Bæjarblaðið - 07.02.1953, Blaðsíða 3
Laugardagurinn 7. febrúar 1953
BÆJARBLAÐIÐ
3
SEXTUGUR
SIGURÐUR SÍMONARSON
20. jan. s. 1. átti Sigurður
Símonarson, múrarameistari,
sextugsafmæli.
Hann er fæddur austur í
Rangárvallasýslu og ólst þar
upp (i Ási i Holtum), og var
þar fram yfir tvítugt. Múrverk
lærði hann að miklu leyti hjá
bónda í sveitinni, lagði þá land
undir fót og fór til höfuðstað-
arins og jók sina mennt í
iðninni, en fluttist ári síðar
hingað, eða 1916, og hefur alla
stund síðan átt hér heimili sitt
og helgað Akraneskaupstað
krafta sína í margháttuðu fé-
lags- og umbótastarfi.
Sigurður Símonarson er
gæddin- þeim góða eiginleika
að geta látið sig dreyma stóra
drauma um margt, sem öðru-
vísi mætti vera og á annan
veg ætti að vera, en það í reynd
inni er. En hann hefur þá held-
ur ekki brostið kjark til að
gera sína drauma öðrum heyr-
inkunna, því síður dug til að
standa á sínum málstað allur
og óskiftur, ef hann vissi hann
vera réttan og horfa til bóta.
Með mörgu móti hefur Sigurð
ur Símonarson skráð nafn sitt
í sögu þessa bæjar sem þrótt-
mikill framfaramaður, en þó
Ármann Halldórsson, Hof-
teigi varð sextugur 31. des. Ár-
mann er fæddur í Götuhúsum
hér á Akranesi, sonur hjónanna
Jórunnar, dóttur Þorkels Guð-
mundssonar bónda í Káravík á
Seltjarnarnesi og Halldórs Odds
sonar Magnússonar, hónda i
Múlakoti í Stafholtstungum.
Halldór var formaður á sex-
æring, sem hann átti, og réri
hann skipi sínu úr Göthúsavör
inni. Lítið man Ármann eftir
föðm sinum, því að hann lézt
í fiskiróðri, er drengurinn var
á fimmta ári. 15 ára gamall
réðist Ármann í skiprúm suður
í Garði og réri þar 2 vertíðir.
Formennsku byrjaði Ár-
mann á róðrarbát norður á
Langanesi 1913 og fiskaði vel.
Árið eftir um haustið tók
hann við vélbátnum Agli Skalla
grímssyni. Síðar varð hann
skipstjóri á v/b Garðari, eign
Har. Böðvarssonar. 1926 létu
þeir smíða 22 tonna vélbát i
sameiningu, hann og Þórður
Ásmundsson, sem Ármann hét.
Var Ármann skipstjóri á hon-
um þar til hann tok við floa-
bátnum Fagranesi, sem var í
förum hér á fjórða ár og Leifur
Böðvarsson átti.
Ármann var vinsæll yfir-
maður og hélzt vel á hasetum
sínum. Hann hefir fyrir nokkru
tekið sér hvíld frá störfunum
við sjóinn og keyrir nú bíl.
Ármann er giftur Margréti
dóttur Sigurðar Jónssonar og
kannske í engu betur en með
afskiftum sínum af staðsetn-
ingu sementsverksmiðjunnar
fyrir bæjarfélag sitt, og
skemmst er að minnast.
Sigurður er listrænn maður,
og hefur sá hæfileiki hans m.
a. komið í ljós í því, sem hann
hefur gert fyrir leikstarfsem-
ina í bænum. Þar á hann veiga-
mikinn þátt í merku en á
margan hátt örðugu brautryðj
endastarfi.
Af hinum mörgu forystu og
trúnaðarstörfum, sem samborg
arar hans hafa treyst honum
til, skal það eitt nefnt, að hann
var oddviti Ytri-Akraneshrepps
um skeið og sá síðasti, áður
en Akranes fékk bæjarréttindi
sín árið 1940.
