Skagablaðið - 18.01.1985, Síða 1
1. TBL. 2. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 18. JANUAR 1985 VERÐ KR. 30,-
Skoöanakönnun nemenda flölbrautaskólans:
Kvennalistinn
áttfaldaði fylgið
—stórfellt fylgistap Sjálfstædisflokksins
Ef gengið yrði til kosninga nú myndi Kvennalistinn áttfalda fylgi sitt
frá síðustu kosningum. Hann fengi nú 12,4% atkvæða en fékk 1,6%
við síðustu kosningar. Þetta ásamt 50% fylgisaukningu Alþýðu-
flokksins og 18,9% fylgistapi Sjálfstæðisflokksins eru athyglisverðustu
niðurstöður úr „könnun á viðhorfum almennings til stjórnmála“ sem
fjórir nemendur Fjölbrautaskólans, Sigríður Hlöðversdóttir, Laufey
Ingibjartsdóttir, Björn Malmquist og Sigurður A. Sigurðsson, unnu.
Könnunin, sem unnin var í Alls voru lagðar 14 spurningar
desember, er nokkuð umfangs- fyrir bæjarbúa og sú er svörin,
mikil og úrtakið í bænum stórt
eða um 140 manns. Svarar það til
þess að úrtak í slíkri könnun væri
um 6000 manns. Úrtak í könn-
unum DV er aðeins tíundi hluti
þess, þannig að úrtakið hér er
mjög stórt.
Skagamenn
skilvísir
Innheimta gjalda til bæjar-
sjóðs gekk vel á nýliðnu ári
og var mjög áþekk því sem
var árið á undan að sögn
Þorvarðar Magnússonar, inn-
heimtufulltrúa bæjarins.
Þorvarður sagði 92% á-
lagðra útsvara og aðstöðu-
gjalda hafa innheimst á síð-
asta ári, eða alls 71 milljón
655.100 af 77 milljónum
792.950 krónum. Innheimta
fasteignagjalda gekk einnig
vel, var 96% eða 18 milljónir
953.361 af 19 milljónum
733.771.
Innheimtuhlutfallið árið
1983 var 91,7% á útsvari og
aðstöðugjöldum en 96,5% í
fasteignagjöldum. Skilvísir
menn, Skagamenn.
sem vísað er til í upphafi frétt-
arinnar, hljóðaði á þessa leið: Ef
Alþingiskosningar færu fram í
dag, hvern eftirfarandi flokka
myndir þú kjósa, væru þeir allir í
framboði í þínu kjördæmi? Síðan
voru taldir uþp Alþýðuflokkur,
Alþýðubandalag, Bandalag jafn-
aðarmanna, Flokkur mannsins,
Framsóknarflokkur, Samtök um
kvennalista og Sjálfstæðisflokkur-
inn.
Svörunin var á þá leið að
Alþýðuflokkurinn fengi 20,4%
atkvæða ef kosið yrði nú en hafði
14,2% í síðustu kosningum.
Framsóknarflokkur fengi 13,1%,
hafði 12%, Bandalag jafnaðar-
manna fengi sama hlutfall og í
síðustu kosningum, 5,8%, Sjálf-
stæðisflokkurinn fengi 38,1% í
stað 57%, Alþýðubandalagið
fengi 8,7% í stað 9,4% og Samtök
um kvennalista fengju 12,4%, en
fengu síðast 1,6%. Þá fengi
Flokkur mannsins 0,7% atkvæða
en hann bauð ekki fram síðast.
Þessar niðurstöður eru, auk
þess sem getið er um að framan,
athyglisverðar fyrir það að annar
stjórnarflokkanna, Framsóknar-
flokkurinn, bætir við sig á meðan
hinn, Sjálfstæðisflokkurinn, stór-
tapar fylgi. Þá er einnig merkilegt
að Alþýðubandalagið sem er í
stjórnarandstöðu, skuli ekki bæta
við sig fylgi úr því stjórnarflokk-
arnir tapa samanlagt tæpum 18%.
