Bæjarblaðið - 17.12.1958, Page 8
Akurnesingar! Kaupið BÆJARBLAÐIÐ Auglýsið i
BÆJARBLAÐIÐ Akrcmesi, miðvikudaginn 17. desember 1958 BÆJARBLAÐINU
THcrkUcg lciksýning
Leikfélag Akraness og Karlakórinn Svanir frum-
sýndu sameiginlega Gamla Heidelberg, föstu-
dagirVn 5. des. s.I. Leikstjóri var Ragnhildur
Steingrímsdóttir, en sönginn æfði frú Sigríður
Auðuns.
yólakveðia lil góðra vina
Ég hafSi lengi haldiS, aS virSuleg afmæli og hátíSLeg
tækifœri þyrfti til þess, aS menn settu þakkarávörp í blöS.
En nú fer mér svo, aS ég tel dS mér beri skylda til aS
gera þaS, og þaS af ánœgjulegu tilefni.
Fyrir nokkru komu nokkrir beztu vinir okkar hjón~
anna, hér á Akranesi, á heimili okkar, mœltu til okkar
hlý og góS vináttuorS og færSu mér smekklega prentaS
og innbundiS ávarp þar sem mér eru þökkuS störf í þágu
gagnfrœSaskólans og bæjarfélagsins á undanförnum árum.
Ávarpinu fylgdu nokkur hundruS undirskriftir kenn-
ara, foreldra og nemenda og fleiri góSra vina og mœtra
manna.
ÞaS hlýtur aS vera mikils vzrSi hverjum manni, sem
helgaS hefir ákvéSnu starfi krafta sína á einu bezta
skeiSi œvi sinnar, aS finna, aS þaS er nokkurs metiS — aS
eftir þvi er munaS, sem vel var reynt aS gera.
Eg færi öllu því fólki, sem undir þetta fallega ávarp
skrifaSi, innilegustu þakkir mínar fyrir þennan trausts-
og v'náttuvott.
Ég óska ykkur öllum gléSilegra hátíSa og bjartrar
framtíSar.
RAGNAR JÓHANNESSON.
Leikfélag Akraness hefir á
undanförnum árum ráðizt í
hvert stórverkefnið af öðru og
unnið glæsilega sigra. Að þessu
sinni fékk það Karlakórinn
Svani í lið með sér og hlaut
árangurinn reyndar að verða
góður, þar sem tvö svo ágæt
félög tóku höndum saman. Ég
býst við, að sýningin á Heidel-
berg sé ein bezta leiksýning,
sem hér hefir sézt, hvort sem
miðað er við heimaunnar leik-
sýningar eða heimsóknir að.
Gamla Heidelberg er gam-
all og vinsæll söngleikur, sem
erfitt er að færa upp á litl-
um leiksviðum. Hér hefir þetta
þó tekizt furðanlega, svo að
ekki sé meira sagt, og er víst
óhætt að segja, að leikstjórinn,
Ragnhildur Steingrímsdóttir,
hefir unnið ágætt starf. Það er
ekki heiglum hent að staðsetja
svo fjölmenn atriði, sem hér
um ræðir með óvönu fólki á
þröngu leiksviði, svo að hnökra
-laust verði, en þetta hefir tek-
izt. Þar að auki hefir leikstjór
inn náð því bezta út úr
hverjum einstakling, hjá mörg
um allmiklu betra en þeir liafa
áður sýnt. Sönginn hefir frú
SigríSur AuSuns æft, og leikur
hún sjálf undir. Er söngurinn
veigamikið atriði í þessum leik
og tékst haann í flestum til-
fellum ágætlega. Hefir frúin
leyst þarna mikið starf af
hendi.
Aðalhlutverkin tvö, Kathie
og Karl Heinz erfðaprins, leika
þau Sigurborg Sigurjónsdótt 'r
og Baldur Ólafsson. Bæði þess?
hlutverk eru erfið cg krefjast
góðrar meðferðar, ella dettur
•sýningin dauð niður. Ræði Sig
urborg og Raldur sýna hér
miklu betri leik en vænta
mátti, þar sem þau hafa hvor-
ugt leikið svo stór hlutverk áð
ur. Var það sérstaklega eftir
tektarvert, að hin „dramatísku“
skilnaðaratriði voru eðlileg og
sannfærandi. Sigurborg má að
vísu draga svolítið úr höfuð-
hreyfingum sínum, en það eru
smámunir miðað við allt það
sem hún gerði ágætlega.
