Skagablaðið - 17.08.1989, Page 5

Skagablaðið - 17.08.1989, Page 5
Skagablaðid Skagablaðið NýMómabúð Ný blómaverslun, Blómahornið, hóf starf- semi um síðustu mánaðamót. Eigandi er Svanborg Eyþórsdóttir. Blómahornið er til húsa að Kirkjubraut 11, þar sem búsáhaldadeild Valhallar var áður til húsa. Segja má að í Blómahorninu sé tekinn upp þráðurinn þar sem frá var horfið í blómadeild Valhallar. Boðið verður upp á afskorin blóm, potta- blóm, mold, potta og annað tilheyrandi blómarækt auk þess sem gjafavörur ýmiskonar verða til sölu, ss. gler og væntan- lega stál- og kristalvörur. Blómahornið er opið frá kl. 10 - 18 virka daga og frá kl. 10 - 16 um helgar. Svanborg Eyþórsdóttir, eigandi Blómahorns- ins, fyrir miðri mynd. Til hœgri er María Ól- afsdóttir, starfsstúlka, og vinstra megin við Svanborgu er sonur hennar, Ólafur Eyberg. Sameining! Frá og með föstudeginum 18. ágúst sameinum við rekstur verslana okkar og verður hann á Kirkjubraut 54. Við þökkum þeim fjölmörgu sem átt hafa viðskipti við okkur á Skólabrautinni og vonumst eftir áframhaldandi viðskipt- um. Fljótlega lýkur endurbótum og um 150 fermetra stækkun á húsnæðinu á Kirkju- braut 54. Þá getum við boðið viðskiptavin- um upp á rúmgóða verslun á góðum stað. o C íitíiri ) in idmi /f Enn er tími til útimálningar! 1 on Mikið úrval af málningarvörum HAGSTÆTT VERÐ Staðgreiðsluaísláttur málningarP, _ ipjóndstan hf Robert Waseige, þjálfari FC Liege, fylgdist með Skagamönnum gegn Fylki: „Ungt lið Akumesinga gæti reynst okkur skeinuhætt“ „Ég vanmet alls ekki Akurnesinga, þeir hafa á að skipa ungu og efnilegu liði sem gæti reyrist okkur skeinuhætt,“ sagði Robert Was- eige, aðaiþjálfari FC Liege, sem fylgdist með Skagamönnum í leik þeirra gegn Fylki á laugardaginn. Akurnesingar mæta einmitt FC Liege í UEFA-keppninni í næsta mánuði. „Aðstæður hérna á Akranesi hans sagði hann að Sigursteinn leyfðu ekki góða knattspyrnu vegna roksins sem var meðan á leiknum stóð, en samt náðu leik- menn Akraness að ná ágætis samleiksköflum.“ Þegar að Waseige var spurður að því hvaða leikmenn Skaga- liðsins hefðu vakið helsta athygli Logi við eitt veggspjaldanna sem FÍI hefur látið útbúa í tengslum við herferð sína. Gengur vel hjá Sokkaveritsmiðjuimi Trico þrátt fyrir samdiátt um alH land: Raunaukninq framleiðslu er ustu 12mánuði Gíslason væri greinilega mjög öflugur leikmaður, svo og Ólafur Gottskálksson marvörður. Þá væru báðir miðverðirnir, þeir Al- exander Högnason og Sigurður B. Jónsson greinilega mjög sterkir. Waseige sagði að hann þekkti mjög vel til Karls Þórðar- son, hann væri stórsnjall leikmaður og hættulegur hvaða liði sem væri. Waseige sagðist samt sakna þess mjög að fá ekki að líta á Guðbjörn Tryggvason leika því hann hefði fregnað að hann væri einn öflugasti leikmaður liðsins. Þegar að Waseige var spurður að þvf hvernig honum litist á að Evrópuleikurinn færi fram hér á Akranesi sagði hann, að sér litist sérstaklega vel á það þetta væri lítill og vinalegur leikvangur og hann byggist alls ekki