Skagablaðið - 14.10.1988, Side 1
38. TBL. 5. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 1988
VERÐ KR. 100,-
MikBað
ekkivarð
stórslys
Mesta mildi er talin að ökumað-
ur bifhjóls skuli ekki hafa stórslas-
ast er hann ók hjóli sínu í veg fyrir
bifreið sem ók eftir Þjóðveginum
á móts við sorphaugana.
Snör viðbrögð ökumanns bif-
reiðarinnar eru talin hafa ráðið
mestu um að ökumann bifhjólsins
sakaði ekki. Skemmdir urðu litlar
sem engar á hjólinu og bílnum.
Ekki er biðskylda á afleggjar-
anum upp með Berjadalsá en rætt
hefur verið um að setja þar upp
biðskyldumerki.
Kastaðist
yfirbílinn
Óvenjulegt óhapp varð upp úr
hádegi á laugardag er stúlka hjól-
aði á fullri ferð á kyrrstæða bifreið
á Suðurgötu.
Áreksturinn var svo harður að
hún kastaðist yfir bifreiðina og
skall í götuna. Að sögn lögreglu
var hjólreiðamaðurinn fluttur á
sjúkrahús en meiðsli hans reynd-
ust ekki alvarleg. Litlar skemmdir
urðu á bifreið og reiðhjóli í þessu
sérstæða óhappi.
Gert klárt
Þessa dagana er unnið af ufllum krafti að því að gera Höfrung
kláran til veiða en stutt er síðan skipið kom heim eftir gagngerar
endurbætur í Þýskalandi. í gær var verið að taka nót um borð og á
myndinni hér að að ofan má sjá Valdimar Björnsson vinna við það
verk.
Vemdaður vinnustaður á Vesturlandi:
Fokdýrt loftræstikerfi
var hannaö án samráis
Samkvæmt heimildum Skaga-
blaðsins hefur komið í Ijós, að
gert er ráð fyrir fokdýru loftræsti-
kerfi í hönnun húss Verndaðs
vinnustaðar á Vesturlandi, sem
nú er verið að byggja hér á Akra-
nesi. Loftræstikerfið þætti vafalít-
ið ekki fréttnæmt ef það hefði
ekki verið hannað án samráðs við
, eigendur hússins, ríkið að 90% og
bæinn að 10%, stjórn vinnustað-
arins og bygginganefnd hússins.
Umrætt loftræstikerfi kostar
um hálfa aðra milljón króna og
hönnun þess kostaði 400 þúsund
krónur. Samtals er hér um tæp-
lega tveggja milljóna króna fram-
kvæmd að ræða. Þá hefur Skaga-
blaðið heimildir fyrir því að
„gleymst" hafi að gera ráð fyrir 3 -
4 hurðum í húsinu og nemi kostn-
aður vegna þeirra mistaka um 100
þúsund krónum á hverja hurð.
Þessi mistök munu vera megin-
uppistaðan í 4,8 milljónum króna
sem byggingin er komin fram úr
áætlun frá því í vor. Það er V-T
teiknistofan sem er hönnuður
hússins.
Heimildir Skagablaðsins
herma, að upp um þessi mistök
hafi komist þegar Björn Ólafsson,
sem fer með eftirlit með bygging-
unni fyrir Innkaupastofnun ríkis-
ins, spurðist fyrir um loftræsti-
kerfið hjá stjórn vinnustaðarins
og bygginganefnd hússins. Þar
kannaðist hins vegar enginn við
neitt.
„Abyrgðarieysi
að kanna þetta
ekki frekar“
„Réttar upplýsingar lágu ekki fyrir um stöðu verksins og leiddi það
til þess að veigamiklar ákvarðanir voru teknar á grundvelli rangra upp-
lýsinga." Svo segir í umfangsmikilli bókun sjö bæjarfulltrúa um sund-
laugarmálið svokallaða, sem lögð var fram á fundi bæjarstjórnar á
þriðjudag. Miklar umræður urðu um sundlaugarmálið og deildu sjálf-
stæðismenn hart á hvernig til tókst með fjárhagshlið framkvæmdanna.