Kona Sigurðar er Valgerður
Halldórsdóttir, ættuð af Eyr-
arbakka, frábær myndarkona,
og eiga þau hjónin 7 börn.
Á afmælisdaginn var gest-
kvæmt á hinu fallega heimili
þeirra. Þangað komu vinir og
samferðamenn til að þakka
þeim báðum góða samfylgd og
árna þeim heilla og hamingju
á ókomnum árum.
m.
Þuríðar Árnadóttur frá Innra-
Hólmi. Hefir hún alið honum
g börn. Tvö þeirra létust ung.
Hin 7 eru fjórar dætur og þrír
synir. Þrjú barnanna eru gift.
Oddur.
íþróttaliúsið...........
Framhald af 1. síðu
Á sundmeistaramót í Hvera-
gerði í siunar sendi IBA fjóra
þátttakendur og urðu tveir
þeirra íslandsmeistarar, þau
Bára Jóhannsdóttir og Nikulás
Brynjólfsson. Tók Bára við sín-
um heiðurspeningi, en Niku-
lás var fjarverandi.
Formaður Kára, Jón S. Jóns-
son, tók við bæjarstjórnarbik-
arnum fyrir hönd félags síns,
sem er Akranessmeistari í knatt
spyrnu.
Formaður ÍBA afhenti knatt-
spyrnumeisturunum, hverjum
fyrir sig, verðlaunapening.
Karl Helgason kennari af-
henti f. h. Knattspyrnufélags
Akraness málverk af Akrafjalli
eftir Ríkharð Jónsson. Á það
að prýða salinn.
Stutt ávörp og ræður fluttu:
Karl Helgason póstmeistari,
Ragnar Jóhannesson, Friðrik
Hjartar og séra Jón M. Guð-
jónsson.
Er athöfninni var lokið var
gestunum boðin hressing, öl,
brauð og kökur, sungin nokkur
lög og spilað góða stund.
Var þessi samkoma hin á-
nægjulegasta.
Sundmótið. . .
Framhald af 1. síðu
100 m. baksund karla.
1. Jón Helgason .... 1.20,5
Akranesmet.
2. Hafst. Jóhannsson 1.27,8
3- Hjálmar Loftsson t.29,7
50 m. skriSsund konur.
1. Bára Jóhannsdóttir o.39,i
2. Anna Gunnlaugsd. 0.40,0
50 m. bringusund drengja.
i. Helgi Hannesson. . 0.41,1
2. Sig Hannesson . . 0.41,4
3- Georg Elíasson . . 0.42,7
100 m. skriÖsund karla.
1. Helgi Haraldsson 1.07,8
2. Jón Helgason .... 1.11,8
3- örlaugur Elíasson 1.13,0
100 m. bringusund konur.
1. Bára Jóhannsdóttir 1-41,3
2. Ölafía Sigurbjörnsd 1.46,0
3- Súsanna Magnúsd. 1.47,8
32:50 m. boösund
1. Sveit Sundfélagsins 1.50,4
2. Sveit Kára 1.52,4
Um 35 keppendur tóku þátt
í mótinu. Keppt var um tvo
bikara, í 100 m. bringusundi
kvenna, en þeim bikar fylgir
nafnið sunddrottning Akraness.
Bára Jóhannsdóttir hefur unn-
ið hann tvö ár í röð, en hann
þarf að vinnast fjórum sinnu í
röð eða fimm sinnum alls til
eignar. Einnig var keppt um
baksundsbikarinn nú i fyrsta
sinn, og vann Jón Helgason
hann.
Form. I. A. Guðm Svein-
björnsson afhenti sigurvegurun
um bikarana, og verðlauna-
peningar voru veittir fyrir
hverja sundgrein.
Mótið fór vel fram og voru
margir áhorfendur.
Nú á næstunni verður í
Bjarnalaug, sundkeppni milli
Reykholtsskóla og G.fr.skóla
Akraness, en sú keppni milli
skólanna fór fram í fyrsta sinn
í fyrra í Reykholti, og vann
Reykholtsskóli þá. Urslit eru
tvisýn nú, því að betra er að
keppa í heimalaug, en Reyk-
’hyltingar hafa löngum verið
góðir sundmenn, og nemendur
þar eldri að árum en nemend
ur G. S. A.
