Fréttablaðið - 18.07.2019, Side 6

Fréttablaðið - 18.07.2019, Side 6
1 8 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð * Birt með fyrirvara um mynd og textabrengl. Nýtt bílaplan á Krókhálsi 9 benni.is Reykjavík Krókháls 9 Sími: 590 2035 Reykjanesbær Njarðarbraut 9 Sími: 420 3330 Opnunartímar: Virka daga 9-18 Laugardaga 10-14 Opnunartímar: Virka daga 9-18 Laugardaga 12-16 SSANGYONG TIVOLI DLX Nýskráður: 2018 / Dísel Sjálfskiptur / Ekinn: 29.000 km. Verð: 3.290.000 kr. Tilboð: 2.990.000 kr. Rað.nr. 445340 4X 4 CHEVROLET SPARK LTZ Nýskráður: 2017 / Bensín Beinskiptur / Ekinn: 59.000 km. Verð: 1.190.000 kr. Tilboð: 990.000 kr. CHEVROLET CRUZE LTZ Nýskráður: 2011 / Dísel Beinskiptur / Ekinn: 78.000 km. Verð: 1.390.000 kr. Tilboð: 990.000 kr. PEUGEOT 3008 Nýskráður: 2012 / Dísel Sjálfskiptur / Ekinn: 103.000 km. Verð: 1.690.000 kr. Tilboð: 1.190.000 kr. OPEL CORSA Nýskráður: 2014 / Bensín Beinskiptur / Ekinn: 86.000 km. Verð: 990.000 kr. Tilboð: 690.000 kr. RENAULT CLIO ZEN ST Nýskráður: 2018 / Dísel Sjálfskiptur / Ekinn: 22.000 km. Verð: 2.490.000 kr. Tilboð: 1.990.000 kr. NISSAN QASHQAI Nýskráður: 2016 / Dísel Beinskiptur / Ekinn: 122.000 km. Verð: 2.290.000 kr. Tilboð: 1.990.000 kr. OPEL ZIAFIRA TOURER Nýskráður: 2015 / Bensín Sjálfskiptur / Ekinn: 65.000 km. Verð: 1.990.000 kr. Tilboð: 1.390.000 kr. Rað.nr. 445124 Rað.nr. 640484 Rað.nr. 103715 Rað.nr. 445545 Rað.nr. 720080 Rað.nr. 740318 Rað.nr. 150449 Enn betra úrval frábær kjör! TI LB OÐ TI LB OÐ TI LB OÐ TI LB OÐ TI LB OÐ TI LB OÐ TI LB OÐ TI LB OÐ FLUGMÁL Bandaríski flugvélarisinn Boeing ætlar að nýta að minnsta kosti helminginn af sjóði sínum fyrir fórnarlömb flugslysa tveggja Boeing 737 MAX-véla til þess að styðja fjölskyldur þeirra sem létust. Þetta sagði í tilkynningu frá fyrir- tækinu í gær. Sjóðurinn nemur alls hundrað milljónum Bandaríkja- dala, andvirði um 12,5 milljarða króna, og er hinn beini fjárstuðn- ingur því fimmtíu milljónir dala hið minnsta. Fyrirtækið greindi frá því fyrr í mánuðinum að það ætlaði að gefa milljónirnar til ríkisstjórna og óháðra félagasamtaka á svæðinu yfir nokkurra ára skeið til þess að hjálpa fjölskyldunum og samfélög- unum sem slysin tvö bitnuðu á. Fyrra slysið varð í október þegar vél Lion Air hrapaði í Jövuhaf með þeim af leiðingum að allir 189 um borð fórust. Seinna slysið varð þegar vél Ethiopian Airlines hrapaði í Keníu og allir 157 um borð fórust. – þea Boeing styrkir um 12 milljarða SÚDAN Herforingjastjórnin í Súdan, sem tók við eftir að Omar al-Bashir forseta var steypt af stóli í apríl, og mótmælendahreyfingin sem hefur mótmælt bæði al-Bashir og herfor- ingjastjórninni, undirrituðu í gær samkomulag um deilingu valda. Til- kynnt var um samkomulagið fyrr í mánuðinum en alls óvíst hvort af undirritun yrði. Viðræður á milli mótmælenda og herforingjastjórnarinnar sigldu í strand í júní. Að minnsta kosti 128 fórust í árásum hermanna á mótmælendur við varnarmála- ráðuneytið í Kartúm, samkvæmt læknum á bandi mótmælenda. Hins vegar tókst erindrekum nágranna- ríkja að miðla málum í deilunni. Samkomulagið gengur út á að fylkingarnar tvær deili völdum í ríkinu næstu þrjú árin. Eftir það yrði kosin ný ríkisstjórn og al-Bas- hir-tíminn verði alfarið að baki. Mohamed Hamdan Dagalo, vara- forseti herforingjastjórnarinnar, sagðist ánægður með samkomu- lagið í gær og Ibrahim al-Amin, einn leiðtoga mótmælenda, sagði það marka tímamót í sögu Súdans. „Við viljum stöðugt Súdan af því við höfum þurft að þjást mikið vegna þessarar óreiðu,“ hafði Reuters