráðamenn í Peking eru stórhuga og nota efnahagslegan meðbyr til að styrkja stöðu landsins á al- þjóðavettvangi, bæði til að öðlast meiri pólitísk ítök en líka til að greiða leiðina fyrir við- skipti við umheim- inn. Jonathan Hols- lag, prófessor við Frjálsa háskólann í Brussel, hefur verulegar efasemd- ir um uppgang Kína og telur að Evrópu stafi hætta af. Hann hefur gefið út bókina The Silk Road Trap: How China‘s Trade Ambi- tions Challenge Europe. Holslag bendir á ýmis hættu- merki. Þannig er útlit fyrir að kín- verskt fjármagn muni leika stærra hlutverk í evrópskum innviðaverk- efnum og að það muni setja evr- ópska stjórnmálamenn í erfiða stöðu. Þá virðast dæmin sanna að Kína vill ekki alltaf spila eftir sömu leikreglum og allir hinir: atvinnulífið er samofið ríkisvaldinu og þannig búið um hnútana að kín- verskum fyrir- tækjum er gefið ósanngjarnt forskot á ýmsum mikil- vægum sviðum. Ekki eiga allir eftir að verða sam- mála greiningu Holslags, og hvað þá þeim ráðum sem hann telur að grípa þurfi til. Holslag kveðst ekki vera hlynntur því að ríki iðki vernd- arstefnu í alþjóðaviðskiptum en tel- ur samt að besta leiðin til að tryggja hagsæld í Evrópu sé að fyrirtækin þar hafi einhvers konar forgjöf í viðskiptum sínum við Kína. ai@mbl.is Með gætur á blessuð- um Kínverjunum Lengi hefur verið ákvæði í mannréttindakafla stjórn-arskrárinnar þess efnis að menn skuli eiga rétt tilþess að stofna félög í sérhverjum löglegum tilgangi. Er þar átt við svokallað félagafrelsi en það nýtur einnig verndar samkvæmt 11. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu. Áður tóku íslenskir dómstólar þó skýra afstöðu gegn því að félagafrelsisákvæði stjórnarskrárinnar verndaði neikvætt félagafrelsi, þ.e. rétt manna til þess að standa utan félaga. Þetta kom til að mynda fram í Framadóminum svonefnda (Hrd. 1988, bls. 1532) þar sem fram kom að ákvæðinu væri aðeins ætlað að tryggja félagsstofnunina sem slíka en ekki rétt manna til að standa utan félaga. Framadómur Hæstaréttar var þó ekki það síðasta sem heyrðist af mál- inu þar sem Mannréttindadómstóll Evrópu átti eftir að taka fyrir meint brot íslenska ríkisins á félagafrels- isákvæði mannréttindasáttmálans. Varð niðurstaðan sú að ákvæðið fæli ekki einungis í sér rétt mann til þess að stofna félög heldur einnig rétt þeirra til þess að standa utan félaga. Árið 1995 voru svo gerðar breyt- ingar á mannréttindakafla stjórn- arskrárinnar og er nú mælt fyrir um það með skýrum hætti í 2. mgr. 74. gr. að engan megi skylda til aðildar að félagi. Með lögum má þó kveða á um slíka skyldu ef það er nauðsyn- legt til að félag geti sinnt lögmæltu hlutverki vegna almannahagsmuna eða réttinda annarra. Þannig er t.d. lögmönnum skylt að vera í lögmannafélagi, enda félaginu ætlað að hafa ákveðið eftirlit með þeim. Þetta er áhugavert í ljósi þeirrar umræðu sem hefur kom- ið upp um það hverjir megi vinna í verkföllum. Nokkuð ágreiningslaust er að stjórnendur fyrirtækja, stjórnarmenn ásamt eigendum og nánustu fjölskyldumeðlimum þeirra hafa heimild til þess að ganga í störf þeirra sem eru í verk- falli. Þá ber félagsmönnum í öðrum stéttarfélögum að sinna störfum sínum eins og áður. Því hefur hins vegar verið hald- ið fram af verkalýðshreyfingunni að heimildir annarra en stjórnenda til þess að vinna í verkföllum séu mjög takmark- aðar og að verkföll nái jafnvel til þeirra sem standa utan stéttarfélaga og þeirra sem skráðir eru í „röng“ stéttarfélög. Í þessu sambandi verður að hafa í huga að enginn ein- staklingur verður neyddur til þess að vera meðlimur í til- teknu stéttarfélagi enda væri slíkt andstætt 2. mgr. 74. gr. stjórnarskrárinnar. Allir launþegar eiga því rétt á því að standa utan stéttarfélaga ef þeir svo kjósa eða ganga í það félag sem þeir vilja, svo fremi að það félag vilji taka við þeim. Það myndi brjóta gróflega gegn rétti manna til þess að standa utan félaga ef vinnulöggjöfin væri túlkuð með þeim hætti að einstaklingum væri skylt að leggja niður vinnu vegna verkfallsboðunar félags sem þeir eiga ekki aðild að. Slík túlkun myndi gera það að verkum að þeirri réttarvernd sem 2. mgr. 74. gr. stjórnarskrárinnar er ætlað að tryggja væri kippt úr sambandi. Réttindin til þess að standa utan félaga eru til lítils ef félög, sem menn kjósa að standa utan, geta bundið einstaklinga með þessum hætti gegn vilja þeirra. Þetta væri jafnframt andstætt 2. mgr. 3. gr. laga nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur þar sem kemur skýrt fram að boðvald stéttarfélaga nái einungis til fé- lagsmanna sinna en ekki annarra. Aukinheldur hefur það verið stað- fest af Félagsdómi að verkfall nái einungis til félagsmanna þess stéttarfélags sem boðar verkfall en ekki annarra, sbr. t.d. dómur réttarins í máli nr. 11/1997. Það er ljóst að verkföll geta valdið miklu tjóni og það tjón getur margfaldast ef komið er í veg fyrir að þeir sem réttilega mega vinna í verkfalli sinni störfum sínum. Skaðabótaábyrgð þeirra aðila sem koma í veg fyrir að menn sinni störfum með löglegum hætti í verkfalli gæti því orðið mikil. Eðlilegast væru þó að stéttarfélög sem og aðrir myndu bera virðingu fyrir þeirri réttarvernd sem felst í 2. mgr. 74. gr. stjórnarskrárinnar svo ekki þurfi að koma til frekari deilna um rétt utanfélagsmanna til þess að sinna störfum þegar vinnustöðvun varir. Verkföll og neikvætt félagafrelsi LÖGFRÆÐI Ari Guðjónsson yfirlögfræðingur Icelandair Group ” Það myndi brjóta gróf- lega gegn rétti manna til þess að standa utan fé- laga ef vinnulöggjöfin væri túlkuð með þeim hætti að einstaklingum væri skylt að leggja nið- ur vinnu vegna verkfalls- boðunar félags sem þeir eiga ekki aðild að.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.