Skagablaðið - 25.02.1988, Blaðsíða 2
Smáaug,i
ingamar
Til sölu 7 mánaöa gamalt
vatnsrúm, 21/2 árs birgðir af
rotvarnarefni fylgja. Verö kr.
80 þúsund staðgreitt. UDpl. í
síma 13335.
Til sölu Siclair Spectrum ZX
48 K tölva, ásamt miklu af
fylgihlutum og leikjum. Uppl.
í síma 12680 eftir kl. 18.
Til sölu Yamaha P 631
hljómborö. Uppl. í síma
12274.
Til sölu nýr Epson LX 80
prentari. Uppl. í síma 11099.
Til sölu vegna flutninga árs-
gamalt Ikea hjónarúm og
gamall Zanussi ísskápur.
Fæst á góöu verði. Uppl. í
síma 11643.
Til leigu kjallaraherbergi í
blokk. Uppl. í síma 13121.
Til sölu Sinclair Spectrum
tölva meö turbo, stýripinna
og 100 leikjum. Uppl. í síma
12951.
Óska eftir að kaupa Commo-
dore 64 tölvu með stýripinna
og a.m.k. 50 leikjum. Uppl. í
síma 13084.
Til sölu grár Silver Cross
barnavagn eftir eitt barn.
Uppl. í síma 13001.
Starfs-
kraftur
óskast
Óska eftir starfskrafti til
ræstingastarfa. Þarf að
geta byrjað strax. Uppl. í
síma 13271.
Allt fyrir
fermingar
börnin
nfnö
KIRKJUBRAUT 4-6
Föstuguðsþjónustur næstu
fjögur miðvikudagskvökl
Eins og verið hefur undanfarin dagskvöld á föstunni. Hefjast þær
ár verða föstuguðsþjónustur í allar kl. 20.30 og reyndar var sú
Akraneskirkju hvert miðviku- fyrsta í gærkvöld.
Akraneskirkja verður vettvangur föstuguðsþjónusta næstu miðviku-
dagana.
í ár verður meira lagt í tónlist-
ina við þessar guðsþjónustur en
venja hefur verið. Sungin verða
vers úr Passíusálmum Hallgríms
Péturssonar og verður leitast við
að hafa sem réttasta tónlist við þá.
Einnig verður flutt ein lítil mót-
etta, sem samin hefur verið til
notkunar á föstu, í hverri föstu-
guðsþjónustu og í þeirri síðustu
verður sungin aðeins lengri mót-
etta. Pá verður Lítanían sungin í
annarri hverri föstuguðsþjónustu.
Þannig má sjá, að tónlistin verður
í heiðri höfð nú á föstunni.
A.m.k. tveir aðkomuprestar
munu stíga í stólinn, þeir Séra
Guðmundur Guðmundsson,
æskulýðsfulltrúi þj óðkirkj unnar,
og Séra Jón Einarsson, prófastur í
Saurbæ.
Safnaðarfólk er eindregið hvatt
til þess að sækja þessar guðsþjón-
ustur og taka virkan þátt í þeim,
sj álfu sér til blessunar og uppbygg-
ingar. Fyrir þá, sem ekki vita
nákvæmlega hvaða daga þessar
guðsþjónustur verða er um að
ræða miðvikudaginn 2. mars, síð-
an 9. mars, 16. og loks 23. mars.
Sem fyrr segir hefjast allar guðs-
þjónusturnar kl. 20.30.
Nýstárieg fjáröflunarieii íþróttabandalags Akraness:
Glæsileg bflasýning með
um 30 nýjum stálgæðmgum
Óhætt er að segja að íþrótta-
bandalag Akraness fari nýstárlega
leið til þess að afla fjár um helgina
er bandalagið stendur fyrir helj-
armikilli bflasýningu í samvinnu
við nokkra umboðsmenn hér í bæ.
Lætur nærri að á sýningunni verði
samankomnir um 30 glæsifákar af
ýmsu gerðum.
Sýningin sem um ræðir verður
opin álaugardagfrákl. 13 til 18 og
frá kl. 10 til 17 á sunnudag. Jafn-
framt því að boðið er upp á fjölda
nýrra bíla gefst almenningi kostur
á að skoða hið nýja íþróttahús ÍA,
sem tekið verður í notkun í haust.
Unnið er af fullum krafti við að
ganga þannig frá svölum í öðrum
enda hússins, að hægt verði að
hafa þar veitingasölu um helgina
og verður hún í höndum blak-
kvenna. Þá má nefna að auk veit-
ingasölunnar verður Sól hf. mec
kynningu á Svala.
Þau umboð sem verða með bíla
á sýningunni eru eftirtalin (í sviga
eru bifreiðategundirnar sem við-
komandi er með): Ólafur G.
Ólafsson (Ford, Fiat, Suzuki,
Mercury og Hyundai), Bílás
(Volvo, Lada og Mazda), Björn
Lárusson (Nissan og Subaru), Bíl-
ver (Peugeot og Dodge) og Bifr-
eiðaþjónusta Hjalta Njálssonar
(Mercedes Benz).
Þakkir frá
JCAkranes
Að gefnu tilefni viljum við í
JC Akranes þakka þeim fyrir-
tækjum og því fólki hér í bæ
sem lagði okkur lið með fram-
lögum sínum í fjársöfnuninni til
styrktar rannsóknum á arf-
gengri heilablæðingu.
Undirtektir hér í bænum
voru mjög góðar og söfnuðust
rúmlega 170 þúsund krónur.
Segja má, að söfnunin hafi í
heild farið langt fram úr björt-
ustu vonum manna því á land-
inu öllu söfnuðust um 5 mill-
jónir króna. Viljum við því
endurtaka þakklæti okkar.
Fyrir hönd JC Akranes,
Guðmundur Þorvaldsson.
Jakkaföt og sófí
Ágætu bæjarbúar, okkur bráðvantar h\ít eða
ljós jakkaföt á stóran mann. Einnig vantar okk-
ur 2ja sæta sófa á meðan leikritinu stendur.
Nánari upplýsingar í síma 11657 á millikl. 17-
19 Listaklúbbur NFFA
Spuming
vikunnar
Veist þú hver tíðnin verður
hjá Útvarp Akraness, fjár-
öflunarútvarpi Sundfélags-
ins?
(Rétt svar er FM 91,0)
Rúnar Pétursson: - Það er eitthvað
nálægt FM 90.
Ámý Davíðsdóttir: - FM 91,0
Hrönn Hákonardóttir: - Nei, ég
veit það ekki.
Anna Lilja Daníelsdóttir: - Nei, ég
man ekki hver hún er.
Skagablaðið
Ritstjóri og ábm.: Sigurður Sverrisson ■ Blaðamaðurog Ijósmyndari: Árni S. Árnason ■ Auglýsingar
og dreifing: Árni S. Árnason ■ Innheimta: Ellen Blumenstein ■ Setning, umbrot, filmuvinna og
prentun: Borgarprent ■ Útlit: Skagablaðið ■ Ritstjórnarskrifstofa er að Skólabraut 21, 2. hæð, og er
opin alla virkadaga frákl. 10-17. ■ Símar 12261 og 11397 ■ Póstfang: Pósthólf 170, 300 Akranes.
2