Fréttablaðið - 18.07.2019, Qupperneq 20
Ma n n k y n i ð s t e n d u r f rammi f y r ir g r íða r-legum áskorunum sam-
fara hamfarahlýnun. Meðal þess
sem nauðsynlegt er að gera til að
bregðast við henni eru orkuskipti,
frá jarðefnaeldsneyti í grænni
orku. Þetta mun óhjákvæmi-
lega auka notkun rafmagns. Við
Íslendingar erum vissulega heppin
þegar kemur að orkuauðlindum og
ættum að vera óvenju vel í stakk
búin til að takast á við nýjan veru-
leika (þó er sjaldnast allt sem sýn-
ist). Að undanförnu hafa þó birst
fréttir af því að almenningur geti
átt von á orkuskorti vegna vax-
andi eftirspurnar. Það eru bæði
óþægileg og nokkuð óvænt tíðindi
fyrir þau sem hafa álitið orkuauð-
lindir okkar nánast botnlausan
brunn. Þær eru hins vegar mjög
langt frá því að vera óþrjótandi.
Við þurfum því að fara vel með
þær og taka meðvitaðar ákvarð-
anir um hvernig við viljum nota
þær. Hvort sem nýlegar fréttir eru
raunverulegt vandamál eða leið til
að knýja á um frekari virkjanir er
nauðsynlegt að bregðast hratt við.
Við þurfum að móta stefnu þar
sem áætlað er fyrir þörf samfara
nauðsynlegum og metnaðarfull-
um markmiðum í loftslagsmálum.
Setja þarf orkuþörf almennings,
stofnana og samfélagslegra mikil-
vægra fyrirtækja í forgang; hvetja
til nýtni. En við þurfum líka að
hafa kjark til að ákveða í hvað við
ætlum ekki að nota orkuna, ann-
ars lendum við f ljótt í ógöngum.
Eitt nýjasta æðið í atvinnumál-
um okkar eru svokölluð gagnaver.
Gríðarlega orkufrek fyrirbæri,
sem skapa vissulega störf en geta
um leið þrengt að almennum lífs-
gæðum, gert áætlanir okkar um
heilbrigð orkuskipti erfiðari og
verið ógn við náttúru landsins.
Þá eru þau beinlínis óverjandi
ef sífellt stærri hluti af orkunni
okkar er t.d. nýttur þar til að
grafa eftir rafmyntum á borð við
Bitcoin.
Þar sem íslenskar orkuauðlindir
eru langt því frá takmarkalausar
mun stefnuleysi stjórnvalda setja
pressu á sífellt meiri orkufram-
leiðslu og knýja á um leit að nýjum
virkjunarkostum.
Sífellt f leiri og sterkari raddir
heyrast sem leggjast gegn gegnd-
arlausum fórnum á landinu í þágu
rafmagnsframleiðslu. Ekki er nóg
með að slíkar fórnir séu oft óaftur-
kræfar, þá spilla þær þeirri auðlind
sem ósnortin náttúra er. Þessar
raddir tala fyrir mikilvægum
sjónarmiðum. Við þurfum því að
bregðast hratt við – ekki láta lög-
málið um framboð og eftirspurn
ráða alfarið. Það mun sundra þjóð-
inni og getur valdið óbætanlegu
tjóni á íslenskri náttúru.
Um nauðsyn orkustefnu
Fæstir vita að lyf javerð til neytenda úr apótekum hefur frá árinu 2003 lækkað um
helming að raunvirði og lyf ja-
verð á Íslandi er á pari við hin
Norðurlöndin. Þetta er staðfest
í nýrri skýrslu Hagfræðistofn-
unar Háskóla Íslands um lyfsölu á
Íslandi. Þrátt fyrir þennan árangur
eru tækifæri til að gera enn betur,
en hvernig?
Betri þjónusta á sama verði
Bæði kannanir Ríkisendurskoð-
unar á lyfjaverði og gögn frá OECD
undanfarin ár sýna að Ísland er að
jafnaði á pari við verð á Norður-
löndunum. Árið 2018 var 3% verð-
munur, að teknu tilliti til þess að
lyf á Íslandi bera hámarks virðis-
aukaskatt en svo er ekki á öllum
Norðurlöndunum.
Þó að lyfjaverð hafi lækkað á
Íslandi og sé sambærilegt við það
sem er á hinum Norðurlöndunum
erum við í fremstu röð þegar kemur
að þjónustu apóteka. Aðgengi að
apótekum á Íslandi er mjög gott.
