Skagablaðið - 24.04.1991, Blaðsíða 9
Skaaablaðið
9
Landgræðslu- og skógræktarátak 1991
Senn fer þessi óvenju mildi vetur að kveðja og menn og gróður
jarðar að vakna úr vetrardvaianum. Þar sem aðal annatími skógrækt-
arfólks er framundan er nauðsynlegt að huga að þeim verkefnum sem
framundan eru, en þar ber hæst landgræðsluskóaátakið sem hófst síð-
astliðið vor og á að endurtaka nú í vor.
Þetta átak var kynnt mjög vel
í blöðum, útvarpi og sjón-
varpi, svo sem flestum er í minni.
Þessi víðtæka kynning bar ríku-
legan ávöxt, það mátti finna á
viðbrögðum fólks sem ekki hafði
áður verið í skógræktarfélögum
og var tilbúið að leggja hönd á
plóginn.
ræktarmálum í Iandinu því verk-
in tala sínu máli. Enda heyrist nú
varla úrtölurödd í dag um að
ekki sé hægt að koma upp skógi á
íslandi.
Varanleg vakning?
í ár verður eflaust ekki hægt
að eyða eins mikilli vinnu og fjár-
munum í kynningu og síðastliðið
ár, heldur treysta á, að sú vakn-
ing sem upphófst þá verði varan-
leg því áætlað er að gróðursetn-
ing verði ekki minni nú en síðast-
liðið ár, en þá voru gróðursettar
um 1,3 milljónir plantna, og er
talið að um átta þúsund manns
hafi komið að gróðursetningar-
störfum undir forystu skógrækt-
arfélaga, auk ýmissa félaga og
klúbba um land allt.
Nú þarf enginn að fara í graf-
götur lengur með hvað hægt er
að gera í uppgræðslu- og skóg-
Sala á „Grænu greininni“ hefst á morgun:
Félagar í tónlistarfélaginu
annast solu á Akranesi
Sala á „Grænu greininni" hefst á morgun, sumdaraginn fyrsta,
og stendur fram yfir helgina. Merki þetta er seít til fjáröflunar fyr-
ir landgræðslu- og skógræktartak á íslandi.
Hér á Akranesi hcfur orðið samkomulag á milli Skógrækt^r-
félags Akraness og Tónlistarfélags Akraness að félagar í því
síðartalda annist sölu „Grænu greinarinnar“.
Ágóði af sölunni fer til landgræðslustarfa utan sölulaunin, sem
renna í byggingarsjóð tónlistarfélagsins. Skagamenn hafa því tvö-
falda ástæðu til þess að leggja þessu málefni lið.
Verið er að kanna möguleika á
því að efna til hópferðar héðan
Það er sífellt verið að minna
okkur á, að við séum búin að
fullnýta þá möguleika sem landið
getur gefið okkur í hefðbundn-
um búgreinum, því er kominn
tími til að Ieita nýrra leiða til að
nýta land okkar. Er skógræktin
ekki ein þessara framtíðarleiða?
Kjörið tækifæri
Nú standa fyrir dyrum miklar
breytingar í búskaparháttum í
landinu, á næstu árum á að stór-
fækka sauðfé, sem kosta mun
þjóðina umtalsverða fjármuni.
Er ekki kjörið tækifæri einmitt
nú, að nýta eitthvað af þessum
fjármunum til þess að hefja skóg-
rækt sem búgrein, þar sem skil-
yrði eru fyrir hendi?
Margt væri hér öðruvísi ef bet-
ur hefði verið hlustað á frum-
kvöðla okkar, sem hófu skóg-
rækt fyrir 50 - 60 árum og töluðu
fyrir daufum eyrum allt fram
undir þennan dag. Það má geta
þess að frændaþjóðir okkar á
Noðurlöndum gerðu stórátak í
skógræktarmálum um síðustu
aldamót og eru nú að njóta þess í
ríkum mæli. í dag telja þessar
þjóðir skóginn eina verðmætustu
eign sína. Skógurinn hefur
ómæld og margskonar áhrif á
gróðurfar og umhverfi þessara
landa fyrir utan öll þau verð-
mæti, sem til verða í gegnum
trjáiðnaðinn. Rannsóknir sýna
að á bestu skógræktarsvæðum
hér á landi eru skilyrði til skóg-
ræktar svipuð og í Noregi.
Vörn í sókn
Við kostum miklum fjármun-
um til þess að mennta æsku þessa
lands en hugsum minna um
hvaða möguleika við gefum
þessu unga fólki til að njóta
menntunar sinnar þegar skóla-
göngu lýkur. Ráðamenn
landsins, þeir sem fjárveitinga-
valdinu stýra, ættu að íhuga
hvort ekki væri rétt að veita
meiri fjármunum til uppgræðslu
og skógræktar í landinu og snúa
vörn í sókn til hagsældar kom-
andi kynslóðum.