viö neinum ólátum á leiknum og kímdi um leið. Robert Waseige er íslenskum knattspyrnumönnum í Belgíu vel kunnugur. Hann hóf þjálfarafer- ilinn hjá Winterslag, en var síðan þjálfari hjá Standard Liege á sama tíma og Ásgeir Sigurvins- son og síðan hjá Lokeren þegar að Arnór Guðjohnsen lék með þeim. Síðan lá leiðin FC Liege, þar sem hann er nú. auglýsingar Til leigu 3ja herbergja íbúð frá og með mánaðamótum. Uppl. að Krókatúni 5 (uppi). Til sölu Ford Bronco Sport, árg. 1968. Þarfnast góðs eig- anda. Verð kr. 40 þúsund. Einnig til sölu 10 gíra kven- mannsreiðhjól. Verð kr. 10 þúsund. Uppl. í síma 11523. Til sölu rautt BMX hjól, vel útlítandi. Ný yfirfarið. Uppl. í síma 12908. Til leigu þriggja herbergja íbúð frá og með 1. septem- ber. Uppl. í síma 11907. Óska eftir samleigjanda í stóra íbúð á Reykjavíkur- svæðinu. Aðgangur að allri íbúðinni fylgir. Sanngjörn leiga. Hentugt fyrir nema framhaldsskóla. Uppl. í síma 91 - 656704 næstu kvöld og um helgina. Fleiri smáauglýsingar eru á bls. 2. SNOKERNAMSKEIÐ Námskeið í snóker hefst iaugardaginn 19. ágúst í Knatt- borðsstofunni, Vesturgötu 48. Þátttaka tilkynnist fyrir laugar- daginn 19. ágúst. Nánari upplýsingar á staðnum. KNATTBORÐSSTOFAN VESTURGÖTU 48, II. HÆÐ, SÍM113360 Á sama tíma og flest fyrirtæki landsins bera sig aumlega undan þeim samdrætti sem herjað hefur á gervallt þjóðfélagið síðustu 12 mánuði ber Logi Arnar Guðjónsson, framkvæmdastjóri Sokkaverk- smiðjunnar Trico hér á Akranesi, sig vel. Hann hefur enda ærna ástæðu til. Á sama tíma og velta margra fyrirtækja hefur staðið í stað og jafnvel dregist saman frá því á sama tíma í fyrra nemur veltuaukn- ing Trico um 35%. Að verðbólgu frádreginni er hér um 10 - 15% raunaukningu á veltu að ræða. Stillholti 16 Simi 11799 „Þetta helgast að hluta til af betri nýtingu á starfsfólki og tækjabúnaði en einnig af þeirri staðreynd, að framleiðsla okkar hefur unnið sér sess sem gæða- vara. Hluta af þessu má eflaust einnig rekja til ákveðinnar hag- ræðingar sem gerð hefur verið á sölukerfi fyrirtækisins," sagði Logi er Skagablaðið ræddi við hann í vikubyrjun. Hámarksnýting „Við erum núna um það bil að ná hámarksnýtingu á tækjabún- aði miðað við núverandi vinnutil- högun og sú aukning sem kann að verða héðan í frá kallar á lengri vinnutíma eða aukinn tækjakost,“ sagði Logi ennfrem- ur. Tveir menn starfa við prjóna- skapinn hjá Trico en 5 - 6 konur vinna í fullu starfi við sauma- skap, frágang og pökkun á fram- leiðsluvöru fyrirtækisins. En hver er þessi hagræðing í sölukerfinu? Skagablaðið innti Loga eftir því. „Þar er kannski fyrst til að telja aukna þjónustu okkar við þær verslanir sem kaupa af okkur sokka, sér í lagi við Hagkaup. Til þess að koma til móts við versl- unina, sem er stærsti söluaðili okkar á landinu, höfum við m.a. breytt vöruheitakerfi okkar þannig að vöruheitin eru nú þau sömu og hjá Hagkaupum. Fyrir okkur sjálf erum við svo áfram með önnur vöruheiti. Þetta hefur fallið í mjög góðan jarðveg hjá þeim Hagkaupsmönnum og spar- að þeim ómælda vinnu. Annað atriði sem við höfum gert til hag- ræðingar er það, að Trico fær vikulega birgðaútskrift frá Hag- kaupum og þannig getum við fylgst mjög vel með hvernig var- an okkar hreyfist. Hvoru tveggja hefur gefist mjög vel og skilað sér í aukinni sölu.