Skagablaðið - 25.02.1988, Side 4
Guðbjartur Hannesson, bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins, skrifar um fjárhagsáætlm Akraneskaupstadar 1988:
Hvað fáum við fyrir skatta
okkar til bæjarfélagsins?
Að kvöldi þriðjudags samþykkti bæjarstjóm Akraness fjárhags-
áætlun Bæjarsjóðs, Hafnarsjóðs, Vatnsveitu og Tónlistarskóla. Fjár-
hagsáætlun bæjarsjóðs var samþykkt með 7 atkvæðum gegn engu, en
áætlanir stofnana með 9 samhljóða atkvæðum.
Mig langar til að gera nokkra grein fyrir helstu útgjaldaliðum bæjar-
sjóðs og viðhorfum mínum til þeirra.
Rekstrargjöldin
Reiknað er með að rekstur á
vegum bæjarins verði óbreyttur,
nema hvað ný sundlaug tekur
væntanlega til starfa á sumrinu.
Aðrar breytingar eru óverulegar.
Ætlunin er að gera ákveðna upp-
stokkun á bæjarskrifstofu með til-
komu nýs innheimtufyrirkomu-
lags, en þar er enn óafgreitt hvar
eða hvernig gjaldheimta Vestur-
lands verður og bíður því þessi
endurskipulagning eftir þeirri
ákvörðun. Jafnframt þarf að eiga
sér stað endurskipulagning á starfi
Tæknideildar bæjarins og Áhalda-
húss og var tillaga um þessa
endurskoðun samþykkt samhliða
fjárhagsáætlun.
Stærsti rekstrarliðurinn verður
eftir sem áður launagreiðslur.
Núverandi meirihluti setti sér það
markmið að stórbæta laun þeirra
lægst launuðu, og hefur það
tekist. Hjá Akranesbæ vinna eng-
ir í fullu starfi með laun undir
skattleysismörkum, en það er
krafa (og þykir há) sumra stéttar-
félaga í yfirstandandi kjarasamn-
ingum að launin nái þeim.
Framkvæmdir
Þau 14,3% (45,4 millj.) sem
afgangs eru þegar rekstrarliðirnir
hafa verið greiddir, verða notuð
til að borga afborganir af skuldum
(rúmar 27 millj. kr.) en afgangur-
inn fer í tækja- og áhaldakaup og
nýframkvæmdir. Til viðbótar
þessum tekjuafgangi koma lán-
tökur, sem verða í krónutölu
heldur lægri en á sl. ári (48 millj.),
og framlög ríkis til hinna ýmsu
verkefna.
Æskilegt hefði verið að minnka
lántökur enn meira og minnka
þannig fjármagnskostnað og
losna undan dýrum vaxtakjörum
en mat mitt er að slíkt sé ekki verj-
andi á sama tíma og samdráttur er
í framkvæmdum hjá einkaaðilum
og fyrirtækjum í bænum.
Þrátt fyrir tekjuknappa áætlun
og mikla óvissu um tekjur er tekist
á við stór og spennandi verkefni í
þessari fjárhagsáætlun. Helstu
verkefnin eru þessi:
B rekkubæj arskóli
Unnið er áfram eftir grunnskól-
asamningnum og reiknað með að
ljúka viðbyggingu Brekkubæjar-
skóla og hefja framkvæmdir við
frágang lóðar. Við það er miðað
að ljúka lagfæringum eldra hús-
næðis skólans á næsta ári og verð-
ur hann þá orðinn einn best búni
grunnskóli landsins og er það vel.
Jaðarsbakkalaugin
Ætlunin er að Ijúka loksins við
sundlaugina okkar og taka hana í
notkun næsta sumar. Þar hefur
gengið hægar en við höfum vonast
til og á það sér margar skýringar,
en vonandi verður laugin bæði
betri og vandaðri en ráð var fyrir
gert.
2. áfangi Höföa
Bærinn leggur til verulega upp-
hæð í byggingu 2. áf. Höfða, verk-
efni sem er mjög brýnt. Framhald
framkvæmda þar er þó fyrst og
fremst háð framlagi úr fram-
kvæmdasjóði aldraðra og fyrir-
greiðslu hjá húsnæðisstofnun
(sem er meira og minna lömuð).
Ljóst er að bærinn byggir ekki
Höfða einn, en við erum ákveðin í
að leggja okkar til svo Ijúka megi
byggingunni á næstu 4 árum.
Fyrirtæki, félög og einstaklingar
hafa lagt þessu máli gott lið og
verður svo vonandi áfram.
Heilsugæslustöð
Langt er síðan hafist var handa
við nýbyggingu við Sjúkrahúsið,
sem húsa átti heilsugæslustöð
bæjarins og ýmsa þá starfsemi sem
þröngt býr á Sjúkrahúsinu.
