Skagablaðið - 09.07.1986, Page 7

Skagablaðið - 09.07.1986, Page 7
Bítlavinafélagið í essinu sínu. Vel serkjaðir kyrjuðu fimmmenningarnir hvert lagið á fœtur öðru við gífurlegan fögnuð. einni svipan," sagði einn Bítillinn. „Já, fengu þeir ekki bara eitt eintak,“ spurði annar. „Nei, þeir fengu bara kápu til að setja út í glugga,“ stakk sá þriðji að. Síðan hlógu þeir rosalega. Skipulögð vinna Já, þeir eru léttir á Bárunni, strákarnir í Bítlavinafélaginu. Þeir hafa bersýnilega gaman af því sem þeir eru að gera og gera það vel. En innst inni eru þetta vandaðir tónlistarmenn sem vita nákvæmlega hvað þeir eru að gera. Sem dæmi má nefna að þeir eyddu aðeins 22 klukkutímum í að vinna plötuna í hljóðveri en þó má ekki gleyma því að þrjú iag- anna á henni voru tekin upp á tónleikum á Hótel Borg. „Þetta er fjölmennasta plata, sem tekin hefur verið upp á íslandi,“ sögðu fimmmenning- arnir og vitnuðu til þess að um 800 manns hefðu verið á Borginni. Góðar móttökur Bítlavinafélagið hafði spilað býsna oft saman áður en platan kom út, m.a. efnt til fjölsóttra Lennon-kvölda, sem nutu mikill- ar hylli. Kvöldið áður en Þrisvar í viku komst í efsta sæti vinsælda- listans efndi Bítlavinafélagið til tónleika í Hrísey og fékk 30 áhorfendur. Seldi 20 plötur að auki. „Þessi aðsókn í Hrísey jafn- gildir því að fá 8 áhorfendur í Grímsey og það er hreint ekki svo slæmt,“ sögðu Bítlavinirnir og voru hinir hressustu. Ekki verður um tónleikahald að ræða hjá Bítlavinafélaginu á næstunni því flokkurinn ætlar að taka sér tveggja vikna hlé frá spilamennsku. Síðan verður farið í ferð um landið og hver veit nema þeir heimsæki Skagamenn í þeirri yfirreið. Svo mikið er víst að þeir myndu fylla Hótelið leik- andi því eins og einn gestanna sagði við okkur er við vorum á leiðinni út: „Þið megið hafa það eftir mér að það á að fá þessa hljómsveit hingað í hverri viku. Þeir eru frábærir.“ -SSv. mikið á að ekki vannst tími til þess að kynna lögin nema á hlaup- um. Hafi gestir Hótelsins skemmt sér vel er næsta víst (eða svo segir Bjarni Fel.) að Bítlavinafélagið skemmti sér engu síður. Meðlimir þess dönsuðu af djöfulmóð þrátt fyrir eitthvert smæsta svið norðan Alpa og virtust hreinlega óþreyt- andi. Sannkallaðir skemmtikraft- ar. Ekki spillti svo fyrir að flutn- ingur þeirra á gömlu perlunum, sem þeir ruddu út úr sér í tugavís, var í flestum tilvikum ótrúlega næmur og „sándið“ mjög svo í ætt við það sem tíðkaðist á sjöunda áratugnum. Gripnir í ,,pásu“ Skagablaðið sveit á Bítlavina- félagið í örstuttu hléi sem það gerði á leik sínum og spurðist fyrir um hvers vegna Akranes væri þeim jafn kært og raun bæri vitni því þetta var í fjórða sinn á skömmum tíma sem flokkurinn heimsótti okkur. Svörin við spurningunni urðu margvísleg. „Það er svo stórt sviðið hérna og gaman að spila á því.“ „Jakob er einstaklega góður viðsemjandi.“ „Stelpurnar hérna eru æðisleg- ar.“ „Fyrst og fremst pólitískar á- stæður fyrir þvi að við komum hingað." Magasár —Eruð þið ekki ánægðir með að lagið Þrisvar í viku skyldi fara í einu stökki beint á topp vinsæld- arlista hlustenda rásar 2? „Nei, fjarri því.“ „Jú, auðvitað erum við ánægð- ir,“ svaraði annar. „Þetta kom okkur ansi mikið á óvart,“ sagði sá þriðji. „Ég var t.d. búinn að spá því í 18. sætið," bætti hann við en svo þegar gefið var í skyn að eitthvað óvænt hefði gerst á listanum tók okkur nú að gruna ýmislegt.“ Strákarnir voru heima hjá Rafni Jónssyni, trommara, að borða er þeir hlustuðu jafnframt á vinsældarlistann á fimmtudaginn. „Það munaði ekki nema 0,25 sentimetrum að Stebbi fengi magasár,“ sagði einn. „Já, er það ekki mjög svipað og meðalúr- koma á Gjögri í júnímánuði?" bætti annar við. —En var ekki gaman að annað laganna ykkar, þ.e. ekki eitt Bítlalaganna á plötunni, skyldi ná svo langt? „Við stíluðum upp á að þetta lag næði vinsældum," sagði einn. „Hins vegar kom hin mikla og snögga velgengni okkur á óvart, því verður tæpast á móti mælt." Já, Bítlavinafélagið getur svo sannarlega vel við unað því plata þeirra, sem inniheldur 5 lög, hafði ekki verið til í nema tvo daga þegar vinsældarlistinn var valinn. Sala á henni hefur sömuleiðis gengið mjög vel. „Ég vissi til þess að þeir hjá Karnabæ á Rauðarár- stíg seldu sína sendingu upp í Hendur á lofti — rafmögnuð stemning. Já, þú misstir af heilmiklu, lesandi góðw, hafirðu ekki verið i „Telinu". Bítlavinirnir á dœmigerðri fjölskyldumynd, sem tekin var í einni affáum en þó nokkuð stuttum „pásurn“ flokksins. AKURNESINGAR Vaníi ykkur licimilistæki þá er /rafþjónusta Sícmens hcimilistælsin lausnin. C'(^\^>sigwdórs \^SKAGABRAl/T 6 AKRANESI MUNIÐ ÓDÝRA KJÖTBO RÐ- 1] Ð UKK/ {R Sláturfélag Suðurlands, Vesturgötu 48, s. 2033/2046 7

x

Skagablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.