“ Um þessar mundir er verið að ganga frá hlutafjáraukningu í Trico eins og Skagablaðið skýrði frá í síðustu viku. Um er að ræða 2 milljóna króna aukningu, úr 3,5 milljónum í 5,5 milljónir. Af þessum tveimur viðbótarmilljón- um ætlar Atvinnuþróunarsjóður að kaupa hlutafé fyrir 1200 þúsund, eldri hluthafar fyrir 500 þúsund og nýr hluthafi kemur svo inn með 300 þúsund krónur. Skuldir greiddar „Þetta nýja hlutafé kemur sér mjög vel og verður að mestu nýtt til þess að greiða niður skuldir sem fyrirtækið hefur dregið á eft- ir sér síðustu ár og má rekja til byggingar húsnæðisins yfir starf- semina. Hagur fyrirtækisins kemur til með að rýmkast veru- lega við þetta og við erum bjart- sýn á framhaldið." Að sögn Loga er stefnt að því að auka framleiðsluna um 10% á ári næstu tvö ár. Eftir það er gert ráð fyrir að þróunin verði hæg- ari. Sem stendur framleiðir fyrir- tækið 250 þúsund pör af sokkum á ári eða því sem næst eitt par á hvert mannsbarn á landinu. Samkeppni En hvað með samkeppnina við innflutta sokka? Logi var spurður út í það atriði. „Það er sárgrætilegt fyrir okkur, sem leggjum okkur fram um að framieiða gæðavöru, að fylgjast með því gífurlega magni ódýrra sokka sem flutt er til landsins. Sérstaklega eru það margar tegundir innfluttra frotté- sokka sem eru lélegar. Þeir eru í mörgum tilvikum framleiddir úr afgangsbómull sem vönduð prjónafyrirtæki myndu ekki líta við. Þegar við bætist svo lágur framleiðslukostnaður leiðir það af sér mjög ódýra vöru. Út úr búð kosta þessir inn- fluttu sokkar oft ekki nema helming af því sem okkar kosta. Og þegar haft er í huga að end- ing okkar sokka er allt frá því að vera þrefalt og upp í jafnvel tífalt meiri er ávinningurinn af því að kaupa innfluttu sokkana vafas- amur.“ ts3C3ppT:r~ai__i~~nnrn i ii iTfnmn' fhhIW ri Mfi nrl Pln n fIfIfI raiaei ta öq taca otsj ta tatsjtsj- r.E3E3Bl Fl HbI HfI FIFÍ Fl RFIfI rrc n n. ú a a Æviskrár MA-stúdenta II. bindi er komið út Bókin er 606 bls. með 532 myndum og nær yfir árin 1945 - 1954. Næstu vikur verður bókin seld á áskriftarverði hjá forlaginu að Engjateigi 9 í Reykjavík (sími 91 - 686150) og hjá ritstjóranum, Gunnlaugi Haraldssyni, Esjuvöllum 20 á Akranesi (sími 93 - 12304). Örfá eintök eru enn óseld af I. bindi (1927- 1944) og geta nýir áskrifendur tryggt sér eintak á meðan upplag endist. SUNDNÁMSKEE) Sundnámskeið fyrir börn, 5 ára og eldri (fædd 1983 eða fyrr), hefst í Bjarnalaug mánudaginn 21. ágúst kl. 10. Innritun fer fram í Bjarnalaug mánudaginn 21. ágúst frá kl. 10 - 12 (ATH! Mæta með sund- föt við innritunina). Lengd námskeiðsins er 10 stundir. Leiðbein- andi er Helgi Hannesson. Þátttökugjald, kr. 1000,-, greiðist við innrit- un. íþrótta- og æskulýðsneínd Sundnámskeið fyrir fullorðna Ef næg