Skagablaðið - 16.01.1992, Page 7
Skaoablaðið
Fullt nafn?
valdsson.
Fæðingardagur og fæðing-
arstaður? 22. nóvember 1970
á Akranesi.
Starf? Er um það bil að
hefja stærðfræðinám við Há-
skóla íslands.
Hvað líkar þér best í eigin
fari? Minn helsti kostur er
hversu hógvær og lítillátur ég
er, en því miður er þetta oft
hvimleiður galli þannig að ég
er svona smám saman að
reyna að venja mig af því.
Hvað ætlaðir þú að verða
þegar þú „yrðir stór“? Verða
eldri og stærri.
Hvert var uppáhaldsfagið
þitt í skóla? Haldið ykkur fast
. . . stærðfræði.
Ertu mikið fyrir blóm? Nei,
nema kannski helst að gefa
þau.
Hver er uppáhaldslitur
þinn? Svartur.
Ferðu oft með Akraborg-
inni? Já.
Áttu eða notarðu tölvu? Ég
get ekki neitað því að hafa
snert svoleiðis gripi.
Hefur þú farið hringveg-
inn? Já, reyndar.
Ferðu oft í gönguferðir?
Nei, allt of sjaldan.
Drekkurðu mikið af gosi/
öli? Neibb.
Hver er algengasti matur
sem þú borðar? Kínverskur
matur og flatbökur.
Ferðu oft í bíó? Það er allur
gangur á því.
Stundar þú stangveiðar?
Neibb.
Áttu einhver gæludýr?
Neibb.
Lestu mikið, notarðu bóka-
safnið? Nei því miður allt of
lítið.
Hveiju myndir þú breyta
hér á Akranesi ef þú gætir?
Hugsuarhætti fólks, hann ein-
kennist því miður of mikið af
metnaðarleysi og minnimátt-
arkennd og beini ég þeim orð
um sérstaklega til nemenda í
Fjölbrautaskólanum, þið eruð
ekkert síðri nemendur en í
öðrum framhaldsskólum og
hana nú!!!
Draumabfllinn? Svört
Volga.
Ertu mikið fyrir tónlist —
hvemig? Mjög mikið, ætli ég
hlusti ekki mest á sígilda
tónlist.
Hvað hræðistu mest? Að
verða sköllóttur. AAARG!!!
Sækirðu tónleika Já, ég geri
töluvert af því.
Notarðu bflbelti og Ijós þeg-
ar þú ekur? Jamm.
Fylgist þú með störfum bæjar-
stjómar? Neibb.
Umferðargetraun skóiabama fyrir jóUn:
Þau fengu verðlaun
Eins og venjulega undanfarin
ár fóru lögreglumenn á stjá á Að-
fangadag og dreifðu verðlaunum
til þeirra barna sem voru svo
heppin að fá verðlaun í umferð-
argetraun Umferðarráðs og lög-
reglunnar fyrir jólin. Að vanda
voru dregin út nöfn eins drengs
og einnar stúlku í hverjum ár-
gangi að 13 ára aldri í grunn-
skólunum tveimur. Akranesbær,
Sjóvá/AImennar og VÍS og lög-
reglan gáfu verðlaunin.
Nöfn barnanna voru að vanda
dregin út á skrifstofu bæjar-
fógetaembættisins af Jóni Vil-
berg Guðjónssyni, fulltrúa.
Nöfnin fara hér á eftir, fyrst nöfn
barna í Brekkubæjarskóla:
6 ára: Helga Sjöfn Jóhannesdóttir,
Dalbraut 19, Ólafur Nils Sigurðsson,
Laugarbraut 16. 7 ára: Guðrún Birna
Kristófersdóttir, Vesturgötu 139,
Bjarki Óskarsson, Vesturgötu 17. 8
ára: Guðný Pétursdóttir, Skagabraut
10, Björn Torfi Axelsson, Vesturgötu
73. 9 ára: Ólöf V. Guðnadóttir, Vall-
holti 13, Lindberg Már Scott, Garða-
braut 43. 10 ára: Anna Soffía Hákon-
ardóttir, Vesturgötu 77, Daníel Sig-
urðsson, Skólabraut 33. 11 ára: Ásdís
H. Guðfinnsdóttir, Garðabraut 4,
Jón Eric Halliwell, Vesturgötu 145.
12 ára: Þórhildur Halldórsdóttir,
Móum, Innri - Akraneshreppi,
Guðni K. Einarsson, Skagabraut 11.
Þessi börn úr Grundaskóla fengu
einnig viðurkenningar:
6 ára: Vigdís Elfa Jónsdóttir, Víð-
igrund 22, Sigvaldi Egill Lárusson,
Víðigrund 17. 7 ára: María Björg-
vinsdóttir, Presthúsabraut 31, Öttar
Örn Vilhjálmsson, Lerkigrund 6. 8
ára: Heiðrún Sif Garðarsdóttir, Eini-
grund 23, Stefán Orri Ólafsson,
Reynigrund 37. 9 ára: Særún Sig-
valdadóttir, Grenigrund 5, Ársæll Þór
Jóhannsson, Jörundarholti 186. 10
ára: Kristrún Matthíasdóttir, Höfða-
braut 5, Ólafur Ingi Guðmundsson,
Jörundarholti 120.11 ára: Alma Auð-
unsdóttir, Skarðsbraut 5, Sindri Birg-
isson, Lerkigrund 2. 12 ára: Erna
Hafnes Magnúsdóttir, Reynigrund
41, Davíð Halldór Lúðvíksson,
Reynigrund 8.
