Bæjarblaðið - 09.05.1953, Blaðsíða 4

Bæjarblaðið - 09.05.1953, Blaðsíða 4
Auglýsið í BÆJARBLAÐINIJ Akurnesingar! Kaupið BÆJARBLAÐH) BÆJAR6LAÐIÐ Akranesi, laugardaginn 9. maí 1953- TILKYNNING um lóðargjöld fardagaárið 1953—1954 Bæjarstjórn hefir samþykkt að nota heimild í lög- um nr. 29/1952 til þess að innheimta með álagi afgjöld af erfðafestulóðum og löndum Akraneskaupstaðar. Samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar verða afgjöld sem hér segir: Af byggingarlóðum þar sem grunnleigan er kr. 0,10 með 200% álagi. Af öðrum lóðum með 400% álagi. Af ræktunarlöndum í Garðalandi með 300% álagi. Akranesi 7. maí 1953 Bœjarstjórinn á Akranesi. Sveinn Finnsson. KjövsUv* til alþingiskosninga á Akranesi er gildir frá 15. júní 1953 til 14. júní 1954, liggur frammi almenningi til sýnis í skrifstofu bæjarins að Kirkju- braut 8, frá 28. apríl til 25. maí að báðum dögum með- töldum, alla virka daga kl. 10 til 12 f. h. og 1 til 4 e. h. Kærur yfir kjörskránni skulu vera komnar til bæjarstjóra eigi síðar en 6. júní n. k. Bœjarstjórinn á Akranesi 25. apríl 1953 Sveinn Finnsson. Fyrirliggjandi: ■ Hurðarskrár, hurðarhúnar, hurðarhengsli. Krómaðar höldur á eldhússkápa. Glerslípun Akraness KARLAKÓRINN SVANIR Söngstjóri: GEIRLAUGUR ÁRNASON $AM$ONQUR t Bióhöllinni 10. maí 1953 kl. U,30 e. h. Aðgönguimðasala í Bíóhöllinni sunnud. kl. n—12 og við innganginn ------- —.—.—=—--— ------------—----o——■ H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS Frá miðvikudegi 6. þ. m. fá öli vörugeymsluhús vor sama síma- númer og skrifstofur félagsins hafa nýlega fengið, og fæst sam- band við þau frá skiptiborði kl. 9—17. SímanúmeriS er 82460 (15 línur) Eftir kl. 17 verður beint samband við vörugeymsluhúsin þannig: 82465 Gamla pakkhúsiÖ, 82466 Vörugeymslan í Hafnarhúsinu, .... 82467 Vörugeymslan á austurhakkanum, (suöurhluti) 82468 Vörugeymslan á austurbakkanum, (norÖurhluti) 82469 Vörugeymslan í Haga, 82470 ViÖgerÖarverkslœöiÖ viÖ Tryggvagötu. Frá hverju þessara símanúmera er einnig hægt að gefa sam- band eftir kl. 17 við hvaða símaáhald sem er i vörugeymsluhúsum og skrifstofu félagsins, þó eigi sé beint samband við þau áihöld. Viðskiptamenn vorir eru vinsamlega beðnir að geyma þessa auglýsingu. H.F, EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS — HEIMSÓKN I NIÐURSUÐUVERKSMIÐJU Framhald af 1. síðu. þennan marvíslega hátt seljum við hana bæði innanlands og erlendis. — Hvað framleiÖiö þiÖ úr sjávarafurÖum? —. Jú, við erum byrjaðir að hirða fiskgallið, sem áður þótti til einskis nýtt. Nú safna litlir drengir því saman og kaupum við það af þeim, fá þeir fyrir þetta drjúgan skilding. — Hvernig farið þiÖ svo meÖ galliö og til hvers er þaÖ notaÖ? — Vatnið er „eimað“ úr því þangað til eftir eru aðeins þur efnin. Þá er það sett í stáltunn- ur og síðan selt til Ameríku, þar sem það er notað sem eitt hið þýðingarmesta efni í gigt- arlyf. — Við höfum líka að undanförnu soðið allmikið nið- ur af hrognum, en þau seldust aðeins til Englands. Nú um tima hefir ekki fengizt inn- flutningsleyfi fyrir þeim þar, svo að í vetur höfum við ekki soðið þau niður. — Þá er það hvalurinn, sem við matreiðum hér líka, þ. e. a. s. rengið