Skagablaðið - 09.02.1989, Blaðsíða 1
Óvenjulegar „hremrangar'1 hjá hitaveítunni í síðustu viku:
Heib vatnið ídáraðist!
Óvenjuleg röð atvika; asahláka, sem olli mikilli kæl-
ingu á aðveituleiðslunni, gífurleg vatnsnotkun á sama
tíma og svo að tvö rör brustu á versta tíma, orsakaði að
Borgarnes varð í síðustu viku vatnslaust í fyrsta sinn í
sögu Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar. Ekki mun-
aði nema klukkustund að hið sama gerðist á Akranesi.
Svo mikil var vatnsnotkunin, að um tíma fóru um eða
yfir 1201/sek. í gegnum kerli HAB á Akranesi en miðað
við selt vatnsmagn á rennslið að vera rúmir 90 1/sek.
Þrátt fyrir að hitastig vatnsins
hjá Hitaveitu Akraness og Borg-
arfjarðar hafi í í síðustu viku í
sumum tilvikum orðið allt að
fimmtán gráðum lægra en eðli-
legt getur talist segir Ingólfur
Hrólfsson, hitaveitustjóri, það
ekki koma til greina af hálfu
HAB að veita afslátt vegna
þessa. f þessu tilviki hafi verið
um að ræða mjög óvenjulegar
aðstæður, þar sem spilað hafi
saman röð óvæntra atvika. Öðru
máli gegndi ef um langvarandi
ástand væri að ræða.
„Það er ekki sanngjarnt að
byggja kröfur um afslátt á þessu
óvenjulega ástandi," sagði Ing-
ólfur. „Við verðum fyrir því að
20 - 30 rör í aðveituæðinni
brotna á hverju ári án þess að
notendur viti nokkurn tíma af
því. Það er sjálfsagt að reyna að
komast sem oftast hjá vand-
kvæðum og reyna að láta þau
vara sem styst í hvert sinn en það
er ekki til umræðu að veita af-
slátt þegar svona hremmingar
ríða yfir.“
Talsverður kurr er nú í
Bílamir
hurfuum
nóttina!
mörgum bæjarbúum vegna þessa
ástands og hafa margir haft sam-
band við Skagablaðið vegna
þessa. Hafa menn haft á orði að
verið væri að selja þeim svikna
vöru, þ.e. mun kaldara vatn og
þá um leið minni orku en menn
borguðu fyrir. Þá hefur verið á
það minnst að þrýstingur á vatn-
inu sé engan veginn nægilegur og
standist ekki þá viðmiðun, sem
sé til grundvallar verðlagningu
vatnsins.
Hitaveitustjóri ritar grein í
Skagablaðið í dag, þar sem hann
útskýrir þetta vandamál sem upp
kom í síðustu viku. Þar segir
hann hitastig vatns við húsainn-
tök eiga að öllu jöfnu vera á bil-
inu 70 — 75 gráður. Hitastig
Öskuihgs-
stemning!
Það fór víst ekki framhjá nein-
um, að Öskudag bar upp á gær-
daginn. Börn bæjarins hafa
sjaldan ef nokkru sinni verið jafn
skrautlega klædd og söngglöð og
heimsóttu ótal fyrirtæki í þeirri
von að fá þó ekki væri nema
örlitla umbun erfiðsins. Þessi hér
til hægri heimsóttu Skagablaðið
og hlutu fyrir vikið prins póló að
launum.
vatnsins við dælustöð í bæjar-
jaðrinum er hins vegar 77 gráður
og þrýstingurinn þar 5 kg/fersm.
Margir notendur HAB hafa talið
þessar tölur eiga að gilda við hús-
inntök en hitaveitustjóri segir
það af og frá. Hann segir enn-
fremur í grein sinni, að ljóst sé
að notendur fái misheitt vatn.
Það verði ekki leiðrétt nema með
breyttu sölufyrirkomulagi. Þá
þurfi að setja upp mæla sem
mæla bæði rennslismagn og hita
vatnsins.
— Sjá nánar grein hitaveitu-
stjóra á bls. 4 — 5.
Þeir voru ekki ýkja margir
bílarnir sem náðist í þegar
halda átti uppboð á vegum
bæjarfógetaembættisins fyrir
stuttu. Meira en hehningur
auglýstra ökutækja fannst
hvergi þegar til átti að taka.
Að sögn bæjarfógetaem-
bættisins er um það að ræða í
tilvikum sem þessum að
menn eru að kaupa sér gálga-
frest. Þó svo menn sleppi við
eitt uppboð kemur að öðru
og fyrr eða síðar þurfa menn
að standa skil á skuldum
sínum og um leið upp-
söfnuðum kostnaði vegna
undansláttarins.
Það er því skammgóður
vermir að fela bíl sinn!
Sex hafa sótt um leyn
til þess að selja bjór
Eigi færri en sex umsóknir um
leyfi til sölu bjórs hafa borist
bæjarfógetaembættinu á Akra-
nesi. Sala bjórs verður heimil frá
og með 1. mars næstkomandi og
eru margir bersýnilega farnir að
hugsa sér gott til glóðarinnar.
Jón Vilberg Guðjónsson, full-
túi bæjarfógeta, vildi ekki gefa
upp nöfn umsækjendanna er
Skagablaðið ræddi við hann í gær
en staðfesti fjölda umsóknanna.
Það er þó ekki einvörðungu í
valdi fógetaembættisins að veita
bjórsöluleyfi því heilbrigðis-
nefnd þarf að láta málið til sín
taka, sem og bæjarráð og síðan
dómsmálaráðuneytið, þar sem
endanleg ákvörðun er tekin.
Hverjir eru umsækjendurnir
sex? Þessari spurningu velta
menn nú ákaft fyrir sér og eru
litlu nær. Heimildir Skagablaðið
herma, að í hópi umsækjenda
séu aðilar sem ætla sér að reka
bjórstofu á efri hæð Stillholts,
auk þess sem matsölustaðirnir
Stjörnukaffi, Barbró og Rauða
Myllan séu allir inn í myndinni.
Var grípiim
á kjafta-
töminni
Ungur ökumaður, sem
stöðvaður var af lögreglu sl.
fimmtudag, bölvar því senni-
lega í hljóði að hafa látið
góma sig á kjaftatörn!
Þegar lögregla skoðaði bíl-
inn eftir að hafa gert athuga-
semd við háttalag ökumanns-
ins, þar sem hann stoppaði á
miðri götu til þess að ræða
við félaga sinn á öðrum bíl,
kom í ljós að bifreiðin var
með öllu óhæf til aksturs.
Bremsubúnaði var ábótavant
og stýrisbúnaði einnig. Var
bifreiðin samstundis tekin úr
umferð, númerin klippt af
henni og lagfæringa óskað.
Hinn sem átti hlut að máli
í kjaftatörninni slapp heldur
ekki við sína áminningu.
Pústkerfi þess bíls reyndist í
ólagi og var ökumaðurinn
sendur heim eftir að hafa
fengið ákúrur í fimmta sinn.
HAB í vand-
ræðumísíð-
ustuviku
-sjábls.4-5
Hverer
bróðir
Darwins?
-sjábls.7
Tveir innan-
hússtrtl^r
ískautlA
-sjábls.9