Grunnur var steyptur fyrir margt
löngu. Á sl. ári var loks rífleg fjár-
veiting til framkvæmda, en þrátt
fyrir að hönnun væri lokið tókst
ekki að fá heimild ráðuneyta til að
hefja framkvæmdir. Nú liggur fyr-
ir áætlun, sem e.t.v. skýrir að
nokkru þessa málsmeðferð í ríkis-
kerfinu, því búið er að seinka
áætluðum verklokum um eitt ár.
Nú er búið að bjóða út næsta
áfanga og Innkaupastofnun ríkis-
ins skilaði nú í vikunni tillögum að
því hver fengi verkið. Bæjarstjóm
samþykkti á fundi sínum að mæla
með tillögu Innkaupastofnunar
um að Tréverk fái verkið, en það
fyrirtæki átti 4. lægsta tilboð.
Gatnagerð
Eftir fund bæjarráðs með for-
svarsmönnum Sementsverksmiðju
fyrr á árinu, var skipuð nefnd með
fulltrúum bæjar, Sementsverk-
smiðju og Sérsteypu, sem vinna
átti tillögur um átak í gatnagerð á
Akranesi á næstu ámm. Þessi
nefnd skilaði formlega áliti nú í
vikunni. Tillögurnar ganga út á
það að leggja u.þ.b. 6,5 km afgöt-
um og ljúka jafnframt gangstétt-
um við þær, á næstu 3 árum.
Ætlunin er að hefja fram-
kvæmdir við gatnagerð í fram-
haldi af þessum tillögum og eru
kr. 24,3 millj. í fjárhagsáætlun til
gatnagerðar. Tekjursl. ársleyfðu
aðeins smávægilegar endurbætur
á gangstéttum (Skagabrautin t.d.)
en nú er ætlunin að gera verulegt
átak f þessum málaflokki. Því
miður vannst ekki tími til þess að
ákveða við hvaða götur verður
unnið á komandi sumri, en sam-
þykkt var með fjárhagsáætlun til-
laga um að áætlun um gatnagerð
verði kynnt bæjarbúum strax og
hún liggur fyrir, svo fólk geti nýtt
sér þessar framkvæmdir til lag-
færinga á eigin heimkeyrslum,
bílastæðum og annan frágang við
lóðir.
Væntanlega verður jafnframt
unnið að frágangi gangstétta við
þær eldri götur bæjarins, sem ekki
eru inni í áætluninni, en tími er til
kominn að ganga frá t.d. Sunnu-
braut, Sandabraut, o.s.frv.
Holræsi
Reynt verður að ljúka einu hol-
ræsi á árinu og koma því út fyrir
stórstraumsfjöruborð. Áætlunin
miðar við að eitt af holræsunum
sem renna í Krókalón verði fyrir
valinu í ár (holræsið frá Sjúkra-
húsi og Brekkubæjarskóla).
Hér er áfram stórt óleyst vanda-
mál og hægt miðar en miðar þó.
Sorpeyðing
í fjárhagsáætlun er gert ráð fyr-
ir að breyta fyrirkomulagi sorp-
eyðingar og fá varanlegt starfs-
leyfi fyrir sorphaugana. Reiknað
er með að urða sorpið. Jafnframt
verði unnið að uppsetningu sorp-
brennsluofns að því tilskyldu að
hollustuvernd ríkisins samþykki
brennslu og urðun sem fullnægj-
andi sorpeyðingu.
Fjölbrautaskóli
Yesturlands
Akranesbær rekur nú ekki
lengur einn fjölbrautaskólann og
má segja að stjórn skólans ásamt
ríkisvaldinu hafi nú mest að segja
um framkvæmdir þar. Mjög brýnt
er orðið að byggja þar mötuneyti
fyrir nemendur.
f ár er reiknað með að ganga frá
endanlegri hönnun þessarar við-
byggingar, en auk mötuneytis
hýsir hún stjórnunaraðstöðu og
skapar þannig nýtt kennsluhús-
næði í eldri byggingum.
Atvinnuþróunarsjóður
Á sl. ári var stofnaður atvinnu-
þróunarsjóður á Akranesi og skal
stefnt að því að höfuðstóll sjóðs-
ins verði ekki minni en 20 millj. á
næstu 10 árum.
Reiknað er með að leggja
sjóðnum til megnið af söluverði
Krossvíkurhlutafjár frá sl. ári, en
sjóðurinn fær a auki andvirði
hlutabréfa í Nótastöð og eignir
framkvæmdasjóðs sem eitt sinn
var starfræktur. Alls geymir sjóð-
urinn því 9 millj. kr. á árinu og
ætti að geta hafið starfsemi af
töluverðum myndugleika. Hlut-
verk hans er að styðja við nýjung-
ar í atvinnulífinu, og aðstoða
fyrirtæki með lánafyrirgreiðslu og
beinum styrkjum eftir því sem
stjórn sjóðsins telur ástæðu til.