Lögðu þeir fram bókun, þar sem sagði m.a.: „Við teljum, að bæjarbú-
ar eigi rétt á skýringum þegar helsta framkvæmd ársins fer á þriðja tug
milljóna fram úr áætlun, sem gerð var 2-3 mánuðum áður en fram-
kvæmdum lauk . . .“
Guðjón Guðmundsson, Sjálf-
stæðisflokki, átaldi meirihluta
bæjarstjórnar harðlega fyrir að
hafna því að endurskoða og yfir-
fara alla þætti varðandi byggingu
laugarinnar. „Það er ábyrgðar-
leysi að kanna þetta ekki frekar,“
sagði Guðjón m.a. í umræðum
um málið, sem stóðu yfir í á aðra
klukkustund.
Jóhann Ársælsson, Alþýðu-
bandalagi, sagði málflutning
Guðjóns og bókun sjálfstæðis-
manna útúrsnúning og vísað til til-
lögu sem samþykkt hefði verið.
Þar sagði m.a. orðrétt: „Einnig er
bæjarráði falið að taka til með-
ferðar þau atriði, sem einstakir
bæjarfulltrúar telja ekki nægilega
skýr, með það fyrir augum að ekki
verði dregið í efa að málið hafi
verið að fullu upplýst.
Jóhann var þungur á brún er
hann óskaði eftir að bókuð yrðu
mótmæli við bókun sjálfstæðis-
manna. Sagði þar m.a.: „ . . .
mótmæli ég harðlega bókun sjálf-
stæðismanna, þar sem sagt er að
hafnað hafi verið að upplýsa
málið.“ Guðbjartur Hannesson,
Alþýðubandalagi og forseti
bæjarstjórnar, skrifaði einnig
undir mótmælin.
Bókun sjömenninganna, sem
sjálfstæðismenn sögðu að sér
hefði ekki verið boðið að skrifa
undir, er samsuða úr bókun
Alþýðuflokksmanna og meiri-
hlutaflokkanna. Ingvar Ingvars-
son, Alþýðuflokki, upplýsti á
bæjarstjórnarfundinum að per-
sónulega hefði hann viljað harðari
Kirkjuhvoll hangir á bláþræði
Lífdagar Kirkjuhvols hanga enn á bláþræði. Innan bæjarstjórnar eru skiptar skoðanir um húsið;
hvort afhenda eigi það Sjúkrahúsi Akraness eða hvort freista eigi þess að gera það upp og nota til ein-
hverra hluta.
Á fundi bæjarstjórnar á þriðjudag var samþykkt eftirfarandi tillaga Jóhanns Ársælssonar, Alþýðu-
bandalagi, sem lögð var fram í bæjarráði í síðustu viku:
„Bæjarráð samþykkir að gerð verði sérfræðileg úttekt á ásigkomulagi húseignarinnar Kirkjuhvols við
Merkigerði 7 með tilliti til hugsanlegra endurbóta og viðgerða á húsinu. Bæjarstjóra er falið að annast
framkvæmd málsins og semja um kostnað við verkið fyrirfram. Miðað skal við, að álitsgerð liggi fyrir í
lok október."
Tillagan var samþykkt með sex atkvæðum. Tveir sátu hjá og einn var á móti.
bókun. „Égvil að breytingar verði
gerðar á tæknideild bæjarins til að
fyrirbyggja svona mistök," sagði
Ingvar og bætti við, að eins og nú
væri ástatt innan deildarinnar
stæði hún engan veginn undir
framkvæmdum á borð við Jaðars-
bakkalaugina.
- Sjá sandurliðaða reikninga
yfir framkvæmdir við Jaðars-
bakkalaugina á bls. 4.