Gagnfræðaskólinn og Barna-
skólinn munu halda sundmót
seinna i vetur og verður þar
háð m. a. keppni milli bekkja,
einnig verður þar háð hin ár-
lega keppni um skólabikarana,
en þeir, sem þá vinna hljóta
sæmdarheitið sunddrottning og
sundkóngur síns skóla. Hvor
skóli á 2 bikara, sem bera það
nafn.
laug hin árlega sundkeppni
laug hin árleiga sundkeppni
milli Akraness og Keflavíkur,
en það er bæjarkeppni, sem háð
hefur verið tvisvar, og hefur
hvor bær unnið einu sinni.
Þetta er bikarkeppni og er það
metnaðarmál áhugamanna að
vinna þessa keppni, en bikar-
inn þarf að vinna þrisvar í röð
eða 5 sinnum alls, til eignar.
Bæjarfréttir
Höfnin:
Allir bátar hafa róið að undan-
förnu. Afli hefur verið sæmilegur.
Mestur afli ó bát um 9 tn.
Bæjartogararnir hafa lagt upp afla
sinn hér, eins og að undanfömu.
Bjami Ólafsson þ. 2. þ. m. 250
tn. og Akurey 6. þ. m. um 160 tn.
Hjónaband:
24. jan. gaf sóknarpresturinn (sr.
J. M. G.) saman Kristínu Karls-
dóttur (Auðunssonar) og Sigurjón
Bjömsson, vélvirkja, frá Ósi. — Heim
ili þeirra er á Suðurgötu 36.
Gjöf til sjúkrahússins.
I janúar s. 1. gaf st. Akurblóm
nr. 3 Sjúkrahúsinu kr. 2000,00 til
minningar um Frú Helgu Níelsdótt-
ur og Kristmann Tómasson.
Fyrir þessa höfðinglegu gjöf vil
ég þakka fyrir hönd Sjúkrahússins.
ráSsmaSur.
Borgari boðinn vel-
kominn.
GuSrún, skírS 24. jan. (f. 12/11 '52).
Foreldrar: Sigurjón Bjömsson,
og Kristín Karlsdóttir, hjón,
Suðurgötu 36.
Anna Sigrún, skírS 1. febrúar (f.
15/5 ’52)-
Foreldrar: Böðvar Guðjónsson
og Svava Hallvarðsdóttir, hjón,
Skagabraut 24.
Sœvar, skírSur 1. febr. (f. 28/10 '52).
Foreldrar: Benedikt Hermanns
son og Oddný Ólafía Sigurjóns-
dóttir, hjón, Suðurgötu 82.
Þakkir:
B. K. 1. AKRANESDEILD, þakk-
ar hér með, hr. Þórði Þ. Þórðarsyni
bifreiðaeiganda fyrir umsjón og starf-
rækslu Sjúkrabifreiðarinnar síðastl.
ár, sem hann leysti af hendi með
mikilli prýði, ennfremur fyrir að
láta í té bifreiðastjóra endurgjalds-
laust í akstur bifreiðarinnar hér inn-
an bæjar.
Ennfremur þakkar deildin hr.
Bergi Ambjarnarsyni bifreiðaeftir-
litsmanni og Guðmundi Sveinbjöms-
syni forstjóra fyrir velvild og greiða-
semi í þógu bifreiðarinnar.
f. h. R. K. 1. Akranesdeild.
Ingunn Sveinsdóttir.
gjaldkeri.
Mirniismerki sjómanna
á Akranesi
vill minna á sig. Minningarspjöld
þess fást í flestum verzlunum bæjar-
ins og víðar. Látið það njóta áheita
ykkar. Eflum sjóð þess á allan hátt,
sem enn er of lítill til mikils átaks.
