Skagablaðið


Skagablaðið - 24.04.1991, Blaðsíða 7

Skagablaðið - 24.04.1991, Blaðsíða 7
Skaaablaðið Einvarður, Ingibjörg og fjölskylda á heimili þeirra í Garðinum. Hjónin og Skagamennirnir Einvarður Albertsson og Ingibjörg Sólmundsdóttir hafa í tæp fimmtán ár búið í Garði á Suðurnesj- um. Á þeim tíma hafa þau tekið virkan þátt í atvinnu- og félags- starfi bæjarins. Einvarður rak lengst af vélsmiðju en starfar nú sem útgerðarstjóri hjá Miðnesi hf.í Sandgerði auk þess að gegna trúnaðarstörfum fyrir Gerðahrepp og knattspyrnufélagið Víði. Ingibjörg hefur síðustu ár starfrækt verslun í Garði. Við fluttumst frá Akranesi árið 1976, þá til Keflavíkur. Eftir að hafa búið þar í um hálft ár fluttumst við í Garðinn," sagði Einvarður í samtali við Skagablaðið. „Ég stofnsetti í samvinnu við annan aðila vélsmiðju sem heitir Stáliðjan. Sú starfsemi gekk mjög vel og gerir enn. En fyrir tæpum fjórum árum ákvað ég að láta gamlan draum rætast og settist á skólabekk. Ég seldi sam- starfsmanni mínum í Stáliðjunni minn hlut í fyrirtækinu og fór í Tækniskólann." Námið hjá Einvarði tók þrjú og hálft ár. Hann nam á þessum tíma vélaiðnfræði, iðnverkfræði og loks útgerðartækni. Að námi loknu réði hann sig sem útgerðastjóra hjá Miðnesi hf.í Sandgerði, en það fyrirtæki, sem er nú með stærri útgerðafélögum á landinu, var á sínum tíma stofnað af Skagamanninum Ólafi Jónssyni frá Bræðraparti. Sonur hans, Ólafur B. Ólafsson, er nú framkvæmda- stjóri þess. „Ég hef starfað hjá Miðnesi hf. frá síðastliðnu vori sem útgerð- arstjóri. Fyrirtækið gerir út tvo skuttogara, fjóra stóra línubáta og loðnuskipið Keflvíking þannig að ég hef ærinn starfa að sjá um út- gerð þessara skipa.“ Þrátt fyrir mikinn tíma sem fer í vinnuna hjá Einvarði þá starfar hann mikið að félagsmálum og sinnir trúnaðarstörfum fyrir Gerðahrepp. Hann er formaður atvinnumálanefndar og í bygg- inganefnd fyrir væntanlega íþróttahúss- og sundlaugarbyggingu sem á að rísa á næstu þremur árum í Garði. Hann starfar auk þess mikið fyrir knattspyrnufélagið Víði og var formaður þess fyrir nokkrum árum. „Fjölskyldan heldur miklum tengslum við Skagann. Þar búa foreldrar okkar beggja, systkini og frændfólk,“ sagði Einvarður „Við komum alltaf reglulega í heimsóknir. Auk þess höldum við alltaf sambandinu nokkrir æskufélagarnir af Skaganum. þar á meðal eru Einar Guðleifsson, Jón Sigurðsson og Lárus Skúlason. Um síðustu Verslunarmannahelgi hittumst við og leigðum okkur sumarbústaði að Flúðum ásamt fjölskyldum okkar. Þá er ég mjög iðinn við það að fara á sem flesta knattspyrnuleiki með Skaga- mönnum. En Víðismenn eru nú komnir aftur í 1. deildina, þannig það getur verið erfitt að fylgjast með þessum liðum sem nú leika í neðri deildunum.“ Kona Einvarðs, Ingibjörg Sólmundsdóttir, hefur síðustu ár rek- ið verslunina, Ársól, í Garðinum, sem er verslun m.a. með mat- og gjafavörur. Einvarður og Ingibjörg eiga fjögur börn og eitt barnabarn. Sig- ríður Birna er elst, tuttugu og tveggja ára og starfar í versluninni með móður sinni. Albert Rúnar er tvítugur sjómaður á vélbátnum Ólafi Jónssyni. Helga Steinunn er sautján ára og á soninn Einvarð sem er tíu mánuða og Sólmundur er yngstur ,átta ára. grunnskólunum á tímabilinu fra kl. 8.00 — 11,30 fyrir hádegi eða 12.30 — 16.00 eftir GRUNNSKÓLA RNIR Sorg og sorgarviðbrögð Opinn fundur á vegum samtaka um sorg og sorgarvið- brögð, verður í safnaðarheimilinu Vinaminni í kvöld, miðviku- dag, kl. 20.30. 5éra Jón Bjarman, sjúkrahúsprestur, flytur erindi um 5org og sorgarferli og svarar fyrirspurnum. SÓKMARHEFND Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föð- ur okkar, tengdaföður, afa og langafa ÁRNA HALLDÓRS ÁRNASONAR, SUÐURGÖTU 16, AKRANESI Steinunn Þórðardóttir Bjarni Ó. Árnason Áslaug Hjartardóttir Sigríður Árnadóttir Kristján Kristjánsson Þórður Árnason Sesselja Engllbertsdóttir Emilía Petrea Árnadóttir Guttormur Jónsson Ingibjörg Árnadóttir Sigurður Ingimarsson Sigrún Árnadóttir Árni Sigurður Árnason Ólína Elín Árnadóttir Steinunn Árnadóttir Jón Sverrisson Guðmundur Árnason Sigrún Traustadóttir barnabörn og barnabarnabörn. Akraneskirkja Fimmtudagur 25. apríl, Sumardagurinn fyrsti. Skátamessa kl. 11 .OO.Safnast saman við Skátahúsið kl. 10.30 og farið í skrúðgöngu til kirkju. Ferðalag kirkjuskólans upp í gróðrarstöð. Lagt af stað frá safnaðarheimilinu kl. 13.00. Sunnudagur 28. apríl. Messa kl. 14.00. Jón Hagbarður Knútsson guðfræðingur predikar. Messa á Höfða kl. 15.15. Fyrirbænaguðsþjónustur fimmtudaginn 25. apríl og fimmtudaginn 2. maí, ki. 18.50. Beðið fyrir sjúkum. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. SÓKNARPRESTUR 7 SÍM111100 (SÍMSVARI) Rocky V Sylvester Stallone er í góðu formi í þessari mynd sem er leikstýrt er af sama leikstjóra og leikstýrði Rocky 1, John G. Avildsen. Þessi mynd hefur halað inn yfir 40 milljónir dala í kvikmynda- húsum vestanhafs og í Evrópu hefur Stallone rétt eina ferðina slegið í gegn! Sýnd kl. 21.00 fimmtu- dag og föstudag. RM I.IOT l.\ f V * 1 V Góðir gæjar (Good Fellas) Stórmyndin Good Fellas var útnefnd til Óskarsverð- launa sem besta myndin. Joe Pesci, sem fer á kostum í þessari mynd, fékk Óskars- verðlaun fyrir bestan leik karla í aukahlutverki. Aðrir leikarar Robert De Niro og Ray Liotta. Sýnd kl. 21.00, sunnu- dag og mánudag.

x

Skagablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.