Liitz kammerþjón leikur
Júlíus Kolbeins. Höfum við
Akurnesingar þar eignazt sviðs
-vanan leikara, sem tekur hlut-
verkið alvarlega. Var leikur-
inn ágætur, en einhvern veg-
inn kunni ég ekki við andlits-
gervið, fannst hann of mon
gólalegur. — Dr. Jiittner leik-
ur ÓSinn Geirdal mjög eðlilega
og af góðri kimni. Forsætis-
ráðherra og hirðmarskálkur
voru í höndum Ragnars Jó-
hannessonar og Matthíasar
Jónssonar og voru báðir mjög
virðulegir. Jósep Riider veit
ingamaður er mjög skemmti
legur í höndum Valtýs Bene
diktssonar, en konu hans og
frænku hennar leika þær Sig-
ríSur Sigmundsdóttir og Sólrún
Ingvadóttir. — Kellermann
þjónn er í höndum SigurSar B
SigurSssonar. Þá eru ótaldir
kammerherrar og þjónar ásam'
aragrúa af stúdentum. sem r
langt mál væri upp að teljr
Eru leikendur þannig með ölh
og öllu talsvert á fjórða tup
inn. Af stúdentum vil ég nefrr
þá Alfred Einarsson og Stefái
Bjarnason. Fannst mér Stefár
koma skemmtilega á óvart og
vildi ég sjá hann aftur í grín
hlutverki á sviðinu.
Leiktjöldin málaði Láius
Árnason og sýnir hann enn,
að hann er vaxandi í þessari
list. Leiksviðsstjóri var að
vanda Gísli S'gurSsson en hanr
þáttur í leiksýningum hér er
ómetanlegur Ljósameistari var
Jóhannes Gunnarsson og va”
lýsingin ágæt.
Stemningin á frumsýn’ng
unni var mjög góð og voru leik-
endur cg leikstjóri hyllt í leiks
lok og bárust leikstjóra og
tveim aðalleikendum blóm i
leikslok. Ræjarstjórinn, Daníel
Ágústínusson, þakkaði leik-
stjóra og leikendum ágæta, sýn-
ingu fyrir hönd sýningargesta
Þessi leiksýning er merkur
viðburður í bænum og nú eiga
bæjarbúar að sýna, að þeir
kunni að meta gott starf og
fylla Ríóhöllina á minnst 8
sýningum. Það er bæjarskömm
ef svo ágætri sýningu sem hér
um ræðir, er sýnt tómlæti af
bæjarbúum, slíkt má ekki
henda. — Þ.
%
HRAÐSUÐUKATLAR
BRAUÐRISTAR
STRAUJÁRN, 5 gerðir
KÖNNUR m/elementi
ÞÝZKI HRINGOFNINN
NYTSÖMUSTU JÓLAG JAFIRNAR
ERU EINS OG SVO OFT ÁÐUR I
tycrzluninni Staðarfcll
ÞÝZK VÖFFLUJÁRN
STEIKAR-PÖNNUR
m/elementi
RYKSUGUR, 2 gerðir
LJÓSAKRÓNUR
Margar gerðir af litlum
BORÐLÖMPUM
ST ANDLAMP AR
VEGGLAMPAR
LOFTSKERMAR, úr plasti
M AT ARSTELL
KAFFISTELL
ÖLSETT
ÁVAXTASETT
ST ÁL-BORÐBÚN AÐUR
KRYSTALL-GLERVÖRUR — FLEST FÁANLEG BÚSÁHÖLD ÚR GLERI OG MÁLMI
S U NBEAM-hrœrivélar
koma ekki fyrr en
í febrúar .—
Seljum gjafakort.
JÓLA-
KORT
PAPPÍR
MERKIMIÐAR
SKÓR
JÖLATRÉS-SERlUR
MISLIT AR-L JÖS APERUR
Á KONUR
Á KARLA
Á BÖRN
MISLITAR BARNABOMSUR
Verzlunin Staðarfell
Búsáhöld og rafmagnsvörur — sími 190 — SkófatnaSur — sími 169
— Gjörið svo vel og lítið inn —