Skagablaðið


Skagablaðið - 09.07.1986, Blaðsíða 2

Skagablaðið - 09.07.1986, Blaðsíða 2
■■ „Eg skil vcl tbúana viit Skarðsbraut út af ónæðinu og óþægindunum sem þeir verða fyrir af voldum rvksins. Ég bý ““■'‘ur við götu sem ekki er er þá eru óþægindi af rykinu þótt það sé ekki eins mikið og kemur af þjóðbraut- in.«i,“ sagði Daníel Árnason, bæjartæknifræðingur, þegar Skagablaðið ræddi við hann um vandamálið af rykinu frá Daníel sagði að eina varan- lega lausnin væri að setja bund- ið slitiag á en til þess að slíkt væri framkvæmanlegt þyrfti fjárveitíngu. Hann sagði að reynt hefði \erið að f;i r\k- bindiefni hjá Vegagcrðinni en vegna þurrka hefðu þcir ekkí verið aftögufærir með ncitt. Pá hefði verið gripíð til þess ráðs að setja hreint salt á götuna til rykbindingar en um leið og rignir þá skolast það burtu. Daniel var spurður hvort þessi vegaspotti tilheyrði ekki ríki og þess vcgmt þeírra aö setja bundið slitlag á. Hann sagði að ríkið tæki þátt í að gera veginn en það væri bæjar- ins að halda honum við vegna þess að hann er innan bæjar- markanna. Gott dœmi um rykmökkinn frá gamla þjóðveginum. Rykið frá gamla þjóðveginum ergir ibúana við Skarðsbraut íbúar við Skarðsbraut höfðu samband við Skagablaðið og báðu um að vekja athygli á miklu ryki frá vegarspottanum frá hringtorg- inu að Esjubraut. Sögðu þeir að ekki væri hægt að opna glugga né hengja út þvott Jtegar vindur stæði á blokkirnar. Ibúarnir sögðu að þetta væri ekki neitt, sem væri að gerast í fyrsta skipti, heldur væri þetta búið að vera vandamál í langan tíma. Peir sögðu, að það styttist í að þolinmæðina brysti og hefði heyrst að sumir vildu leggja bílum sínum á mestu þurrkadögunum AKRANESVOLLUR WCRANES2 4 HÓTEL LOFTLEKHR SKVlkKUN þannig að öll umferð stöðvaðist ef ekki færi að gerast eitthvað varan- legt í sambandi við rykið. Einnig kom fram að þetta varð meira vandamál eftir að ÁTVR opnaði útibú í grenndinni en einnig hitt að þungaflutningum væri beint eftir þessum vegarspotta, og rykið eftir stóru bílana væri mun verra ef hægt væri að nota slíka viðmið- un. Viðmælendur okkar sögðu að stundum væri sett efni á veginn til að hefta rykið en það dygði stutt. Þeir sögðu að þeir hefðu oftsinnis kvartað út af þessu en nú væri kominn tími á að gera eitthvað varanlegt til lausnar á þessu. í blokkunum væru um 72 íbúðir og það gæti orðið nokkuð stór þrýsti- hópur ef út í það yrði farið. Lið 4. flokksins, sem spilaði síðari hálfleikinn ásamt Sœvari Guðjónssyni, þjálfara. Vallarmet á Jaðarsbökkum, ÍA - Höje Tástrup IF 24:0: Þar lágu Danir í því Vallarmet leit dagsins ljós á grasvellinum á Jaðarsbökkum á sunnudag þegar 4. flokkur IA tók jafnaldra sína frá Höje Tá- strup Idræts Forening í karphús- ið svo um munaði. Lokatölur urðu 24:0 eftir að staðan hafði verið 9:0 í hálfleik. Gamla vallar- metið var 17:0. Eins og tölurnar bera með sér var leikurinn nánast einstefna að marki Dananna allan tímann og það merkilega við úrslitin er að öllum leikmönnum ÍA-liðsins að tveimur undanskildum var skipt út af í hálfleik og B-liðið kom inn á. Það stóð sig með miklum sóma eins og sj á má af tölunum. Það fór ekki leynt á vellinum á sunnudag að margir kenndu í brjósti um Danina enda er þetta langsamlega lakasta liðið frá Tástrup, sem iið frá Akranesi hafa att kappi við þau 13 ár sem samskipti bæjanna hafa staðið. Til stendur að liðin leiki aftur á föstudaginn og vonandi er að Dönunum takist betur upp þá en nú. Mörk Skagamanna í þessum leik skoruðu þessir eftir því sem Skagablaðið kemst næst: Þórður Guðjónsson 5, Bjarki Gunn- laugsson 4, Ásgrímur Haralds- son 4, Þórður Þórðarsson 2, Ágúst Guðmundsson 2, Kol- beinn Árnason 2, Stefán Þórð- arson 2 og þeir Hreiðar Bjarna- son, Arnar Gunnlaugsson og Jón Þór Þórðarson 1 mark hver. Ef þetta er ekki allskostar rétt væri gaman að fá af því fregnir og að sjálfsögðu myndum við leiðrétta misskilning ef einhver væri á ferðinni. Tunglsýki Ilér á ölditm áftur var oll sjúkir. Þarna var vísað til ein- luers konar æftis sem álti aft liala runnii) á ntenn er lungl Þcssi gamla speki virtist í fuilu gildi lléi á Skaga unt helgina. Tuhgl var nánast fullt móti. Talsverð ölvun var a götum út i og eitthvað um rysk- ingar. Þá þurftu nokkrir að fá aóstoö :il aö komast heim. Ef ykkur liggur eitthvað á hjarta þá er síminn: 2261 Spuming vikunnar — Spilar þú í happa- drætti og ef svo er hefurðu einhvern tíma unnið? Ásmundur Uni Guðmundsson: — Ef það gerist eru það helst björgunarsveitir sem njóta góðs af því, en ég kaupi mjög sjaldan slíka miða Valdimar Lárusson:— Að sjálf- sögðu, að sjálfsögðu. (Þ.e. spilar í happdrættum og hefur unnið). . 1 Þurt'ður Árnadóttir: —Já. Ég hef einu sinni unnið en er enn að bíða eftir stóra vinningnum. sjálfsögðu, að sjálfsögðu. (Þ.e. spilar í happdrættum og hefur unnið). Skagablaðið Ritstjóri og ábm.: Sigurður Sverrisson ■ Blaðamenn: Árni S. Árnason og Ársæll Már Arnarson ■ Ljósmyndari: Árni S. Árnason ■ Auglýsingar: Ellen Blumenstein (heimasími 2659) ■ Umsjón með dreifingu, áskriftum og innheimtu: Sigríður Árnadóttir ■ Setning, umbrot, filmuvinna og prentun: Borgarprent ■ Útlit: Skagablaðið ■ Ritstjórnarskrifstofa er að Suðurgötu 16 og er opin alla daga ■ Símar 2261 og 1397 ■ Póstfang: Pósthólf 170, 300 Akranes. ■ Eftirprentun óheimil án leyfis. 2

x

Skagablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.