Fréttablaðið - 18.07.2019, Síða 8
Áform um friðlýsingar
Umhverfisstofnun, í samstarfi við landeigendur jarðanna Rauðár,
Ljósavatns og Hriflu, og sveitarfélagið Þingeyjarsveit, kynnir hér
með áform um friðlýsingu Goðafoss í Þingeyjarsveit.
Jafnframt kynnir Umhverfisstofnun áform um friðlýsingu jarð
anna Heyskála, Hrafnabjarga og Unaós í Hjaltastaðaþinghá á
Fljótsdalshéraði í samstarfi við landeigendur og sveitarfélag.
Áform um friðlýsingu eru kynnt í samræmi við 2. mgr. 38. gr. nátt
úru verndarlaga en gert er ráð fyrir að svæði sem ekki eru á fram
kvæmdaáætlun náttúruminjaskrár skuli kynnt sérstaklega.
Frestur til að skila athugasemdum við áformin er til og með 18.
september 2019. Frekari upplýsingar er að finna á www.ust.is.
Athugasemdum við áformin má skila á vef Umhverfis stofnunar,
með tölvupósti á netfangið ust@ust.is eða með pósti til
Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.
500
400
300
200
100
0
20
14
20
15
20
16
20
17
20
18
Q
1
20
19
20
14
20
15
20
16
20
17
20
18
Q
1
20
19
20
14
20
15
20
16
20
17
20
18
Q
1
20
19
✿ Útlán bankanna til einstaklinga
n Landsbankinn n Íslandsbanki n Arion banki Heimild: Landsbankinn
239
291
321
357
414 427
263 273
286 299
319 324 321 325 337
365
400 400
Aðsókn í Jarðböðin á Mývatni
dróst saman um tæp 7 prósent í
júní og það sem af er júlí miðað við
sama tímabil í fyrra. Þetta segir
Guðmundur Þór Birgisson, fram-
kvæmdastjóri Jarðbaðanna, í sam-
tali við Markaðinn. Hann segir að
aðsóknin á fyrri árshelmingi hafi
verið svipuð og á sama helmingi
síðasta árs en þó gæti örlítillar
fækkunar.
Í fyrra lögðu alls 210 þúsund
manns leið sína í Jarðböðin. Hagn-
aður félagsins nam 313 milljónum
króna og jókst lítillega á milli ára
en hann nam 294 milljónum á árinu
2017. Heildarvelta félagsins jókst
um 100 milljónir en hún nam 922
milljónum króna samanborið við
821 milljón króna á árinu 2017.
Stærstu hluthafarnir í Jarðböðun-
um eru fjárfestingafélagið Tækifæri,
sem er aðallega í eigu KEA, Íslenskar
heilsulindir, sem er dótturfélag Bláa
lónsins, og Landsvirkjun. Í árslok
2018 voru Jarðböðin metin á um 4,6
milljarða króna í bókum Tækifæris
sem fer með 43,8 prósenta hlut. Í
upphafi árs 2018 voru hluthafar í
félaginu 74 en 68 í lok árs. – tfh
Sumargestum Jarðbaðanna
fækkar um sjö prósent
Jarðböðin. LJÓSMYND/JARÐBÖÐIN
Vöxtur í útgáfu íbúðalána hefur
að jafnaði verið þrefalt meiri hjá
Landsbankanum en hinum tveim-
ur viðskiptabönkunum á síðustu
fimm árum. Í úttekt hagfræði-
deildar Landsbankans kemur fram
að á tímabilinu 2014 til 2018 hafi
útlánavöxtur bankans að meðaltali
numið 15 prósentum á ári. Þannig
hefur lánabók bankans vaxið um
79 prósent á tímabilinu.
Til samanburðar nam árlegur
vöxtur hjá Arion banka 6 pró-
sentum og 5 prósentum hjá Íslands-
banka. Landsbankinn var raunar
með smæstu lánabókina þegar kom
að lánum til einstaklinga fyrir og
eftir fjármálahrunið en nú er hún
orðin stærst.
Heildarlán Landsbankans til ein-
staklinga námu 239 milljörðum
króna árið 2014 en hafa nú vaxið
í 427 milljarða. Á sama tímabili
hafa útlán Íslandsbanka vaxið úr
263 milljörðum í 324 milljarða og
útlán Arion banka úr 321 milljarði
í 400 milljarða.
Lilja Björk Einarsdóttir, banka-
stjóri Landsbankans, segir í sam-
tali við Fréttablaðið að aukninguna
megi skýra þannig að Landsbank-
inn hafi boðið góð kjör á réttum
tíma
„Við vorum með mikla markaðs-
hlutdeild og marga góða og trygga
viðskiptavini. Á síðustu árum,
þegar hagkerfið fór að snúast meira
um uppbyggingu húsnæðis fóru
viðskiptavinir að líta til okkar og
við gættum þess að vera með mikið
vöruframboð og samkeppnishæf
kjör,“ segir Lilja Björk.