Sem dæmi má nefna að apótek er í
innan við fimm mínútna aksturs-
fjarlægð fyrir næstum alla sem
búa í þéttbýli auk þess sem f leiri
apótek eru á hvern íbúa á Íslandi
en á hinum Norðurlöndunum.
Lyfja leggur áherslu á að bjóða lágt
lyfjaverð um allt land, við rekum
tæplega helming allra apóteka
hringinn í kringum landið þó hlut-
deild Lyfju á markaði sé tæplega
þriðjungur.
Á Íslandi starfa einnig f leiri
lyfjafræðingar á hvern íbúa en að
jafnaði í öðrum iðnríkjum, sem
er vanmetin staðreynd. Lyf ja-
fræðingar eru lykilstarfsmenn í
íslensku heilbrigðisþjónustunni,
hvort sem er í apótekum Lyfju, á
heilbrigðisstofnunum eða annars
staðar. Hlutverk lyfjafræðinga er
meðal annars að tryggja að fólk fái
réttu lyfin, á réttu verði og að veita
leiðbeiningar um hvernig þau nýt-
ast best.
Þeir lyfjafræðingar sem ég hef
kynnst eru hógværir og ólíklegir til
að berja sér á brjóst en staðreyndin
er sú að lyfjafræðingar hafa undan-
farin fimmtán ár unnið þrekvirki í
íslenskri heilbrigðisþjónustu þegar
kemur að hagkvæmni og þjónustu.
Lækkum lyfjaverð aftur um
helming – tvíþætt áskorun!
Lyfja var brautryðjandi lægra lyfja-
verðs árið 1996 þegar apótekið
var stofnað en í dag er lyfjaverði á
Íslandi stýrt af lyfjagreiðslunefnd.
Þó að staðan sé góð á Íslandi teljum
við hjá Lyfju að mögulegt sé að ná
enn meiri árangri. Við viljum því
setja fram tvær áskoranir, aðra til
okkar sjálfra en hina til stjórnvalda.
Samkvæmt skýrslunni frá Hag-
fræðistofnun Háskóla Íslands er
rúmur helmingur seldra lyfseðils-
skyldra lyfja ódýrasta lyf í sínum
f lokki, en það er hægt að gera enn
betur. Í þessu felst áskorun sem
Lyfja ætlar taka til að tryggja lægra
lyfjaverð. Átakið snýst um að fræða
viðskiptavini um samheitalyf og
bjóða þeim alltaf ódýrari valkosti
eða samheitalyf sé það mögulegt.
Þessu átaki mun fylgja fræðsla til
viðskiptavina um samheitalyf og
hvernig virkni þeirra er sú sama og
í frumlyfinu. Með þessu teljum við
okkur geta lækkað lyfjakostnað
viðskiptavina okkar töluvert.
Sk ý r sla Hag f r æðistof nu na r
leiðir einnig í ljós að á Íslandi
greiða neytendur tæplega 60%
af lyfjakostnaði úr eigin vasa en
innan OECD er hlutfallið tæplega
40%. Íslendingar þurfa þannig að
greiða helmingi hærra hlutfall
lyfjakostnaðar sjálfir. Með því að
breyta greiðsluþátttökukerfinu
á Íslandi til samræmis við önnur
OECD-lönd þannig að íslenskir
neytendur greiði minna af lyfja-
kostnaði sjálfir er hægt að tryggja
að f leiri fái öll lyf sem þeir þurfa.
Slík breyting myndi kosta ríkissjóð
tvo til þrjá milljarða króna árlega
en myndi skila sér margfalt til baka
í auknum lífsgæðum og við skorum
á stjórnvöld að gera það.
Það er hægt að lækka lyfjaverð
til neytenda aftur um helming. Það
er áskorun að gera það. Lyfja tekur
áskoruninni og hvetur stjórnvöld
til að gera slíkt hið sama. Þannig
getum við lækkað lyfjaverð.
Helmingi ódýrari lyf en hægt
að gera helmingi betur
Sumir málsvarar ríkisstjórnar-innar kvarta nú sáran undan því að í almennri umræðu um
pólitík er æ sjaldnar sett sama-
semmerki milli ríkisstjórnarinnar
og frjálslyndra hugmynda, en því
oftar milli hennar og fortíðar og
milli hennar og gæslu sérhagsmuna.
