Ófeigur - 15.12.1954, Side 8

Ófeigur - 15.12.1954, Side 8
& ÓFEIGUR færi, sem buðust til þess að vinna að fullkomnu Mrkjusmíði. Margir sjálfboðaliðar hafa komið til iiðs við sóknarnefndina, Einar Jónsson myndhöggvari gaf kirkjunni glæsilega Kristsmynd, Kvenfélag Hallgríms- kirkju hefur safnað stórfé til að prýða kirkjuna og veita henni, þegar hún er fullgerð, hinn bezta búnað. Guðjón Samúelsson tók engin laun fyrir sitt mikla verk við Hallgrímskirkju og gaf henni veglega dánar- gjöf. Þá eignast Hallgrímskirkja stöðuglega fé með áheitum og dánargjöfum. Sýnilegt er að safnaðar- stjórnin mundi nú vera langt á leið komin með þessa kirkjugerð, ef hún hefði fengið að starfa með eðlileg- um hætti að byggingaframkvæmdum. Andstæðingar Hallgrímskirkju hafa reynt að tefja kirkjusmíðina með því að benda á að kirkjan hljóti að kosta rnikið fé og að rekstur hennar, þegar hún er fullgerð, muni verða tilfinnanlegur. Það er vissulega rétt, að Hallgríms- söfnuður gæti byggt smákirkju, alveg eins og tekizt hafði um langa stund að starfrækja háskólakennslu í nefndarherbergjum Alþingis og að nota Iðnó sem einskonar þjóðleikhús, en fáir munu vilja snúa aftur til þessara fyrri daga, þegar háskólinn og leiklistin bjuggu, vegna fátæktar þjóðarinnar, við algjörlega ó- fullnægjandi húsnæði. Háskólabyggingin og Þjóðleik- húsið eru tákn um heilbrigðan vöxt og þroska þjóð- félagsins, og þjóðkirkja, sem innan tíðar mun halda 1000 ára afmæli, verður að hafa þann metnað, að geta haldið til jafns við ungar menningarstofnanir í land- inu, Hallgrímssöfnuður þarf að njóta frelsis til að halda áfram forgöngu sinni um byggingu glæsilegrar landskirkju. Stjórn þessa safnaðar þarf við fram- kvæmdir sínar að geta fylgt í spor byggingarnefndar Þjóðleikhússins og Háskólans. Þá verður málið leyst til gagns og sæmdar stærsta söfnuði landsins, höfuð- borginnni og þjóðinni allri. Kyrstaðan í byggingarmálum Hallgrímssafnaðar á undangengnum árum hefur nálega eingöngu stafað af því að valdamenn þjóðfélagsins hafa ekki skilið, hvað mikið var í húfi fyrir menningu höfuðstaðarins og landsins alls, að rétt lausn fengist á þessu máli. En úr þvi má enn bæta, ef rétt rök fá að njóta sín, þar sem þeirra er mest þörf. Margar stoðir renna undir þetta kirkjumál. Hallgrímssöfnuður er þrefalt eða f jór-

x

Ófeigur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.