„Við höfum einnig horft til þess
að geta veitt ungum kaupendum og
fyrstu kaupendum góða þjónustu.
Landsbankinn býður viðbótar-
lán og þar með hærra lánshlutfall
Þrefalt meiri vöxtur í útgáfu íbúðalána
Á síðustu fimm árum
hefur vöxtur í útlánum
til einstaklinga verið
að jafnaði þrefalt meiri
hjá Landsbankanum en
hinum tveimur bönk-
unum. Bankastjóri
Landsbankans segir
bankann hafa boðið
góð kjör á réttum tíma.
Lilja Björk segir að nær öll aukningin á síðustu mánuðum hafi verið í óverðtryggðum lánum. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
fyrir fasteignaviðskipti ákveða að
klára viðskiptin hjá okkur.“
Þróunin hefur haldið áfram á
þessu ári með 17 prósenta vexti
á milli fyrstu fjórðunga áranna
2018 og 2019 en íbúðalán eru lang-
stærstur hluti vaxtarins. Aukn-
ingin er nær öll í óverðtryggðum
lánum að sögn Lilju Bjarkar en
það er í takt við breyttar væntingar
um gang hagkerfisins. Vinsældir
óverðtryggðra lána er önnur skýr-
ing á miklum útlánavexti bankans.
„Við eigum mjög erfitt með að
keppa við lífeyrissjóðina í breyti-
legum verðtryggðum lánum. Það
eru ýmsar ástæður fyrir því sem
hafa verið tíundaðar í fjölmiðlum
undanfarið og má nefna hærri
skatta og gjöld sem rekstur banka
verður að standa undir. Aftur á
móti erum við mjög samkeppnis-
hæf í óverðtryggðum breytilegum
lánum og undanfarið hefur fólk
fært sig yfir í þess konar lán.“
Markaðurinn greindi frá því
í byrjun júlí að lausaf járstaða
stóru viðskiptabankanna þriggja
í krónum hefði versnað á síðustu
mánuðum. Hertar kröfur drægju
úr getu bankanna til þess að auka
útlán.
Lausaf járeignir bankanna –
Arion banka, Íslandsbanka og
Landsbankans – í krónum hafa
dregist saman um tugi prósenta
á síðustu árum. Í lok fyrsta árs-
fjórðungs var lausafjárhlutfallið
lægst hjá Landsbankanum, 46
prósent, 93 prósent hjá Íslands-
banka og 106 prósent í tilfelli
Arion banka. Til samanburðar
var sambærilegt hlutfall á bilinu 90
til 193 prósent á árinu 2016.
Aðspurð segir Lilja Björk að
Landsbankinn hafi meðal ann-
ars fjármagnað íbúðalánin með
útgáfu sértryggðra skuldabréfa.
og takturinn í þeirri útgáfu hald-
ist mjög vel í hendur við aukningu
í íbúðalánum. Bankinn sjái fram á
að það muni áfram ganga.
Þorsteinn Friðrik
Halldórsson
tfh@frettabladid.is
sem hentar sérstaklega þeim sem
eru að kaupa sína fyrstu eign og
þá höfum við verið að nýta okkur
þá þekkingu sem við höfum á við-
skiptasögu viðskiptavina okkur til
að setja saman lánin á hagkvæman
hátt og bjóða samkeppnishæf kjör.
Á sama tíma hefur áhætta okkar af
útlánum til einstaklinga ekki aukist
þegar horft er til vanefnda og veð-
hlutfalls þrátt fyrir að heildarfjár-
hæðirnar hafi aukist.“
Þá segir Lilja Björk að það hafi
skipt lykilmáli að hafa útlánaferl-
ana skilvirka til að tryggja að fólk
geti klárað fasteignaviðskiptin með
skjótum hætti. „Þetta snýst ekki
einungis um að bjóða samkeppnis-
hæf kjör heldur einnig um það að
þjónustan gangi hratt og örugg-
lega fyrir sig. Við höfum fylgt eftir
stefnu í þessum málum og sjáum
árangurinn af því að margir af þeim
sem leita til nokkurra lánastofnana
Þegar hagkerfið fór
að snúast meira um
uppbyggingu húsnæðis fóru
viðskiptavinir að líta til
okkar og við gættum þess að
vera með samkeppnishæf
kjör.
Lilja Björk Einarsdóttir,
bankastjóri Landsbankans
4,6
milljarða króna eru Jarð-
böðin metin á í bókum
hluthafa.
MARKAÐURINN
1 8 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
8
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
7
1
-7
7
6
0
2
3
7
1
-7
6
2
4
2
3
7
1
-7
4
E
8
2
3
7
1
-7
3
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K