eftir al-Amin. –þea Samkomulag undirritað í Súdan TÆKNI Sérvitri auðjöfurinn Elon Musk og fyrirtæki hans NeuraLink kynntu í fyrrinótt afrakstur rann- sóknarvinnu sinnar í fyrsta sinn. NeuraLink hefur unnið fyrir lukt- um dyrum að því að þróa leiðir til þess að tengja mannsheilann beint við tölvur og gervigreind. Fyrirtæk- ið hefur nú sótt um leyfi hjá yfir- völdum í Bandaríkjunum til þess að hefja prufur á fólki og vonast er til að það gerist áður en árið er úti. Hingað til hefur tæknin ekki verið prófuð nema á dýrum. Einna helst hefur fyrirtækið gert prufur á rottum. Musk sagði frá því að fyrir- tækið hefði þó náð að gera apa kleift að stýra tölvu með hugaraf linu einu. „Markmiðið er að skapa samlífi með gervigreind. Jafnvel í bjart- sýnustu framtíðarsýn bendir allt til þess að gervigreindin spæni fram úr mannkyninu og skilji það eftir,“ sagði Musk. Til þess að fyrirbyggja það þyrfti mannkynið að tengjast gervigreindinni og þannig skapa eins konar ofurgreind í mannsheil- anum sjálfum. Markmiðið með kynningunni í fyrrinótt var einkum að fá f leiri rannsakendur og sérfræðinga til liðs við fyrirtækið. Græjan sem NeuraLink hefur nú þróað er lítill 3.000 rafskauta nemi sem tengdur er við sveigjan- lega og afar þunna þræði. Neminn getur fylgst með virkni um þúsund taugafruma og þar sem þræðirnir eru sveigjanlegir heldur NeuraLink því fram að tæknin dragi úr líkum á heilaskaða vegna þess að neminn getur hreyfst með heilanum innan höfuðkúpunnar. Öfugt við til að mynda tækni Blackrock Micro- systems sem styðst við örnálar. „Það er ekki eins og við munum strax búa yfir einhverjum stórkost- legum tauganema og getum tekið yfir heilann þegar í stað. Þetta mun taka langan tíma. En fyrir þá sem það kjósa mun tæknin að endingu geta boðið upp á samlífi við gervi- greind,“ sagði Musk. Eins og stendur getur NeuraLink einungis komið nemanum fyrir með því að bora gat í höfuðkúpu viðkomandi. Það verður tilfellið með fyrstu manneskjurnar sem gefa kost á sér í prufur, ef af verður. Tengingin verður heldur ekki þráð- laus, að minnsta kosti í bili, heldur verður heilinn tengdur við tölvu með USB-C snúru. Vissulega er NeuraLink ekki fyrsta fyrirtækið til þess að rann- saka og áforma tengingu heilans við tölvur. Áður hafa rannsakendur náð að tengja hreyfihamlaða og gera þeim kleift að stýra til að mynda tölvumúsum og gerviútlimum. Breska ríkisútvarpið hafði eftir Andrew Hires, taugalíffræðingi hjá háskólanum í Suður-Kaliforníu, að NeuraLink hafi litið til þess besta sem þróað hefur verið hingað til og ýtt tækninni áfram að markverðu leyti. „Stærsta byltingin er þróun nema sem er þróaðari en það sem nú býðst.“ Þá sagði Krittika D’Silva, gervi- greindarsérfræðingur hjá banda- rísku geimferðastofnuninni NASA, að tæknin væri afar spennandi þar sem í henni felst minna inngrip en hefur tíðkast hingað til. thorgnyr@frettabladid.is Musk borar inn í heila NeuraLink, fyrirtæki í eigu Elons Musk, kynnti afrakstur vinnu sinnar að því að tengja mannsheilann við tölvur og gervigreind. Óttast komandi yfirburði gervigreindar og vilja skapa ofurgreind með samlífi manns og gervigreindar.  Þessi tölvuteikning sýnir svo sem ekki nákvæmlega hvernig græjan frá NeuraLink mun virka. NORDICPHOTOS/GETTY Mótmæli hafa staðið yfir frá því í desember. NORDICPHOTOS/GETTY 1 8 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 7 1 -7 C 5 0 2 3 7 1 -7 B 1 4 2 3 7 1 -7 9 D 8 2 3 7 1 -7 8 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 1 7 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.