I Hafnarfirði er fyrirhuguð
keppni „Utanbæjarmanna“
annars vegar og Reykvikinga
hins vegar.
Þessa keppni unnu Reykvik-
ingar síðast og hafa utanbæjar-
menn fullan hug á að jafna
metin. Síðast fóru 5 Akurnes-
ingar í þetta landslið, og ef að
likum lætur verða þeir fleiri
í vor.
Af því sem að framan grein-
ir hefur sundfólkið á Akranesi
nóg að hugsa um það sem eftir
er vetrar.
Það er gott til þess að hugsa
að sem flestir hafi skemmtileg
og heilbrigð viðfangsefni, til
þess að glíma við í sínum frí-
stxmdum.
H.
Barnaskemmtun barna-
stúkunnar..
Bamastúkan hér hélt skemmti-
samkomu fyrir böm s. 1. sunnudag,
í Bíóhöllinni. Var þar margt á
dagskrá og fjölbreytt skemmtiatriði.
Samkoman var mjög vel sótt af börn-
unum.
Byggðasafn á Akranesi.
Þeir, sem ætla sér að stuðla að
því að byggðasafns hugmyndin nái
nokkrum framgangi, eru vinsamlega
beðnir um að láta ekki dragast lengi
að tilkjmna um þá gömlu muni, er
þeir ætla að gefa eða ánafna byggða-
safninu.
Góðir Akumesingar, látum þetta
mál ekki verða að engu í höndum
okkar.
Styðjum hina lömuðu.
Athygli þín er vakin á eldspýtun-
um, sem sérstaklega og á sinn hátt
er ætlað að „lýsa þeim, sem ljósið
þrá, en lifa í skugga" jafnhliða, sem
þú sjálfur hefur not af þeim.
Notaðu þær eldspýtur öðrum
fremur. Þær fást í flestum verzl-
unum. 7.
Rauði krossinn... .
Framhald af 1. síðu
sín og aleigu. Alþjóða Rauði
krossinn hefir því hafið starf
til hjálpar hinu bágstadda fólki.
Rauði kross Islands, sem er
grein á þessum alþjóðalíknar-
samtökum, hefir því vitanlega
ákveðið að taka þátt í starfinu
og vér, Akranesdeild hans,
megum ekki láta okkar hlut
eftir liggja. Verður nú leitað
til bæjarbúa um framlög til
hjálpar Skátarnir munu góð-
fúslega veita aðstoð sína, fara
um bæinn og safna fjárfram-
lögum. Fatagjafir verða einn-
ig vel þegnar. Fötin mega vera
notuð, en verða að vera hrein.
Fatagjafir er beðið að afhenda
frú Ingunni Sveinsdóttur, gjald
kera deildarinnar, sem og tekur
við fjárframlögum þeim, sem
berast.
Stjórn RauSakrossdeildar
Akraness.
Finnlandskvöldvaka . . .
Framhald af 1. síðu
skýrði sr. Sigurjón hana.
Þessari ágætu kvöldvöku
lauk með því, að karlakórinn
Svanir söng undir stjórn Geirl.
Árnasonar Finnlandia eftir Si-
belius og þjóðsöng Finna.
Aðsókn að þessari kvöldvöku
var svo dauf, að bæjarskömm
er að. Ekki þurfti þó að fadast
frá, vegna þess hve aðgöngu-
miðar væru dýrir, því að hver
þeirra kostaði aðeins 1 o krónur.
Er það í rauninni svo, að ame-
riskar gangsteramyndir og leik
rit á borð við „Karolína snýr
sér að leiklistinni“. það eina,
sem hlýtur aðsókn?
En hitt er áreiðanlegt, að all-
ir þeir, sem nutu þessarar Finn-
landskvöldvöku Stúdentafélags-
ins, munu húgsa til þess með
þakklæti fyrir óblandna á-
nægjustund og eina þá vönduð-
ustu skemmtiskrá, sem flutt
hefir verið á Akranesi á síð-
ari árum.
SEXTUGUR
ÁRMANN HALLDÓRSSON