Skagablaðið


Skagablaðið - 28.12.1984, Blaðsíða 7

Skagablaðið - 28.12.1984, Blaðsíða 7
Útsýnið frá íbúðinni og vinnustofunni er harla gott. Hér má sjá út yfir Austurá og yfir á Manhattan og aki menn eftir brúnni á miðri mynd hafna þeir í Soho-hverfinu. Gyðingarnir eru svo alveg sér- kapítuli. Þeir eru af þeirri gerð- inni, sem alltaf ganga um í svört- um fötum og síðum frökkum alveg sama hvernig viðrar. f of- análag eru þeir svo með alskegg, sem þeir vefja gjarnan upp á og í kringum eyrun á sér. Hreinlega eins og klipptir beint út úr 17. öldinni.“ — Er ekki ónœðissamt aðbúaá 7. hœð í vöruhúsi? „Nei, það er hreint ekki ónæð- issamara en gengur og gerist í henni New York. Þaö eru margir fleiri listamenn en við í þessari byggingu en þar eru líka verk- smiðjur. Þetta er ágætis sambýli en auðvitað getur stundum orðið ónæðissamt. Slökkvibílarnir fara t.d. oft þarna framhjá og ég gleymi því aldrei hvað okkur krossbrá eitt skiptið þegar við heyrðum þetta líka svaka sír- enuvæl. í stað þess að heyra bílana renna framhjá heyrðum við aðeins hvernig hávaðinn magnaðist. Okkur leist orðið ekk- ert á blikuna og snöruðum okkur út í glugga. Voru þá ekki bara fimm slökkvibílar með blikkandi Ijós og sírenur fyrir utan húsið hjá okkur! Þá hafði liðið verið kallað út vegna gruns um bruna í sælgætisverksmiðju á neðstu hæð- inni. Þegar til kom var enginn eldur heldur hafði sykurpotturinn verið skilinn eftir á fullum straum og af þeim sökum varð mikið reykjarkóf. En útsýnið úr húsinu er skrambi gott. Við sjáum beint yfir Austurá (East River) og rétt hjá húsinu er brú, sem liggur beint niður í Soho á Manhattan. “ Vakti athygli Þegar hér var komið sögu hafði Davi bæst í hópinn eftir að hafa sofið vært eftir flugferðina frá New York. Hún var bersýnilega enn hálfsofandi er Skagablaðið bar fram fyrstu spurninguna en tók fljótt við sér. Davi lagði áður stund á vefnað og náði svo langt á þeirri braut að verk hennar fengu umfjöllun í mörgum af virtustu blöðum og tímaritum Bandaríkj- anna, m.a. New York Times. Skagablaðið spurði hana hvort hún hefði alfarið sagt skilið við vefnaðinn. „Já, algerlega. Hann gaf mér hreinlega ekki nóg. Núna er ég á fullu í höggmyndalist (skúlptúr) og finnst ég fá miklu meira út úr því en vefnaðinum. í mínum augum er vefnaður miklu fremur hönnun en list og ég vil heldur vinna að listsköpun á borð við þá, sem felst í skúlptúrnum, fremur en að vinna að nytjalist eins og vefnaðinum. f sjálfu sér vegnaði mér ákaflega vel í vefnaðinum en mér fannst hann ekki gera nógar kröfur til mín. Ég vildi þurfa að leggja meira á mig, þannig nær maður þroska. Núna er ég á síðara ári í „Graduate school“ og útskrifast þá með MFA-gráðu (Master of fine arts). Reyndar gerði ég tilraun til þess að vefa samhliða skúlptúrnáminu en það gekk bara ekki upp. Ég sá að ég yrði að slíta mig alveg frá vefn- aðinum ef ég ætti ekki að festast í honum fyrir lífstíð og ég tel að mér hafi tekist það vel með því að far i í þetta framhaldsnám. Þarna hef ég lagt stund á ýmiss konar fræði, sem hafa víkkað sjóndeild- arhringinn mikið.“ — Líturðu þá ekki á vefnað sem list? „Nei, ég geri það ekki, og er reiðubúin að rökræða þá skoðun mína við hvern sem er. Það er ekki af neinni hræsni sem ég segi þetta. Ég hef sjálf stundað vefnað í mörg ár og náð góðum árangri á því sviði og tel mig því fyllilega vita hvað ég er að segja. Það má vera að einhverjir líti á vefnað sem listform en ég er ekki reiðu- búin að samþykkja það. Auð- vitað gengur mörgum erfiðlega að skilja á milli þess sem er list og ekki list en fyrir mitt leyti tel ég það mun metnaðarfyllra að mála málverk eða vinna höggmynd en að vefa teppi.“ Meiri fylling — Finnst þer skúlptúrinn erf- iðari? „Já, mikil ósköp, þetta gerir miklu meiri kröfur til manns, kannski líka af því að ég er ekki næstum því eins vel á veg komin í þessu eins og ég er í vefnaðinum. En það sem skiptir mestu er að þetta veitir mér miklu meiri fyll- ingu en hitt.“ Þar með slógum við botninn í spjallið því að nógu var að huga. Þau þurftu að tygja sig til brott- farar til Akraness (viðtalið var tekið í Reykjavík) og blm. þurfti að skunda á annað stefnumót til viðtals. Ekki kváðust þau Vignir og Davi vera á leiðinni til íslands með langtímadvöl í huga í bráð en hefðu þó hug að flytjast hingað í svo sem eitt ár þegar þau hefðu náð að koma sér betur fyrir ytra. Þeim hefur báðum vegnað ágæt- lega og hver veit nema af flutn- ingunum geti orðið fyrr en síðar fari vegur þeirra jafn ört vaxandi héðan í frá sem hingað til. — SSv. sKwm Þjóðbraut 9 Akranesi (við hliðina á ÁTVR) Óskum viðskipta- vinum okkar d/iA með þökk fyrir viðskiptin á liðnu ári Eftirtalin fyrirtækióska viðskiptavinum sínum árs og friðar TrfiffiS&ír&ZK. meðþökk fyrir viðskiptin á árinu, sem erað líða: Sjóvá Rafnes Fasteignasalan Hús & eignir Videóleigan Háholti 9 Vilmundur Jónsson Almennar tryggingar Bjarnarlaug Páll Skúlason Þórður Þ. Þórðarson Hópferðabílar Sveins V. Garðarssonar 7

x

Skagablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.