þátttaka fæst verður haldið 10 stunda sundnámskeið fyrir fullorðna í Bjarnalaug í hádeg- inu virka daga (frá kl. 12.10- - 12.50) frá 25. ágúst nk. Innritun fer fram í Bjarnalaug frá kl. 10 - 12 mánudaginn 21. ágúst nk. Leiðbeinandi: Helgi Hannesson. Þátttökugjald, kr. 1000,-, greiðist við innritun. íþrótta- og æskulýðsnefnd Rusliðsettí annaira gáma Talsverð brögð hafa verið að því að bæjarbúar hafi stytt sér leið með rusl og sett það í gáma, sem liiti og þessi fyrirtæki bæjar- ins hafa tekið á leigu. í stað þess að fara með það inn á ruslahauga hafa bæjarbúar sparað sér sporin með þessu og valdið leigjendum gámanna óþægindum. Vinsamleg tilmæli eru að þeir sem hlut eiga að máli láti af þessari venju. Trico með í átaki iðnrekenda Sokkaverksmiðjan Trico er eina fyrirtækið á Akranesi sem átt hefur beinan þátt að átaki því sem Félag íslenskra iðnrekenda hefur staðið fyrir og miðar að því að vekja athygli á íslenskri iðn- framleiðslu á neytendamarkaði. Logi Arnar Guðjónsson, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins, hef- ur að auki átt sæti í sérstakri nefnd sem sett var á laggirnar til þess að stýra þessu átaki. Nefnd þessi var sett saman í október í fyrra og kölluð „ráð- gjafanefnd fyrirtækja á neyt- endamarkaði“. Hún stóð fyrir heljarmikilli kynningarherferð fyrir síðustu jól og um páskana var minni útgáfa hennar í gangi. Um síðustu helgi fór hún af stað á ný. Herferðin miðar að því að upplýsa neytendur um að með því að kaupa innienda vöru eru þeir að skapa atvinnu. Um leið hefur verið lögð áhersla á að efla vitund starfsmanna í íslenskum iðnaði á því að bætt vinnubrögð leiða af sér betri vöru. Þakka innilega auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug við and- lát og útför sonar míns HAFÞÓfíS GUÐMUNDSSONAR VÍÐIGRUND 1, AKRANESI Sérstakar þakkir fá skólasystkini, vinir og jafnaldrar hins látna. Einnig sérstakar þakkir til íbúanna við Víðigrund. F.h. vandamanna Guðmundur S. Guðmundsson STJÓRN VERKAM ANN ABÚST ADA Á AKRANESIAUGLÝSIR: eftir umsóknum um íbúðir í verkamannabústöðum Með tilvísun til 54. gr. laga nr. 86/1988 um Húsn- æðisstofnun ríkisins um könnun á þörf fyrir félagsleg- ar íbúðir er hér með óskað eftir umsóknum um íbúðir, sem kunna að vera til ráðstöfunar á vegum stjórnar verkamannabústaða á næstu missserum. Réttur til kaupa á íbúðum í verkamannabústöðum er bundinn við þá sem uppfylla eftirtalin skilyrði: a) Eiga lögheimili á Akranesi. b) Eiga ekki íbúð fyrir eða samsvarandi eigu í öðru formi. c) Hafa haft í meðaltekjur þrjú síðustu árin (1986 - 1988) áður en úthlutun fer fram eigi hærri fjár- hæð en svarar kr. 974.667,- fyrir einhleyping eða hjón og kr. 88.800,- fyrir hvert barn á fram- færi innan 16 ára aldurs. Athygli er vakin á því, að eldri umsóknir þarf að endurnýja þannig að þær komi til greina við úthlutun. Umsóknum skal skilað á bæjarskrifstofuna á eyð- ublöðum sem þar fást fyrir 10. september næstkom- andi. BÆJARRITARI

x

Skagablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.