Skagablaðið - 25.02.1988, Side 8

Skagablaðið - 25.02.1988, Side 8
1 þróttir ! þróttir í íþróttir j þróttir i þróttir Frábært hjá 5. flokki en 35 stig eins manns þeim ofviða Skagamenn virðast vera að byggja um sterka yngri flokka í körfuboltanum ef marka má gengi þeirra í vetur. Fjórði flokkurinn hefur síðustu árin verið stolt Körfuknattleiksfélags Akraness en nú virðist sem Skagamenn séu að eignast skemmtilegan 5. flokk! Strákamir kepptu á fjölliðamóti í Njarðvík um helgina og gerðu það gott, unnu þrjá leiki af fjórum, en urðu að sætta sig við tap gegn Haukum í úrslitaleik um hvort lið- ið sigraði í B-riðli. Fyrsti leikurinn var gegn ná- grönnunum úr Borgarnesi og þar höfðu Skagamennirnir betur, sigruðu 23 : 20. Bjarki Halldórs- son skoraði 11 stig og þeir Dagur Þórisson, Sigurður Halldórsson og Hlyni Baldursson allir 4 stig hver. í kjölfarið fylgdi síðan 32 : 22 sigur gegn Valsmönnum. Þar skoraði Sigurður 8 stig, Dagur 6, Hlini 6, Bjarki 5, Gunnlaugur Jónsson 4 og Sverrir Guðmunds- son 2. Úrslitaleikur riðilsins var svo gegn Haukum. Hafnfirðingarnir sigruðu 38 : 26 og gátu þakkað einum manni sigurinn því hann skoraði 35 stiganna! Skipti engu þótt hver Skagamaðurinn á fætur öðrum væri settur honum til höfuðs, hann hristi alla af sér af sendi út af með 5 villur. Sigurður skoraði 12 stig í þessum leik, Dag- ur 6, Gunnlaugur 4 og þeir Hlini og Kári Steinn Reynisson 2 hvor. Lokaleikurinn var svo gegn B- liði ÍR. Þar unnu okkar menn létt- an sigur, 21: 8. Gunnlaugur skor- aði þar 8 stig, Sigurður 6, Dagur 5 og Hlini 2. Forráðamenn Körfuknattleiksfélags Akraness gera sér nú vonir um að Bogi Pétursson, sem verið hefur frá vegna meiðsla í langan tíma, geti loksins leikið að nýju á sunnudaginn er Skagamenn mæta Létti í 1. deildinni. Bogi sleit liðbönd í ökkla um áramótin og hefur liðið illa getað verið án hans. Skagamenn eru enn um miðia 1 .deildina þegar keppni þar er vel á veg komin. Tindastóli og ÚIA berjast um sigur í deildinni, hafa bæði 20stig að loknum 11 leikjum. ÍShefur lóstigúr lOleikjumog gæti blandað sér í toppslaginn. Skagamenn eru með 8 stig eftir 10 leiki eins og HSK og Léttismenn hafa 8 stig eftir 11 leiki. Reynis- menn eru með 4 stig úr 11 leikjum og Skallagrímsmenn eru á botn- inum án stiga eftir 10 leiki. FIRWAKEPPWl Firmakeppni Knattspyrnufélags ÍA í innanhússknattspyrnu verður haldin 6. mars n.k. hátttökutilkynningar berist fyrir laugardaginn 27. febrúar n.k. Sama fyrirkomulag verður á keppninni og verið hefur í innan- hússmótum áður. riánari upplýsingar veitir Steinn Helgason á skrifstofu Knatt- spyrnufélagsins uppi á íþróttavelli, síminn er 13311. KIU TTSPYRMFÉLAG ÍA Lausir æfingatímar íþróttabandalag Akraness er með lausa æfingatíma fyrir einstaka hópa, félög eða félagasamtök í hinu nýja íþróttahúsi ÍA. Gert er ráð fyrir að hægt sé að fastleigja sér æfingatíma í allt að fimm ár. Nánari upplýsingar gefa Jón Runólfsson í síma 12190 (vinnusími 11085), Jón Gunnlaugsson í síma 12329 (vinnusími 13388) og Gunnar Sigurðsson í síma 12188 (vinnusími 11163). Umsóknarfrestur er til 7. mars næstkomandi. Umsóknareyðublöð liggja frammi á bílasýningunni í nýja íþróttahúsinu laugardaginn 27. og sunnudaginn 28. febrúar. ÍÞRÓTTABANDALAG AKRANESS Úr leik ÍA og ÍS á föstudag. Góður síðari hluti en fyrri dýrkeyptur Skagamenn máttu þola tap fyrir dagskvöld og skoraði 21 stig. Jó- Stúdentum í 1. deild Islandsmóts- hann Guðmundsson skoraði 15, ins í körfuknattleik á föstudags- Kristján Ólafsson 13, Sigurdór kvöld. Lokatölur urðu 89 stig Sigvaldason 9, Þrándur Sigurðs- gegn 72 gestunum í vil eftir að son 6, Gísli Gíslason 3 og Svein- staðan hafði verið 52 : 30 fyrir ÍS í björn Rögnvaldsson 2. hálfleik. Okkar menn náðu því Lið Skagamanna er mjög ungt aðeins að rétta úr kútnum í síðari að árum, meðalaldurinn ekki hálfleik án þess nokkru sinni að nema 20 ár. Auk Elvars léku þeir ógna sigrinum hjá gestunum. Sigurdór og Kristján prýðilega en Elvar Þórólfsson lék best lið Stúdentanna var einfaldlega of Skagamanna í leiknum á föstu- sterktfyrirþáaðsinni. Bestu lið landsins samankomin Annar flokkur kvenna í körfuknattleik verður í sviðsljósinu hér á Akranesi um helgina er hér fer fram fjölliðamót með þátttöku ÍA, ÍBK, UMFN, UMFG, Hauka, ÍR og KR. Þarna eru saman komin öll bestu lið landsins. Fjölliðamótið eða „turncringin" eins og sumir kjósa að kalla þessar samkomur hefst klukkan 20 annað kvöld og er aðgangur ókeypis. Annar flokkur kvenna hefur verið í örri framför og verður fróðlegt að sjá hvernig honum reiðir af um helgina. Aðalfundur Skíðafélags Akraness: Adolf var kjör- innformaðurSA Adolf Ásgrímsson var í fyrra- talin hverju sinni. Einnig var kvöld kjörinn formaður Skíðafé- ákveðið á fundinum að stefna að lags Akraness á aðalfundi félags- námskeiði í skíðagöngu í ná- ins. Tekur hann við formennsk- grenni Akraness og ef næg þátt- unni af Eh's Þór Sigurðssyni, sem taka fæst að efna til námskeiðs í ekki gaf kost á sér til endurkjörs Bláfjöllum. sökum anna. Aðrir í stjórn félags- Á fundinum kom m.a. fram, að ins eru Jónas Kjerúlf, Andrés ekki væri hentugt að sinni að Kjerúlf, Kristín Gísladóttir, Bragi koma upp aðstöðu til skíðaiðkana Sigurdórsson, Hannes Birgisson í nágrenni Akraness vegna snjó- og Gísh Guðmundsson. leysis. Sú aðstaða kann e.t.v. að koma síðar. Þeir sem hafa áhuga á Ákveðið var á aðalfundinum að að kynna sér starfsemi Skíðafé- sökum snjóleysis yrði stefnt að lags Akraness nánar ættu að hafa skíðaferðum um helgar í þau samband við einhvern í stjórn- skíðalönd, sem heppilegust eru inni. 8

x

Skagablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.