Við höfum átt því láni að
fagna að æðsti maður þjóðarinn-
ar, forseti íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, hefur sýnt land-
verndar- og skógræktarmálum
mikinn áhuga og skilning, ekki
bara í máli heldur einnig í verki,
það hefur hún sýnt á ferðalögum
sínum um landið. Hugur hennar
hefur eflaust haft mikil áhrif á þá
vakningu sem nú er á meðal
þjóðarinnar í þesum málum.
Það er von og trú allra lands-
græðslu- og skógræktarmanna
að átakið 1991 verði jafn mynd-
arlegt og síðastliðið ár. „Græna
greinin“ verður boðin lands-
mönnum á sumardaginn fyrsta
og síðustu helgina í apríl en and-
virði hennar fer til plöntukaupa í
landgræðsluskógatakið 1991.
Gerum hreint og gott land enþá
betra með samstilltu átaki.
pM/V
Urslit Músíktilrauna Tónabæjar á föstudagskvöld:
Hópférð af Skaganum?
frá Akranesi á úrslitakvöld
Músíktilrauna Tónabæjar, sem
fram fer á föstudagskvöld.
Skagamenn eiga eina sveit í
úrslitum keppninnar, Durk-
heim, en þrjár sveitir héðan hófu
keppni. Alls keppa 8 sveitir til
úrslita á föstudagskvöld.
Þegar Skagablaðið síðast frétti
benti allt til þess að efnt yrði til
hópferðar en áhugasamir eru
beðnir að leita nánari upplýsinga
í skólunum.
LÖGFRÆÐIÞJÓNUSTA
$
—Málílutningur, innheimtur, skjalagerð, búskipti
Lögmannsstofan Kirkjubraut 11
Tryggvi Bjarnason, hdl.
Símar 12770 og 12990
Viðtalstímar frá kl. 14.30 - 16.00 eða eftir nánara samkomulagi.
Jaðarsbakkalaug
JdðarsbdHHalaug er opin alla
\jirHa daga frá Hl. 7 til 21, laugar-
og sunnudaga frá Hl. 9 til 16.
SKATTFRAMTOL
einstaklinga og fyrirtækja.
Viröisaukauppgjör. Launaútreikningar og fl.
Viðtalstímai frá kl. 8-12 og 13-17, eða eftii samkomulagi.
BÓKHALDSÞJÓNUSTAN
Háholti 11 — Sími 13099
Bílaleiga - bílaverkstæði
Allar almennar viðgerðir.
Réttingar og sprautun.
BRAUTIN HF.
Dalbraut 16 S 12157
/VELAVINNA
Leigjum út flestar gerðir vinnu-
SKTIFI AN' v^3, Ónnumst jarðvegsskipti
l'U| L/” ogútvegummöl sand og mold.
Faxabraut 9
S 13000
Fljót og örugg þjónusta.
MAUVKVG
Getum bætt \ið okkur verkefhum í alhliða málningar-
virniu. IIRAUNUM - SANDSPÖRSLUM - MÁLUM.
Tilboð eða tímavimia.
UTBRIGÐI SF.
Jaðarsbraut 5 0 12328 & 985-29119
§í Gleðilegt sumar! ^ #
Blikksmiðja Guðm. Hallgrímssonar Merkigerði 18 0 12288 Bíla- og vélaverkstæði Björgvins Ægisbraut 11 S 11224 Húsamálun Þórðar Jónssonar Skólabraut 27 S 11884 - 11184
Blikkverk sf. Ægisbraut 23 S 11075 Vélsmiðja Ólafs R. Guðjónssonar Smiðjuvöllum 6 0 13022 Verndaður vinnustaður Vesturlandi Dalbraut 10 0 12994
Úra- og skartgripaverslun Guðmundar B. Hannah Suðurgötu 65 S 11458 Gámaþjónusta Akraness Skarðsbraut 17 0 12246 - 985-50246 Líkamsræktin Suðurgötu 126 0 13240
Magnús H. Ólafsson, arkitekt FAÍ Skólabraut 21 0 12210 Bíla- og vélaþjónusta Hjalta Njálssonar Smiðjuvöllum 1 S 11376 Pípulagnir Karvels Grenigrund 33 0 12584
Brauða- og kökugerðin hf. Suðurgötu 50a S 11644 Vélaleiga Halldórs Sigurðssonar Heynesi Innri—Akraneshreppi S 12764 Endurskoðunarskrifstofa Jóns Þórs Hallssonar Kirkjubraut 40 0 12400