Skagablaðið


Skagablaðið - 24.04.1991, Blaðsíða 10

Skagablaðið - 24.04.1991, Blaðsíða 10
Skagabladið (siandsmót öjdunga í blaki á Akranesi: Á fjórða hundrað keppendur mæta Um 340 keppendur víðs vegar af að landinu taka þátt í íslands- móti öldunga í blaki, sem sett Badminton: Ása Pálsd. í landsliðið Ása Pálsdóttir frá Akra- nesi hefur verið valin í ís- lenska landsliðið í badminton til þess að keppa á heims- meistaramótinu í greininni sem fram fer í Kaupmanna- höfn um mánaðamótin. sa er fyrsti Skagamaður- inn sem tekur þátt í heimsmeistaramótinu með landsliðinu. Innan liðsins er reyndar annar gamall Skaga- maður, Árni Þór Hallgríms- son. Alls skipa liðið fimm keppendur. verður formlega hér á Akranesi á morgun, sumardaginn fyrsta. Mótinu lýkur á laugardag. Það er Blakfélagið Bresi sem hefur veg og vanda af skipulagningu mótsins. Alls hafa 35 lið frá 18 félögum skráð sig til þátttöku í mótið og verður leikið í 6 deildum; þremur deildum karla og þremur deildum kvenna. Alls verða leiknir 108 leikir á mótinu. Setningarathöfnin fer fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu kl. 13.30 á morgun og flytur Ingi- björg Pálmadóttir, forseti bæjar- stjórnar og nýkjörinn þingmað- ur, setningarræðuna. Jafnframt mun Skólahljómsveit Akranes leika við setningarathöfnina. Skipulag mótsins hefur verið í höndum Þorbergs Þórðarsonar, Margrétar Jónsdóttur og Lárusar Arnar Péturssonar en fram- kvæmdastjóri þess er Magnús H. Ólafsson. Verðlaunahafarnir í ritgerðasamkeppni Landsspítalans ásamt Davíð A. Gunnarssyni, forstjóra ríkis- spítalanna. Sigurbjörg er fjórða frá hœgri á myndinni. RHgerðasamkeppni í tilefíii 60 ára afmælis LandsspHalans: Sigurbjörg Þrastarsdóttir frá Akranesi vann fyrstu verðlaun í ritgerðarsamkeppni á meðal framhaldsskólanema í tilefni 60 ára afmælis Landsspítalans. Ellefu aðrar ritgerðir hlutu einn- ig verðlaun. Verðlaun Sigurbjargar námu 50 þús- und krónum á Kjörbók, sem Landsbanki fslands gaf. narkmið ritgerðarsamkeppninnar var að vekja nemendur til umhugsunar um aðdrag- anda stöfnunar spítalans og þær geysimiklu fram- farir sem orðið hafa í aðbúnaði og lífshorfum sjúklinga á þeim 60 árum sem spítalinn hefur ver- ið starfræktur. Sigurbjörg er ekki allsendis óvön því að ná góðum árangri í ritgerðarsamkeppni á borð við þá sem Landsspítalinn efndi til. Hún hefur oft- sinnis áður hlotið verðlaun fyrir ritsmíðar sínar, jafnt innanbæjar sem utan. Bodid upp á 3ja tíma samfellda dagskrá Þriggja stunda samfelld tónlistardagskrá verður inntakið í hátíða- höldum Tónlistarfélags Akraness og Tónlistarskólans á Akranesi á morgun, sumardaginn fyrsta, í tilefni þess að Tónlistarfélag Akraness fær þá formlega afhent húsnæði undir starfsemi tónlistarskólans. Flestir kórar bæjarins munu t.d. syngja á samfelldu dag- skránni auk þess sem nemendur tónlistarskólans, skólahljóm- sveitin, félagar úr tónlistarfélagi Akraness og Andrea Gylfadóttir koma fram. Samhliða tónlistardagskránni verður boðið upp á kaffi og vöffl- ur og rennur ágóðinn af sölu þess í byggingarsjóð tónlistarskólans. Sá sjóður var stofnaður í fyrra og Mjðg vel heppnaður heilsudagur að Höfða Mjög góð þátttaka var í heilsu- degi sem efnt var til á Dvalar- heimilinu Höfða á fimmtudag- inn