Fréttablaðið - 18.07.2019, Síða 4
mest lesið
1 Tveir fullorðnir greinast með E. coli-smit
2 Drengur framdi sjálfs víg fyrir framan skóla fé laga
sína
3 Hleypur í minningu Hin riks sem fæddist
and vana
4 Kom upp um framhjáhald unnusta
síns í brúðkaupinu
5 Þetta þurfa Ed Sheeran tón leika gestir að vita
6 Veitingastaðnum Essensia skellt í lás
jeep.is
JEEP ® RENEGADE
SUMARTILBOÐ
JEEP® RENEGADE LIMITED MEÐ TILBOÐSPAKKA - LISTAVERÐ: 5.702.000 KR. - TILBOÐSVERÐ: 5.390.000 KR.
JEEP® RENEGADE TRAILHAWK MEÐ TILBOÐSPAKKA - LISTAVERÐ: 6.202.000 KR. - TILBOÐSVERÐ: 5.690.000 KR.
Bjóðum nokkra Jeep® Renegade Limited og Trailhawk
með tilboðspakka. 2.0 lítra dísel vél 140 hö. Limited - 170 hö. Trailhawk
9 gíra sjálfskipting, hátt og lágt drif, álfelgur, 7” upplýsinga- og
snertiskjár og Bluetooth til að streyma síma og tónlist.
Tilboðspakki: Þægindapakki, LED ljósapakki, svart þak og
8,4” upplýsinga- og snertiskjár (aðeins í Trailhawk.)*
ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
*Aukahlutir ekki í tilboði: kajak og kajak festingar
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18
LOKAÐ LAUGARDAGA FRÁ 8. JÚNÍ TIL OG MEÐ 3. ÁGÚST
STJÓRNSÝSLA Seðlabanki Íslands
vill ekki una niðurstöðu úrskurðar-
nefndar um upplýsingamál um
skyldu bankans til að veita blaða-
manni Fréttablaðsins aðgang að
upplýsingum um fjármögnun bank-
ans á framhaldsnámi fyrrverandi
forstöðumanns gjaldeyriseftirlits
bankans.
Hefur bankinn óskað eftir frestun
réttaráhrifa úrskurðarins sem kveð-
inn var upp 3. júlí en í þeirri ósk felst
í raun yfirlýsing um að bankinn vilji
fara með málið fyrir dómstóla. Heim-
ild í upplýsingalögum til frestunar
réttaráhrifa úrskurða nefndarinnar
er bundin því skilyrði að mál verði
borið undir dómstóla innan sjö daga.
Liðnir eru átta mánuðir frá því
blaðamaðurinn hugðist skrifa frétt
um námsstyrk bankans til starfs-
mannsins og fyrirséð að málaferli
um rétt hans til aðgangs að gögn-
unum muni valda áframhaldandi
töfum á því starfi.
Blaðamaðurinn, þá fréttastjóri
DV, sendi bankanum upplýsinga-
beiðni 19. nóvember síðastliðinn
sem laut að tilvist og efni samnings
bankans við Ingibjörgu Guðbjarts-
dóttur, þá framkvæmdastjóra gjald-
eyriseftirlitsins, vegna námsleyfis
frá bankanum á árunum 2016-2017
og kostnað MPA-náms hennar við
Harvard-háskóla í Bandaríkjunum.
Beiðninni var synjað tíu dögum
síðar og kærði blaðamaðurinn
synjunina til úrskurðarnefndar um
upplýsingamál.
Í umsögn til nefndarinnar um
kæruna vísaði bankinn meðal
annars til sérstaks bankaleyndar-
ákvæðis í lögum um Seðlabankann
auk undanþágureglna upplýsinga-
laga um starfsmannamál.
Úrskurðarnefndin féllst ekki á
málf lutning bankans og taldi SÍ
ekki hafa slíka hagsmuni af leynd
samningsins að sanngjarnt væri
að hann félli undir umrætt
þag narsk ylduák væði í
lögum um Seðlabankann
enda um starfsmannamál að
ræða en ekki lögbundin verk-
efni bankans sem réttlætan-
legt kunni að vera að sérstök
þagnarskylda ríki um.
Fram kemur í úrskurði
nefndarinnar að hún
h a f i f e ng ið h i n n
umdeilda samning
af hentan frá bank-
anum og eftir að hafa
kynnt sér efni hans sé það mat
hennar að hann hafi ekki að geyma
upplýsingar sem talist geti til við-
kvæmra persónuupplýsinga starfs-
mannsins.
Það er einnig mat nefndarinnar að
al menningur hafi verulega hags-
muni af því að geta kynnt sér
hvernig opinberum fjármunum
er ráðstafað en í úrskurðinum
segir um samninginn: „Um er
að ræða einkaréttarlegan
samning sem felur í
sér ráðstöfun opin-
berra hagsmuna.
Þegar vegnir eru
saman hagsmunir
viðkomandi starfs-
manns af því að efni
skjalsins fari leynt
og hagsmunir almennings af því
að kynna sér efni skjalsins er það
niðurstaða úrskurðarnefndar um
upplýsingamál að almenningur hafi
ríkari hagsmuni af því að skjalið sé
gert opinbert en viðkomandi starfs-
maður af því að skjalið lúti leynd.“
Með úrskurðarorðum nefndar-
innar er Seðlabankanum gert skylt
að veita blaðamanninum aðgang að
umbeðnu skjali.