Þá fengu eftirtaldir heimilismenn
að Sambýlinu við Vesturgötu viður-
kenningu: Guðrún Ósk Ragnarsdótt-
ir, Sigurður Smári Kristinsson, Pétur
Þór Egilsson, Kristmundur Valgarðs-
son, Jón Agnarsson og Elsa Erlends-
dóttir.
„Vér mótmælum alfii'
Bæjarstjórn Akraness ítrekaöi
á fundi sínum á þriðjudag í fyrri
viku afstöðu sína til fyrirhugaðs
nefskatts ríkisstjórnarinnar á öll
sveitarfélög í landinu. í bókun,
sem Skagablaðinu hefur borist,
segir m.a. að skatturinn sé brot á
samkomulagi um verkaskiptingu
ríkis og sveitarfélaga. Orðrétt er
bókunin þannig:
Bæjarstjórn Akraness vísar til
fyrri samþykkta um fyrir-
hugaðan ríkisskatt á sveitarfélög,
dags. 12/12 og 19/12 1991, og
fundar með þingmönnum Vest-
urlands, dags. 18/12 1991.
Bæjarstjórn ítrekar mótmæli
sín og hvetur þingmenn Vestur-
lands til þess að gera sér skýra
grein fyrir afleiðingum þessarar
álagningar á fjárhag sveitarfé-
laga.
Rökin eru þau sömu sem fyrr:
1) Skatturinn er brot á sam-
komulagi um verkaskiptingu rík-
is og sveitarfélaga.
2) í yfirstandandi þrengingum
er fjárhagsstaða sveitarfélaga á
Vesturlandi í engu betri en ríkis-
sjóðs.“
Einbýlishús tilsölu!
Mjög gott 150 fermetra einbýlishús á 2. hæðum, á
góðum 5tað í miðbænum. Hýtt rafmagn, nýirgluggar.
Bein sala eða skipti á 3ja — 4ra herbergja íbúð í blokk,
eða 5§rhæð.
Upplýsingar hjá Fasteignasölunni eða síma 13306
Fasteignaeigendurá
Akranesi takið eftir!
Álagningu fasteignagjalda fyrir árið 1992 er nú lokið.
Gjalddagar fasteignagjalda 1992 eru 7 og eru þeir
sömu og áður, það er 15. janúar, 15. febrúar, 15. mars,
15. apríl, 15. maí, 15. júní og 15. júlí.
Dráttarvextir reiknast 30 dögum eftir gjalddaga.
Sérstök athygli er vakin á því að veittur er 5% stað-
greiðsluafsláttur séu fasteignagjöldin greidd að fullu fyr-
ir 15. febrúar næstkomandi.
Einnig er lokið fyrirfram álagningu aðstöðugjalda fyrir árið
1992 og er fyrsti gjalddagi þeirra þann 1. febrúar næstkom-
andi.
Álagningarseðlar hafa verið póstlagðir og munu berast
gjaldendum á næstu dögum.
Frekari upplýsingar um álagningu þessara gjalda veitir
starfsfólk innheimtunnar.
Með bestu kveðju,
Innheimtustjóri.
★ Pawtaiiir í sínia 11903.
Eirkjnbrant 2,2. hæð
ÞAKKARAVARP
Innilegar þakkir til ættingja minna og sam-
starfsmanna fyrir gjafir og hlýjar kveöjur á 70 ára
afmæli mínu þann 23. desember síðastliðinn.
Guð gefi ykkur öllum gleðilegt ár, með kærri
þökk fyrir liðin ár.
EINAR ÁRNASON, HÁHOLTI 9.
Hjartans þakkir fyrir samúð-
arkveðjur, blóm og hlýhug við
andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu
ÓLAFAR JÓNU
JÓNSDÓTTUR,
VALLARBRAUT 1,
AKRANESI
Sérstakar þakkir til starfsfólks
E—deildar Sjúkrahúss Akra-
ness.
Friðgerður E. Bjarnadóttir
Erla Guðmundsdóttir
Gísli S. Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
LÖGFRÆÐIÞJÓNUSTA - Málflutningur, innheimtur, skjalagerð, búskipti -t-Kr Lögmannsstofan Kirkjubraut 11 J Tryggvi Bjarnason, hdl. 1 Símar 12770 og 12990 Viðtalstímar frá kl. 14.30 - 16.00 eða eftir nánara samkomulagi. Bílaleiga - bílaverkstæði Allar almennar viðgerðir. Réttingar og sprautun. mmh ‘Visa\ — | tUOOCAOO BRAUTIN HF. Dalbraut 16 B 12157
TRÉSMÍÐI hef opnað trésmíðaverkstæði að Kalmansvöllum 4. Öll almenn smíðavinna. Tilboð eða tímavinna. Trésm. Hjörleifs Jónssonar Sími 12277 — Heimasími 12299 VÉLAVINNA jfdmfj^i Leigjum út flestar gerðir vinnu- SKTIFl AN" v^a- Önnumst jarðvegsskipti ,'U| L/U ogútvegummöl sandog mold. Fljót og örugg þjónusta.
Jaðarsbakkalaug Jaðarsbakkalaug er opin alla virka daga frá kl. 7 til 21, laugar- og sunnudaga frá kl. 9 til 16. MÁIOTIíG Getum bætt ftð okkur verkcfnum í alhliða málningar- vinnu. HRAUNUM - SANDSPÖRSLUM - MÁLUM. Tilboð eða tímavinna. UITBRIGÐI SF. 'Jaöarsbraut 5 S 1S328 & 985-39119