Fréttablaðið - 18.07.2019, Blaðsíða 16
Á Íslandi eru til allnokkur fjöll sem heita Kaldbakur. Hæstur er sá við austan-verðan Eyjafjörð (1.173 metrar) upp af Grenivík, í Vestur-Skaftafellssýslu er annar (732 m) og sá þriðji er norðan við Kaldbaksvík á Ströndum. Síðast
en ekki síst er það Kaldbakur milli Arnarfjarðar og
Dýrafjarðar sem jafnframt er hæsta fjall Vestfjarða,
998 metra hátt. Úr fjarlægð líkist fjallið bát á hvolfi
og er glæsilegt á að líta, en rétt hjá eru Lokinhamrar,
eitt einangraðasta býli á Íslandi, og Tjaldanesfjöll
sem helst líkjast indíánatjöldum. Nafnið Vestfirsku
Alparnir hefur oft verið notað um þetta svæði en
þótt Kaldbakur tróni hæst er hann með smá minni-
máttarkennd því hann vantar tvo metra upp á að
ná 1.000 metra hæð . Það má leysa með því að klífa
myndarlega vörðu á toppnum eða hreinlega teygja
úr sér. Efst er Kaldbakur flatur eins og mörg vestfirsk
fjöll, en hlíðarnar eru snarbrattar og sundurskornar.
Í allar áttir býðst gríðarlegt útsýni yfir stóran hluta af
Vestfjörðum og suður á Snæfellsnes en sérstaklega þó
yfir Ketildali við sunnanverðan Arnarfjörð og norður
í Dýrafjörð. Það er tiltölulega auðvelt að ganga á
Kaldbak, ekki síst ef ekið er eftir torfærum jeppavegi
upp í Kvennaskarð sem skilur að Dýrafjörð og Arnar-
fjörð. Í skarðinu er hægt að skilja bílinn eftir og tekur
gangan upp og niður ekki nema fjórar klukkustundir.
Skemmtilegra er þó að hefja gönguna Arnarfjarðar-
megin við mynni Fossdals og ganga norður eftir
jeppaslóðanum upp að skarðinu og þaðan á tindinn.
Þetta lengir gönguna um helming en er vel þess virði,
enda Fossdalur einkar fallegur og gróinn. Einn-
ig má hefja gönguna Dýrafjarðarmegin við bæinn
Kirkjuból og fylgja sama jeppaslóða í suður. Þessar
leiðir eru einnig mjög skemmtilegar fyrir fjallahjól og
náttúruhlaupara. Er þá tilvalið í sömu ferð að hjóla
fyrir Lokinhamra og eftir svokölluðum Kjaransvegi
að Þingeyrum. Milli Stapadals og Lokinhamra liggur
vegurinn í sjávarmálinu og því verður að sæta
sjávarföllum til að komast leiðar sinnar.
Fyrir þá sem vilja spreyta sig á f leiri fjall-
göngum í Vestfirsku Ölpunum þá bjóða
Tjaldanesfjöllin upp á veislu, en einnig
er tilvalið að skoða í leiðinni fossinn
Dynjanda innst í Arnarfirði.
Kaldbakur
í Vestfirsku
Ölpunum
Vestfirsku Alparnir séðir frá sunnanverðum Arnarfirði. Kaldbakur er fjallið til vinstri með snjósköflunum og Tjaldanesfjöll til hægri. MYND/TÓMAS GUÐBJARTSSON
Fossdalur til vinstri og Stapadalur til hægri en handan við Arnarfjörð eru Ketildalir. MYND/ÓLAFUR MÁR BJÖRNSSON
Útsýni af Kaldbak er frábært. Hér er horft til norðurs ofan í Dýrafjörð. MYND/ÓLAFUR MÁR BJÖRNSSON
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð-
læknir og
náttúruunnandi
og Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari
TILVERAN
1 8 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R16 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
8
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
7
1
-7
2
7
0
2
3
7
1
-7
1
3
4
2
3
7
1
-6
F
F
8
2
3
7
1
-6
E
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K