Fylgisaukningin er hjá Samtök-
um um kvennalista og Alþýðu-
flokknum.-
Samhliða könnuninni um
stjórnmálaflokkana var lögð fram
spurning þess efnis hvort fólk væri
fylgjandi eða andvígt veru íslands
í Atlantshafsbandalaginu,
NATO. Niðurstaðan úr svörun
við þeirri spurningu er athyglisverð
fyrir þær sakir að yfirgnæfandi
meirihluti aðspurðra, 75,5%, var
hlynntur aðild að NATO.
Enn önnur spurning í könn-
uninni laut að áliti fólks á tekju-
skiptingu í landinu, hvort hún
væri réttlát eða ranglát. Alls töldu
53,4% skiptinguna vera óréttláta
og aðeins 2% réttláta. Fremur
réttláta töldu 11,5%, en fremur
rangláta 33,1%.
Arni kveður Skagann.
Guðbjöm og Ámi
til Noregs í gær
— leika með tveimur af sterkustu liðum Norðmanna
Stórgjöf aldraðra hjóna til Höfða:
Gáfu íbúð
Dvalarhcimilinu Höfða hefur
borist höfðingleg gjöf frá hjón-
unum Guðrúnu Salomonsdóttur
og Sigurði Sigurðssyni frá Skelja-
brekku. Þau hjón gáfu íbúð sína
að Sandabraut 4 (neðri hæð) og
var hún formlega afhent í tilefni
níræðisafmælis Sigurðar þann 24.
ágúst.
f frétt frá Höfða segir að þessi
höfðinglega gjöf sé afar kærkom-
in og verður andvirði hennar
væntanlega notað til þeirrar upp-
byggingar á Höfða, sem væntan-
leg er á komandi sumri. Stjórn
Höfða vill koma á framfæri bestu
þökkum til hjónanna. Sjá nánar
um gjafíi til Höfða á síðast ári á
bls. 7.
Sandabraut 4.
á komandi keppnistímabili
Meistaraflokkur Akurnesinga í knattspyrnu mátti í gær sjá á bak
tveimur af sterkustu leikmönnum sínum frá síðasta keppnistímabili er
þeir Ámi Sveinsson og Guðbjörn Tryggvason héldu út til Noregs,
Ámi til Válerengen í Osló, Guðbjöm til Start í Kristiansand.
... f stuttu spjalli við Skagablaðið
sagði Árni áður en hann fór, að
æfingar hjá liðinu væru að hefjast
nú af fullum krafti en fyrsti
leikurinn í norsku 1. deildinni
yrði síðustu helgina f apríl. Þá
mætti Válerengen Brann á úti-
velli en Bjarni markvörður Sig-
urðsson mun einmitt leika með
því liði.
Árni sagðist enn ekki hafa
fengið fast aðsetur í Osló en
væntanlega yrði gengið frá þeim
málum um leið og hann kæmi út.
Unnusta hans, Guðrún Þorsteins-
dóttir, verður hér heima fram til
vors þar sem hún á enn ólokið
einni önn í fjölbraut.
„Jú, auðvitað kemur maður til
með að sakna margs héðan,“
sagði Árni er Skagablaðið innti
l A '1D b B C K A !jA? !l
3 8 7 0 0 4
hann eftir því hvort það yrði ekki
skrýtin tilfinning að yfirgefa Skag-
ann eftir öll þessi ár. „Auðvitað
saknar maður unnustunnar og
allra kunningjanna."
Með brottför þeirra Árna og
Guðbjörns eru stór skörð höggv-
in í Akranesliðið. Auk þeirra
verður liðið án Sigurðar Hall-
dórssonar, Bjarna Sigurðssonar,
Sigurðar Jónssonar og Jóns Leó
Ríkharðssonar. Um þessar mund-
ir gengur svo sá orðrómur að
Guðjón Þórðarson sé jafnvel á
förum til Reykjavíkur.
Hvert svo sem framhaldið verð-
ur er víst að Hörður Helgason fær
erfitt verkefni í sumar. Kröfu-
harkan af hálfu bæjarbúa verður
eflaust sú sama og fyrr en hætt er
við að erfiðara reynist að uppfylla
kröfurnar í ár en undanfarin tvö
ár. Lið í þeirri stöðu sem ÍA-liðið
er nú í þarfnast öflugs stuðnings
og sanngjarnrar gagnrýni. Hver
veit nema ÍA verði í fremstu röð
áfram þrátt fyrir breytingarnar.