og sþorðinn, og súrsum það i sýru frá Mjólkurstöðinni hér. Það er líka mikið eftirsótt vara. — Já, þaö kannast ég nú vel viÖ, því ég er einn af föstum neytendum hvalsins. — En hvaÖ er þá af landbúnáÖarvör- um, sem þiÖ matbúiÖ hér? — Við sjóðum niður rauð- rófur, gulrófur, grænar baunir og hvítkál, og var verksmiðja okkar sú fyrsta hér á landi, er byrjaði niðursuðu á hvítkáli. — Veiztu hversu mikil sala varÖ á framleiÖsluvörum verk- smiÖjunnar s. I. ár? — Já, verksmiðjan seldi inn- anlands fyrir 461 þús. króna, og auk þess erlendis fyrir 165 þús., eða samtals fyrir 626 þús. Ingimundur Steinsson hefir verið verksmiðjustjóri síðan 1945. Húsakynni verksmiðj- unnar eru góð. Stór og rúm- góður vinnusalur, enda sá stærsti slíkrar tegundar hér á landi. I honum eru vinnuvélar, með auðveldum útbúnaði, fjór- ir stórir suðupottar og eru raf- magnsvindur notaðar til upp- færslu úr þeim. Inn af vinnu- sal eru birgðageymslur, bæði efni til niðursuðunnar, svo sem dósir, kassar o. fl., og þar býður varan flutnings, eftir að frá henni hefir verið gengið og hún er tilbúin til neyzlu. Á annarri hæð eru dósaefni. Þar eru þau „völsuð“ út í þar til gerðum vélum og síðan flutt- ar í færiböndum niður og „botnaðar“. Þar eru þær svo hreinsaðar áður en varan fer í þær. Ég þakka Ingimundi góðar móttökur og gefnar upplýsing- ar og er allmiklu fróðari eftir en áður. K. H. Sunnanþeyr og blíðviðri hefur verið undanfama daga og má segja að veðráttan hafi gjörbreytzt til batnaðar um s. 1. mán- aðamót eftir langvinna norðanátt og kulda. Vorannir eru nú að hefjast. Hafa þegar margir tekið sér garðhrífur og grefla í hönd og eru farnir að hyggja að görðum sínum. Vertíðin: Gæftir hafa verið góðar að undan- förnu og hefur afli glæðst að sama skapi til stórra muna. Heildarafli bátanna þrjá fyrstu daga þessarar viku var um 353 smálestir og mun það vera með bezta afla, sem fengizt hefur hér i maímánuði mörg undan- farin ár. Höfnin: 26. april s. 1. landaði b/v Elliðaey 263,710 kg. af fiski. 27. s. m. landaði b/v Akurey 319,000 kg. af fiski. 28. s. m. landaði b/v Hafliði 350,960 kg. af fiski. s. d. lestaði m/s Dettifoss fros- inn fisk frá H. B. & Co. og Heima- skaga. 29. s. m. lestaði m/s Goðafoss fros- inn fisk frá Fiskiver h. f. 30. s. m. lestaði m/s Simplon fiski- mjöl frá S. F. A. 4. mai landaði b/v Vilborg Herj- ólfsdóttir 250,915 kg. af fiski. 5. s. m. lestaði m/s Jökulfell fros- inn fisk fré frystihúsunum. Dánardægur: Frú Kristín Guðmundsdóttir, Vest- urgötu 36, lézt þ. 24 f. m. og var jarðsungin þ. 2. þ. m., af séra Guð- mundi Sveinssyni á Hvanneyri. Hún hafði dvalið þrjú síðustu árin hjá syni sínum Guðmundi Jósefssyni. Læknarnir: Nætur- og helgidagavakt: Vikan 9. maí til 16. maí: Hallgrimur Bjömsson. Vikan 16. maí til 23. maí: dr. Árni Árnason. Leiðrétting: 1 sambandi við lista yfir ferm- ingarbörn í Akraneskirkju í síðasta blaði var þess getið, að séra Guð- mundur Sveinsson á Hvanneyri myndi ferma. En séra Guðmundur forfallaðist vegna veikinda og ann- aðist því séra Sigurjón Guðjónsson, prófastur í Saurbæ, ferminguna.

x

Bæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1341

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.