Þegar blaðamanninum barst
úrskurðurinn sendi hann erindi
til Seðlabankans og krafðist tafar-
lausrar afhendingar skjalsins. Fjór-
um dögum síðar barst honum erindi
frá nefndinni þess efnis að lögmaður
bankans óskaði eftir frestun á réttar-
áhrifum úrskurðarins. Í rökstuðn-
ingi bankans fyrir þeirri ósk segir
meðal annars að birting samnings-
ins án forsögu hans, kunni að skerða
orðspor bankans og starfsmannsins
með óbætanlegum hætti.
Fréttablaðið bíður nú afstöðu
úrskurðarnefndarinnar til beiðni
bankans.
adalheidur@frettabladid.is
arib@frettabladid.is
Seðlabanki unir ekki úrskurði
um upplýsingarétt fjölmiðils
Seðlabankinn er skyldur til að afhenda blaðamanni samning bankans um námsleyfi starfsmanns. Bankinn
afhendir ekki skjalið og krefst frestunar réttaráhrifa úrskurðar um afhendingu þess. Segir orðspor bankans
skerðast með óbætanlegum hætti verði skjalið opinbert. Verði fallist á beiðnina fer málið fyrir dóm.
Seðlabankinn telur birtingu samningsins án forsögu hans geta skert orð-
spor bankans og starfsmannsins með óbætanlegum hætti.
DÓMSMÁL Bandaríska f lugfélagið
ALC þarf aðeins að greiða 90 millj-
ónir króna til að leysa út vél WOW
air sem staðið hefur á Keflavíkur-
flugvelli frá því í mars, en ekki tvo
milljarða. Þetta var niðurstaða
Héraðsdóms Reykjaness sem féll í
gærmorgun. Féllst dómurinn heldur
ekki á að fresta fullnustu dómsins
þangað til Isavia væri búið að kæra
til Landsréttar.
Vélin var trygging vegna skulda
WOW air við Isavia. Dómurinn í gær
tók enda efnislega afstöðu til þess
hvort Isavia hefði til þess heimild að
kyrrsetja vélina til tryggingar.
Isavia hyggst kæra ákvörðunina
til Landsréttar. „Við teljum verulega
ámælisvert að beiðni um frestun
réttaráhrifa sé hafnað í ljósi þeirra
fjárhagslegu hagsmuna sem undir
eru,“ segir Guðjón Helgason, upp-
lýsingafulltrúi Isavia. „Frestun
réttar áhrifa hefði haft óveruleg áhrif
á ALC en hefði tryggt eðlilega með-
ferð jafn mikilvægs máls fyrir æðra
dómstigi.“
Þrátt fyrir dóminn er vélin ekki
farin úr landi. ALC þarf að leita til
sýslumanns til að fá vélina afhenta.
Síðan tekur við ferli til að koma vél-
inni úr landi, þarf að yfirfara hana
ásamt því að gera flugáætlun. Getur
þetta tekið nokkra daga. Á meðan
hyggst Isavia freista þess að fá málið
tekið fyrir í Landsrétti. – ab
ALC og Isavia í kapphlaupi um WOW-vélina
Vélin hefur staðið á Keflavíkurflug-
velli frá því í mars. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Er það niðurstaða
úrskurðarnefndar
um upplýsingamál að
almenningur hafi ríkari
hagsmuni af því að skjalið sé
gert opinbert en viðkom-
andi starfsmaður af því að
skjalið lúti leynd.
Úr niðurstöðu úrskurðarnefndar
um upplýsinganmál
Már Guðmundsson
seðlabankastjóri.
BANDARÍKIN Mexíkóski eiturlyfja-
baróninn Joaquín Guzmán, oftast
kallaður El Chapo, var í gær dæmd-
ur í lífstíðarfangelsi plús þrjátíu ár.
Ákvörðunin fylgir í kjölfar þess
að Guzmán var sakfelldur fyrir tíu
ákæruliði í febrúar síðastliðnum.
Meðal annars fíkniefnasmygl og
peningaþvætti.
Mál Guzmáns rataði í heimsfrétt-
irnar þegar hann flúði úr mexíkósku
fangelsi árið 2015 í gegnum göng sem
hann lét grafa. Hann var síðar hand-
samaður eftir mikla leit og fram-
seldur til Bandaríkjanna árið 2017.
Guzmán var yfir Sinaloa-glæpa-
hringnum í Mexíkó. Hópurinn var,
samkvæmt frétt breska ríkisút-
varpsins, stærsti útflytjandi fíkni-
efna til Bandaríkjanna. Dæmdi var
óánægður þegar hann tjáði sig með
aðstoð túlks í dómsal í gær. Sagði að
einangrunarvist sín í gæsluvarðhaldi
samsvari sálrænum pyntingum nótt
sem nýtan dag. Þá sagði hann réttar-
höldin ósanngjörn. – þea
El Chapo fær
lífstíðardóm
El Chapo er hann var handsamaður.
NORDICPHOTOS/AFP
1 8 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
8
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
7
1
-6
8
9
0
2
3
7
1
-6
7
5
4
2
3
7
1
-6
6
1
8
2
3
7
1
-6
4
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K