Óli Björn Kárason lýsir þessum
áhyggjum vel í nýlegri Morgun-
blaðsg rein. Þær v irðast jaf n-
vel þrúgandi þegar hann segir:
„Frjálslyndar skoðanir fyrri tíma
eru sagðar púkalegar og eigi ekki
erindi við samtímann, hvað þá
framtíðina.“
Þing maður inn nef nir síðan
nokkur umkvörtunarefni sem
hann telur að sýni villandi hug-
takanotkun þeirra sem ekki fylgja
ríkisstjórninni að málum.
Fyrsta umkvörtun
Í fyrstu umkvörtun sinni fjallar
þingmaðurinn um stjórnlyndi og
segir: „Góðhjartaðir stjórnmála-
menn, undir fána hins nýfengna
frjálslyndis, leggja verulega á sig
að hafa vit fyrir samferðamönnum
sínum. Í hugum þeirra er það lífs-
nauðsynlegt að „barnfóstran“ sé
stöðugt á vaktinni svo almenn-
ingur fari sér ekki að voða.“
Mannanafnanefnd er ljómandi
gott dæmi um opinbera barnfóstru
af því tagi sem þingmaðurinn
nefnir. Í vor fengu þingmenn Sjálf-
stæðisf lokksins tækifæri til þess
að greiða atkvæði á Alþingi með
því að segja henni upp. Langf lestir
þeirra greiddu atkvæði á móti. Þeir
gátu sem sagt ekki hugsað sér að
vera án barnfóstrunnar.
Í þessu samhengi segir þing-
maðurinn einnig: „Hið nýfengna
frjálslyndi kallar á að skattar séu
lagðir á vöru og þjónustu í nafni
umhyg g ju enda almenning ur
stjórn og sinnulaus um eigin vel-
ferð og heilbrigði.“
Þetta er skrifað aðeins nokkrum
dögum eftir að ríkisstjórnin, sem
þingmaðurinn styður í einu og
öllu, ákvað að skoða nánar tillögur
um sykurskatt á alla mögulega
framleiðslu nema þá sem Mjólkur-
samsalan stendur fyrir. Minnir á
fyrri tíma þegar lagður var tollur
á allar skóf lur, nema f lórskóf lur.
Önnur umkvörtun
Í öðru umkvörtunarefni sínu segir
þingmaðurinn að frjálslyndi sam-
tímans felist í því að grafa undan
krónunni.
Það peningakerf i sem þing-
maðurinn, ríkisstjórnin og Mið-
flokkurinn eru að verja felur í sér að
eigendur stóru útgerðarfyrirtækj-
anna mega starfa utan krónuhag-
kerfisins og njóta ávinnings af því.
En verkafólkið sem hjá þeim vinnur
er bundið í krónuhagkerfinu og þarf
að færa þær fórnir sem því fylgja.
Ég leyfi mér að efast um að þing-
maðurinn trúi því sjálfur að sér-
hagsmunagæslu af þessu tagi megi
tengja við nútímann og frjálslynda
hugsun. Jafnvel í fullveldislögunum
frá 1918 var ákvæði um aðild Íslands
að Norræna myntbandalaginu. Sú
aðild var eins og kunnugt er ein af
helstu forsendum nýsköpunarbylt-
ingarinnar í sjávarútvegi í byrjun
síðustu aldar.
Þriðja umkvörtun
Þriðja umkvörtunarefni þing-
mannsins er að stöðugt þyngri
álögur á sjávarútveginn séu kapps-
mál nútímalegs stjórnmálamanns.
Fyrir utan hið sjálfsagða að fisk-
veiðiauðlindin sé sameign íslensku
þjóðarinnar snýst ágreiningurinn
um sjávarútveginn fyrst og fremst
um tvennt: Þingmaðurinn, ríkis-
stjórnin og Miðflokkurinn vilja að
veiðiréttur útgerðanna sé ótíma-
bundinn en andstæðingarnir
að hann sé afmarkaður í tíma.
Þingmaðurinn vill að endurgjald
útgerðanna felist í viðbótar tekju-
skatti en andstæðingarnir vilja að
verðmæti veiðiréttarins ráðist á
markaði. Hvar er frjálslyndið? Hvar
er nútíminn?
