Skagablaðið


Skagablaðið - 28.12.1984, Blaðsíða 5

Skagablaðið - 28.12.1984, Blaðsíða 5
Spámenn vikunnar Það fór eins og okkur á Skagablaðinu grunaði, að efna þyrfti til aukakeppni á milli þátttakenda í getraunaleiknum áður en að sjálfum úrslitaslagn- um kæmi. Ur því Sigþóra Ar- sælsdóttir náði ekki nema 4 réttum í tilraun sinni fyrir jól verður hún að sætta sig við það að heyja aukakeppni við þrjá aðra „spekinga“ blaðsins. Þeir eru Hörður Ragnarsson, einlægur West Ham-aðdáandi, Einar Skúlason „die hard Tjelsí fan“, og Ingibjörg Guðmunds- dóttir, einnig West Ham-að- dáandi. Öll náðu þau 4 réttum en þau Ragnheiður Þórðardótt- ir, Hörður Helgason og Páll I. Pálsson eru þegar örugg í 4- manna úrslitin. Enginn getraunaseðill er gef- inn út að þessu sinni hjá ís- Einar Skúlason lenskum getraunum en við á Skagablaðinu látum það ekki á okkur fá og skenkjum þessu fólki 12 leiki, sem fara fram á morgun. Og þá er bara að vona að einhver einn vinni sigur í þessari aukakeppni. Chelsea-Man.Utd. 1 Coventry-West Ham 1 Ipswich-Everton X Liverpool-Luton 1 Newcastle-Arsenal 2 Nottm.Forest-Aston Villa 1 Southampton-Sheff.Wed 1 Stoke-QPR X Tottenham-Sunderland 1 Watford-Leicester 1 WBA-Norwich 1 Sheff.Utd.-Portsmouth 2 Hörður Ragnarsson Einar sagði okkur á Skaga- blaðinu að þessi röð sín ætti að tryggja 10 rétta, ekkert minna. Einn manna tippar hann á Chelsea og Skagablaðið styður hann í því. Chelsea-Man.Utd. 2 Coventry-West Ham 2 Ipswich-Everton 2 Liverpool-Luton 1 Newcastle-Arsenal 2 Nottm.Forest-Aston Villa X Southampton-Sheff.Wed 1 Stoke-QPR X Tottenham-Sunderland 1 Watford-Leicester 1 WBA-Norwich 2 Sheff.Utd.-Portsmouth X uve<* .0,0° 3_',eW- v/v nf"oðí sérstakt IHAFPDRÆITI A O sinnum á ári getur þaö gerst, IZ aö við stöndum óvænt meö fullar hendur fjár -og allt áriö erum viö beinir þátttakendur í að skapa sjúkum betra líf. neitanlega ánægjuleg tilfinning 0 Happdrætti Ingibjörg Guðmundsdóttir Sigþóra Ársœlsdótdr Hörður var fámáll um sína röð, fæst orð hafa enda minnsta ábyrgð. Chelsea-Man.Utd. 2 Coventry-West Ham 2 Ipswich-Everton 2 Liverpool-Luton 1 Newcastle-Arsenal 2 Nottm.Forest-Aston Villa 2 Southampton-Sheff.Wed X Stoke-QPR 2 Tottenham-Sunderland 1 Watford-Leicester 1 WBA-Norwich X Sheff.Utd.-Portsmouth 2 Ingibjörg taldi sig ekki mundu verða fjarri 12 réttum með þessari tilraun sinni. Chelsea-Man.Utd. 2 Coventry-West Ham 2 Ipswich-Everton 2 Liverpool-Luton 1 Newcastle-Arsenal 1 Nottm.Forest-Aston Villa 2 Southampton-Sheff.Wed 1 Stoke-QPR X Tottenham-Sunderland 1 Watford-Leicester 2 WBA-Norwich 1 Sheff.Utd.-Portsmouth X Sigþóra taldi sig fullvissa á því að þessi röð hennar gæfi henni einhvers staðar á bilinu 10-12 rétta. Hvað yrði ofan á yrði bara að koma í ljós. Flugeldahugleiðingar Aðgæsla er vöm gegn vá Gamlársdagur er jafnan ein- hver mesti fjördagur ársins enda sá síðasti og því ekki seinna vænna að sletta úr klaufunum það árið. Islendingar senda sennilega hlutfallslega meira af flugeldum upp í loftið en nokkur önnur þjóð og 99% þeirra skota fer fram á gamlársdag. Þrátt fyrir viðvaranir ár eftir ár verða ætíð mörg slys í eða við heimahús í tengslum við flugeidana. Skagablaðið hefur fengið Kiwanisklúbbinn Þyril í lið með sér og í samvinnu við Hjálp- arsveitir skáta hafa eftirfarandi varúðarráðstafanir verið festar á blað. Skagablaðið beinir þeim tilmælum til lesenda að þeir hafí þessi atriði hugföst er þeir fara að eiga við flugeldana. 1. Skjótið aðeins flugeldum af stöðugri undirstöðu, t.d. skot- fæti, vel skorðuðum flöskum eða röri, sem fest er við staur. Þakkir frá JC Akranesi JC Akranes kom að máli við Skagablaðið á annan dag jóla og óskaði félagið eftir að koma á framfæri þökkum til allra þeirra, sem lögðu hönd á plóginn er jólasveinarnir fóru hringferð um bæinn fyrir skemmstu. JC-menn eru tengiliðir við þá rauðklæddu. Fulltrúar úr félaginu vildu jafn- framt að það kæmi fram, að úr því svo vel hefði tekist til að þessu sinni, yrði haft samband við allar verslanir fyrir næstu jól og þeim boðið að fá jólasveinana í heim- sókn. 2. Skjótið aldrei flugeldum af svölum húsa. 3. Beinið flugeldum frá öðru fólki er kann að fylgjast með. 4. Geymið flugelda fjarri eldi og aldrei í vasa. Gætið þess að flugeldar, sem eftir á að tendra séu í öruggri fjarlægð frá neista- flugi. Haldið aldrei á flugeldi samtímis sem kveikt er á öðr- um. 5. Ærslist ekki með flugelda og bogrið ekki yfir þeim á meðan kveikt er á þeim. ó.Gangiðaldrei að ósprungnum flugeldi, ef ekki hefur tekist að kveikja í honum, glóð gæti hæglega leynst í honum og hann farið af stað er minnst varði. 7. Látið aldrei börn og óvita leika sér með flugelda. Það er hægt að hafa af þeim mikið gaman en þeir geta einnig vald- ið slysi á augnabliki. 8. Geymið flugelda á þurrum og öruggum stað! 9. Ölvun og flugeldar fara ekki saman. 10. Haldið hundum og köttum innandyra, það er þeim fyrir bestu. 11. Haldið aldrei á blysum nema sérstaklega merktum handblysum, blysum með tré- skafti og stjörnuljósum. Notið þá ullar- eða skinnhanska. Þeir geta hæglega forðað brunasári. 12. Fái einhver í fjölskylduni brunasár þá er besta skyndi- hjálpin að kæla sárið með köldu vatni. Það hjálpar ótrúlega mik- ið ef skjótt er brugðið við. 13. Lesið allar Ieiðbeiningar mjög vel og farið eftir þeim í einu og öllu. Munið, að aðgæsla er vörn gegn vá. 5

x

Skagablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.