Röðull - 02.08.1925, Qupperneq 3

Röðull - 02.08.1925, Qupperneq 3
R Ö Ð U L L Ný bók. — „Vörn í guðlastsmálinu. íhalds- stjórnin gegn Brynjólfi Bjarnasyni" fæst í bókaverslun St. Stefánssonar. Verð kr. 1,50. Margar tegundir af vasaklutum fást hjá Jóni ísleifssyni. Allar íslenskar afurðir kaupir Verslun P.W.Jensen Þakkarávarp til Kvenfélagsins á Eskifirði. Þegar ég síðastl. vetur varð að fara til Reykjavíkur, til aö fá lækningu á sjóninni, kom það fyrir, sem ofthend- ir fátæklinginn, að lítið var um farar- eyrir. Leitaði ég þá til margra hér um hjálp og síðast til Kvenfélags Eskifjarð- ar. Lánaði það mér þegar 250,00 kr. til ferðarinnar, sem ég skyldi greiða í september þ. á. En hvað skeði ? í dag afhendir ein kvenfélagskonan mér gjafabréf fyrir þessum 250,00 kr. að fullu og kærleikskveðju með. Svona fögru fræi dreifir Kvenfélag- ið á Eskifirði út frá sér, og er þetta ekki fyrsta dæmið. Einnig síðar gaf Verkafélag kvenna á Eskifirði mér 50,00 kr., þegar meir þrengdi að með sjúkdóm minn. En nú er ég, guði sé lof, alheil aftur. Það á ég þessum báðum aðilum að þakka, næst guöi; og hann bið ég launa fyrir mig. Aö endingu flytjum við báð- um þessum félögum og hverjum ein- stakling þeirra alúðar þakkir. Eskifirði 9. júlí 1925. Ragnheiður Björnsdóttir. Bjarni Eiríksson. Myndarlegur silungur veiddist á Eskifirði þ. 22. júní s. 1. Vó hann 4,15 kg. og var 71 cm. langur. Skúli Þórðarson, Gauksstöðum, Jukuldal, lauk stúdentsprófi í Kaup- mannahöfn 1. þ. m. Dvelur hann heima í sumar, en siglir aftur í haust til framhaldsnáms. Misprentast hafði í síðasta tölubl. í greininni um Amundsen, Fenchl f. Feucht. í augl. P. W. Jensen, when f. where. Sömuleiðis var skakt númer á nokkru af upplaginu, 30. í stað 31. tbl. Síðustu símfregnir. Verkfall gerðu 400 verkastúlkur á Siglufirði eigi alls fyrir löngu. Vildu jiær eigi ganga að boönum kjörum, 75 aura á tunnu, en heimtuðu 1 kr. Eftir talsvert þref gengu útgerðarmenn að kröfum þeirra, en í blöðum í Reykja- vík hafa risis upp all-miklar ritdeil- ur út af máli þessu. — Lögjafnaðar- nefndin heldur bráðlega fund í Kaup- mannahöfn. Getur Bjarni frá Vogi ekki sótt hann, sökum nýafstaðinna veikinda. Að þessu sinni framfylgir hún kröfum íslands um endurheimt skjala og forngripafrá Danmörku. — Tekist hefir að ljósmynda Krappa- meinsbakteríuna og er það af vísinda- mönnum talið hafa stórmerka þýðingu. — Síldveiði er treg á Norðurlandi það sem af er. 25. júlí voru komnar á land aðeins 6000 tunnur. — Heilsuhæli Norðurlands verður reist á svo köll- uðu Kristnestúni, og verður sennilega hægt að reka það án kola. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Arnf. Jónsson. Sími nr. 16. Prentsmiðja Austurlands, Seyðisfirði Þjóðsögur eftir Leo N. Tolstoj. lljasz. Niðurl. „Satt segi ég, og ég tala ekki í gamni: í hálfa öld leituðum við ham- ingjunnar og fundum hana ekki á með- að við vorum rík. Nú eigum við ekk- ert efir og vinnum fyrir okkur hjá ó- kunnugu fólki — þannig fundum við hamingjuna". „í hverju felst ykkar núverandi gæfa?M „Þegar við vorum rík, áttum við al- drei rólega stund, gátum aldrei hvílt okkur, ekki talast við, ekki hugsað um velferð sálarinnar né beðið til guðs. Við höfðum svo miklar áhyggjur. Gesti bar að garði, og með þeim komu á- hyggjurnar: Hvað áttum við að veita þeim og hvað áttum við að gefa þeim, svo þeir töluðu ekki illa um okkur? Þegar gestirnir eru farnir, förum við að líta eftir vinnumönnunum — þeim þykir gott að hvíla sig og borðagóð- an mat — en við viljum halda sam- an reitunum — og þannig syndgum við. Við höfum áhyggjur út af því, að úlfurinn kunni að drepa fyrir okkur folald eða kálf og að þjófar geti kom- ið og rænt okkur. Þegar við erum háttuð, getum við ekki sofið fyrir um- hugsuninni um það, að ærnar kunni að troða lömbin undir sér, og við förum á fætur um miðja nótt. Við er- um naumasl orðin róleg aftur, þeg- ar áhyggurnar fyrir komandi vetri fara að ásækja okkur og við fcstum ekki blund fyrir umhugsuninni um það, hvernig við getum safnað nægu fóðri til vetrarins. En þar með er ekki alt sagt — milli okkar var engin ein- ing. Hann segir, svona á að gera það, og ég segi, þannig á það að vera. Og við rífumst og syndgum. Áhyggja bættist við áhyggju, synd við synd — við litum aldrei glaðan dag“. „Og núna?“ „Þegar við förum á fætur, þá töl- um við saman í ást og einingu, því nú er ekkert sem við getum deilt um, ekkert, sem við þurfum að hafa á- hyggjur af. Við hugsum aðeins um það, að þjóna húsbóndanum. Og svo vinnum við af öllum mætti, með sannri ánægju, til þess að húsbóndinfi tapi engu, heidur beri eitthvað npp. Þegar við komum frá vinnunni, er miðdegisverðurinn tilbúinn; sama er um kvöldmatinn, og kumys vantar heldur ekki. Þegar kalt er, þá hitum við okkur við ofninn og förum í loð- feldina. Nú höfum við líka tíma til þess að tala saman, hugsa um sálar- heill okkar og biðja til guðs. Við leit- uðum gæfunnar í fimtíu ár og nú fyrst erum við búin að finna hana". Gestirnir hlóu. En Iljasz sagði: „Hlæið ekki, bræður, þetta er ekk- ert spaug, heldur mynd af mannlífinu. Við vorum glópar, kelli mín og ég, þegar við grétum yfir auðnum, sem við töpuðum. En nú er guð búinn að sýna okkur sannleikann. Og það var ekki til þess að skemta ykkur, að við sögðum ykkur þetta, heldur til þess að gera vel til ykkar“. „Þetta er viturlega mælt“,sagði einn af gestunum. „Iljasz segir satt. Þann- ig stendur það líka í ritningunni". Gestirnir voru hættir að hlæja og urðu hugsi.

x

Röðull

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Röðull
https://timarit.is/publication/1348

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.