Skagablaðið - 18.12.1985, Qupperneq 1
Sögulegur fundur í Fjölbrautaskólanum í síóustu viku:
„Tillaga okkar að KA og
Kári verði sameinuð“
sagói í sameiginlegu áliti mikils meirihluta fundannanna
Sameiginlegur fundur KÁRA
'og KA var haldinn á sal F.A
síðastliðið fimmtudagskvöld.
Fundarmenn voru rúmlega 30
þegar flest var. Fundarefnið var
breyttar tillögur í skipan knatt-
spyrnumála og hugsanleg samein-
ing félaganna. Umræður urðu
allnokkrar og voru þær málefna-
legar, ekki allir á sömu skoðun
eins og gengur og gerist. í lok
fundarins var samþykkt tillaga
með 29 atkvæðum gegn 1, svo
hljóðandi:
„Til þess að koma félagsstarf-
inu innan íþrottahreyfingarinnar
á réttan kjöl gerum við undirritað-
ir það að tillögu okkar að KA og
Kári verði sameinuð í eitt félag,
enda komi sameiningin ekki til
með að hafa áhrif á stöðu I.A. í
knattspyrnu, handknattleik eða
körfuknattleik.
Fundurinn beinir því til for-
manna KA og Kára að boða
þegar til aðalfundar félaganna
þar sem tillaga um sameiningu
verði lögð fram auk þess sem þrír
aðilar verði kosnir frá hvoru félagi
til að undirbúa stofnfund sameig-
inlegs félags, samþykki aðalfund-
ur samininguna. Einnig óskum
við þess að stjórn IA láti semja
frumdrög að lögum fyrir hið sam-
eiginlega félag og fylgi eftir fram-
kvæmd þessarar tillögu svo sem
vald og aðstæður leyfa.
Sameiginlegur fundur KA og
Kára ályktar ennfremur að sam-
eining félaganna komi til með að
leiða til heilbrigðara og ölugra
félagsstarfs en verið hefur.“
Klaus Hilpert efstur á
óskalista knattspymuráós
„Klaus Hilpert er inni í myndinni hjá okkur ásamt 4-5 enskum
þjalfurum." sagði Haraldur Sturlaugsson, formaður knattspyrnur-
áðs er Skagablaðið ræddi við hann í gær og innti hann eftir því hvað
liðið þjálfaraleit knattspyrnuráðs. Enn hefur ekkert ákveðið komið
út úr þreifingum ráðsins.
Skagablaðið hefur það eftir áreiðanlegum heimildum, aðlHilpert
sé nú efstur á óskalista knattspyrnuráðs. Hann átti að hafa samband
hingað heim um helgina en gerði reyndar ekki og mun það hafa
valdið nokkrum vonbrigðum. Þó er ekki talið útilokað að hann láti
til sín heyra á næstu dögum. Hilpert þjálfaði Skagamenn sumarið
1979 með ágætum árangri.
Ekki vflja affir hffta lögum samfélagsins og neita aðskrá hunda sína:
„Málið er í biðstöðu og ekki
ákveðið hvaö gerist næst,“
• segir Valdimar Þorvaldsson, hundaeft irlits maður í samtali viö Skagablaöiö
Kveikt á
jólatrénu
umhelgina
Ljósin voru tendruð á jólatrénu
sem vinabær Akranes í Danmörku,
Tönder, sendi á laugardag. Sú sem
kveikti á Ijósunum, heitir Birna
Guðbjartsdóttir.
Athöfnin hófst með því að
Lúðrasveit Akraness lék nokkur
lög en síðan afhenti Svandís Pét-
ursdóttir tréð fyrir hönd Töner og
Birna kveikti á ljósunum. Þá tók
bæjarstjórinn, Ingimundur Sig-
urpálsson, við trénu fyrir hönd
bæjarins.
Þá var komið að hápunktinum
fyrir yngstu kynslóðina er þeir
rauðklæddu komu akandi í strætó
með harmonikku og að sjálfsögðu
poka sem innihélt gotterí. Þegar
jólasveinarnir höfðu sungið fyrir
viðstadda og fengið þau yngstu til
að syngja með þá var farið að
útbýta innihaldi pokanna. Gekk
það greiðlega fyrir sig eins og
vænta mátti.
Það verður að segjast eins og er
að oft hefur verið gott skipulag á
athöfninni á torginu en það var
frábært núna, til sóma fyrir alla þá
sem hlut áttu að máli.
Hundaeftirlitsmaður Akra-
nesbæjar hefur átt í erfiðleikum
með að fá alla hundaeigendur til
að skrá hunda sína. ÖUum eig-
endum var á sínum tíma sent
bréf, þar sem farið var þess á leit
að hundar viðkomandi yrðu
skráðir.
Ekki urðu allir við þessum
tilmælum og þurfti lögreglan að
heimsækja eina 6 eigendur og
vara þá við að þeir yrðu kærðir
ef þeir ekki skráðu hunda sina.
Þrír af þessum aðilum hafa
brugðið skjótt við og látið skrá
hunda sína en þrír eru ekki
búnir að láta skrá. Til að fá
frekari upplýsingar um þetta
ræddum við við Valdimar Þor-
valdsson, eftirlitsmann, og
spurðum rvrst hvort það væri
algengt að fólk skirrtist við að
láta skrá hunda sína?
„Það kemur fyrir, en er ekki
mjög algengt. Það er helst fólk
sem ekki vill sætta sig við lög
samfélagsins. Það hafði verið
gefinn frestur en dugði ekki til.
Málið er í biðstöðu og er ekki
ákveðið hvað gerist næst,“ sagði
' Valdimar.
Hundaskattur er núna 300 kr.
á mánuði en komið hafa tillögur
um að hækka hann, en skattur-
inn er ætlaður til að standa undir
kostnaði við eftirlitið og annað
sem hundaeigendur fá, sem
greitt hafa skattinn. Tryggingar
eru ekki í þessari upphæð þ.e.
300 kr.
Taldi eftirlitsmaðurinn að nú
yrði farið út í það að beita
sektarákvæðum, en það hefur
ekki verið gert, því alltaf er
eitthvað um að lausir hundar séu
á ferð í bænum. Það kom einnig
fram, að núna eiga allir hunda-
eigendur að útvega mynd af
hundinum og er hún sett í sér-
staka möppu og á að vera hægt
að þekkja hundana eftir mynd-
unum t.d. lausir hundar hafa
verið á ferð en eru farnir þegar
eftirlitsmaðurinn kemur. Dugir
það til sekta ef hundurinn þekk-
ist á myndunum.