Fjórða umkvörtun
Fjórða umkvörtun þingmannsins
er vegna þeirra vandræða sem Sjálf-
stæðisflokkurinn og ríkisstjórnin
eiga í með þriðja orkupakkann.
Þingmaðurinn snýr sig út úr því
með því að segja: „Nýfrjálslyndi á
ekki samleið með hugmyndum um
fullveldi þjóðar og sjálfsákvörð-
unarrétt.“ Einföld afgreiðsla.
En hvað ætli það sé í málf lutn-
ingi andstæðinganna sem þing-
maðurinn telur stangast á við full-
veldi þjóðarinnar. Jú, það er að þrír
f lokkar í stjórnarandstöðu lýstu
yfir fullum stuðningi við tillögu
utanríkisráðherra Sjálfstæðis-
f lokksins um innleiðingu þriðja
orkupakkans.
Ég spyr bara í einfeldni minni:
Finnst þingmanninum í alvöru að
röksemdafærsla af þessu tagi sé
frambærileg á 21. öld?
Fimmta umkvörtun
Í fimmta umkvörtunarefni sínu
finnst þingmanninum að andstæð-
ingar Sjálfstæðisflokksins sýni ekki
nægjanlegt umburðarlyndi gagn-
vart öndverðum skoðunum innan
hans um þriðja orkupakkann.
Sannleikurinn er sá að vegna
mikilla átaka innan Sjálfstæðis-
f lokksins gat ríkisstjórnin ekki
látið greiða atkvæði um málið fyrr
en fullir tveir þingvetur voru liðnir.
Þá fyrst og eðlilega var á það bent að
álitamál væri hvort klofinn flokk-
urinn gæti valdið því mikilvæga
verkefni í ríkisstjórn að viðhalda
EES-samningunum.
Sjötta umkvörtun
Sjötta umkvörtunarefnið er að
þingmanninum finnst að sjálfstæð
utanríkisviðskiptastefna sé eitur í
æðum nýfrjálslyndra.
Þó að þingmaðurinn tali ekki
skýrt um hvað hann meinar með
þessu má ætla að hann sé að tala
gegn fjölþjóðasamvinnu en fyrir
tvíhliða viðskiptasamningum í
anda Brexit og Trumps.
Flestar þjóðir drógu þann lærdóm
af kreppunni á fyrri hluta síðustu
aldar að fjölþjóðasamvinna yrði að
leysa tvíhliða viðskiptasamninga af
hólmi til að tryggja sem mest við-
skiptafrelsi. Andstæðingarnir sem
þingmaðurinn kvartar undan eru
fylgjandi þeirri hugmyndafræði.
Það var Sjálfstæðisflokkurinn einn-
ig, en nú er hann klofinn í því efni.
Hvar er gamli tíminn? Og hvar er
nýi tíminn?
Niðurstaða
Hafa verður í huga að Óli Björn
Kárason er einn áhrifaríkasti hug-
myndasmiðurinn í röðum ríkis-
stjórnarflokkanna. Samt sem áður
er það svo að þessar umkvartanir
sýna að hann verður að leggja sig
miklu betur fram vilji hann raun-
verulega tengja hugmyndaheim
ríkisstjórnarinnar og Sjálfstæðis-
f lokksins við nútímann og frjáls-
lyndi.
Í besta falli lýsa þessar umkvart-
anir umhyggju fyrir indælu (fyrri
tíma) frjálslyndi í þágu hinna fáu.
Frjálslyndi fyrir hina fáu?
Þorgerður
Katrín
Gunnarsdóttir
formaður
Viðreisnar
Það er hægt að lækka lyfja-
verð til neytenda aftur um
helming. Það er áskorun að
gera það. Lyfja tekur áskor-
uninni og hvetur stjórnvöld
til að gera slíkt hið sama.
Sigríður
Margrét
Oddsdóttir
framkvæmda-
stjóri Lyfju
Logi Már
Einarsson
formaður Sam-
fylkingarinnar
Við þurfum því að bregðast
hratt við – ekki láta lögmál-
ið um framboð og eftirspurn
ráða alfarið.
Mannanafnanefnd er ljóm-
andi gott dæmi um opinbera
barnfóstru af því tagi sem
þingmaðurinn nefnir.
1 8 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R20 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
8
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
7
1
-8
1
4
0
2
3
7
1
-8
0
0
4
2
3
7
1
-7
E
C
8
2
3
7
1
-7
D
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K