Skagablaðið - 14.10.1988, Síða 9
Skagablaðid
9
Tvær undanþágur veittar fyrir atvinnusarfsemi í bílskúrum á skömmum tíma:
Grundahverfíð smám saman
að verða að iðnaðarhverfi?
Samskipti barna og dýra
eru oft mjög náin og fjöl-
mörg dæmi eru um órofa
vináttu um árabil. Ekki bar
á öðru en þau væru miklir
mátar hann Egill litli og
hún Loppa hans er Ijós-
myndari blaðsins rakst á
þau í vikunni.
Þrátt fyrir ströng ákvæði um slíkt á sínum tíma virðist það færast í
vöxt, að veittar séu undanþágur til atvinnustarfsemi í bflskúrum í
Grundahverfinu. Tvær slíkar hafa verið veittar á síðustu vikum en að
sögn Sigurbjörns Jónssonar, formanns Byggingarnefndar Akranes-
kaupstaðar, eru ekki nemar þrír aðilar í hverfinu með leyfi frá nefnd-
inni upp á vasann.
Fyrir nokkrum missserum fékk
járniðnaðarmaður heimild til þess
að setja upp vinnuaðstöðu í bíl-
skúr hjá sér og fyrir nokkrum vik-
um var svo veitt heimild til kleinu-
gerðar í öðrum bílskúr. A síðasta
fundi Bygginganefndar var svo
veitt heimild fyrir rekstri lítillar
trésmíðavinnustofu í enn einum
bílskúrnum. Bæði síðasttöldu
leyfin voru veitt gegn skriflegu
samþykki nágranna og leyfið fyrir
trésmíðavinnustofunni er skilyrt
til tveggja ára.
Fatasöfnun
Fatasöfnun Rauðakross íslands
fer fram um næstu helgi og eru
bæjarbúar beðnir að láta gömul
en heillegföt af hendi rakna. Nán-
ar verður sagt frá þessu eftir viku.
Sigurbjörn sagði í viðtali við
Skagablaðið, að þrátt fyrir að að-
eins þr j ár undanþágur hefðu verið
veittar frá gildandi reglum um
hverfið vissu menn um miklu fleiri
aðila sem stunduðu atvinnurekst-
ur af einu eða öðru tagi í bílskúr-
um í Grundahverfi án tilskilinna
samþykkta. „Þeir sem ekki hafa
leyfi Bygginganefndar eru að
stunda sína starfsemi í óþökk
bæjaryfirvalda og nágranna,"
sagði Sigurbjörn.
Er Skagablaðið innti Sigur-
björn eftir því hvort ekki hefði
komið til tals að gera „rassíu" í
hverfinu og skera upp herör gegn
þeim sem stunduðu atvinnustarf-
semi í íbúðahverfi án heimildar
sagði hann að slíkt hefði ekki
komið til tals. Hætt væri við að þá
kæmu upp raddir um að verið væri
að bregða fæti fyrir sjálfsbjargar-
viðleitini einstaklinga.
Til upplýsingar er rétt að geta
þess hér, að til þess að fá heimild
fyrir atvinnurekstri af einu eða
öðru tagi í bílskúr í bíðarhverfi,
þarf að leita álits Byggingarnefnd-
ar og leggja fyrir hana beiðni um
breytta notkun húsnæðis. Það er
síðan hennar að samþykkja eða
hafna. Til þess að hægt sé að nota
orkufrekari vélar og tæki þarf að
leita til Rafveitu Akraness vegna
uppsetningu svokallaðra þriggja
fasa tengla.
Að sögn Magnúsar Oddssonar,
rafveitustjóra, setur Rafveita
Akraness engin skilyrði fyrir upp-
setningu þriggja fasa tengla önnur
en þau að samþykki byggingar-
nefndar liggi fyrir. Magnús sagði
tiltölulega lítinn kostnað fylgja
því að setja upp slíka tengla þar
sem rafveitan hefði lagt þriggja
fasa taugar að öllum húsum í
hverfinu á sínum tíma. Magnús
sagði heimilistæki ekki þurfa
nema eins fasa rafmagn og því
þyrftu að koma til breytingar svo
hægt væri að nota stærri tæki eða
vélar.
Halló - Atvinna
Ert þú ung, hress, kát og tilbúin að
vinna á kvöldin?
Komdu þá við í Bíóhöllinni og talaðu við
mig (Leifur) og við ræðum málin.
Akranesdeild Rauðakross íslands
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Akranesdeildar RKÍ verður haldinn
í nýbyqqinqu Brekkubæjarskóla, miðvikudag-
inn 19. október kl. 20.
1. Afhending verðlauna vegna teiknimynda-
samkeppni fatlaðra barna.
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
ATH. Vegna veitinga er nauðsynlegt að
skrá sig í síma 12539 fyrir þriðjudaginn 18.
október.
AKRANESDEILD RKÍ
Nýbreytni í tónlistar-
lífi Akraneskirkju
Fyrsta Tónlistarstundin sem nefnist „Músíkandakt11 verður nk. sunnudag 16.
okt. kl. 17.30 í Akraneskirkju. Flutt verður tónlist eftir Jóhann Sebastian Bach.
Fluttir þættir úrtveim kantötum, orgelverko.fi. Andaktin tekur um 30-40 mínútur.
Sr. Björn Jónsson flytur ritningarlestur og bæn. Flytjendur tónlistar eru Kirkju-
kór Akraness, Guðrún Ellertsdóttir, Unnur Arnardóttir, Bryndís Bragadóttir,
Fanney Karlsdóttir, Tim Knappet og Jón Ól. Sigurðsson.
SÓKNARNEFND AKRANESKIRKJU
Frá Bifreiðaeftirliti ríkisins á Akranesi
Meiraprófsnámskeið
Fyrirhugað er að halda námskeið á Akranesi fyrir meirapróf ef næg þátt-
takafæst
Peir sem eiga gamlar umsóknir verða að endumýja þær, því þær endur-
nýjast ekki sjálfkrafa.
Nánari upplýsingar og skráning hjá Bifreiðaeftirliti ríkisins á Akranesi,
Garðabraut 2, sími 11973.
Bifreiðaeftírlit ríkisins, Akranesi