Skagablaðið

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat

Skagablaðið - 28.12.1984, Qupperneq 6

Skagablaðið - 28.12.1984, Qupperneq 6
1 Vignir Jóhannsson og sambýlis- kona hans Davi L. Abrahamson hér á Akranesi um jólahátíðina. Meiriháttar upplHun að finna Prins póló í New York — Skagablaðið ræðir við myndlistarfólkið Vigni Jó- hannsson og sambýliskonu hans, Davi L. Abraham- son sem dveljast á Akranesi yfir hátíðamar Vignir Jóhannsson, tvímælalaust kunnasti myndlistarmaður Skaga- manna um þessar mundir og þó víðar væri leitað, kom rétt fyrir jólin heim til Islands í stutt frí frá New York, þar sem hann býr ásamt sambýliskonu sinni, Davi L. Abrahamson, sem einnig er afbragðs listamaður. Skagablaðið náði tali af Vigni og konu hans rétt áður en jólahátíðin gekk í garð og innti hann fyrst eftir því hvað hann væri helst að fást við þessa dagana. „Það hefur nú verið fremur rólegt hjá mér undanfarið, utan hvað ég hef verið með í nokkrum samsýningum vestra,“ sagði Vign- ir og lét lítið yfir sér. „Annars er ég hættur í grafíkinni og hef ekkert fengist við hana frá því hérna um árið þegar ég hélt sýninguna í Listmunahúsinu í Vignir við „þrykkivélina“ á vinnu- stofu sinni á 7. hæð vöruhúss í Williamsburgh. Eins og glöggt má sjá eru gluggar ekki af skornum skammti á þeim bænum. Lækjargötunni. Ja, hættur og hættur við grafíkina. Það er nú kannski ekki alveg rétt. Ég hef reyndar haldið mig við málverkið frá því þessi sýning var haldin en núna er ég farinn að eiga við grafíkina aftur en ætla þetta skipt- ið að einbeita sér að því sem nefnt er „einþrykk". Já, og ég verð með sýningu í Lismuna- húsinu í vor, já það held ég nú.“ í góðum hópi — Hvað samsýningar eru það sem þú hefur verið að taka þátt í? „Hinar og þessar en sú merk- asta er vafalítið yfirlitssýning yfir bandaríska teikningu, þ.e. heim- ildasýning. Þetta er svokölluð ferðasýning, sem sýnd er víða um Bandaríkin og þegar þeir, sem að henni standa, komu til Los Ang- eles í Kaliforníu fréttu þeir ein- hverra hluta af mér og óskuðu eftir því að ég legði fram teikn- ingu í þessa samsýningu. Þarna eiga um 200 listamenn verk, flest- ir frægustu listamenn Bandaríkj- anna, ungir sem gamlir og skil- yrðið er aðeins það að viðkom- andi teikning hafi verið unnin í Bandaríkjunum. Það er annars ekki til neitt voðalega mikið af gömlum teikningum því hér aður fyrr var oftast litið á þær sem skissur, þ.e. vinnuteikningar, og þeim því ekki haldið sérstaklega til haga.“ — Þú sagðist ætla að snúa þér aftur að grafíkinni, en nú er það það sem þú kallar „einþrykk". Er það á einhvern hátt frábrugðið hefðbundinni grafík? „Nei, í sjálfu sér ekki. Ein- þrykk þýðir aðeins það að ég geri bara eitt eintak af viðkomandi mynd í stað þess að maður var vanur að gera mörg eintök af hverju. Nú læt ég prenta eftir frummyndinni. Mótívin hafa líka breyst og nú er ég kominn dálítið yfir í erótíkina.“ Vignir býr í hverfi í New York, sem ber nafnið Williamsburgh. íbúð hans og Davi er á 7. hæð í miklu vöruhúsi og er hún um 300 fermetrar. Reyndar er ekki alls- kostar rétt að segja að sjálf íbúðin sé svo stór því Vignir nýtir plássið einnig sem vinnustofu. Davi hef- ur hins vegar vinnuaðstöðu í skólanum en hún lýkur Masters- gráðu í listum í vor. Skagablaðið bað Vigni að segja sér eilítið frá því hvernig væri að búa í Will- iamsburg. Prins póló í New York „Það er ljómandi gott. Hverfið er svona blendingur af Gyðindum annars vegar og Pólverjum og innflytjendum frá Karabíska haf- inu (Dóminikanska lýðveldinu t.d.) hins vegar. Það var meiri- háttar uppgötvun að finna prins póló í þessu hverfi. Eini staðurinn í Bandaríkjunum sem ég hef fundið þetta ágæta súkkulaðikex, og hef ég þó farið býsna víða. Eft'rtalin fyrirtæki óska viðskiptavinum sínum árs og friðar / <neðþökk fyrir viðskiptiná árinu, sem erað iíða: Olíufélagið Skeljungur Guðjón og Óli Brautin Pípulagningaþjónustan T raðarbakki Bókasafn Akraness Trico Bifreiðaverkstæði Rík. Jónssonar Hárgreiðslustofan Skagabraut 9 6

x

Skagablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.