Ófeigur - 15.12.1954, Blaðsíða 6

Ófeigur - 15.12.1954, Blaðsíða 6
*s ÓFEIGUR legri bygging heldur en Háskólinn og Þjóðleikhúsið. Hallgrímskirkja á að rúma þrefalt fleiri kirkjugesti heldur en leikhúsið. Þangað mundi áreiðanlega leita ein milljón almennra kirkjugesta á nokkrum misserum. Þar á trúin, listin og sjálfir steinarnir að tala sínu máli til alþjóðar. Að loknum endurteknum árangurslausum tilraunum safnaðarforkólfa Hallgrímskirkju til að fá glæsilega kirkjuteikningu með samkeppni, sneri sóknarnefndin sér um síðir, í samráði við Sigurgeir biskup Sigurðsson og ríkisstjórnina, til Guðjóns Samúelssonar húsameist- ara, eins og fyrr segir, og fékk hann til að standa fyrir þessari kirkjusmíð. Húsameistari ríkisins var þá sem endranær, mjög hlaðinn störfum við byggingar víða um land. Samt tók hann verkið að sér fyrir nauðsyn alþjóðar, þar sem sýnilegt var að önnur sund voru lok- uð byggingarnefnd Hallgrímskirkju. Var húsameistara auk þess, af trúarlegum ástæðum, Ijúft að leggja á sig þetta erfiði, enda eyddi hann meiri tíma vegna Hall- grímskirkju, á síðustu misserum ævinnar, heldur en við aðrar stórbyggingar, sem hann hafði þá í smíðum. Eins og málum var þá komið, var eðlilegt að bygg- ingarnefnd Hallgrímskirkju sækti fast að fá Guðjón Samúelsson til að stýra kirkjusmíðinni. Hann hafði þegar hér var komið sögu, gert mikið til að setja borg- arbrag á Reykjavík. Auk fjölmargra minna kunnra bygginga, hafði hann teiknað og staðið fyrir að byggja Lyfjabúð Reykjavíkur við Austurvöll, hús Eimskipa- félagsins, Landsspítalann, Landsbankann, Landakots- kirkju, Sundhöllina, Arnarhvol, Gagnfræðaskóla Aust- urbæjar, Laugarneskirkju, Háskólann og Þjóðleikhúsið. ¥jög margar af þessum byggingum eru ekki aðeins prýði Reykjavíkur, heldur þola vel samanburð við hlið- stæð stórhýsi með stærri og ríkari þjóðum, sem hafa þó að baki langa sögu í byggingarmálum. Þannig ber Arnarhvoll mjög af nýbyggðum stjórnarskrifstofum í Stokkhólmi, Háskólinn í Reykjavík af Árósaháskóla og Þjóðleikhúsið af öllum leikhúsum eldri sem yngri, er fram til þessa dags hafa verið byggð á Norður- löndum og i Englandi. Forstöðumenn Hallgrímskirkju stóðu þess vegna á traustum grundvelli, þegar þeir höfðu fengið Guðjón Samúelsson til að starfa með þeim að hinni nýju stórkirkju á Skólavörðuhæð, því

x

Ófeigur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.