Skagablaðið - 25.02.1988, Side 1
8. TBL. 5. ÁRG.
FIMMTUDAGLJR 25. FEBRÚAR 1988
'VERÐ KR. 100,-
Önnur sprengja í skýrslu Framkvæmdadeildar Innkaupastofnunar ríkisins:
Steypuefhin í þekju
aðalhafnargarðsins
.iilgeriega ónothæf ‘
Þær falla nú ótt og títt sprengjurnar úr smiðju Framkvæmdadeildar
Innkaupastofnunar ríkisins. í skýrslunni sem Skagablaðið skýrði frá í
síðustu viku að send hefði verið bæjarstjóra og hefði undir undir öllum
eðlilegum kringumstæðum átt að flokka undir „trúnaðarmál“, er frá
því skýrt að svokallað frostþíðupróf á steypusýnum úr þekju aðalhafn-
argarðs leiði í Ijós, að steypan frá Guðmundi Magnýssyni, verktaka,
standist ekki þeir kröfur sem settar eru við gerð hafnarmannvirkja.
Stutt er síðan verktakinn hlaut sérstakt hrós hafnaryfirvalda fyrir vel
unnið verk og því e.t.v. ekki nema von að komi á menn.
Frumstætt
í skýrslunni segir orðrétt eftir
að steypustöð Guðmundar Magn-
ússonar hefur framar í henni verið
lýst sem „frumstæðri“: „Við
steypu bryggjuþekju, sem fyrr var
nefnd, voru gerð frost-þíðupróf á
tveimur steypusívalningum og
kom þá í ljós, að aðeins ein flaga
af 6 mældist í 3. flokki en hinar all-
ar í 5. flokki, semþýðir að efnið er
algjörlega ónothæft (sennilega
einkum fínni efnin) í steypu, sem
getur orðið fyrir veðrum. Skv.
staðlinum, sem prófað var eftir,
verður slík steypa að vera í flokk-
um 1-3.“
Þessi margfræga skýrsla, sem
flestir eru sammála um að að hefði
aldrei átt að fara út fyrir raðir
bæjarstjórnarmanna, var mjög til
umræðu á fundi bæjarstjórnar á
þriðjudag. Sýndist þar sitt hverj-
um en almennt voru bæjarfulltrú-
ar á því að ógerningur væri að sitja
undir þeim ásökunum sem kæmi
fram í skýrslunni þótt hún sem
slík væri fordæmd fyrir margra
hluta sakir.
Gísli Einarsson, Alþýðuflokki,
sagðist taka á sig þann „leka“ sem
um væri rætt varðandi skýrsluna.
Hvað efni hennar snerti sagði
hann það skoðun sína, að að ekk-
ert af því sem í skýrsunni stæði
væri þess eðlis að það mætti ekki
koma fyrir sjónir almennings.
Gísli var einn um þessa skoðun ef
flokksbróðir hans, Ingvar Ing-
varsson, er undanskilinn. Hvað
varðaði skýrsluna sjálfa sagði
Gísli: „Hún rífur sjálfa sig niður á
annarri hverri síðu.“ Síðar óskaði
Gísli eftir því að plögg, sem ekki
væri ætlast til að kæmu fyrir sjónir
almennings yrðu merkt „Trúnað-
armál“ framvegis.
Ásakanir
Jóhann Arsælsson, Alþýðu-
bandalagi, taldi umsögnina í
skýrslunni dálítið glannalega og
sagði í henni vera að finna „alvar-
legar ásakanir.“
„Þetta kom mér mjög á óvart,“
sagði Guðjón Guðmundsson,
Sjálfstæðisflokki, um niðurstöður
prófana á steypusýnunum úr
bryggjuþekjunni. Sagðist hann
ekki hafa vitað betur en þarna
hefði verið vel að verki staðið.
Benedikt Jónmundsson, flokks-
bróðir hans, tók undir þessa skoð-
un og sagðist ekki vita betur en
Brettið fauk
afírokinu!
Það hefur sennilega ekki
vantað mikið upp á að lög-
reglumennirnir skelltu upp úr
er þeir stöðvuðu ökumann á
götum bæjarins vegna þess að
hluta frambrettis bifreiðar
hans vantaði.