Veður var gott til útivistar; sól og blíða. Dagskráin hófst um kl. 10 með því að farið var í leikfimi og leiki úti undir berum himni. Eftir fettur og brettur var farið inn og horft á myndband sem fjallaði um öldrun. Þar svaraði Ölafur Baldursson læknir fyrirspurnum. Eftir hádegið var boðið upp á erindi flutt af Önnu Eddu Ás- geirsdóttur, næringarfræðingi. Um kvöldið var svo kvöldvaka á vegum Kvenfélags Akraness. Fjölmenni kom þar saman og naut þess sem boðið var upp á; einsöngs, þar sem 6 ára drengur kom m.a. fram, tvísöngs og svo fjöldasöngs. Þá var upplestur og danssýning. hefur vaxið hægt og bítandi. Skemmst er að minnast gjafar ís- landsbanka í sjóðinn í tilefni opnunar nýs útibús hans hér á Akranesi. Að sögn Lárusar Sighvatsson- ar, skólastjóra tónlistarskólans, vonast aðstandendur skólans og tónlistarfélagsins til þess að sjá sem flesta bæjarbúa að Þjóð- braut 13 á morgun. Lárus sagði dagskrána ekki hugsaða sem eina tónleikaheild þannig að fólk gæti komið og farið hvenær sem því hentaði á framangreindum tíma. Tónlistarfélagið kemur til með að sjá um og bera ábyrgð á inn- réttingu húsnæðsins, sem Akra- neskaupstaður hefur gengið frá kaupum á. Bærinn leggur veru- lega fjárhæð fram til verksins en rætt hefur verið um að kostnaður við innréttingu húsnæðisins komi til með að nema 26 - 28 milljón- um króna. „Við munum hefjast handa við innréttingavinnuna strax í maí,“ sagði Lárus. „Verkáætlun gerir ráð fyrir að vinnu verði að fullu lokið í maí á næsta ári“. Magnús H. Ólafsson, arkitekt, hefur hannað allar innréttingar húsnæði skólans og gefur alla vinnu sína. Lárus sagði framlag hans afar mikils virði. Ekki að- eins væri um að ræða miklar fjár- hæðir heldur endurspeglaði þetta framlag einstakan hlýhug í garð tónlistarfélagsins og skólans. Eins og sjá má lét heimilisfólk sitt ekki eftir liggja á heilsudeginum og fór í leikfimi úti í blíðunni. 11. apríl: stúlka, 3810 g að þyngd og 51 sm á lengd. Foreldrar: Sólrún Hulda Ragnarsdóttir og Eyjólfur Steinsson, Hrafnakletti 2, Borgarnesi. 12. apríl: drengur, 3310 g að þyngd og 50 sm á lengd. Foreldrar: Þórdís Brynja Aðalsteinsdóttir og Oddur H. Knútsson, Kveld- úlfsgötu 22, Borgarnesi. 12. apríl: stúlka, 3445 g að þyngd og 49 sm á lengd. Foreldrar: Unnur Guðmundsdóttur og Valur Heiðar Gíslason, Jörundar- holti 200, Akranesi. 12. apríl: stúlka, 3575 g að þyngd og 51 sm á lengd. Foreldrar: Brynhildur Björnsdóttir og Guðmundur Sigurbjörnsson, Eini- grund 11, Akranesi. 13. apríl: drengur, 3405 g að þyngd og 52 sm á lengd. Foreldrar: Ingileif Oddsdóttir og Valur Hjálmsson, Suðurgötu 39, Akranesi. 18. apríl: drengur, 4115 g að þyngd og 53 sm á lengd. Foreldrar: Berglind Svala Benediktsdóttir og Ingþór Sigurðsson, Skarðs- braut 9, Akranesi. 18. apríl: drengur, 2860 g að þyngd og 51 sm á lengd. Foreldrar: Ásdís Baldvinsdóttir og Guðmundur Þ. Brynjólfsson, Borgarvík 2, Borgarnesi. 19. apríl: stúlka, 4095 g að þyngd og 53 sm á lengd. Foreldrar: Sjöfn G. Vilhjálmsdóttir og Magnús Þór Eggertsson, Ásgarði, Reykholtsdal. 22. apríl: stúlka, 3330 g að þyngd og 50 sm á lengd. Foreldrar: Rut Carol Hinriksdóttir og Gunnlaugur Pálmason, Skarðsbraut 13, Akranesi.

x

Skagablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.