Ýmis verkefni
Áfram verður unnið að frá-
gangi opinna svæða og leikvalla í
bænum og að uppbyggingu í skóg-
ræktinni. Þarna eru meginverk-
efni Vinnuskólans. Hér var sam-
þykkt tillaga um gerð leiktækja,
frágang á leikvelli við Víðigrund,
lagfæringar sparkvalla, gangstíga,
reiðstíga auk gróðurrieta á nokkr-
um stöðum. Allar ábendingar frá
almenningi eru hér vel þegnar, en
eitt af óskaverkum mínum er að
lagfæra smá bletti sem eru hér og
þar í bænum og til lýta.
Kalblettimir í
fj árhagsáæ t luninni
Dagvistarmálin
Aumasti framkvæmdaliður í
fjárhagsáætlun bæjarins er að
mínu mati dagvistarmálin. Aðeins
er gert ráð fyrir að hefja hönnun
dagvistarstofnana, en ekkert
byggt.
Samhliða afgreiðslu fjárhags-
áætlunar var ítrekuð ósk bæjar-
stjórnar um að félagsmálaráð láti
vinna áætlun um uppbyggingu
dagvistarstofnana, en slík tillaga
var samþykkt á sl. sumri en hefui
ekki komið til framkvæmda enn.
Vonandi rætist samt sú ósk mín
að hér verði tekin í notkun ný dag-
vistarstofnun á næsta ári.
Tónlistarskólinn
Annar aumur liður í fjárhags-
áætluninni er að ekki sér þar fyrir
endann á húsnæðisvanda Tónlist-
arskólans. Skólinn hefur verið
rekinn hér með sóma mörg
undanfarin ár og mjög brýnt að
koma sem mestu af starfsemi hans
undir eitt þak. Gerð var tilraun á
sl. ári til að selja húsnæði skólans
að Kirkjubraut 8 og átti þá jafn-
framt að reyna að selja húsnæðið
á Skólabraut og ráðast í að leysa
vanda skólans. Þetta tókst ekki og
nú eru raunar engar þær lausnir á
borðinu, sem bærinn getur ráðist í
að svo stöddu.
Hér verður þó að vinna áfram
að málum og finna framkvæman-
lega lausn.
Húsnýtingarmál bæjarins
Margt er óljóst varðandi hús-
næðiseign bæjarins og nýtingu
þessa húsnæðis. Tekist er á um
hvort rífa skuli Kirkjuhvol eður
ei. Meirihluti bæjarfulltrúa vill
koma húsinu í einhver not en það
hefur ekki tekist enn. Vænst hafði
verið að einhverjir einstaklingar
eða fyrirtæki keyptu húsið og
endurbyggðu það, m.a. vonuðust
menn til að Sjúkrahúsið gæti nýtt
sér húsið, en svo virðist ekki vera.
Iðnskólinn er vannýttur og þarf
að finna honum varanlegt
hlutverk. Efri hæð bókhlöðunnar
er einnig vannýtt, en fjármagn
hefur ekki leyft að ráðist verði í að
auka starfsemi bókasafnsins og
flytja hluta starfseminnar á efri
hæðina, sem auðvitað verður í
framtíðinni. Annað hvort hús-
næðið hýsir e.t.v. gjaldheimtu
Vesturlands eða hluta hennar,
hver veit?
Þarna er verk að vinna, en
samhliða áframhaldandi athugun-
um á hagkvæmni þess að reisa
ráðhús í samstarfi við ríkið þarf að
taka á þessum hlutum og losa sig
við eignir sem ekki á að nýta í
þágu bæjarins og koma hinum í
sómasamlegt horf og framtíðar-
not.
Lokaorð
Akranes er bær sem býr vel á
flestum sviðum þó víða þurfi að
bæta um enn betur. Verkefnin eru
næg og vonandi láta sem flestir
málefni bæjarins til sín taka,
skipta sér af því sem verið er að
gera, koma með góðar hugmyndir
og leiðbeiningar um það sem bet-
ur mætti fara.
Núverandi meirihluti bæjar-
stjórnar hafði hug að auka upplýs-
ingastreymi til bæjarbúa í von um
að fólk almennt fylgdist betur
með hvað væri að gerast. í þessum
tilgangi voru auglýstir viðtalstím-
ar bæjarfulltrúa og gefin var út
árbók sveitarfélagsins með reikn-
ingum og fjárhagsáætlun sl. árs.
Slík bók er væntanleg aftur í ár.
Þá hafa stofnanir bæjarins
kynnt þjónustu sína f smáatriðum
sem dreift hefur verið. Bæklingar
komu um dvalarheimilið Höfða
og um öldrunarþjónustu í
bænum. Bókasafnið sendi út aug-
lýsingabækling auk þess sem
Iþrótta- og æskulýðsnefnd hefur
kynnt félög í bænum og starfsemi
sína.
Ætlunin var og er að heimsækja
vinnustaði nú á miðju kjörtíma-
bili og ræða bæjarmálin, en við
höfum ekki gefið okkur tíma enn,
en gott væri ef einhverjir vinnu-
staðir riðu nú á vaðið og byðu
okkur í heimsókn svona til að
koma okkur af stað.
24. febrúar 1988
Guðbjartur Hannesson,
bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins
4