Er ökuþórinn var inntur
eftir því hvernig stæði á því að
bfllinn væri þannig útlítandi
svaraði hann því einfaldlega
til, að sá hluti brettisins sem
vantaði á, hefði fokið af bfln-
um í síðasta hvassviðri!
Ekki gátu verðir laganna
borið á móti þessari skýringu
en tóku bílinn úr umferð þrátt
fyrir að ökumaðurinn sór og
legði sárt við að verið væri að
„framleiða" bretti á bílinn á
þeirri stundu. Hvort hér er
um að ræða einhverja sér-
staka útfærslu ákveðinnar
bifreiðategundar að ræða veit
Skagablaðið ekki en hitt er
víst, að eigandinn fær senni-
lega bifreiðina aftur til hand-
argagns um leið og búið er að
„framleiða“ brettið á hana!
Gáfu 300 þúsund!
Björgunarsveitinni Hjálpinni barst í fyrrakvöld höfðingleg gjöf
er Kvennadeild Slysavarnafélags íslands á Akranesi afhenti henni
300 þúsund krónur að gjöf. Það var Heiðar Sveinsson, sem tók við
gjöfinni fyrir hönd Hjálparinnar úr hendi Kristbjargar Sigurðar-
dóttur, formanns Kvennadeildarinnar. í stuttu þakkarávarpi
Heiðars kom m.a. fram, að peningarnir yrðu notaðir til þess að
greiða niður kaupin á björgunarbátnum, sem sveitin fékk á síðasta
ári. Báturinn hefur þegar margsannað gildi sitt.
eftirlit með framkvæmdum við
höfnina hefði verið þokkalegt.
Hér hefði verið fulltrúi frá Reykja-
vík til þess að fylgjast með gangi
mála, m.a steypunni sem fór í
þekjuna.
Flestir bæjarfulltrúanna tóku til
máls. sumir oftar en einu sinni,
vegna skýrslunnar margfrægu og
stóðu umræður um hana í hartnær
klukkustund.
Fyrsta skóflu-
stungan tekin
um helgina?
Er Skagablaðið síðast vissi stóð
til að félagsmálaráðherra, Jó-
hanna Sigurðardóttir, kæmi hing-
að uppeftir um helgina til þess að
taka formlega fyrstu skóflustung-
una að vernduðum vinnustað á
Vesturlandi. Nákvæmtímasetning
þessarar athafnar lá ekki fyrir er
blaðið fór í prentun.
Hvaofáum
vifyrir
skattana?
-sjabls.6
Allir vilja nú Kirjuhvol keypt hafa
Eins og Skagablaðið skýrði frá á sínum tíma bárust engin kauptflboð í gamla húsið að Kirkjuvholi
þrátt fyrir nokkuð hávæar raddir þess efnis að húsið mætti ekki hverfa. Bærinn auglýsti húsið en fékk
ekki eitt einasta tilboð.
Nú hefur hins vegar brugðið svo við að tvö tilboð hafa nýverið borist í húsið. Eftir því sem Skagablað-
ið kemst næst hafði annar aðilinn ætlað sér að að nota húsið undir miðstöð Hvítasunnumanna á Akra-
nesi. Heimildir blaðsins herma einnig, að Akranesbær ætli ekki að spá í þessi síðbúnu tilboð enda bárust
þau löngu eftir tilskilinn frest.
Eraðrofatil
ísorpinu?
Sorphaugar Akraneskaup-
staðar eru enn án starfsleyfis ef
Hollustuvernd ríkisins hefur
haft biðlund með bæjaryfir-
völdum síðustu mánuði, þar
sem unnið hefur verið ötullega
að lausn sorphreinsunarmála
Skagamanna.
Þessa dagana er verið að
kanna þá möguleika hvort
hugsanlega megi nýta sorp-
brennsluofna frá Stuðlastáli,
svo fremi þeir fái samþykki
Hollustuverndar, til þess að
koma sorpi Skagamanna í lóg.
Verði brennsluofn fyrir valinu
er sýnt að hann yrði notaður
samhliða urðun sorps. Þess er
að vænta að rofi til á þessum
vettvangi innan tíðar.